Þjóðviljinn - 14.05.1974, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 14. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Ármenningar
stigalausir
úr Reykja-
víkurmótinu
töpuðu síðasta leiknum
0-2 fyrir Þrótti
Reykjavíkurmótinu lauk
á dapurlegan hátt fyrir
Ármenninga# sem ekki
náðu sér í eitt einasta stig
eftir umferðirnar 5. En
hvað sem öðrum leikjum
liður verður ekki annað
saat en að úrslit leiksins
við Þrótt á laugardaginn
hafi verið ósanngjörn; þar
hefðu Armenningar átt að
fá a.m.k. annað stigið.
Tapliðið átti mun meira i
leiknum svo til allan timann, en
það dygðu ekki til, tækifærin voru
ekki nógu mörg og góð,
markvarsla Þróttar prýðileg i
höndum Guðmundar óg varnar-
leikur Armenninga var of opinn,
til að vel gæti farið. Þróttarar
skoruðu tvö mörk, bæði i siðari
hálfleik, og fengu þar með bæði
stigin. En þrátt fyrir klaufaskap i
vörn og sókn á köflum, fannst
manni Ármannaliðið heii-
steyptara og jafnara á allan hátt;
það gerði það að visu ekki gott i
þessu móti, en enginn vafi leikur
á þvi, að hlutur Armenninga
verður mun stærri á komandi
sumri i tslandsmótinu.
Það voru sprækir og mark-
sæknir sóknarmenn Þróttar, sem
réðu úrslitum þessa leiks, þeir
sköpuðu sér tækifæri úr sinum
sóknarlotum, iéku opinn leik og
voru óhræddir við framkvæmda
málanna. Er 20 min. voru liðnar
af siðari hálfleik skoraði Jóhann
Eyfjörð, sem kom til Þróttar i
vetur frá Akureyri, fyrra markið.
Það var þrumuskot frá vinstra
kanti, sem Ármenningar máttu
sin litils gegn.
Siðara markið kom rétt undir
leikslok. Ármenningar höfðu sótt
nokkuð stift, gleymdu sér i vörn-
inni og Aðalsteinn örnólfsson óð
upp allan völl og skoraði
skemmtilega 2-0.
Leiðinlegan svip á þennan leik,
eins og svo marga aðra knatt-
spyrnuleiki, ekki hvað sist á
vorin, setti þessi óskiljanlega
geðvonska leikmannanna. Það
er hreint með afbrigðum hvað
þeir eru þverir og þrjóskir,
afundnir og leiðinlegir. Sifelldir
smápústrar, spark i ökkla og
óþarfa handapat gaf leiknum
ungæðislegt og þreytandi yfir-
bragð, sem vissulega er vonandi
að hverfi sem fyrst úr islenskri
knattspyrnu.
Þessir skipuðu 3 efstu sætin I stigaglimu Ármanns. t miðið er Guðmundur Freyr, sigurvegari, til vinstri
Guðni Sigfússon og til hægri Björn Hafsteinsson.
Stigaglíma Ármanns
haldin í 3ja sinn
Stigaglíma Ármanns,
sem haldin hefur veriö ár-
lega undanfarið, fór fram í
þriöja sinn um síöustu
helgi. Keppendur voru að
þessu sinni 8, allir mjög
svipaöir að stigatölu nema
sá efsti, Guðmundur Freyr
Halldórsson, sem sigraði
með yfirburðum.
1 stigaglimu er ekki gefið eftir
hver nær að fella andstæðing sinn
oftast, eins og venja er. Hér er
gefið eftir kunnáttu hvers og eins,
hve mörgum brögðum hann beitir
og hvernig þau eru útfærð. Allt er
lagt upp úr lipurð og kunnáttu,
byltur telja ekki, heldur bragða-
fjöldi.
Þetta innanfélagsmót Arraenn-
inga fór fram i Vogaskólanum,og
urðu úrslit þessi:
Guðmundur Freyr Halldórsson 57
stig.
Guðni Sigfússon 51.25 stig
Björn Hafsteinsson 51 stig
Þorvaldur Þorsteinsson 48.75 stig
Guðni Stefánsson 48.50 stig
Pétur Sigurösson, 47,75 stig
Sigurjón Leifsson 46.75 stig
Jóhann Einarsson 46.50 stig
Eins og sjá má af tölunum voru
keppendur afar jafnir og á 2. sæti
og þvi 8. munar aðeins 4.75 stig-
um. Elsti keppandinn var 50 ára,
Pétur Sigurðsson, og sá yngsti 17
ára, Sigurjón Leifsson. Dómarar
voru þeir Ólafur Guðlaugsson og
Sveinn Guðmundsson.
Fyrstu bikarmeistararnir
Bikarkeppni i handknattleik
fór i fyrsta sinn fram i vetur
og lauk henni mcð sigri Vals,
scm sigraði Fram í úrslitaleik
keppninnar 24:16. Myndin hér
að ofan er af bikarmcisturun-
um með hin glæsilegu verð-
laun sem steipustöð Breiðholts
h/f gaf til keppninnar. Fremri
röð f.v.: Bergur Guðnason,
Jón Breiðfj örð, Gunnsteinn
Skúlason, fyrirliði, Ólafur
Guðjónsson, Jóhannes
Stefánsson og Ágúst ög-
mundsson. Aftari röð f.v.:
Þórarinn Eyþórsson, þjálfari,
Jón Karlsson, Ólafur II. Jóns-
son, Gisli Blöndal, Stefán
Gunnarsson, Jón P. Jónsson,
Þorbjörn Guðmundsson,
Keynir ólafsson, þjálfari, og
Þórður Sigurðsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals. A
myndina vantar Gisla Arnar
Ragnhildur
ósigrandi í
víðavangs-
hlaupum
Kagnhildur Pálsdóttir hcfur
vcrið algerlega ósigrandi i
þcim viðavangshlaupum sem
hún hefur tckið þátt i í vctur.
Svo var einnig á sunnudaginn
cr hún tók þátt i Álafosshlaup-
inu. Hún sigraði þar með yfir-
burðum. Úrslit urðu sem hér
segir.
Karlar:
1. Sigurður P. Sigmundsson
F.H. 23.45 min.
2. Gunnar Snörrason
U.B.K. 24.16 min.
3. Einar P. Guðmundsson
F.H. 24.24 min.
4. Högni Óskarsson
K.R. 25.04 min.
5. Þorkell Jóelsson
Aftureldingu 25.44 min.
6. Haukur Nielsson
Aftureldingu 29.37 min.
7. Ólafur Guðmundsson
K.R. 31.59 min.
Konur:
1. Ragnhildur Pálsdóttir
Stjörnunni 10.11 min.
2. Anna Haraldsdóttir
F.H. 10.26 min.
3. Lára Halldórsdóttir
F.H. 11.21 min.
4. Elva Ingólfsdóttir
F.H. 12.42 min.
5. Harpa Ingólfsdóttir
F.H. 12.52 min.
6. Sólveig Pálsdóttir
Stjörnunni 13.14 min.
Karlaflokkur hljóp 6 km og
konur 3 km. Hlaupið tókst vel
og fóru keppendur i Varmár-
laug að hlaupi loknu. Þvi næst
voru afhent verðlaun, en
Álafoss-verksm iðjan gaf
fagra farandbikara og þá
einnig bikara fyrir 1., 2. og 3.
mann.