Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 41 Nýstárleg þjónusta fyrir verðandi mæður á Landspítalanum: Fæða í hjónarúmi eða grjónastól - í heimilislegu umhverfi „Viö tókum þessa þjónustu upp til að gefa konum nýjan valkost varð- andi meðgöngu og fæðingu. Ýmsir hafa gengið með þessa hugmynd í maganum lengi en það voru síðan yfirljósmóðir og hjúkrunarfram- kvæmdastjóri sem fengu sex ljós- mæður til aö sinna þessari þjón- ustu,“ segir Rósa Bragadóttir ljós- móðir sem er ein þeirra sex ljós- mæðra sem starfa á nýrri deild innan kvennadeildar Landspítalans sem nefnist MFS - meðganga, fæðing og sængurlega. Á þessari nýju deild, sem reyndar er einungis ein skoðun- arstofa og fæðingarherbergi, er boðið upp á heimilislega og persónulega þjónustu fyrir þær konur sem þaö kjósa. við þær en lækni hitta þær ekki nema tvisvar til þrisvar á meðgöngu og þá ef þær biðja sérstaklega um það. Við viljum að traust skapist á milli okkar og kvennanna og í rauninni er það mjög sérstakt andrúmsloft sem skap- ast við þessar aðstæður," segja þær Rósa og Sigurborg. „Þær konur sem koma tii okkar viröast ná mjög góðri slökun og geng- ur því vel að fæða án mikilla verkja- lyfja. Fæðingarstofan okkar, sem er eins og venjulegt hjónaherbergi í út- liti, er nokkuð sér þannig að konurn- ar verða ekki fyrir truflun. Við finn- um aö það hefur mjög góð áhrif á þær,“ segir Sigurborg. Þessi nýstár- lega fæðingarhjálp hefur verið starf- rækt síðan í júní. Heim eftir fæðingu „Sömu ljósmæðurnar hugsa um konurnar alla meðgönguna og taka siðan á móti börnum þeirra í lítilli heimilislegri stofu. Konan fer síðan heim 12-A8 tímum eftir fæðingu og þá sinnir ljósmóðir henni áfram heima," útskýrir Rósa. Litla skoðunarstofan lítur fremur út sem herbergi í heimahúsi en stofa á sjúkrahúsi. Þar er lítið sófasett, lampar og myndir á veggjum sem hafa veriö málaðir í ljósgulum lit og skreyttir veggfóðursborðum. Ljósið í skoðunarherberginu er dempað og meðan á skoðun stendur hggur kon- an á rúmlega fimmtíu ára gömlum bekk sem Pétur Jakobsson prófessor kom með hingað til lands i kringum 1940. Fyrir allar heilbrigóar konur Allar konur sem eru heilbrigðar á meðgöngunni eiga þess kost að njóta þessarar heimilislegu aðstoöar án sérstaks aukakostnaðar. Hér er um tilraun að ræða sem hefur tekist mjög vel því 80 konur hafa komiö í skoðun hjá MFS og 16 þeirra hafa þegar fætt. Aðstaðan er þó smá í snið- um og ljósmæðurnar hefðu viljað mun meira pláss. Rósa segir að þær geti sinnt 200 konum á ári. Auk þess að fylgjast með konunum eru þær einnig með foreldrafræðslunám- skeið, slökun og myndbönd sem þær lána. „Við reynum að hafa þetta allt sem náttúrulegast og láta konunum líöa sem best,“ segir Sigurborg Krist- insdóttir ljósmóðir. „Við gefum kon- unum góðan tíma í skoðun, ræðum Eins og heima í fæðingarherberginu er hjónarúm og getur eiginmaðurinn veriö hjá konunni eftir fæðinguna þar til hún fer heim. Einnig eru aðrir fjölskyldu- meðlimir velkomnir. Sigurborg segir aö það sé mjög gott að vinna á náttúrulegan hátt með barnshafandi konum en jafnframt skapi það mikiö öryggi að hafa í hús- inu alla þá læknisþjónustu sem völ er á. „Að öllu jöfnu er enginn læknir viðstaddur fæðingar hjá okkar kon- um nema eitthvað sérstakt komi upp á,“ segir Rósa. „Konurnar geta valið hvernig þær vilja fæða en vinsælt er að fæða í svokölluðum grjónastól- um.“ Mikil breyting Segja má að mikil breyting hafi orðið á viðhorfi lækna til barnshaf- andi kvenna með þessari nýju þjón- ustu. Hingað til hefur verið litið á þessar konur sem sjúklinga en það er að breytast. Hulda Jensdóttir ljós- móðir og fyrrum yfirmaður Fæðing- arheimilis Reykjavíkur var mjög á undan sinni samtíö hér á landi hvað þetta varðar og bauð upp á náttúru- legar fæðingar snemma á áttunda áratugnum. Þá voru náttúrulegar fæðingar kallaðar franska fæðingar- aðferðin. Þær Rósa og Sigurborg segja að sem betur fer sé fæðingarhjálp að breytast í þá áttina að vera sem nátt- úrulegust og margar konur kjósa að fara heim að lokinni fæðingu. Áður þurftu þær að Uggja í marga daga á sjúkrahúsi. Ekki mega þær þó fara of geyst þegar heim er komið enda leggja ljósmæðurnar mikla áherslu á Hið heimilislega fæðingarherbergi á Landspítalanum þar sem konur geta fætt börn sin í hjónarúmi, en þá er sófinn dreginn fram. Rósa Bragadóttir Ijósmóðir sýnir hér hversu vistlegt umhverfið er. DV-myndir GVA Asdís Arnadóttir nýtur hér aðstoðar Sigurborgar Kristinsdóttur Ijósmóður en dóttir Asdísar, Kristín Rut, 9 ára, fékk að fylgjast með. að þær séu sængurkonur engu að síður. Eiginmennirnir reyna þá að fá frí frá vinnu og vera heima. Ánægð með þjónustuna Ásdís Árnadóttir á von á sínu þriðja barni eftir þrjár vikur. Hún hefur notað þjónustu MFS og er mjög ánægð með hana. „Mér finnst mjög gott að koma hingað og hef haldið mig við Sigurborgu sem ég er mjög ánægð með. Auk þess vil ég fara heim eftir fæöinguna þar sem ég hef mjög góðar aðstæður til þess,“ sagði Ásdís. Hún á tvær dætur, 9 og 10 ára, og segir að skoðun á meðgöngu hafi breyst mikið frá því fyrir níu árum. „Þetta er allt miklu persónulegra og þægilegra," segir hún. Ljósmæðurn- ar sex sem starfa á MFS-deildinni eru líka reiöubúnar til að veita alla þá aðstoð sem konurnar óska eftir og leiðbeina þeim. „Fæðingin á að vera sem náttúrulegust," segja þær. ANDLEG OG LÍKAMLEG UPPBYGGING OG ÞiÁLFUN í NÝJA ÍR-HÚSINU VIÐ SKÓGARSEL Verí fyrir 3 mk §#§GO/' kr. og kr. I. bðrn ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 58 8 9 845 og 588 3638
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.