Vísir - 19.07.1967, Page 5
V1 SIR . Miðvikudagur 19. júlí 1967.
5
„Mér til skelfingar urðu styttumar minni og minni...“
GIACOMETTI
jþað er staðsett eins og klaust-
ur meðal runna eöa öllu
fremur eins of Austurlanda
hof.
Maeght-menningarmiðstöðin í
Saint-Paul-de-Vence í Frakk-
landi er eitt glæsilegasta safn
nútímalistar í Evrópu: Braque,
Miró, Chagall, Kandinsky, Cald-
er og mörg helztu verka Giacom
etti er þar aö finna.
Hin nýtízkulega safnbygging
er umkringd fögrum göröum og
héraðið sjálft eitt hið fegursta
í Frakklandi.
Hugmyndin aö stofnuninni
virðist vera sú aö skapa nokk-
urs konar vé listarinnar og um
leið, aö fólk sæki þangað til
aö njóta hennar.
Sambúö listanna er hpfð i
huga. Þar eru haldnir tónleikar,
ljóðakvöld auk tíðra myndlista-
sýninga.
Til Maeght-stofnunarinnar
streymir fólk hvaðanæva að.
Fimm til sex hundruð manns
eða meir, daglega, að jafnaði frá
því, að hún var opnuð vorið
1964.
Sumarleyfisstemning margs
áhyggjulauss ferðalangsins yfir-
gefur hann, þegar hann stendur
andspænis listsköpun vorra
tíma, — einkum í sal Giacom-
etti.
Kraftur verka hans er slíkur, /
að handan yfir sólskinið garð-
ana, gosbrunnana, ærsl barn-
anna, varöveita þau ádrepu sína
og hinn upprunalega boðskap
sinn og fá okkur til þess að
leggja fyrir okkur hinar alvar-
legustu og kvíðvænlegustu
spurningar, sem maðurinn hlýt-
ur að halda áfram að leggja
fyrir sig, ef hann vill vera vök
ull gagnvart umheiminum og
sjálfum sér. Sfinxinn er vissu-
lega þar, mitt á meðal brosandi
garöa.
JJolst.ebro á Jótlandi byggja
23 þúsund íbúar. Það er
ekki stór bær jafnvel á ís-
lenzkan mælikvarða. Fyrir
tveim árum réöist bæjarfélagið
í það aö kaupa eitt verka
Giacometti, á eina og hálfa
milljón ísl. króna.
Á sínum tíma vöktu þessi
kaup mikla athygli og deilur.
Nú er þessi stytta Giacometti
virðingartákn litla bæjarins.
Og bæjarfélagið heldur ó-
trautt áfram þeirri viðleitni
sinni að gera Holstebro að
menningarmiðstöð.
Alberto Giacometti fæddist
árið 1901 í'Stampa, litlu
þorpi, í ítalska hluta Sviss.
Þrettán ára gamall gerði hann
afbragðsgóö málverk og högg-
myndir í hefðbundnum stíl.
Eftir að hafa stundað nám í
höggmyndalist skamman tíma
ferðaðist hann til ftalíu þar sem
hann hreifst af egypzkri list og
renaissancemálurunum Giotto
og Cimabue.
Árið 1922 settist hann að í
París og bjó þar til æviloka,
en heimsótti fæðingarbæ sinn
einu sinni eða tvisvar á ári
hverju og þar lézt hann í janúar
mánuði í fyrra — aöeins 64 ára
gamall.
Nokkru eftir komuna til Par-
ísar tekur að gæta áhrifa frá
Kúbismanum í verkum hans.
Þannig vinnur hann, þar til i
kringum 1930, að breyting verð-
ur á. Um svipað leyti kynn-
ist hann Súrrealistunum og ger
ist þátttakandi í hreyfingu
þeirra. Þeir litu á hann sem
helzta myndhöggvara sinn og
frægð og frami fylgdu í kjölfar
þeirra sýninga, sem hann tók
þátt i með þeim. Verk hans frá
þeim tíma höfðu og hafa fram
á þennan dag mikil áhrif.
IPnn koma kaflaskil í lífi
Giacometti. Hann fer að
vinna eftir fyrirsætum. Fyrir
þessa „afturhaldssemi" sína var
hann útilokaður frá Súrrealista-
hreyfingunni. Fram til ársins
1948 eða í fimmtán ár gerði
hann enga tilraun til að sýna
verk sín opinberlega.
Á þessu tímabili hverfur hann
frá því að vinna eftir fyrir-
sætum og vinnur eftir minni í
þess staö.
„Mér til skelfingar urðu stytt-
urnar minni og minni. Stór
stytta fannst mér vera fölsk
og lítil óþolandi, og þá urðu
þær svo örlitlar, að þær urðu
að dufti við síðasta hnífsbragð-
ið. En stytturnar virtust þá að-
eins sannar, að þær væru smá-
ar.“
Þannig vann Giacometti
sleitulaust til ársins 1945. Upp
frá því verða stytturnar stærri.
„Mér til mikillar undrunar
komst ég aö því, að aðeins
háar og grannar voru þær rétt-
ar.“
Tjetta varð upphafið að per-
sónulegasta og veigamesta
þættinum í listsköpun Giacom-
etti. Um svipað leyti byrjar
hann einnig að mála eftir
margra ára hlé.
Þrjú tilbrigði eru mest ein-
kennandi fyrir þetta tímabil:
konan, sem stendur kyrr, gang-
andi maður og höfuð eða brjóst-
myndir.
Þrátt fyrir allmargar sýningar
á verkum hans bæði austanhafs
og vestan, og öll meiri háttar
listasöfn eigi verk eftir hann,
var Giacometti þó aðeins þekkt-
um meðal fámenns hóps listunn-
enda, allt fram á síðustu árin,
sem hann lifði.
Þeir Picasso voru um langt
skeið nánir vinir. Sagt er, að
Picasso hafi metið gagnrýni
hans meir en nokkurs annars
og jafnvel óttazt hana. Frönsku
rithöfundarnir Jean Genet og
Jean-Paul Sartre voru einlægir
aödáendur Giacometti og skrif-
uðu margt um hann. Ekki hvað
sízt hafa hinar stóru vfirlits-
sýningar á verkum hans und-
anfarin ár stuðlað að því, að
Giacometti er álitinn, af stöð-
ugt vaxandi aödáendahópi,
skipa öndvegissessinn í mynd-
list á okkar tímum
Um hann sagði Sartre áriö
1948.
„T-Tann skapar styttu sína í
Atíu skrefa fjarlægð, í tutt-
ugu skrefa fjarlægö og hvað
sem þið gerið, hún er þarna ...
Klassískri styttu kynnist mað
ur með því að nálgast hana.
Með hverju anda?i.aki sjást ný
smáatriði. þau einangrast, síðan
smáatriði smáatriðanna, endir-
inn verður sá, að maður týn-
ist í þeim. Styttu eftir Giacom-
etti er ekki hægt að nálgast.
Geriö ykkur ekki vonir um, að
þetta brjóst víkki út eftir því
sem þið komiö nær: það breyt-
ist ekki og þið hafið þá ein-
kennilegu tilfinningu að ganga
í sömu sporum ...
Hin upprunalega hreyfing
sköpunarinnar ‘, þessi stanz
lausa hreyfing, ósundurhlutuð,
sem hann túlkar svo vel með
mýkt hinna löngu lima, fara í
gegnum líkami E1 Greco...
þær eru betri en íþróttamaður
Praxitelesar .. Giacometti gef-
ur efni sínu þá einu sann-
mannlegu heild: sameiningu at-
hafnanna...
Við fyrsta augnakast getum
‘við haldið, aö um hina horuðu
píslarvotta Buchenwald væri að
ræða, en andartaki síðar skipt
um viö um skoðun: hiö fínlega
eðli þeirra stígur til himins, við
skynjum allsherjarflug Upp-
stigningarþinar. Meðan við erum
enn að skoða þessa dularfullu
i
;iÍ!
.
!
m
j’iiÍnÍPa® ir
"i,J
í Giacometti-sal Maeghtstofnunarinnar.
. aðeins háar og grannar
voru þær réttar“.
rás, þá opnast augu okkar fyr-
ir því, að þessir skinhoruðu
líkamir eru jarðarinnar blóm ...
^ banabeöinu vildi Kafka, að
bækur sínar yrðu brenndar
og Dostojevsky dreymdi um
það allt lokaskeið ævinnar að
bæta við köflum í Karamazov-
bræðuma. Ef til vill var báð-
um órótt innanbrjósts, þegar
þeir létust. Þeim fyrrnefnda af
því að honum fannst hann ekk-
'ert hafa gert sem neins viröi
væri og þeim síðamefnda Vegna
þess að hann hvrfi úr veröldinni
án þess að hafa sett mark sitt
á hana. Samt sem áður hafa báð
ir náö takmarki sínu. Giacom-
etti einnig, og hann veit það vel.
Það er ekki til neins að hattn
liggi á verkum sínum eins og
ormur á gulli. Þýðinga-rlaust að
hann biðji um frest og komi
með allskyns undanbrögð ta að
stela sér smátíma: Manneskj-
urnar munu koma inn tií hans,
ýta honum frá og fara burt
með öll háns verk, aöeins gifs
duftiö á gólfinu veröur eftir.
Hann veit það, óróiim i svipn-
um ber það með sér. Hann veit,
að hann hefur sigrað hvað sem
hann segir og hann tShegBCÍr
okkur,“