Vísir - 19.07.1967, Side 8
oo S
V í SI R . Miðvikudagur 19, júlí 1967.
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Framkvæmdastjðri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, slmar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands
1 lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsiniðje Vísis — Edda h.f.
Sjónleikur á Egilsstöðum
í gamla daga gripu konungar oft, þegar þeim var
fjár vant, til þess ráðs að blanda ódýrum málmum í
góðmálmana í gjaldmiðlinum til þess að geta gefið
út fleiri peninga. Allar götur fram til okkartiaga hafa
menn leiðzt til að beita þessu einfalda en gagnslausa
ráði til fjáröflunar. Afleiðingin hefur orðið minnkun
verðgildis peninganna og margs konar vandræði í
efnahagsmálum. Fjármagn verður ekki búið til með
því að prenta fleiri peningaseðla.
Egilsstaðafundurinn í fyrradag minnti á þessa gam-
alkunnu sögu. Fundarmenn töldu, að dregið hefði úr
lánafyrirgreiðslu bankanna til fyrirtækja og stofn-
ana á Austfjörðum og bæri nú að bæta úr því með
myndarlegum lánveitingum. Fundarmenn hirtu ekki
um þá staðreynd, að smæð lánveitinga stafar af því,
að nýtt lánsfé minnkar í svipuðum mæli og nýmynd-
un sparifjár minnkar. Þegar sparifjáraukning er lítil
eins og verið hefur undanfarið, verður útlánaaukn-
ingin einnig lítil. Bankakerfið leysir ekki málið með
útgáfu fleiri peningaseðla til útlána. Slíkt væri ævin-
týramennska.
En Egilsstaðafundurinn ályktaði í mörgum liðum,
að fé yrði mokað í Austfirðina. Var ekki annað að
heyra en peninga mætti búa til alveg samkvæmt pönt-
un Austfirðinga. Þeir samþykktu kröfu um, að allar
eignir í atvinnutækjum sjávarútvegs, fiskiðnaðar og
þjónustugreina þeirra á Austfjörðum yrðu metnar og
síðan yrði fyrirtækjunum lánað andvirði tveggja
þriðju hluta þessara eigna. Slíkt væri að sjálfsögðu frá
leitt ævintýri, þótt mun meira framboð væri á lánsfé
en nú er.
Einhvern grun hefur Egilsstaðafundurinn haft um
þessar staðreyndir, því samþykkt var að benda sér-
staklega á Atvinnuleysistryggingasjóð sem eins kon-
ar Móses til að leiða austfirzk fyrirtæki yfir eyðimörk
lánsfjárskorts. Þessi sjóður er eins og allir vita vara-
sjóður, sem ætlað er að efla atvinnulíf þar sem at-
vinnuleysi ríkir. Nú er hvergi fjær því, að atvinnu-
leysi ríki, en einmitt á Austfjörðum. Svona sjóði er
ekki sóað, þegar nóg atvinna er, því þá kemur hann
ekki að gagni, þegar atvinna bregzt. Væntanlega
verða Norðlendingar, sem nú búa við minnstu at-
vinnu, hvumsa við þessari frekju Egilsstaðafundar-
ins.
Hvergi á landinu hefur verið meiri og glæsilegri
uppbygging í atvinnutækjum og húsum undanfarin
ár en einmitt á Austfjörðum. Fyrirtæki þar mættu vel
gæta þess að fjárfesta minna og hafa meira fé í rekst-
urinn, þegar lánsfé er torfengnara, í stað þess að láta
eins og vesalingar eftir alla uppbygginguna. Ef til
vill hentaði bezt, að Austfirðingar prentuðu eigin
seðla að vild og mætti þá hafa mynd af Lúðvík á ann-
arri hliðinni og af Eysteini á hinni, svo greina mætti
hugsuðina á bak við Egilsstaðaályktunina !.
SOVÉZKIR HERSHÖFÐINGJAR
URÐU FYRIR ÁLITSHNEKKI
VEGNA ÓSIGURS EGYPTA
Calisbury vikur aö því í grein
sinni, að ýmsir sovézkir her-
leiðtogar hafi fljótt orðig þess
varir, að ósigur Egypta hafði
þau áhrif, að þeim varð til álits-
hnekkis'— og þeir vildu rétta
hiut Egypta og hressa þar með
upp á eigið álit, — ekki aðeins
með því að bæta Egyptalandi
og öðrum Arabaríkjum upp her-
gagnatjón, heldur lögðu þeir ein
dregið til, að gripið yrði til rót-
tækari aðgerða — til þess „að
aftur næðist jafnvægi".
Þeir héldu því líka fram, að
Bandaríkjastjóm reyndi að
raska jafnvæginu á alþjóðavett-
vapgi sér í hag um leið og hún
þættist vera vinsamleg í garð
Sovétríkjanna. Studdu þeir það
með því hve Bandarlkjamenn
væru erfiðir viöfangs, að því er
Vietnam varðaði og nefndu m.
a. afstöðu þeirra, eftir að gríska
hernaöarlega stjómin komst til
valda og eftir að Israel lét til
skarar skríða gegn Egyptalandi.
Þá héldu þeir því fram, að
Bandaríkjastjóm reyndi aö nota
deilu sovézkra og kínverskra
Ieiðtoga sér og stefnu sinni til
framdráttar, með tilslökunum
við Pekingstjómina um leið og
hún jafnframt reyndi að koma
. sovétstjóminni í aukinn vanda.
Bentu þeir m. a. á, hve mikið
hefði verið gumað af samkomu-
laginu um „beint samband milli
Kreml og Hvíta hússins“. Á
þessu heföi verið alig í útvarpi
í þeim tilgangi að Kína gæti not
að sér það í áróöursskyni. —
Með þessu hafi Peking-stjóm-
inni verið lögð gögn í hendur
til staðfestingar á samstarfi
milli Moskvu og Washington,
en jr.fnframt héldu hinir „sov-
ézku haukar“ því fram, að
Bandaríkjamenn hefðu raun-
verulega reynt að koma á stjóm
málasambandi milli Washington
og Peking.
„BORIN KLÆÐI
Á VOPNIN"
I þessum innri átökum á vett-
vangi ráðamanna í Moskvu var
mikið gert til þess að reyna að
,,bera klæði á vopnin'* í þeim
tilgangi að eining og samstaða
gæti náöst um utanríkisstefn-
una f heild — til þess að svo
liti út að alger eining rikti á
50 ára afmæli byltingarinnar
1917. Afstaða flokksins hefur
verið sú, að ekki mætti setja
neitt opinbert deilumál á odd-
inn fyrr en eftir 7. nóvember
— svo að út í frá gæti virzt sem
um algera einingu væri að ræöa
varðandi utanríkisstefnuna. —
Þessa yröi framar öllu að gæta.
Stöku stjórnmálamenn sov-
ézkir leiddu athygli að því —
í deilunni milli „hauka" og
„dúfna“ — hve viðkvæm og
vandmeðfarin vandamálin væru
fyrir Sovétríkin að því er tæki
til hinna nálægari Austurlanda,
og annars staöar áknýjandi
vandamál, og það svo mjög, að
til þess gæti komiö að í odda
skærist á ný meö enn meiri ofsa.
Ein ásökunin í garð Banda-
ríkjamanna er sú, segir Salis-
bury ritstj. i grein sinni, aö
Bandaríkjastjórn reyni af ásettu
ráði aö valda sem mestum trufl-
unum á „byltingarafmælis-ár-
inu“, þótt þeir viti vel í Was-
hington, að „hvað sem þaö
kosti“ vilji Sovétríkin að góð
skilyröi haldist til vinsamlegs
samstarfs. Og sömu menn halda
fram, að birtingin á endurminn-
ingum Svjetlönu Stalin sé einn
þáttur áróðursbaráttu Banda-
ríkjamanna gegn Sovétríkjun-
um.
Og loks létu sumir í ljós, að
með þvi að halda deilum niðri
fram til 7/11 sé boöið heim
þeirri hættu, að deilurnar blossi
upp af enn meiri krafti eftir
aðaldag byltingarafmælisins 7.
nóvember.
SPRENGJUÁRÁSIR
— FRIÐUR
Enn hefur skotiö á loft ýms-
um fréttum, sem gætu þent til
að „eitthvað sé að gerast“, sem
gæti leitt til að setzt verði að
samningaborði. I Peking eru
valdhafarnir greinilega orönir
smeykir um, að stjórn Norður-
Vietnam fallist á að setjast að
samningaborði með Bandaríkja-
mönnum“ og vara Hanoi-stjóm-
ina við að ganga í þessa
,,gildru“ Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna.
FRÉTTIN I
THE GUARDIAN
Margt fleira mætti nefna, auk
þess sem áöur var getiö, en lát-
ið nægja að birta NTB-frétt,
sem ekki komst að í blaðinu
fyrr en nú og er svohljóðandi:
★ Hiö heimskunna brezka blað
THE GUARDIAN heldur þvf
fram í morgun, aö ástæða sé
til að ætla, að Bandaríkja-
stjóm hafi ákveðið stöðvun
sprengjuárása á Norður-Vi-
etnam.
Kosygin
Sá, sem birtir þessa frétt í
blaðinu er Victor Zorza,
sem er kunnastur starfs-
manna blaðsins, sem skrifa
um utanrfkismál.
Zorza ræðir um sambúð-
ina milli Bandaríkjanna og
Sovétrikjanna og kveðst
hafa borið upp fyrirspumir
í Washington varðandi þau
vandamál, og hafi stöku em
bættismenn þar svaraö þeim
og m. a. sagt, að því er varð-
aði vamir gegn kjamorku-
vopnum og loftárásimar á
Norður-Vietnam hefði Banda
ríkjastjóm teygt sig eins
langt til samkomulags og
gerlegt var, en að því er
varðaði sprengjuárásimar
yrði ef til vill gengið dálít-
ið lengra en orðið væri til
þess að sýna samstarfsvilja
gagnvart Sovétríkjunum.
ir Zorba segir, að svo langt sé
komið að því er tekið sé
fram af mönnum í ábyrgðar-
stöðum af ofangreindri á-
stæðu, að ákvörðunin (um
stöövun) kunni þegar að
hafa verið tekin.
Ef til vill er það engin tilvilj-
un, segir Zorza ennfremur,
að þetta kemur fram nú,
stuttu eftir að Johnson for-
seti tilkynnti að sent yrði
meira iið til Vietnam, eða til
þess að kommúnistar fái
ekki ástæðu til að ætla, að
það sé neitt veikleikamerki
hjá Bandarfkjastjórn að á-
kvörðunin var tekin.
Það er vegna hins mikla álits
sem The Guardian nýtur, og
ritstjórinn, sem fregnina birti,
að hennar er hér sérstaklega
getið, en annars má sennilega
vænta þess, að málin yfirleitt
skýrist eitthvað, eftir aö lýkur
hinni nýju heimsókn Boumedi-
enne f Moskvu, ekki aðeins að
því er varðar Austurlönd nær,
heldur og styrjöldina í Vietnam.
A. Th.
n
Héraðsmót á Austfjörðum
Héraðsmót Sjálfstæðisflokks-
ins verða um næstu helgi á
Seyðisfirði, Neskaupstað og
Reyðarfirði.
Um næstu helgi verða þrjú
héraðsmót Sjálfstæðisflokksins
sem hér segir:
Seyðisfirði, föstudaginn 21.
júlí kl. 21. Ræðumenn verða
Jónas Pétursson, alþingismað-
ur og Theodór Blöndal tækni-
fræðinemi.
Neskaupstað, laugardaginn 22.
júli kl. 21. Ræðumenn veröa
Jóna., Pétursson alþingismaður
og Kristófer Þorleifsson, lækna-
nemi.
Reyðarfirði, sunnudaginn 23.
júlí kl. 21. Ræðumenn verða
Jónas Pétursson alþingismaður
og Sölvi Kjerúlf, verzlunarmað-
ur.
Skemmtiatriði annast Ómar
Ragnarsson og hljómsveit Magn
úsar Ingimarssonar. Hljómsveit-
ina skipa Magnús Ingimarsson,
Alfreg Alfreðsson, Birgir Karls-
son og Vilhjálmur Vilhjálms-
son, söngvarar með hljómsveit-
inni eru Þuríður Sigurðardóttir
og Vilhjálmur Viihjálmsson.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar Ieikur fyrir dansi og
söngvarar hljómsveitarinnar
koma fram.