Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1994, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994 Útlönd Stuttar fréttir dv Óvæntar upplýsingar um furstynjuna af Mónakó í nýrri ævisögu: Grace Kelly átti sér marga rekkjunauta - tveir ungir menn einkum nefndir til sögunnar sem ástmenn furstynjunnar „Hún vildi lifa í eilífum glaumi og gleði. Ungu ástmennirnir voru hluti af þessari gerviveröld hennar,“ segir Gwen Robyns, náin vinkona Grace Kelly, fyrstynju af Mónakó, í vænt- anlegri ævisögu hennar. Útdráttur úr bókinni birtist í tíma- ritinu Vanity Fair í dag. Þar koma fram óvæntar upplýsingar um ástar- líf furstynjunnar. Robert Lacy, höf- undur bókarinnar, segir að Grace hafi verið mjög óánægð í hjónaband- inu með Rainier fursta og um skeið íhugað að skilja við hann. Hún hafi þó ekki látið af því verða vegna hræðslu við allt umtalið sem óhjá- kvæmilega hefði fylgt í kjölfarið. í stað skilnaðar hafi Grace lagt lag sitt við unga menn og þannig notið þess sem furstinn gat ekki veitt henni. Einkum eru tveir ungir menn nefndir til sögunnar. Annar er Ro- bert Dornhelm kvikmyndaleikstjóri, 16 árum yngri en Grace. Dornhelm neitaði að ræða við bókarhöfund um samband sitt við furstynjuna. Annan ástmann á Grace að hafa fundið í flugferð til Bandaríkjanna með Concord-þotu. Sá var fram- kvæmdastjóri vestra og mun yngri Grace Kelly á íslandi skömmu fyrir andlátið. en furstynjan. „Þessir menn voru líf hennar og yndi,“ segir í bókinni. Phihppe Junot, fyrsti eiginmaður Karólínu, dóttur Grace og Rainiers, er meðal heimildarmanna í bókinni. Hann segir að furstahjónin hafi í raun verið skihn að borði og sæng síðustu árin sem Grace lifði. Grace fórst í bílslysi árið 1982. Stef- anía, dóttir hennar, var með í fór og hafa lengi verið uppi getgátur um að hún hafi ekiö bílnum réttindalaus. Bókarhöfundur telur hins vegar eng- an vafa leika á að Grace hafi sjálf setið undir stýri. Reuter Clinton leggur kollhúf ur Bill Clinton Bandaríkjaforseti setti upp kollhúfu við gyðinglega áramótamessu á sumardvalarstaðnum Marthas Wineyard í gær. Að lokinni messu fór forsetinn einn hring á golfvellinum en lét sér að öðru leyti vandamál heimsins I léttu rúmi liggja. Símamynd Reuter Viöræöur um myndun nýrrar landsstjómar í Færeyjum: Bræða saman þjóðarsáttar- stjórn á f undum allar nætur Johann Mortensen, DV, Færeyjum; Leiðtogar fjögurra flokka sátu á fundi fram til klukkan þrjú í nótt og ræddu hugsanlega þjóöarsáttar- stjórn vinstri- og hægriaflanna. Ákveðið var að halda fundum áfram í dag og næstu daga en að öðru leyti vilja leiðtogarnir ekkert segja. Viðræðumar heita ekki enn form- legar stjórnarmyndunarviðræður en samt gera margir Færeyingar sér vonir um að langvarandi stjómar- kreppu fari senn að ljúka. Vitað er að flokkarnir eru ósáttir um launamáhn. Sambandsflokkur- inn, stóri hægri flokkurinn í Færeyj- um, vill 12% launalækkun með frjálsum samningum. Jafnaðarmenn og Verkamannafylkingin eru á móti. Fylkingarmenn vilja hækka at- vinnuleysibætur en Sambandsmenn eru á móti. Þrátt fyrir þennan ágrein- ing er myndun nýrrar stjórnar hægri- og vinstriflokkanna ekki talin útilokuð. Egyptar leggja áhersluáeðli- legtkynlíf Egypsk stjórnvöld leggja áherslu á það aö orðin „eðlilegt kynlíf ‘ verði sett inn í lokayfir- lýsingu mannfjöldaráðstefuunn- ar sem nú fer fram í Kaíró, allt vegna þrýstings frá íslömskum heittrúarmönnum. Heittrúarmenn segja að drögin að lokayfirlýsingunni mæli sam- kynhneigð bót og að ráðstefhan hafi orðiö til þess aö hommar hafi flaggað lífsstíl sínum í Kaíró. Hefuráhyggjur afæsingnumí Þjóðverjum Roman Herzog, forseti Þýskalands, sagði i gær aö Þjóðveijar væru orðnir miklu umburð- arlyndari og afslappaðri en áður en hann helði nú samt áhyggjur af því auövelt væri að æsa þá upp. I-Iann sagði það einkenni Þjóð- verja hve stutt væri milli ofsa- kæti ogtrega. Reuter Reynoldsrauf samskiptabann viðSinnFein Bilið milli mótmælenda og kaþólikka á Norður-íriandi or enn jafn mikið og áður eftir fund þeirra Gerrys Adams, leið- toga Sinn Fein, pólitísks arms írskalýðveldishersins, ogAlberts Reynolds, forsætisráðherra ír- lands, í gær. Þar með rauf Reyn- olds bann sem Bretar og írar höfðu sett á samskipti við Sinn Fein. John Major, forsætisráðherra Bretlands, hélt fund með einum leiðtoga mótmælenda, klerkinum Ian Paisley. Þeim fundi lauk mjög skyndilega þegar Major bað Pais- ley um að hypja sig og rauk sjálf- ur á dyr í fússi. Adams og Reynolds biðluðu til mótmælenda og sögðu að án þeirra kæmist aldrei á friður. til sárrar Alvörusvar Kúbustjórn hefur geflö Banda- ríkjunum alvöru svar við tihög- um um fleiri innflrijendur. Tekniráflekum Bandaríska strandgæslan hirti hundruð Kúbvetja af flekum á hafmu miUi Kúbu og Flórída. Páfifrestarferð Jóhannes Páll páfi hefur neyðst til að fresta ferð sinni til Sarajevo í vik- unni vegna þess að ekki er hægt að tryggja öryggi hans, íbúum borgarinnar gremju. Páf agarður einn á báti Fulltrúi páfa á mannijöldaráð- stefnunni er einn á móti mála- miðlun um orðalag um fóstureyð- ingar. Grogagnrýnd Heittrúaöir múslímar gagn- rýndu ræðu Gro Harlem Brundt- land á maimíjöldaráðstefnunni. Hermennirnir koma Bandarísk stjómvöld hafa var- að herstjórana á Haítí við þvi að amerískir hermenn séu væntan- legir fljótlega. Herða tökin Herstjórarnir í Nigeríu hafa hert tökin á landsmönnum eftir misheppnaöa tilraun verkfalls- manna til aö bola þeim frá. Bragarbót í Japan Walter Mondale, sendiherra Bandaríkjanna í Japan, segir aö þarlendir verði að gera bragarbót á viðskiptamál- um sínum vilji þeir komast hjá refsiaðgerðum. Fríiðbúið Clinton Bandaríkjaforseti er búinn með sumarfríið og bíða hans mörg erfið verkefni. Torséðflugskeyti Bandaríski flugherinn hefur aflétt leyndarhjúpnum af torséöu flugskeyti. Heim meðsoninn Amerísk kona, sem fékk aðstoð Donalds Feeneys við að endur- heimta son sinn, er komin heim. Bjargað úr bruna Niu manns var bjargað úr brennandi skrifstofuhúsi í Sydn- ey i Ástralíu. Verðhækkun á kaffi Kaffl í Brasilíu hefur hækkað í verði þar sem veðurspár um regn rættust ekki. Goretilírlands A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, hittir Al- bcrt Reynolds, forsætisrað herra íriands, á flugvellinum i Shannon til að ræða friðarviöleitni írlandi. Sonurinn forseti Kim Jong-il verður útneftidur forseti Norður-Kóreu á föstudag, að sögn suður-kóresks dagblaðs. Anastasiafundin Vísindamenn hafa komist að því að Anastasia, dóttir síöasta Rússakeisara, var myrt með for- eldmmsínuml9l8. Reuter Norður-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.