Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 34
42 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 Verð kr. 39,90 mín. McDonald's leikurinn er skemmtilegur leikur þar sem þátttakendur eiga þess kost að vinna stjörnumáltíð fyrir tvo á McDonald's. Það eina sem þú þarft að gera er að hringja í síma 99-1750 og svara fimm laufléttum spurningum um veitingahús, skemmtistaði og viðburði helgarinnar. Svörin við spurningunum er að finna í blaðaukanum DV-helgin sem fylgir DV á fóstudögum. DREGIÐ DAGLEGA ÚR POTTINUM! Daglega frá föstudegi til fimmtudags verða fimm heppnir þátttakendur dregnir úr pottinum og hreppa þeir hinir sömu stjömumáltíð fyrir tvo á McDonald's. Allir sem svara öllum fimm spumingunum rétt komast í pottinn. Munið að svörin við spumingunum er að finna í blaðaukanum DV-helgin. Nöfn vinningshafa verða birt í DV-helgin í vikunni á eftir. Suöurlandsbraut 56. Slmi 581-1414 Opið daglega frá 10-23.00 Skák Jóhann Hjartarson stórmeistari hristi af sér Moskvudrungann og sigraöi glæsilega á opna alþjóðlega mótinu í Linares sem lauk á sunnudag. Jóhann sigraöi glæsilega í linares Bæjarnafnið Linares á Spáni hljómar kunnuglega í eyrum skák- manna, enda hafa stórmenni skákar- innar verið þar tíðir gestir. Nú hefur Rentero, forvígismaður mótsins, bryddað upp á þeirri nýbreytni að gefa fleiri kost á að sækja staðinn heim. Hann stóð fyrir opnu móti í Linares í fyrsta sinn í fyrra og svo vel þótti honum til takast að sami háttur var hafður á í ár. Alls voru keppendur 115 að tölu og í hópnum voru fjölmargir stórmeistarar, m.a. þrír íslendingar: Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson og Margeir Pétursson. Skemmst er frá því að segja að Jó- hann Hjartarson hreinlega „átti mót- ið“. Hann vann sex fyrstu skákir sín- ar og haföi áður en yfir lauk aðeins leyft tvö jafntefli. Hann fékk 8 vinn- inga af 9 mögulegum og varð vinn- ingi fyrir ofan næsta mann, stór- meistarann Anatoly Vajser sem hreppti einn 2. sætið. Þriöja sæti deildu Hannes Hlífar, Sadler (Eng- landi), Tukmakov (Úkrainu), Kam- inski (Póllandi), Mecking (Brasilíu), Kornejev (Rússlandi), Spangenberg (Argentínu) og Suba (Rúmeníu). Al- þjóðlegur blær mótsins sé.st vel á þessari upptalningu. Margeir fékk 5,5 v. Jóhanni tókst ekki að vinna skák á ólympíumótinu í Moskvu í desemb- er og allt gekk þar honum í óhag. Það er ánægjulegt til þess að vita að hann skyldi ekki draga ólán sitt yfir landa- mærin. Árangur Jóhanns í Linares er stórglæsilegur og með honum fær hann til baka lungann úr Elo-stigun- um sem hann skildi eftir í Moskvu. E.t.v. hefur Jóhann búið vel aö reynslu sinni en hann var einmitt meðal keppenda á stórmótunum í Linares 1988 og 1989. Hannes Hlífar náði sér ekki á strik í fyrri hluta mótsins og átti í basli með mótherja sína þótt þeir væru ekki sérlega hátt skrifaðir. Eftir sex umferðir hafði hann 3,5 vinninga en var þó ekki á þeim buxunum að gef- ast upp. Með harðfylgi tókst honum að vinna þrjár síðustu skákirnar og má vel við lokaniðurstöðuna una. Lengstum fylgdi Margeir Jóhanni eftir eins og skugginn og var til alls líklegur. Slæm bylta gegn Vajser í næstsíðustu umferö setti strik í reikninginn og ekki tók betra við þegar Margeir féll á tíma í jafnteflis- stööu í síðustu umferð gegn Spang- enberg - og hafði átt skákina hart- nær unna. Tapið var sérlega klaufa- legt því aö Margeiri varð það á í tíma- Umsjón Jón L. Árnason hrakinu að skrifa sama leikinn tvisv- ar á blað sitt og taldi sig hafa náð tímamörkunum þegar öxin féll. Jóhann fékk marga vinninga sína eftir löng og ströng endatöfl. Þannig setti hann Rússana Kornejev og So- losjenkin á kné, svo og Spangenberg og rúmenska stórmeistarann Suba, sem er frægur í íslenskri skáksögu fyrir að hafa svindlað á Ingvari Ás- mundssyni á ólympíumótinu í Buen- os Aires 1978, sem seint fyrnist. Þijár sigurskáka Jóhanns voru þó í léttari kantinum: gegn Kurajica, stórmeist- aranum frá Bosníu, og í fyrstu tveim- ur umferðunum er hann mætti minna þekktum Spánverjum. Skákin sem hér fer á eftir er býsna skemmti- leg. Hvítt: Castineira (Spáni) Svart: Jóhann Hjartarson Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. c3 Þetta rólyndislega afbrigði hvíts geturverið hættulegt vopn í höndum sterkra skákmanna en ekki síður óþægilegt þegar „minni spámenn" beita því sem eru sáttir við jafntefli. Hefðbundin afbrigði Sikileyjarvarn- ar bjóða upp á meiri flækjur. 2. - d5 3. exd5 Dxd5 Byrjendum er ráðlagt að fara ekki of snemma út á borðið með drottn- inguna en hér má réttlæta þetta með því að besti reitur drottningarridd- ara hvíts er frátekinn. 4. d4 Rf6 5. Rf3 e6 6. Be2 Rc6 7. Ra3 Dd8! Þessi flótti drottningarinpar í heimahús gefur meiri möguleika en 7. - cxd4 8. Rb5 Dd7 9. Rbxd4 o.s.frv. 8. Rc2 Be7 9. 0-0 6-0 10. Re5 Dc7 11. Rxc6 Dxc6 12. Bf3 Dc7 13. Hel Bd7 14. dxc5 Bxc5 15. Be3 Svartur hefur jafnað taflið þægi- lega og fær smám saman yfirhöndina eftir fremur ráðleysislega tafl- mennsku hvíts frá og með þessum leik. 15. Bd6 16. h3 Betra er 16. g3. 16. - Had8 17. De2 a6 18. c4 Hfe8 19. Hedl e5 20. Bg5?! e4 21. Bxf6? Fellur í lævísa gildru svarts. Rétt er að lesandinn skoði stöðumyndina að ofan og reyni að sjá hvernig svart- ur refsar nú mótherja sínum. Eftir 21. Bh5 Be5 er þó ljóst að svartur hefur náð undirtökunum. 21. - exf3 22. Bxd8 Nú ógnar biskupinn svörtu drottn- ingunni og hvítur hefur eflaust reiknað áfram 22. - fxe2 23. Bxc7 exdl = D+ 24. Hxdl Bxc7 25. Hxd7 og hvítur hefur unnið peð - takið eftir að el-reiturinn er valdaður af ridd- ara og svartur getur því ekki laumað hróki upp í borð og sagt mát. En Jóhann hefur annað í huga... 22. - Bh2+ 23. Khl fxg2+! 24. Kxg2 Dc6+ 25. Df3 Ef 25. Kxh2 Hxe2 og drottningin er fallin óbætt. ál 7 1 £ lii 6 a m 5 . 4 A 3 W A 2 A A A B C D E A Jt F G H 25. -Bxh3 + ! Kjarni fléttunnar. Hvítur missir drottninguna. 26. Kxh3 Dxf3+ 27. Kxh2 Dxf2+ 28. Khl Og hvítur gafst upp um leið því að eftir 28. - He2 er hann óverjandi mát í næsta leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.