Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 43 Reagan og alzheimerinn Á liönum áratugum haifa engir menn haft önnur eins völd og for- setar Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna. Þeir höfðu puttana á kjam- orkusprengjum, ótakmarkaða olíu og stjórnuöu peningakerfi heims- ins. Þeir mynduöu bandalög við aðrar þjóðir, fóru með heri inn í lönd og sýndu styrkleika sinn. Kaf- bátar og flugvélar fullhlaðin kjarn- orkusprengjum sveimuðu um heiminn til í allt. Þrátt fyrir hrun Sovétríkjanna gömlu geta Rússar og bandalagsþjóðir þeirra ennþá sprengt mannkynið til heljar og heim aftur nokkrum sinnum með kjarnorkuvopnum sínum. Annar alki; hinn með hrörnunarsjúkdóm Það er skelfilegt til þess að hugsa að æðstu völd í Rússlandi skuli vera í höndum alkóhólistans Bor- ísar Jeltsíns. Sauðdrukkinn og dómgreindarlaus er hann að stríða í fjarlægu landi og berja á allri al- þýðu með sprengjuregni. Hitt er jafn hryggilegt að Bandaríkjunum var um langt skeið stjórnað af for- seta sem leið af alvarlegum hrörn- unarsjúkdómi. Ronald Reagan til- kynnti löndum sínum fyrir nokkru að hann væri með alzheimerssjúk- dóm. Flestir læknar eru á einu máli um það að sjúkdómurinn hafi sett svip sinn á síðustu stjórnunar- ár forsetans þegar hann virtist ekki hafa full tök á embættisfærslum sínum. Minni og athyghsgáfu var stórlega ábótavant, en forsetinn fyrrverandi reyndi að breiða yfir þessi vandamál með aulafyndni og gömlum Hollívúdd-sjarma. Alzheimers- sjúkdómurinn Alzheimerssjúkdómur er kennd- ur við Þjóðveijann Alois Alzheimer sem fyrstur lýsti sjúkdómsferlinu í byrjunþessarar aldar. Sjúkdómur þessi einkennist af hrörnun og dauða taugafrumna svo að heilinn rýrnar verulega. Boðefni breytast og allri æðri starfsemi heilans fer Á læknavaktiimi aftur. Sjúkdómurinn fer hægt af stað en sjúklingurinn og umhverfi hans taka eftir versnandi minni og vaxandi dómgreindarleysi. Hugsun verður óskýr og órökrétt og öll hegðun breytist. Skapgott fólk verður skyndilega geðstirt og erfitt í allri umgengni. Alls kyns rang- hugmyndir skjóta stundum upp kolhnum. Eiginmenn ásaka sóma- kærar konur sínar um framhjáhald og ósiðlegt athæfi. Smám saman verður minnisleysið svo alvarlegt að sjúkhngurinn fer að villast á kunnuglegum slóðum og missir aht frumkvæði. Hreinlæti og daglegri umönnun verður áfátt og sjúkhng- ur þarfnast mikillar hjálpar. Að- standendur lenda oft í miklum vandræðum enda verða sjúkhng- arnir oft algjörlega hjálparvana. Þeim hrakar smám saman og sjúk- dómurinn dregur sj úkhnginn til dauða enda er engin lækning fyrir hendi. Meðahífslengd eftir grein- ingu er 8 ár. Menn hafa reynt margs konar lyf en ekkert eitt hef- ur fundist sem gefur óbrigðulan árangur. „Þetta er skelfilegt!" Þegar Nökkvi læknir leit yfir þessi einkenni alzheimerssj úk- dómsins varð honum hugsað til Ronalds Reagans forseta. Hann fyhtist skelfingu, leit til hins kjarn- orkuveldisins og féllust þá algjör- lega hendur. Það er skelfilegt að virkum alkóhólistum og alzheim- erssjúkhngum skuli vera trúað fyr- ir fjöreggi mannkyns. Fæstir for- eldrar gætu hugsað sér að trúa þessum kumpánum fyrir börnum sínum eina kvöldstund. Einkenni beggja sjúkdómanna eru vaxandi dómgreindarleysi, ofsóknaræði og ranghugmyndir. Ekki þarf mikið að gerast í alþjóðaviðskiptum th að heilar þessara manna fari á eitt- hvert gönuhlaup sem auðveldlega gæti endað í sameiginlegri helfor alls mannkyns. Nökkvi læknir hef- ur í raun enga lausn á vanda sem þessum. Hann htur stundum yfir þann hóp manna sem stjórna heim- inum og biður síðan alla góða vætti að gæta mannkyns. -rfre $ s í 36 ár Vegna forfalla geta nokkrar konur komist að í hress- Allll! E»gg 99*17*00 Verö aðeins 39,90 mín. l| Læknavaktin 2 j Apótek 31 Gengi Þetta er auglýsing um ofmörg aukakíló... ...og góða leiðtilað losna við þau FITUBRENNSLUNÁMSKEIÐ STÓRÁTAK - YFIRVIGT 3 lokaðir tímar í viku 2 x í viku frjáls mæting í aðra tíma fitumæling, vigtun, cm. mæling kripalujóga matardagbók uppskriftir að léttum réttum kvensjúkdómalæknir hár og förðun mjög gott aðhald barnagæsla Námskeíöin hefjast 25. jan / 30. jan / 6. feb Takmarkaöur fjöldi ;v - f BAÐHUSIÐ Ármúla 30 • Sími 88 16 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.