Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 36
44 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 fþróttir DV Andy Cole steinhissa á sölunni til Man. Utd: fram að því var hins vegar afar glæsileg og markaskor hans í raun ótrúlegt á stundum. Það kom Cole gífurlega á óvart þegar hann var seldur til Man- chester United: „Hafi það komið stuðningsmönnum Newcaastle á óvart þegar ég var seldur þá var ég enn meira hissa. Núna er ég leik- maður Manchester United. Ég veit að ég á eftir að skora mörk fyrir Man. Utd og það mörg mörk. Ég hef alls ekki misst sjálfstraustið. Leikmenn Man. Utd eru hver öðr- um betri og nægir þar aö nefna Eric Cantona sem er einn besti leik- maður heims í dag,“ segir Cole. Um þær undarlegu getgátur að Cole muni ekkert geta í framtíðinni án Peters Beardsley segir Andy Cole: „Ég á erfitt með að trúa því að þetta hafi verið sagt. Beardsley er góður leikmaður en áöur en hann kom til Newcastle hafði ég skorað 12 mörk í 12 leikjum fyrir félagið án aðstoðar frá Beardsley. Alex Ferguson sagði við mig að hann hefði keypt mig vegna hæfi- leika minna, hæfileika sem ekki væru til staðar í hans liði þessa stundina. Ferguson hefur unnið nánast alla titla sem hægt er með United svo hann hlýtur að vita hvað hann er að segja. Ég mun hjálpa United til að vinna meistara- titilinn." „Margir geta verið ánægðir með 15 mörk“ „Ég hef skorað 15 mörk á þessu tímabili þrátt fyrir að hafa misst úr marga leiki en vegna þess að ég skoraði 41 mark á síðasta tímabili þykja mönnum þessi 15 mörk núna kannski lítið til að státa sig af. Margir sóknarleikmenn geta þó verið ánægðir með að hafa skorað 15 inörk það sem af er þessu tíma- bili,“ segir Cole. Þrátt fyrir að engan Peter Beardsley sé að íinna í liði Man. Utd á Cole örugglega eftir að skora mörk fyrir nýja félagið. Menn eins og Cantona, Ince, Giggs, Kanc- helskis og Sharpe eru vel færir um að mata þennan snjalla sóknar- mann. Frá því að Andy Cole var seldur frá Newcastle til Manchester United hefur hann mátt þola alls kyns sví- virðingar og lygar úr ýmsum átt- um. Cole hefur fengið að heyra það að hann sé einfaldlega búinn að vera og muni ekkert geta í framtíð- inni enda hafi hann ekki Peter Beardsley lengur sér við hhð. í ejnu bresku blaðanna skrifuðu öfundar- menn á dögunum að Cole heföi þegar brugðist þremur félögum og myndi án efa einnig bregðast því fjórða. ErCole800milljóna króna virði? Þeir sem vita að knattspyrna geng- ur út á það að skora mörk vita auðvitað að Cole hefur slegið í gegn í enskri knattspyrnu undanfarin ár en hvort hann er 7-800 milljóna króna virði skal ósagt látið. „Á eftir að skora mörg mörk fyrir United“ Andy Cole skoraði ekki mark í síð- ustu níu leikjum sínum með New- castle enda lék hann meiddur í þeim flestum. Frammistaða hans Andy Cole á eftir að sanna sig hjá einu mesta stórveldi enskrar knattspyrnu. Cole er i hópi marksæknustu framherja á Bret- landseyjum fyrr og síðar. Hann skoraði á síðasta timabili með New- castle United 41 mark. Legið undir lygum og svívirðingxun Paul Merson kominn á kreik eftir sex vikna meðferð: Grét eins og bam á bladamannafundi Paul Merson, leikmaður Arsenal í ensku knattspyrnunni, er á ný kom- inn í faðm fjölskyldu sinnar eftir sex vikna meðferð við áfengissýki og neyslu eiturlyfja. Merson mun leika • Gary Lineker til vinstri með fjöl- skyldu sinni við komuna til Englands frá Japan. Lineker tekur nú til starfa á breskri sjónvarpsstöð. á ný með Arsenal á þessu tímabili en einhver bið kann að verða á því. Merson hélt blaðamannafund á dögunum þar sem hann viöurkenndi að hafa neytt kókaíns, neytt áfengis í óhófi pg stundaö veðmál sem vitlaus væri. Á fundinum grét Merson eins og barn og virðist sem hann eigi langt í land með að ná sér eftir atburði síð- ustu vikna. George Graham, framkvæmda- syóri Arsenal, hefur lýst því yfir að allt verði gert til að hjálpa Merson í erfiðleikum hans og hann verði ekki látinn fara frá félaginu. Eiginkona Mersons, Lorraine, sem er 26 ára gömul eins og Merson og hefur verið hans hægri hönd frá því þau voru 15 ára gömul, stendur við hlið Mer- sons sem klettur. „Ég virði Merson fyrir það sem hann hefur gert í sín- um málum undanfarið, fyrir það hugrekki sem hann hefur sýnt með því að horfast í augu við vandamál sín og takast á við þau,“ segir Lorra- ine og bætir við: „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir hann og einnig fyrir mig. Á meðan hann var i meðferð- inni hafði ég nóg að gera við að halda heimilinu gangandi. Það hefur verið erfitt og ekki síst vegna þess að ég geng með þriðja barn okkar hjóna." Eiginkonan oftast síðust til að fá fréttirnar Lorraine segist ekki hafa verið faer um að hjálpa eiginmanni sínum: „Ég gat það ekki vegna þess að ég vissi hreinlega ekkert um vandamál hans. Hlutur af vandamálinu er að eigin- konan er oft síðust til að fá fréttirn- ar.“ Paul Merson segist vera nýr maður eftir meðferðina og eftir hana muni áherslur í lífi hans breytast. „Ég elska fjölskyldu mína og hér eftir mun hún hafa forgang í lífi mínu,“ segir Merson. Það var ekki bara Paul Merson sem kom til síns heima á dögunum eftir langa fjarveru. Gary Lineker kom á ný til Englands eftir veru í Japan. Lineker hefur sem kunnugt er lagt knattspyrnuskóna á hilluna en mun innan skamms taka til starfa hjá breskri sjónvarpsstöð. LHWOOft collece" Margeir er hér í miðið milli tveggja forráðamanna Elmwood skólans í Skot- landi. Útskrifaður frá breskum skóla í rekstri golfvalla Margeir Vilhjálmsson frá Suður- nesjum lauk í nóvember námi í golf- vallaumhirðu frá virtasta skóla Bret- landseyja í því fagi. Margeir lauk samtímis grunnnámi (36 vikna reglu- legu námi, bóklegu og verklegu) og framhaldsnámi í rekstri golfvalla sem venjulega stendur á annað skólaár. Þetta er sérlega góður ár- angur hjá Margeiri og telst nánast einsdæmi að menn ljúki þessu námi sama árið. Þá lauR Margeir náminu með þeim ágætum að hann var útnefndur sem fulltrúi skólans í keppni um sæti full- trúa Skotlands í „Toro/PGA Young Greenkepper of the Year“ sem er keppni fulltrúa hvers lands á Bret- landseyjum um titilinn „besti nýi gollvallarstarfsmaður ársins". Hann lenti í 2. sæti í þeirri keppni og fékk sem verðlaun ferð til Spánar á ráð- stefnuna „European PGE Tour Con- ference“ sem er ráðstefna um móta- röð atvinnumanna í Evrópu, vinnu í eitt ár á Glenegles-völlunum í Skot- landi en þeir eru taldir toppurinn í Skotlandi, vinnu við framkvæmd tveggja atvinnumannamóta í móta- röð í PGA í Evrópu í ár. Skólinn veitti Margeiri verðlaun sem kallast „St. Andrews Links Trust Awards". Margeir er sem stendur viö vinnu fá Glenegles-völlunum í Skotlandi. Hann hefur áhuga á að halda út í frekara nám eða jafnvel aö taka aö sér umsjón einhvers vallar í Bret- landi en hann hefur fengið mörg at- vinnutilboð í því sambandi. Þá er hann einnig tilbúinn að koma heim, bjóðist starf við hæfi. Lyfjamál bresku hlaupakonunnar Diane Modahl: Styöur eiginkonuna með öllum ráöum Vicente Modahl, eiginmaður bresku hlaupakonunnar Diane Modahl, er enn starfandi sem um- boðsmaöur i frjálsum íþróttum þrátt fyrir að eiginkona hans hafi orðiö uppvís að ólöglegu lyfjaáti og verið dæmd í langt keppnisbann. Lítið hefur verið að gera hjá Vic- ente undanfarið en hann gefur síg einnig út fyrir að vera mótshaldari og skipuleggjandi stórmóta í frjáls- um íþróttum. í næsta mánuði ætlar Vicente að halda stórmót fyrir há- stökkvara og á meöal þeirra sem hafa boðað komu sína á mótið eru Javier Sotomayor frá Kúbu, besti hástökkvari heims í dag, og Steve Smith sem vann bronsverðlaun á síðasta heimsmeistaramóti. Smith sagði: „Það er Vicente Modahl að þakka að ég á ibúð og bil í dag. Einnig get ég þakkað honum frama minn á íþróttasviðinu. Ég mun mæta á þetta mót, þó ekki væri til annars en að sýna Vicente stuðning og þakklæti fyrir það sem hann hefur gert fyrir frjálsar íþróttir." Vicente er sannfærður um sak- leysi eiginkonu sinnar hvað lyfja- átinu viðkemur en Modahl hefur áfrýjað dómi i máli sínu. „Viö hefð- um hæglega getað sleppt þessari áfrýjun. Hún mun kosta okkur gríðarlega mikla peninga. Við áfrýjum ekki síst til að undirstrika nauðsyn eins hlutar i lifinu og það er réttlæti. Og réttlætið í þessu máli verður að nást fram,“ segir Vicenté og bætir við: „Ég mun nota hvern eyri, sem mér hlotnast í minni vinnu, í þetta mál, svo lengi sem ég lifi. Við erum viðbúin því að selja íbúðina okkar og búa í litlu herbergi hjá foreldrum hennar ef meö þarf. Ef einhverjum dettur í hug að við séum hætt í þessari bar- áttu er það alrangt. Þessu máli er aldeilis ekki lokið. Það er dapurlegt og ranglátt að Modahl skuli hafa þurft að ganga i gegnum þessa hluti. Líf okkar hefur verið erfitt en við érum staðráðin í því að rétt- lætið sigri að lokum." • Paul Merson ásamt sonurn sínum tveimur og eiginkonunni Lorraine.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.