Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 23 Leikmyndin í West Side Story verður til: Erum alltaf að skapa eitthvað nýtt - segir Birgir Sveinbergsson, einn eigandi Sviðsmynda sem skapa umgjörð fyrir leikhúsin „Eg fór til New York fyrir rúmum tíu árum ásamt meðeigendum mín- um og þar sáum við fyrirtæki eins og þetta. Ætli hugmyndin hafl ekki orðið til þá en við vorum starfandi leikmyndasmiðir hjá Þjóðleikhús- inu,“ segir Birgir Sveinbergsson, einn eigenda fyrirtækisins Sviðs- myndir, en það mun halda upp á tíu ára afmæh sitt á næstunni. Sviðs- myndir sjá um að smíða leikmyndir fyrir leikhúsin í Reykjavík og voru nú að ljúka gerð leikmyr.dar fyrir söngleikinn West Side Story. Eigend- ur Sviðsmynda, fyrir utan Birgi, eru Snorri Björnsson og Sigurður Kr. Finnsson. Hjá fyrirtækinu starfa frá sjö og upp í tólf manns. Sviðsmyndir eru sérstakt fyrirtæki sem fæst við hina ólíklegustu hluti, allt frá því að búa til litla gjafakassa upp í stór leiktjöld eða jafnvel sýn- ingar. Þegar DV fór þangað í heim- sókn var unnið af miklum krafti við að búa til leikmynd fyrir söngleikinn West Side Story. Leikmyndin er smíðuð hjá Sviðsmyndum en er síð- an flutt í Þjóðleikhúsið. Sviðsmyndir eru í mjög stóru húsnæði en svið Þjóðleikhússins er þar markað í gólf- ið í fullri stærð. Þess má geta að söng- leikurinn West Side Story, Saga úr vesturbænum, verður frumsýndur í lok febrúar en það er í fyrsta skipti sem þetta verk er tekið til sýningar hér á landi. Á fjórða tug leikara, söngvara og dansara taka þátt í upp- færslunni. Eitt stærsta verkefni Sviðsmynda var þó að setja upp sýningar vegna 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Sjá um mestalla leikmyndagerð Áður en Sviðsmyndir voru stofnað- ar var öll leikmyndagerð innan veggja leikhúsanna en það breyttist með tilkomu þeirra. íslenska óperan var fyrsta leikhúsið til að notfæra sér þessa þjónustu enda hafði hún enga aðstöðu til leikmyndagerðar. Einnig hafa Sviðsmyndir unnið fyrir Leikfé- lag Reykjavíkur, fyrst á eigin verk- stæði en síðan í Borgarleikhúsinu þegar það tók til starfa. Fyrir rúmu ári lokaði Þjóðleikhúsið verkstæði sínu og hafa Sviðsmyndir séð um smíði á leikmyndum þess síðan. Verðurtil ítölvu Birgir segist ekki muna hve fyrir- tækið hafi smíðað margar leikmynd- ir enda skipta þær hundruðum. Leik- myndin í West Side Story er mjög mikið og stórt verkefni. Hönnuður ieikmyndarinnar, Finnur Arnar Arnarson, bjó til módel sem síðan var teiknað upp á tölvu en Sviðs- myndir hafa komið sér upp tölvu- búnaði sem auðveldar mjög leik- myndagerð. „Með tölvunni fáum við mjög fullkomin gögn til að vinna eft- ir og getum séð nákvæmlega hvernig leikmyndin kemur til með að líta út. Þessi nýja vinnsla er mikil breyting frá því sem áður var því oft fengum við aðeins módel að vinna eftir. Tölv- an sparar bæði tíma og peninga," segir Birgir. Óskarog Emma Meðal þeirra verka sem Sviðs- myndir hafa fengist við, fyrir utan leikmyndagerðina, eru t.d. sólir sem skreyta Borgarkringluna og eru tákn hennar, ýmsar frægar fígúrur hafa fengið hf hjá Sviðsmyndum og má þar nefna Óskar og Emmu, Ostakall- inn og Simpsonfjölskylduna. Þá hef- ur fyrirtækið innréttað margar verslanir, veitingastaöi og búið til alls kyns skilti og veggjaskreytingar. Sviðsmyndir hafa hjálpað fyrirtækj- um að kynna sig á vörusýningum og hafa búið til gervi fyrir kvikmyndir, jarðgangalíki fyrir Landsvirkjun og eftirlíkingu af Surtsey þannig að víða koma þær við. „Það er varla til það fyrirbæri sem við höfum ekki komið nálægt," út- skýrir Birgir. „Við gerðum til dæmis stóra rúmið sem stendur fyrir utan Ikea. Þrátt fyrir það höfum við nán- ast ekkert markaðssett okkur. Þetta er mjög skemmtilegt vegna þess að viö erum aldrei að vinna við sama hlutinn. Við höfum líka verið mjög duglegir að safna að okkur alls kyns erlendum bókum og tímaritum um fagið og þannig reynt að fylgjast með nýjungum," segir Birgir ennfremur og bætir við að þeir móti líka margs konar gripi úr gifsi. Listrænir smiðir Sviðsmyndir eru nú til húsa að Skútuvogi 4 en þær voru áður með aðstöðu í Skeifunni 7 og þar áður á Smiðjuvegi 44. Fyrirtækið flutti á núverandi stað fyrir ári og hafa eig- endur þess í hyggju að koma upp sýningaraðstöðu í anddyri hússins þar sem listamenn geta sýnt verk sín. Þá hefur Þjóðleikhúsið aðstöðu í húsinu fyrir leikmuni og búninga. Einnig hafa listamennirnir Sigurjón Jóhannsson og Lýður Sigurðsson vinnustofur í húsinu. Það geta ekki allir smiðir orðið leikmyndasmiðir. Birgir segir að þeir sem starfi við þetta þurfi að vera list- rænir. „Góður leikmyndasmiður verður að vera klár á hvenær má fúska og hvenær má ekki fúska og Smiðirnir hjá Sviðsmyndum stoltir að loknu verki, leikmyndinni í söngleikn- um West Side Story sem frumsýndur verður i Þjóðleikhúsinu i lok febrúar. DV-mynd ÞÖK Hér sést hvernig leikmyndin leit út í upphafi. „Múrstein- arnir“ sem notaðir eru og eru rauðir á litmyndinni eru hér ennþá gráir. Þeir eru gerðir úr plasti og mótaðir í sérstakri vél sem Sviðsmyndir hafa yfir að ráða og getur mótað hina ýmsu hluti. Birgir Sveinbergsson leikmyndasmiður og einn eigandi Sviðsmynda segir starfið mjög skemmtilegt. DV-myndir Brynjar Gauti hvenær hluturinn á að vera sterkur og ekki sterkur - ætli það séu ekki aðalatriðin. Ég hef veriö mjög hepp- inn að fá góða menn og raunar er það umsetið að komast í þetta starf. Marga langar að prófa,“ segir Birgir. Það eru ekki einvörðungu auglýs- ingastofur og önnur fyrirtæki sem leita til Sviðsmynda því einstakhng- ar koma þangað líka með óskir sín- ar. „Trésmíðaverkstæðum hefur fækkaö gífurlega og hingað kemur fólk og biður okkur að lagfæra hús- gögn fyrir sig. Einnig höfum við smíðað margar eldhúsinnréttingar. Við erum með sérstakt pláss til að mála og höfum málað leiktjöld sem eru allt að 9x14 metrar að stærð.“ Leikmynd West Side Story hefur verið í smíðum í einn og hálfan mán- uð og er nú lokið. „Meðan við vorum að vinna þessa leikmynd höfum við jafnframt veriö aö vinna leikmyndir fyrir Taktu lagið Lóa, sem sýnt er á Smíðaverkstæðinu, og Oleanna, sem er á Litla sviöinu. Einnig hafa menn frá okkur verið að vinna í Borgar- leikhúsinu. Verkefnin koma nokkuð í bylgjum, stundum er mikið að gera en svo koma dauðar stundir á milli,“ segir Birgir Sveinbergsson leik- myndasmiður. Sértilboð á helgarferðum a ijebruartil i Amsterdam 3 nætur -26.900 kr á mann í tvíbýli í 3 nætur. Vei Vei 24.300 kr. á mann í tvíbýfi í tvær nætur. 29.500 kr. á mann í tvíbýli í fjórar nætur. ★ ★ ★ ★ ★ L U X U //Æ£4S AMSTERDAM ***** Innifalið: Flug gisting og flugvallarskattar. Hafðu samband við söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um land allt, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað mánudaga til föstudaga kl. 8-19 og laugardaga kl. 8-16). Fimm stjörnu lúxushótel á besta stað í miðbænum. Frægustu söfnin og bestu verslunargöturnar í göngufæri. ★ ★ ★ ★ ★ FLUGLEIÐIR Traustur tslenskur ferðafélagi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.