Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1984, Qupperneq 32
32
DV. MIÐVIKUDAGUR15. FEBRUAR1984.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Catherine Deneuve fer meö hlutverk hjákonu og barnsmóöur franska forsetans i kvikmyndinni „Le Bon
Piaisir" sem Frakkar standa nú i biðröðum tii að sja.
Frakkar flykkjast í bio:
Á FORSETINN BARN
í LAUSALEIK?
Frakkar standa nú í löngum
biörööum við kvikmyndahús til aö
tryggja sér miða á kvikmyndina „Le
Bon Plaisir” sem fjallar um hversu
langt franskir valdamenn geta teygt
sig til aö forðast hneyksli. I sjálfu sér
er kvikmynd um slíkt efni engin ný-
lunda nema hvaö aö í þessu tilviki er
handritshöfundurinn enginn annar en
Francoise Giroud, blaðamaður og
fyrrum menningarmálaráðherra í
stjórn Valery Giscard d’Estaing. Hún
ætti því aö vera kunnug innviöum
franska stjórnarráðsins.
Myndin fjallar um forseta franska
lýðveldisins og hjákonu hans, sem
leikin er af Catherine Deneuve. Hjá-
konan á von á bami með forsetanum
en vandamálið er að fleiri en þau tvö
búa yfir þeirri vitneskju. Þegar forset-
anum berst bréf þess efnis í hendur sér
hann í hendi sér að stöðu hans er ógnað
komist stjórnarandstaöan að hinu
sanna. Fer hann því fram á það viö
elsku sína að hún losi sig við fóstrið hið
fyrsta en hún neitar. Þá fer leyniþjón-
ustan í gang og fjúka fjölmargir haus-
ar áður en yfir lýkur.
Francoise Giroud, handritshöfundur
og fyrrum menningarmálaráðherra,
neitar því að sagan f jalli um raunveru-
lega atburði. .. „athygli sú er myndin
hefur vakið helgast einvörðungu af því
að hún tekur á máli sem lítið sem
ekkert hefur verið fjallað um í
frönskum kvikmyndum til þessa.
Þ.e.a.s. stjómmálamenn. Þó eru þeir
hluti af vemleika frönsku þjóöarinnar
frá morgni til kvölds.”
Milljón manns hefur séð kvik-
myndina á þeim þrem vikum sem
liðnar em frá fmmsýningu hennar.
Franski leikarinn Jean Louis Trinti-
gnant fer með hlutverk forsetans og
þykir sumum nóg um hversu líkur
hann er Francoise Mitterrand í útliti
og framgöngu allri.
Svolitið svipar honum tíl hans
föður síns þótt óneitanlega beri
hann einnig keim af sinum
austurlenska uppruna. Þessi vel
klæddi ungi maður er hann Sean
litli Lennon, sonur Johns og
Yoko. Myndin var tekin er hann
mætti til veislu nýlega.
Litla
bollan
stal
senunni
Nýlega bauð Ingiríður, danska
drottningarmóöirin, afkomendum'
sínum víðsvegar að til mikillar veislu í
höll sinni í Amalíubórg. Meðal gest-
anna var dóttir hennar Anna María,
eiginkona Konstantíns. fyrrum
Grikkjakonungs. Anna María kom
fljúgandi frá London með börnin sín
þrjú, Alexíu 18 ára, Pál krónprins, 16
ára, og litlu dótturina, Teódóm, sem er
sjö mánaða. Litla bollan á að hafa
stoliö senunni og mátti Ingiríður vart
af henni sjá á meðan á heimsókninni
stóð.
Alexia, 18 árn gömul dóttír önnu
Mariu og Konstantins.
Opid hús var í Valhöll við Háaleitisbraut síðasta laugardag.
Hátt á annað hundrað manns litu þar inn og tilefnið var 10
ára afmœli hverfafélaga sjálfstœðismanna í Reykjavík.
Hverfafélögin tólfað tölu, ásamt Landsmálafélaginu Verði,
stóðu fyrir móttökunni. Hér á myndinni má sjá Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra í hópi glaðra gesta í mót-
tökunni. -ÞG/DV-mynd: Loftur.
Það var margt um manninn á heimili Vals Valssonar,
bankastjóra Iðnaðarbankans, og konu hans, síðastliðinn
laugardag. Gestirnir mœttu til fagnaðar til að hylla
afmælisbarnið, Val — fertugan.
Davíð Scheving Thorsteinsson mun hér á myndinni vera að
svipta hulunni af leyndardómi miklum, gjöfhanda afmœlis-
barninu. Nokkur vel valin orð fylgdu með — kannski þessi
klassísku — allt er fertugum fœrt. DV-mynd Loftur.
Anna María með hina 7mánaða gömlu dóttur sína.
Ingiríður drottningarmóðir með Teódóru litlu.