Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 61 Töffarinn Jean-Claude Van Damme leikur aðalhlutverkið. Timecop Sambíóin og Laugarásbíó frum- sýndu í gærkvöldi nýja spennu- mynd með belgíska töffaranum og slagsmálaieikaranum Jean- Claude Van Damme í aðalhlut- verkinu. Þetta er bandarísk has- armynd sem ber nafnið Timecop en þetta er jafnframt langvinsæl- asta myndin sem Van Damme hefur leikið í til þessa. Myndin hefst í byrjun næstu aldar þegar ferðalög um tímann Kvikmyndahúsin eru orðin aö raunveruleika og allt í einu er orðiö mögulegt að breyta gangi mannkynssögunn- ar. Hægt er að stjórna fjármagns- mörkuðum og jafnvel er mögu- legt að leggja heilu löndin í rúst. Peter Hymas leikstýrir Timecop en hann hefur mikla reynslu í gerö kvikmynda sem eiga að gerast í framtíðinni. T.d. leikstýrði hann og skrifaði hand- ritiö að 2010, sem er framhald af tímamótaverkinu A Space Odyss- ey. Af öðrum framtíðarmyndum sem hann hefur gert má einnig nefna Outland og Capricom. Samstarfið hjá Peter Hyams og Jean-Claude Van Damme hefur greinilega gengið vel því þeir eru farnir að vinna saman aftur, nú að gerð myndarinnar Sudden Death. Nýjar myndir Háskólabíó: Okkar eigið heimili Laugarásbíó: Timecop Saga-bíó: Ógnarfljótið Bíóhöllin: Timecop Stjörnubíó: Aðeins þú Bíóborgin: Banvænn fallhraði Regnboginn: Hetjan hann pabbi Fjörleg íþrótta- helgi íþróttamenn hafa í nógu að snúast um þessa helgi og íþróttaáhugamenn ættu líka að geta fundið eitthvaö við sitt hæfi en fjölmargir kappleikir eru fyr- íþróttir irhugaöír í dag og á morgun í iþróttahúsum víös vegar um landið. HK og Stjaman og ÍS og KA mætast í dag í 1. deild karla í blaki og í sömu deild hjá kvenfólkinu efla kappi lið ÍS og KA. Valur og ÍH leika í 1. deild karla i handknattleik í dag og á morgun eru fimm leikir i sömu deild, Stjaman-PH, Víkingur-Affureld- ing, KA-Selfoss og HK-ÍR mætast þá en allir leikimir á sunnudags- kvöld hefjast kl. 20 neraa í Kópa- voginum, þar byrjar leikurinn hálftíma síðar. Ekki má heldur gleyma viðureign Hauka og portúgalska liðsins Braga i Evr- ópukeppninni annaö kvöld. Sá leikur er i Hafnarfirði. Um helgina eru fjórir leikir í 1. deild karla í körfuknattleik og sömuleiðis fjórir leikir i 1. deild kvenna í sömu íþróttagrein. Ann- að kvöld er svo komið að stjöm- unum í úrvaldsdeildinni í körfu- bolta. Þar er stórleikurinn viöur- eign Suðurnesjaliöanna UMPG og UMFN. Keflvíkingar fá Hauka í heimsókn, Tindastóll og ÍA mætast á Króknum, Þór fer í Seljaskóla og leikur við ÍR, KR fær Snæfeil í heimsókn og loks taka Valsmenn á móti SkaUa- grím. OO Bjartviðri víða sunnanlands I dag er spáð norðaustanátt, víða all- hvassri vestan- og norðanlands en Veðrið í dag hægari annars staðar. Sunnanlands verður víða bjart- viðri en él annars staðar. Sólarlag í Reykjavík: 16.38 Sólarupprás á morgun: 10.38 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.30 Árdegisflóð á morgun: 09.48 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri skýjað 0 Akumes úrk.í grennd 3 Bergstaðir skýjað 0 Bolungarvík snjóél 0 Kefla víkurflugvöilur snjókoma 1 Kirkjubæjarklaustur skýjað 2 Raufarhöfn þokumóða 1 Reykjavik úrk.í grennd 3 Stórhöfði úrkomaí - grennd 4 Bergen úrkoma í grennd 7 Helsinki léttskýjað -4 Kaupmarmahöfn rigning 1 Stokkhólmur skýjað 1 Amsterdam skúrásíð. klst. 9 Berlín skýjað 0 Frankfurt rigning 4 Glasgow skýjað 3 Hamborg rigning 5 London skýjað 8 LosAngeles alskýjað 9 Lúxemborg rigning 6 Mallorca • hálfskýjað 16 Montreal alskýjað 2 New York súld 6 París hálfskýjað 9 Róm hálfskýjað 12 Vin skafrenn- ingur -A Washington súldásíð. klst. 9 Norræna húsió: Danski djasspianóleikarinn Thomas Clausen er nú staddur hér á landi við kennslu og námskeiðs- haid í Tónlistarskóla FÍH. Hann kemur til íslands á vegum norrænu djasssamtakanna Nord-Jass og djassdeildar FÍH. Skemmtanir Á sunnudagskvöld kl. 20 leikur hann í Norræna húsinu ásamt ís- lenskum djasstónlistarmönnum. Meðleikarar Clausens veröa Sig- urður Flosason saxófónleikari, Tómas R. Einarsson kontrabassa- leikari og Einar Scheving trommu- leikari. Þeir munu leika saman sem kvartett, tríó og dúó, en einnig mun Clausen leika einn. Thomas Clausen hefur verið í hópi fremstu jasspíanóleikara Evr- ópu undanfarinn aldarfjórðung. Hann hefur leikið með fjölda bandarískra djasstónlistarmanna sem sótt hafa Danmörku heim. Daninn Thomas Clausen leikur djass. Þeirra á meðai eru Dexter Gordon, Johnny Griffin, Lee Konitz, Jackie McLean, Miies Davis og Gary Bur- ton. Þórhallur Sigurðsson leikstjóri: Samskipti kynj- anna og áleitnar spumingar Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær- kvöldi á Litla sviðinu leikritið Oleanna eftir David Mamet en hann þykir með allra fremstu nútímaleikskáldum Bandaríkj- anna auk þess sem hann er þekktur fyrir gerð kvikmynda- handrita og leikstjórn. Leikstjóri verksins í Þjóöleikhúsinu er Þór- hallur Sigurðsson og hann hefur m.a. þetta að segja um Oleönnu: „Ung stúlka kemur til kennara Leikhús síns í háskóla en hann hefur kall- að á hana af því að hún hefur ekki staðið sig nógu vel við að leysa þau verkefni sem hún á að leysa.“ Samskipti kennarans og nem- andans taka smátt og smátt á sig ófyrirséöa mynd og áhorfendur standa að lokum frammi fyrir áleitnum spurningum um sam- skipti kynjanna, misbeitingu valds og teygjanleika þess sem kallast getur rétt eða rangt. Jóhann Siguröarson leikur kennarann en það er Elva Ósk Ólafsdóttir sem er í hlutverki nemandans. Þórhallur Sigurðs- son er leikstjóri eins og fyrr segir. Kröfur til stjóm- málamanna Siðfræöistoffum islands gengst fyrir málþingi um siðferði stjóm- mála. Fjallað verður um mikii- vægustu dyggðir stjórnmála- mannsins? Hvaða siðfræðilegu kröfúr eru gerðar og á að gera til stjómmálamanna? Er ástæða til að stjórnmálamenn skrái siða- reglur sinar? Málþingið er haldið í Odda, stofu 101, og hefst kl. 13 í dag. Það er öllum opiö. Fundir Fyrirlestur Sótstöðuhópsins Sólstöðuhópurinn gengst fyrir fyrirlestri í Norræna húsinu í dag kL 13. Fyrirlesturinn ber yfir- skriftina Hringdans fjölskyld- unnar, viö hvern dönsum við? Fyrirlesari er Sigurður Ragnars- son sálfræðingur. Eftir fyrirlest- urhm verða pallborðsumræður. ^—«. Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 18. 20. janúar 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 67.200 67,400 69,250 Pund' 106,590 106,910 107,010 Kan. dollar 47.160 47,340 49,380 Dönsk kr. 11,2480 11,2930 11,1920 Norsk kr. 10,1420 10,1820 10,0560 Sænsk kr. 9,0410 9,0770 9,2220 Fi. mark 14,3500 14,4070 14,4600 Fra. franki 12,8200 12,8710 12,7150 Beíg.franki 2,1531 2,1617 2,1364» Sviss. franki 52.8000 53,0100 51,9400 Holl. gyllini 39,5800 39,7400 39,2300 Þýskt mark 44,4100 44,5500 43.9100 it. líra 0,04200 0,04222 0,04210 Aust. sch. 6,3060 6,3370 6,2440 Port. escudo 0,4296 0,4318 0,4276 Spá. peseti 0,5094 0,5120 0,5191 Jap. yen 0,67810 0.68010 0,68970 irskt pund 105,460 105.990 105,710 SDR 98,94000 99,43000 100,32000 ECU 83,9000 84,2300 Simsvari vegna gengisskráningar 623270.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.