Þjóðviljinn - 14.05.1974, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐV1L.JINN Þriðjudagur 14. mai 1974.
Víkingur R-víkurmeistari
Með því að sigra Val með yfirburðum, 4:0, í síðasta leik mótsins
Loks eftir 34ra ára hlé
náði Víkingur að verða
Reykjavíkurmeistari í
knattspyrnu/ en árið 1940
varð félagið síðast
meistari. Og þetta tókst
liðinu sl. sunnudag með því
að sigra Val með miklum
yfirburðum í síðasta leik
Reykjavíkurmótsins, 4:0,
og hefði sá sigur allt eins
getað orðið stærri eftir
gangi leiksins að dæma.
Vals-liðið náði aldrei nein-
um tökum á leiknum og hið
skemmtilega Víkings-lið
réð lögum og lofum á
vellinum. Þótt heldur
lítið sé að marka vorleik-
ina í knattspyrnu, segir
mér svo hugur að Víkings-
liðið eigi eftir að ylja
mörgum liðum undir ugg-
um í því islandsmóti sem
hefst um næstu helgi. Liðið
hefur alla burði til að
verða með í toppbaráttu 1.
deildar í sumar, ef ekki
kemur nein lægð frá því
sem nú er. Og i þessu
Reykjavíkurmóti hefur
liðið sýnt mikla yfirburði
og má sem dæmi nefna að
það fékk ekki á sig mark í
mótinu, en skoraði 11.
Ææsk §§881Ifsf I P8ÉrmB P f ^ ■
Reykjavikurmeistarar Vikings I knattspyrnu 1974.
Stjarna þessa leiks var hinn
harði og fljóti framherji Vikings,
Jóhannes Bárðarson, sem skoraði
þrennu i leiknum með harðfylgi
sinu og hraða. Þessi ungi leik-
maður sem oftast hefur leikið i
vörn eða þá sem tengiliður virðist
sannarlega hafa fengið stöðu við
sitt hæfi, þar sem framherja-
staðan er.
Það voru ekki liðnar nema 5
miniítur af leiknum þegar Jó-
hannes skoraði sitt fyrsta mark.
Boltinn barst inni vitateig Vals-
manna, Sigurður Dagsson hikaði
við i úthlaupinu og það dugði fyrir
Jóhannes sem kom á fullri ferð og
skoraði 1:0.
Síðan liðu 20 minútur. Jóhannes
fékk þá boltann á miðjum vallar-
helmingi Vals, hann einlék i átt að
marki og var látinn i friði uns
hann var kominn að vitateig, þá
skaut hann, og hvilikt mark!
Boltinn small i þverslá og i netið,
2:0. Þannig var svo staðan i leik-
hléi.
Strax á 1. minútu siðari hálf-
leiks bætti Jóhannes 3ja markinu
við, eftir hroðaleg varnarmistök
hjá Valsvörninni. Þar lét hver
maðurinn á fætur öðrum boitann
fara framhjá sér og Jóhannes
hafði heldur litið fyrir þvi að
leggja boltann i netið, 3:0.
Enn héldu Vikingarnir áfram
að sækja og loks á 80. minútu kom
svo 4. markið. Enn urðu mistök
og það gróf hjá Vals-vörninni og
Sigurður/Dagsson markvörur átti
misheppnað úthlaup. Þetta varð
til þess að Óskar Tómasson not-
færði sér eyðuna og skoraði 4.
markið.
Eins og áður segir hefði sigur
Vikings ailt eins getað orðið mun
stærri miðað við gang leiksins.
Vikingarnir sóttu nær látlaust all-
an leikinn og gáfu Valsmönnum
aldrei stundlegan frið, en það
virðist duga til að koma Vals-lið-
inu algerlega úr sambandi. Fái
það ekki nægan tima til að at-
hafna sig, virðist allt fara i
handaskolum.
Eins og i upphafi segir, spái ég
Vikingunum frama i sumar. Það
eina sem gæti komið i veg fyrir að
liðið næði iangt er að það hefur
ekki viðunandi aðstöðu til æfinga i
grasi og gæti það breytt nokkru,
en þó hef ég ekki trú á að það
verði svo mikið. Liðið er skipað
ungum leikmönnum i bland við
nokkra reyndasem sagt mjög svo
æskileg blanda. Það hefur bar-
áttuviija ótakmarkaðan, leikur
eins vel saman eins og hvert
annað islenskt lið og hefur auk
þess mjög sterka vörn,og er langt
siðan vörn hefur sést leika eins
skynsamlega og Vikings-vörnin.
Annað virðist manni uppá
teningnum hjá Val. Hann hefur
fengið verri útreið i þessu
Reykjavikurmóti en um margra
ára skeið. Þó er þetta svo til sama
liðið og hreppti silfurverðlaunin i
1. deild i fyrra. Það hlýtur aðeins
að vera timaspursmál hvenær
liðið nær saman, en það fer þó
Eyjamenn byrja illa
eins og vanalega
Töpuöu fyrir Akurnesingum 1:3 í bæjarkeppninni
Þaö er nær árvisst að
knattspyrnulið Vest-
mannaeyinga byrji
keppnistimabilið með tapi
og oftast hafa fyrstu 3-4
leikir liðsins tapast eða
endað með jafntefli. Hefur
þessi slæma byrjun liðsins
ár eftir ár komið í veg
fyrir að það næði íslands-
meistaratitlinum. Og engin
breyting virðist ætla að
verða á þessu í ár. Á
sunnudaginn fór fram
bæjarkeppni í knattspyrnu
milli Akurnesinga og Eyja-
manna, og lauk henni með
sigri Skagamanna 3:1. Og
það þrátt fyrir að hvorki
Matthias Hallgrímsson né
Eyleifur Hafsteinsson
væru með (A-liðinu. Sigur
Skagamanna var síst of
stór, þeir réðu gangi
leiksins frá upphafi til
enda.
Það var Teitur Þórðarson sem
kom Skagamönnum á lagið með
þvi að skora fyrsta markið
snemma i fyrri hálfleik, en Eyja-
menn gáfust ekki upp, og
Haraldur Júliusson náði að jafna
fyrir leikhlé, þannig að staðan i
ieikhléi var jöfn 1:1.
Yfirburðir Skagamanna komu
betur i ljós i siðari hálfleik og ekki
leið á löngu þar til Karl Þórðar-
son bætti öðru marki við fyrir 1A
og siðan kom Teitur með annað
mark sitt, þannig að leiknum lauk
eins og áður segir með sigri tA
3:1.
Eyjamenn eru alveg nýkomnir
úr 3ja vikna æfingabúðadvöl i
Sviþjóð og eru þvi allvel undir-
búnir fyrir tslandsmótið sem
hefst um næstu helgi,en þá mæta
þeir Vikingum i fyrstu umferð en
Skagamenn mæta Val á Akra-
nesi.
tA-liðið virðist I stöðugri
framför og menn spá þvi miklum
frama i sumar, enda hefur IA-
Teitur Þórðarson skoraði 2 mörk
gcgn ÍBV.
liðið úrvalsþjálfara á að skipa
núna. Hann er sagður sá hæfasti
af ensku þjálfurunum sem hér
starfa i ár.
Nýtt
heims-
met í
100 y.
hlaupi
Um siðustu iielgi setti
bandaríski spretthiauparinn
Ivory Crockett nýtt heimsmet
i 100 jarda hiaupi, hljóp á 9,0
sek. Eldra mctið var 9,1 sek.
sem (i hlauparar áttu.
Rafmagnskiukkan sem tók
tiina á spretti Crocketts sýndi
8,94 sek. en aðrar klukkur 9,1
— 9,0 — 9,0 — og 8,9 sek.
hver að verða siðastur að ná til
sins samherja, þvi að l.-deildar-
keppnin hefst um næstu helgi og
þá á Valur að mæta hinu sterka
liði tA á Akranesi.
—S.dór
Jóhannes Bárðarson skoraði
þrennu gegn Val og tryggði þar
með liði sinu Reykjavikur-
meistaratitilinn.