Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1985, Qupperneq 5
5
DV. FÖSTUDAGUR17. MAl 1985.
Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós
Útvarpslagafrumvarpið:
Eiður Guðnason: Leggur áherslu á eignarhald á boðveitunum.
Menntamálaráðherra lagði fram
nýtt frumvarp til útvarpslaga í októ-
ber sl. Frumvarpið um afnám einka-
réttar Ríkisútvarpsins hefur frá
fyrstu dögum þessa þings verið mik-
ið deilumál. Fæðing þess eða
keisaraskurðurinn átti sér stað á
rósturtimum er verkfall opinberra
starfsmanna stóðyfir.
A milli manna hefur frumvarpið
farið, umsagna leitað og reynt að
betrumbæta, en að margra mati var
unginn aöeins „tanndreginn”. Það
sem átti að vera frelsi til útvarps-
rekstrar, samkvæmt upphaflegum
hugmyndum, var sett i „ramma” og
oröið bitlaust og heft. Andstæðingar
þessara sjónarmiöa hafa sagt þetta
frumvarp með viðbótum og plástr-
um betra og veiti meira frelsi en
fyrii er í útvarpsrekstri. „Nú opnast
dyrnar í hálfa gátt, alveg upp síðar.”
Deildar meiningar og margar um
blessað útvarpslagafrumvarpið hafa
verið utan þings sem innan. I þessarí
viku tókst, eftir sögulegar atkvæða-
greiðslur, að koma „þessum bitlausa
unga” úr neðri deild eftir um sjö
mánaða þjark.
Stuttur meðgöngutími, miðaö við
þessa venjulegu níu mánuði, og því
er ástand þessa frumvarps,
þegar það loksins kemst til efri deild-
ar, eins og ástand fyrirburðar. Venja
er að setja fyrirburði í súrefnisgjöf
og fara um þá nærfærnum höndum.
Það verða efri deildar menn líkleg-
ast að gera ef „fjöregg fyrirburðar-
ins” á að halda lífi í þeirra höndum.
Öljós staða
Síðasta mánudag, þegar útvarps-
lagafrumvarpið í heild var borið upp
til atkvæðagreiöslu i neðrí deild,
hlaut það aðeins 16 atkvæði. Fjörutíu
þingmenn eiga sæti í neðri deild. 12
þingmenn greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu. I þeim hópi voru þrír
framsóknarmenn, þeir Halldór As-
grímsson sjávarútvegsráðherra,
Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, og Stefán
Valgeirsson, þriðji þingmaður
Norðurlands eystra. Forsætisráð-
herra sat hjá, einnig Ingvar Gísia-
son, Alexander Stefánsson, Guð-
mundur Bjarnason, Olafur Þ. Þórð-
arson, Stefán Guðmundsson og
Þórarinn Sigurjónsson. Fjórir al-
þýöuflokksmenn sátu hjá, þeir Jón
Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sig-
urðardóttir, Karvel Pálmason og
Kristín Tryggvadóttir (varamaður
Kjartans Jóhannssonar). Alls sátu 11
þingmenn hjá við þessa atkvæöa-
greiðslu. Þingmenn Kvennalista og
Alþýðubandalagsins, alls níu,
greiddu atkvæði gegn frumvarpinu
ásamt framsóknarmönnunum þrem-
ur sem áður er getið. Allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, 14 að tölu og 2
þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna greiddu atkvæði með frum-
varpinu. Einn þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, Gunnar G. Schram,
var fjarstaddur.
— Hvaðgerðist?
Það sem setti framsóknarmenn út
af ritúalinu við þessa atkvæða-
greiðslu var áður samþykkt breyt-
ingartillaga frá Kristínu S. Kvaran
og Guðmundi Einarssyni, Bandalagi
jafnaðarmanna, um auglýsingar og
afnotagjöld. Einnig breytingartil-
laga við frumvarpið frá Jóni
Baldvini Hannibalssyni Alþýðu-
flokki sem var samþykkt. Sú tillaga
er um að gjald auglýsinga skuli vera
undir samþykki útvarpsréttarnefnd-
ar komið. Þegar sú tillaga var sam-
þykkt, sem var hin sjötta í röðinni af
þrjátíu og átta breytingartillögum,
reis viðreisnarandinn upp frá hvilu
sinni og framsóknarmenn „fóru í
hnút”. Formaöur þingflokksins bað
um fundarhlé og hóaði sínum mönn-
um á þingflokksfund.
í efri deild
Sá fundur lagði iínurnar um hver j-
ir greiddu atkvæði gegn frumvarp-
inu í neðri deildinni og hverjir sætu
hjá og hverjir hleyptu því á skeið í
því efra. Með hjásetunni var frum-
varpinu sleppt lausu um tíma.
Fjögur atkvæði alþýðuflokks-
manna í deildinni hefðu fellt frum-
varpið á jöfnu en þeir kusu að sitja
hjá líka ásamt framsóknarmönnun-
um sjö. Meirihlutafylgi útvarpslaga
frumvarpsins, með 16 atkvæöi af 40
mögulegum, er því tæpt.
Staða þess í efri deildinni er afar
óljós. Gárungar í þeirri deild segja
að örlög frumvarpsins í deildinni,
hvort það verður fellt eða samþykkt,
velti á því hvort Eiður verði leiður
eðareiður?.. .
Á einu atkvæði
veltur allt
Eiður Guðnason og Karl Steinar
Guðnason, alþýöuflokksþingmenn-
imir tveir í efri deild, geta ráðið úr-
slitum, annar dugar. Sjálfstæöis-
menn eru 8 í efri deild. 2 frá Banda-
lagi jafnaðarmanna og 4 fram-
sóknarmenn, 3 alþýðubandalags-
menn og einn frá Kvennalista.
Haraldur Olafsson framsóknar-
maður er formaður nefndarinnar
sem mun hafa frumvarpið til um-
fjöllunar og eini framsóknarmaður-
inn í þeirri nefnd. Hann hefur sagt í
viðtali við DV að hann hafi ekki í
hyggju að hindra framgang málsins.
En margir segja að hér sé tækifæri
fyrir Framsóknarflokkinn — einfald-
lega aö salta máliö í nef ndinni.
Það er vitað að einn framsóknar-
maður mun greiða atkvæði gegn
frumvarpinu í efri deild í þeirri
mynd sem það er nú frá neðri deild-
inni. Hinir þrír eru líklegir til hins
sama. Framsóknarmennirnir í efri
deild eru Jón Helgason, Jón
Kristjánsson Davíð Aöalsteinsson
aukHaralds.
Framsóknarmenn eru með breyt-
ingartillögu i erminni um að frum-
varpinu verði breytt aftur í það horf
er meirihluti menntamálanefndar
neðri deildar afgreiddi það fyrir
skömmu.
Boðveitur
kvæðamikill í umræðunni um út-
varpslagafrumvarpið. Hann sagði í
umræðu í efri deild í fyrradag:
„Þetta frumvarp var kannski ekki
mjög gott í upphafi en það hefur ekki
sætt góðri meðferð.” Lagöi hann
áherslu á aö viötæk samstaða næðist
um frumvarpið í efri deildinni —
hann skyldi gera sitt til að svo mætti
verða. Hann hefur hug á aö betrum-
bæta „fyrirburðinn”, líklega að gefa
honum aukinn súref nisskammt.
Boðveituatriðiö er lykilatriði að
mati þingmanna Alþýðuf lokksins og
því víst að þeir munu leggja mikla
áherslu á það atriði í menntamála-
nefndinni og deildinni. En boð-
veiturnar tilheyra fjarskiptum og
eiga því ekki heima í þessari um-
ræðu, segja þeir sem ekki styöja
kratanaíþessumáli.
Eiöur segir að boðveiturnar séu
lykilatriði. Hann sjálfur og einnig
Karl Steinar eru báðir lykilmenn.
Næstu viku verður Eiður fjarver-
andi vegna fundahalda á Norður-
löndum sem eflaust seinkar af-
greiðslu málsins eitthvaö. Með hjá-
setu geta þeir félagar Eiður og Kari
Steinar afgreitt útvarpslagafrum-
varpið úr efri deild þegar þar að
kemur. Nú, þeir geta líka greitt
frumvarpinu atkvæði og veitt þvi
brautargengi út í tilveruna og sam-
keppni fjölmiðlaheimsins með já-
yrðL
Ösáttir framsóknarmenn
Þeir geta líka sameinast „fram-
sóknarmönnum allra flokka” og
greitt atkvæði gegn frumvarpinu og
þá félli frumvarpið á jöfiiu. Það er að
segja þá er gengið út frá þeirri for-
sendu aö sjálfstæöismenn og banda-
lagsmenn standi saman og framsókn-
armennimir fjórir greiöi atkvæði
gegn frumvarpinu ásamt alþýðu-
bandalagsmönnum og kvennalista-
þingmanni. Það er sama mynstrið og
var við atkvæðagreiðslu frumvarps-
ins í neðri deild.
Eitt enn. Verði einhverjar breyt-
ingar á útvarpslagafrumvarpinu í
efri deild eru líkur á að það fari aftur
til umfjöllunar í neöri deild. Páll
Pétursson hefur sagt að útvarps-
lagafrumvarpið muni koma aftur til
neðri deildar.
Víst er að framsóknarmenn í báð-
um deildum vinna aö því, þá fáu
daga sem eftir eru af þessu þingi, að
færa þetta frumvarp aftur í þaö horf
sem þaö var á mánudag fyrir at-
kvæðagreiðsluna.
Þar rofnuöu flokksbönd og stjóm-
artengsl slitnuðu. Framsóknarmenn
sætta sig ekki við orðinn hlut þó að
þeim tækist aö koma fram smá-
hefndum í þeirri atkvæðagreiðslu.
Þeir samþykktu tillögu Hjörleifs
Guttormssonar um gildistöku frum-
varpsins. Upphaflega átti frumvarp-
ið að taka gildi strax er það yröi sam-
þykkt sem lög en tillaga Hjörleifs um
frestun gildistöku var samþykkt.
Frestur var gefinn til 1. janúar 1986.
Bláþráður
Arið 1934 fékk ríkið einkarétt á út-
varpsrekstri. Fyrir átta árum var
fyrsta frumvarp til breytinga á út-
varpslögum flutt á Alþingi. Fyrsti
flutningsmaður þess var Guðmundur
H. Garðarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Síðan þá hefur fjölmiðlaheimur-
inn breyst eins og allt annað.
Hlutirnir hafa færst í f rjálsræðisátt.
Nýtt útvarpslagafrumvarp, sem á
að vera breyting í frjálsræðisátt, er
búið að vera í sjö mánuði að velkjast
í þingsölum. Menn héldu að stóri
sigurinn væri unninn siðastliðinn
mánudag eftir atkvæðagreiösluna í
.neðri deild.
En frumvarpið hangir á blá-
þræði. (Og það vantar súrefni.)
-ÞG
Eiður Guðnason hefur verið at-
Jón Halgason, Haraldur Ólafsson, Jón Kristjónsson,
— framsóknarmennirnir i efri deild. Mikil óvissa rikir enn um það hver afstaða þeirra verður.
Davið Aðalsteinsson,
Texti: Þórunn Gestsdóttir