Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 Dagur í lífi Eddu Heiðrúnar Backman leikkonu: Sýningu aflýst „Ég vakna oftast klukkan átta til hálfníu á morgnana og svo var einn- ig þennan mánudagsmorgun. Ég og sonur minn, Arnmundur Ernst, 5 ára, borðuðum saman morgunverð. Hann fékk sér Cheerios, banana og vítamín og ég fékk mér flatbrauð, ávöxt og kaffi. Venjulega fer Arn- mundur á leikskóla þegar ég fer á æfingu. Þennan morgun átti ég hins vegar frí og ákvað að hafa Arnmund heima, njóta morgunsins með hon- um og gera eitthvað skemmtilegt. Það var búið að vera mikið að gera undanfarið fyrir frumsýninguna á Kabarett og nokkurs konar spennu- fall hjá mér. Við Arnmundur kveikt- um á kerti, lásum í bók og röðuðum púsluspili. Langtviðtal Stuttu fyrir hádegi kom Ingvar Sig- urðsson, mótleikari minn í Kabarett, til mín. Hann hafði komið við í bak- aríinu og keypt með kaffmu. Ástæða þess að hann var að koma var sú að við áttum von á blaðamanni sem ætlaöi að taka viðtal við okkur fyrir tímaritið Heimsmynd. Venjulega fer ég í göngutúr fyrir hádegi en sleppti því þennan dag. Viðtaliö tók nefni- lega þrjá tíma. Við Ingvar ræddum um okkur, lífið og listina en þetta er fyrsta viðtal sem ég veiti í nokkur ár. Meðan þessu fór fram var Arri- mundur að leika sér hér eins og eng- ill. Eftir að viðtalinu lauk tóku við myndatökur og þær tóku einn og hálfan tíma. Við vorum ekki búin í þessu fyrr en á fimmta tímanum. Þá ætlaði ég að fara að undirbúa mig fyrir sýningu á Kirsuberjagarð- inum í leikhúsi Frú Emilíu en fékk þá upphringingu um að henni hefði verið aflýst vegna náttúruhamfar- anna í Súðavík. Sá harmleikur hafði reyndar mikil áhrif á mann allan daginn og ég fylgdist með öllum fréttatímum. Hlustað á fréttir Meðan ég hlustaði á fréttaflutning- inn í útvarpinu eldaði ég fisk, hrogn og lifur en eftir matinn komu móðir mín og systir í heimsókn. Við rædd- um um þriðjudagskvöldið en við systkinin borðum alltaf saman fisk á þeim kvöldum og syngjum á eftir. Þetta hefur verið til siðs hjá okkur um nokkum tíma en við erum öll jafn söngelsk, ég, Inga, Arnmundur og Ernst.. Við höfum fengið Reyni Jónasson til aö leika undir hjá okk- ur. Þetta er mjög ánægjulegt og gert okkur til skemmtunar. Mér fannst skrítið hvernig nýaf- staðin frumsýning gleymdist í öllum þessum hörmulegu fréttum og varð hálfhégómleg í samanburði. Eg hef aldrei áður upplifaö svona einkenni- lega frumsýningu því venjulega er maður upptekinn af viðbrögðum og gangi mála eftir hana en þarna tók einhvern veginn allt annað og merki- legra við. Það var mjög lærdómsríkt, maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt í þessu starfi. Óvenjulegur dagur Þetta var mjög óvenjulegur dagur. Ég var miður mín yfir þessum frétt- um og ég ræddi þetta talsvert við barnið mitt. Seint um kvöldið reyndi ég aö lesa en ég er með tvær bækur eftir Þór- unni Valdimarsdóttur og eina eftir Hallgrím Helgason sem ég hef verið að kíkja í en einnig ljóðbókina henn- ar Nínu Tryggvadóttur. Það eru eig- inlega bókastaflar í kringum rúmið mitt sem bíða betri tíma en það hefur verið svo mikið að gera hjá mér und- anfariö. Ég fór seint að sofa þetta kvöld eins og oft. Edda Heiðrún Backman leikkona ásamt syni sínum, Arnmundi Ernst. DV-mynd GVA Finnur þú fimm breytingar? 293 Já, en ef ég lofa þvi að við munum giftast um leið og ég fæ vinnu!!! Nafn: , Vinningshafar fyrir tvö hundruð nítugustu og fyrstu getraun reyndust vera: 1. Gígja Símonardóttir, Akursbraut 17, 300 Akranes. 2. Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir, Fögruhlíð 13, 735 Eskifjörður. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. 1. verðlaun: Zodiac Sigma 300 sími aö verðmæti kr. 4.950,- frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru i verð- laun heita: Líki ofaukið og Bláhjálmur úr bókaflokknum Bróöir Cadfael að verð- mæti kr. 1.790,-. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 293 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.