Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700 FAX: Auglýsingar: (91 )563 2727 - aðrar deildir: (91 )563 2999 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Lakkríslandið íslenzk lakkrísverksmiðja var reist í Kína fyrir tveim- ur árum. Aðalþingmaður og aðalfréttamaður Vest- mannaeyja var við opnunina. Skömmu síðar fór íslenzki landbúnaðarráðherrann til Kína til að skoða framtakið, enda voru foryígismennimir frá Norðurlandi eystra. Ríkisstjóm íslands hefur litið björtum augum til mögu- leika íslenzkra aðila til að græða peninga í Kína. Fyrir nokkrum mánuðum var komið upp sendiherra þar í landi. Hann hefur hafzt við í hótelherbergi í Beijing, en á nú að fá langþráð húsakjól í sænska sendiráðinu. Margir hafa tekið eftir, að margt fólk býr í Kína, miklu fleira en í Bandaríkjunum og Japan. Svo virðist sem ríkis- stjóm íslands telji meiri möguleika vera í Kína en í Jap- an úr því að sendiráð í Beijing var tekið fram yfir sendi- ráð í Tokyo, sem lengi hefur verið á döfmni. Utanríkisráðherra fór með fríðu fömneyti á Sagaklass til að ræða viðskiptamál við ráðamenn í Kína. Undir árslok fór svo forsætisráðherra með fríðu föruneyti í sama skyni, en í þetta sinn var föruneytið á almennings- farrými. Þá hafa þingmenn farið austur í fylkingum. Kínverskir ráðamenn em ánægðir með þessar heim- sóknir, því að þeir eru að leita eftir atkvæðum til að komast inn í stofnanir á borð við Alþjóðlegu viðskipta- stofnunina, þótt þeir uppfylh ekki nein skilyrði og sýni raunar ekki neina alvarlega tilburði í þá áttina. Erlendir íjárfestar í Kína em á sama tíma að átta sig á, að það er seintekinn gróði að gera hestakaup við Sum- arhða póst. Valdamenn í Kína bera nefnilega nákvæm- lega sömu virðingu fyrir útlendingum og peningum þeirra og fyrir innlendum andófsmönnum, það er enga. Lögleysa er ahsráðandi í Kína. Hún birtist í virðingar- leysi fyrir mannréttindum og mannhelgi. Og hún kemur fram í kaupsýslu Kínverja. Þeir stela vestrænum hug- verkum og hugbúnaði og framleiða eftirlíkingar í þræla- búðum á vegum hersins og einstakra valdhafa. Lögleysan kom ekki bara fram í morðum á Torgi hins himneska friðar. Hún kemur líka fram í, að erlendir íjár- festar þurfa að rækta póhtísk sambönd, sem koma í stað vestrænna leikreglna. Þeir þurfa að hðka fyrir hverju skrefi með mútum í hefðbundnum þriðja heims sth. Þegar Kínverjar með sambönd sáu sér gróða í að reisa viðskiptahöh rétt við Torg hins himneska friðar, sögðu þeir McDonald’s veitingakeðjunni að hypja sig, þótt fyrir- tækið hefði 20 ára leigusamning um staðinn. Undirritað- ir pappírar eru nákvæmlega einskis virði í Kína. Lehman Brothers fyrirtækið gat ekkert aðhafzt, þegar tvö kínversk fyrirtæki í eigu valdhafa hættu við að greiða því hundrað mihjóna dohara skuld. Þetta eru tvö dæmi af mörgum. Það er engin leið th að leita réttar síns í Kína. Þar kemur geðþótti valdhafa í stað laga og réttar. íslenzka lakkrísverksmiðjan fór auðvitað á hausinn þegjandi og hljóðalaust, enda minni bógar þar á ferð en hjá McDonald’s og Lehman Brothers. Þannig verður líka um aðra íslenzka ljárfestingu í kínverskri framtíð. Hún mun öh hverfa og ekki ein króna skha sér í arði. Ástandið er aht annað handan sundsins, í Japan. Þar ghda að mestu leyti lög og reglur að vestrænum sið, enda hafa mörg íslenzk fyrirtæki gert það gott í viðskiptum við Japan. Þar er miklu meira en nægur markaður fyrir íslenzk fyrirtæki. Þar ætti sendiherra okkar að vera. Það er ekki nóg að dást að mannfjölda. Það þarf líka lög og rétt. Okkur dugar minna en fjölmennasta ríki heims, hvort sem við vhjum selja lakkrís eða fisk. Jónas Kristjánsson Stríðsflokkur Jeltsíns ónýtti friðarumleitun Fyrir viku samþykkti Dúman, neðri deild Rússlandsþings, álykt- un um stríðið í Tsjetsjeníu með 236 atkvæöum gegn einu. Þar var skor- að á Borís Jeltsín forseta og Rúss- landsstjórn að „gera allar ráðstaf- anir til að stöðva vopnaviðskipti í tsjetsjenska lýðveldinu og skapa skilyrði tii pólitísks samkomu- lags.“ Á mánudagskvöld barst orð til fréttamanna í Moskvu um að Vikt- or Tsérnomirdín forsætisráðherra væri í þann veginn að flytja sjón- varpsávarp og boða samkomulag við Tsjetsjena um vopnahlé að tveim sólarhringum hðnum. Af þessu varð ekki, en daginn eftir hélt aðalsamningamaöur Tsje- tsjena, Usman ímaéf dómsmála- ráðherra, fréttamannafund í Moskvu, og kvað sendinefnd sína hafa náð samkomulagi við Tsérnomirdín um vopnahlé sem hefjast skyldi á miðvikudag. Þann dag lýsti Jeltsín hins vegar yfir að engar viðræður um vopna- hlé né annað kæmu til greina við stjórn Dshokars Dúdaéfs Tsjetsje- niuforseta, heldur aðeins forustu- menn einstakra hersveita Tsje- tsjena, ættbálka eða héraða. Og þegar síðast fréttist rigndi enn sprengjum úr rússneskum fall- byssum og árásarflugvélum yfir Grosní, sem var 400.000 manna borg þegar atlaga Rússa hófst. Orrustan um höfuðborg Tsjetsje- níu hefur nú staðið í þrjár vikur, en komið hefur í Ijós að hernaðar- áætlun Rússa gerði ráð fyrir að innrásarliðið legði undir sig landið allt á tveim til þrem dögum. At- burðarásin í friðarumleitunum sem að framan var rakin ber með sér, svo ekki verður um villst, að hernaðurinn er rekinn í óþökk bæði Rússlandsþings og forsætis- ráðherra Rússlands. Fyrir hernaðaraðgerðunum stendur Jeltsín forseti að undirlagi Þjóðaröryggisráðs Rússlands, stofnunar sem hann skipar að eigin vild, og hóps manna sem hann hef- ur safnað um sig í Kreml. Þar eru í innsta hring samstarfsmenn Jeltsíns og trúnaðarmenn allt frá því hann var flokksritari Komm- únistaflokks Sovétríkjanna í borg- inni Sverdlovsk (nú Ekaterinburg) í Úral á áttunda tug aldarinnar og framan af þeim níunda. Yfir starfi Öryggisráðs Rússlands er Oleg Lobof, sem var nágranni og staðgengill Jeltsíns í SVerdlovsk. Lobof hefur ekki dregið dul á að hann er andvígur markaðsvæð- ingu rússnesks efnahagslífs og einkavæðingu fyrirtækja. Starfs- menn Öryggisráðsins sem hann hefur ráðið hafa viðraö hugmyndir um að lýsa yfir neyðarástandi til aö koma í veg fyrir að forsetakosn- Erlend tídindi Magnús Torfi Ólafsson ingar og þingkosningar fari fram á næstu misserum. Fyrsti aðstoðarmaður Rússlands- forseta er titillinn sem Viktor Iljús- hín ber í Kreml. Hann er gamall félagi Jeltsíns frá Sverdlovsk og ræður nú hverjir ná tali af forset- anum og hvaða plögg koma fyrir augu hans. Yfirmaður lífvarðar Jeltsíns, Alex- ander Korshakof, hefur fylgt honum frá 1985. Hann stýrir nú 4.000 manna liði, þrefalt fjölmennara en gætti sov- étleiðtoganna forðum. Korshakof er haldinn þvi einkenni margra lítt ver- aldarvanra Rússa að hafa illan bifur á útlendingum. Lífvarðaforinginn ritaði Tsérnomirdin forsætisráöherra í haust og mótmælti gerð samkomu- lags við Alþjóðabankann um frjáls- legri olíusölu, af því það opnaði erlendum hagsmunum leið að rússneskum orkulindum. Korsha- kof réð því einnig að yfir einkavæð- ingarstofnunina var settur Vladim- ir Polevanof, jarðfræðingur sem vakið hafði á sér athygli fyrir að krefjast endurþjóðnýtingar fyrir- tækja. Fyrsta verk hans var að meina útlendum ráðunautum og starfsmönnum erlendra fyrirtækja aðgang að einkavæðingarstofnun- inni „til að vernda ríkisleyndar- mál“. í Rússlandi ríkir því sem stendur stjórn hirðgæðinga, líkt og gerðist á keisaratímunum. Hún hefur efnt til innanlandsstyrjaldar, sem ekki sér fyrir endann á en hefur berlega leitt í ljós að hemum, innanríkis- ráðuneytinu og öryggisþjón- ustunni stjóma skussar, en þeir eiga allir sæti í Öryggisráöi. Gengi rúblunnar hefur fallið um tíunda hluta síðan bardagar hófust og verðbólga magnast á ný. Fjárlög sem áttu að koma efnahag Rúss- lands á réttan kjöl eru farin úr böndum. Erlend lán og erlend fjár- festing eru í biðstöðu. Viö Rúss- landi blasir því í senn pólitísk, efnahagsleg og hernaöarleg kreppa. Og forsetinn stendur uppi rúinn trausti með gæðinga sína eina við að styðjast. Boris Jeltsín Rússlandsforseti segir fréttamönnum i Kreml á miðvikudag að friðarviðræður við stjórn Tsjetsjeníu komi ekki til greina af sinni hálfu. Simamynd Reuter Skoðanir annarra Von á átökum „Það er ljóst að raunveruleg hætta er á nýju meiri háttar stríöi á Balkanskaganum bráðlega. Öðram megin stendur serbneski minnihlutahópurinn í Kraj- ina í Króatíu og hugsanlega Stór-Serbía með þeim og hinum megin Króatía. Serbar og Króatar börðust í upphafi stríðsins þegar Júgóslavía leystist upp. Krajína-Serbar, sem sætta sig ekki við að verða minnihlutahópur í nýrri Króatíu, náðu um þriðjungi landsins í átökunum og ráku burt fjölda Króata. Krótatar hafa nú vísað friðargæsluliðum SÞ úr landi 31. mars. Þá er von á hörðum átökum.“ Úr forystugrein Washington Post 19. jan. Repúblikanar ekki á einu máli „Stjóm Clintons hefur stundum verið ásökuð, rétti- lega, fyrir vöntun á stefnufestu og ákveðni í utanrík- ismálum. Ekki er hins vegar hægt að segja að nýr meirihluti repúbhkana á þingi hafi staðið sig betur í því að koma með valmöguleika um utanríkisstefnu. Þegar kemur að málum eins og Bosníu, aukinni að- stoð til Rússlands og stækkun NATO eru repúblikan- ar langt frá því að vera á einu máh.“ Úr forystugrein Los Angeles Times 19. jan. Svíþjóð og kjamorkan „Nú eru liðin fimmtán ár síðan Svíar greiddu at- kvæöi um kjarnorkuna. Niðurstaðan varð „skyn- samleg" nýting. Sænska þingið ákvað síðar að áriö 2010 skyldi notkun kjamorku verða hætt. 1991 náðu Sósíaldemókratar, Miðflokkurinn og Þjóðarflokkur- inn saman um að loka öllum kjarnorkuvemm þegar og ef efnahagurinn leyfði það. Eins og málin standa nú htur ekki út fyrir að það geti orðið árið 2010 eins og þingið hafði lofað. Sænskur efnahagur er eins og kunnugt er ekki traustur um þessar mundir. Úr forystugrein Politiken 18. jan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.