Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994 5 Fréttir Hugsanlegt að böm hafi sprengiefni undir höndum: Þjófarnir gefa búið til þrusu- sprengju - segir íulltrúi Vinnueftirhts „Þaö var sitt lítið af hveiju sem stolið var þannig að ef menn kæra sig um geta þeir komið af stað sprengingu. Allt veltur þetta á þekkingu þeirra sem hafa þetta undir höndum núna. Þeir geta búið til þrususprengju," segir Jens Andrésson, tæknifulltrúi hjá Vinnueftirliti ríkisins, um þjófnað á að minnsta kosti 60 kílóum af sprengiefni, allt að 200 hvellhettum og sprengiknaUi. Eins og kunnugt er var brotist inn í sprengiefnagám verktakafyrirtæk- isins Valar á vinnusvæði við Korp- úlfsstaði. Upp komst um innbrotið þegar tveir 7 til 8 ára gamlir piltar sáust að leik á vinnusvæðinu á laug- ardaginn með hvellhettur úr gámin- um. Læsingar gámsins höfðu þá ver- ið sprengdar upp nóttina áður og hann skilinn eftir opinn. Þjófamir skildu hins vegar eftir um 100 kOó af sprengiefni og nokkurt magn af hvellhettum þannig aö hugsanlegt er aö böm hafi komist yfir sprengiefni í gámnum frá því að þjófarnir fóm af vettvangi þar til upp komst um innbrotið. „Það era til lög en engin ítarleg reglugerð um geymslu sprengiefnis. Við erum að bíða eftir EES-reglum. Hins vegar gefum við út vinnureglur sem mönnum ber að fara eftir við meðferð sprengiefnis," segir Jens. Frágangur gámsins var að mestu í samræmi við lögin og vinnureglurn- ar, utan þess að ekki var tvöfaldur læsingarbúnaður á gáminum eins og vera ber. „Ég er búinn að skoða gáminn frá Veli og hann uppfyllir öll skilyrði nema hann er ekki með tvöfalda læs- ingu. Það er annars spurning hvað stoppar menn sem hafa það að ásetn- ingi að brjótast inn,“ segir Jens. „Það versta af hálfu verktakans var að hann getur ekki sagt hvað var mikið af efni þarna inni. Við munum taka á því gagnvart því fyrirtæki sem þama á í hlut,“ segir Jens. Hann segir ástand þessara mála almennt gott hjá stærri verktakafyr- irtækjunum. Öðra máli gegni um smærri verktaka sem kaupi slatta af sprengiefni til ákveðins verkefnis en síðan þegar því verki sé lokið gangi einhver hluti þess af. Menn óttist að það kunni ekki að vera í jafn traustum geymslum. Steingrímur Jónasson, skrifstofu- stjóri hjá Veli, sagði við DV að um væri að ræða mjög örugga sprengi- efnageymslu. Þrátt fyrir það hefði þjófunum tekist að bijótast inn í hana. Vangoldin barnsmeð- lög um 550 miinónir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, form- aður Sambands íslenskra sveitarfé- laga, segir að fjárvöntun sveitarfé- laga vegna vangoldinna barnsmeð- laga stefni í 550 milljónir á þessu ári eða sömu upphæð og í fyrra. Sam- kvæmt samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga ber hinu opinbera að axla hluta af þessari upphæð og seg- ir Vilhjálmur að sveitarstjórnar- menn hafi átt fund með nýjum félags- málaráðherra nýlega. „Ríkisstjórnin hækkaði bamsmeð- lög í ársbyijun 1993 og lækkaði barnabætur til að spara nokkur hundrað milljónir í heilbrigðisráðu- neytinu. Margir þeirra sem höfðu verið að burðast við að borga meðlög- in hættu því og fóru í svarta vinnu eða hurfu úr landi. Árið 1993 greiddu sveitarfélögin 300 milljónir vegna meðlaga og sparnaður ríkissjóðs hvarf því hans hlutur var 250 millj- ónir,“ segir Vilhjálmur. Mál Péturs Péturssonar læknis fyrir Hæstarétti: Er áreiðanlega ekki forgangsmál „Ég áfrýjaði öllu helvítis drasl- inu til Hæstaréttar en vænti ekki niðurstaðna þaðan strax. Þetta er áreiðanlega ekki forgangsmál og tek- ur eflaust einhver ár að fá niður- stöðu,“ segir Pétur Pétursson, læknir á Akureyri, um mál sem vaxtarrækt- armenn höfuðu á hendur honum á sínum tíma vegna ummæla hans um meinta lyfjanotkun þeirra. Annars vegar var um að ræða kæra um 30 vaxtarræktarmanna á hendur Pétri og hins vegar kæru Ólafs Sigurgeirssonar lögmanns þeirra vegna ummæla sem Pétur við- hafði um lögmannsstörf Ólafs. Kærendurnir undu niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands eystra en Pétur segist ekki hafa viljað sitja undir dómnum. „Jafnvel þótt ég hafi ekki verið dæmdur í neina refsingu þá ómerkti dómurinn orð sem voru sönn og það sætti ég mig ekki við. Ég var svo dæmdur til að greiða ein- hveija hungurlús í sekt og máls- kostnað en það skipti engu máli,“ segir Pétur. Óðinn til Hammerf est Ákveðið hefur veriö að Óðinn, að- stoöarskip Landhelgisgæslunnar í Smugunni, sigli áleiðis til Hammer- fest í Noregi á miðvikudag. Áætlaö er að skipið komi til Hammerfest daginn eftir. Að sögn Helga Hallvarðssonar skipherra er ástæðan fyrir því að skipið fer svona fljótt í land sú að óhreinindi eru í olíu skipsins og olíu- taka sem reynd var á sjó í gær mis- heppnaðist þegar slanga úr olíuskipi yfir í Óðin slitnaði. Þá verður einnig farið með fjóra sjómenn með handar- mein í land. Utanríkisráðuneytið hefur sent norskum stjórnvöldum erindi þess efnis aö óska eftir hafnarleyfi fyrir skipið og aö það fái að sigla í norskri landhelgi en ekkert svar hafði borist í morgun. MIKIÐ VÖRUÚRVAL FYRIR TRÉSMIÐI, BIFVÉLAVIRKJA, MÁLARA, VERKTAKA, RAFVIRKJA OG VENJULEGA BÍLSKÚRSKALLA. FRÁBÆR VERÐ SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALT LAND SKEIFUNNI11D, SIMI 91-686466 AEG þvottavélar eru á um það bil 27.000* íslenskum heimilum AEG þvottavélar eru á tvöfalt fleiri heimilum er næstalgengasta þvottavélategundin. Yfir 85% þeirra, sem eiga AEG þvottavél, mundu vilja kaupaA.EC aftur. Hvað segir þetta þér um gæði AEG þvottavéla? Eða AEG yfirleitt? Þriggja ára ábyrgð á öllum AEG þvottavélum Allar AEG þvottavélar eru framleiddar í Þýskalandi. Umbobsmenn um land allt 'Samkvæmt markaðskönnun Hagvangs í des. 1993. BRÆÐURNIR (©) ORMSSON HF Lágmúla 8, Sími 38820 AEG Lavamat 9451 Vinduhraði 700/1000/1200 + áfangavinding, tekur 5 kg.( sér hitavalrofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar- forskrift, UKS kerfi (jafnar tau í tromlu fyrir vindingu), froðuskynjunarkerfi, sér hnappur fyrir viðbótarskolun, orkunotkun 1,9 á lengsta kerfi. Kr. 99.832 Stgr. 92.844. AEG Lavamat 508 Vinduhraði 800 sn/mín, tekur 5 kg., sér hitavalrofi, ullarforskrift, orkusparnaðar- forskrift, orkunotkun 2,1 kwst á lengsta kerfi, einföld og traustvekjandi. Kr. 75.149. Stgr. kr. 69.889. AEG Lavamat 920 Vinduhraði 700/1000 + áfangavindingu, tekur 5 kg., sér hitavalrofi, sérstök ullarforskrift, orkusparnaðar- forskrift, UKS kerfi (jafnar tau í tromlu fyrir vindingu), sér hnappur fyrir viðbótarskolun, orkunotkun 2,0 kwst á lengsta kerfi. Kr. 88.765 Stgr. 82.551.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.