Þjóðviljinn - 14.05.1974, Page 13
Þriðjudagur 14. mai 1974. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 13
þar sem nóg var af simum sem
hægt var aö hringja júr. Ég komst
inn á bar fyrir lokun, pantaði
whiský og lét skipta pundseðli.
Með vasann fullan af smámynt
fór ég skömmu siðar inn i sima-
klefa og upphóf miklar hring-
ingar.
Það er ástæðulasust að fara út i
smáatriði. Sem blaðamaður vissi
ég hvar upplýsingar var að fá.
Aður en pundið mitt var uppurið
var ég búinn að fá öruggar upp-
lýsingar um að Róbert hefði i
fyrrakvöld farið fra Lundúna-
flugvelli með flugvél til Parisar.
Og til Parisar ætluðu Ned og
Myra i brúðkaupsferð.
Róbert hafði farið einn.
Ég gekk heim, tók tvær svefn-
töflur og fór i rúmið. Þegar ég
vaknaði var sólin farin að skina
inn um gluggann en það var mjög
árla morguns. Móðir min var ekki
enn komin á fætur, svo að ég
skildi eftir miða til hennar og bað
hana að skila til þeirra á blaðinu
að ég kæmi ekki i dag. — Hafðu
engar áhyggjur, skrifaði ég. — Ég
fer að ráðum þinum — geri eitt-
hvað i málinu.
Ég náði i fyrstu morgunlest. t
Euston neyddi ég sjálfan mig til
að fara inn i veitingasalinn og fá
mér morgunmat. Ég átti langan
dag framundan.
Fyrsta mál á dagskrá var að
taka leigubil út til Hampstead,
endaþótt ég vissi að það væri
timasóun. Frú Sienkiewicz var
kolringluð og enskan hennar af
þeim sökum hreinasta hrogna-
mál. Ég varð að bregða fyrir mig
fingramáli og mimuleik, munn-
lestri og fjarhrifum til að veiða
uppúr henni það litla sem hún
vissi. Án þess að mæla orð hafði
Róbert þotið út úr húsinu með
ferðatösku i hendinni og hafði
skellt á eftir sér. Klukkutima
seinna hafði hún heyrt Pepinu
kjökra og hún hafði farið upp til
að athuga hvort hún gæti nokkuð
gert. En hún var varla komin upp
stigann, þegar Pepina ruddist
framhjá henni án þess að sjá
hana og hljóp út á götu. Hún hafði
verið flóandi i tárum og ékki i
neinni yfirhöfn.
Frú Sienkiewicz hafði
tekið þetta rólega og farið
niður i herbergi sitt aftur.
Þau hefðu trúlega rifist
og myndu sættast aftur fyrir
kvöldið. Þvi fyrr sem þau gætu
gift sig, þvi betra.
— Þér hafið þá látið hana fara?
spurði ég. — Voruð þér kannski
vön þvi að þau rifust?
En hún hristi höfuðið. Hún vissi
ekkitil þess að þeim hefði nokk-
urn tima sinnast áður. Hún hafði
aldrei fyrr séð Pepinu með tárin i
augunum (mér fannst hún segja
,,tjöru i augunum” og i svip sá ég
eitthvert ógnarslys fyrir hugar-
sjónum minum).
— Heyrið mig nú, þetta er mjög
áriðandi, sagði ég. — Herra og frú
Lamb fóru hvort sina leið. Ég á
við Róbert og Pepinu. Þau eru
sem sé ekki saman núna. Ég veit
hvar hann er — hann er i Paris —
og nú verð ég að komast að þvi
hvar hún er. Reynið að hugsa
yður um. Hafið þér nokkra hug-
mynd um hvar hún getur verið
niðurkomin?
En það var tilgangslaust. Ég sá
á henni að hún var ekki að leyna
neinu: hún mundi einfaldlega
ekki eftir nokkrum sköpuðum
hlut. Pepina átti enga kunningja i
nágrenninu — reyndar ekki i allri
London. Hún kunni næstum
ekkert i ensku: hana langaði til að
læra hana en Róbert hafði engan
sérstakan áhuga á þvi. Það
hentaði honum betur að hún væri
áfram italskt náttúrubarn. Já, ég
gat svo sem imyndað mér það.
Þvi likari sem hún varð öllum
hinum, þvi siður gat hann litið á
hana sem leikfangið sitt, „furðu-
verk” sem hann hefði flutt með
sér frá meginlandinu til að hafa i
húsinu til áréttingar þvi, hve vel
hann kynni að meta einfalda og
óbrotna náttúru.
Þannig var sem sé hægt að
meðhöndla fólk og nú mátti sjá
afleiðingarnar. Reyndar hafði
maður eins og Róbert engar
áhyggjur af sliku. Lifið var
grimmilegt við hann og honum
fannst ekki nema eðlilegt að það
væri lika grimmilegt við aðra.
— Kærar þakkir, frú Sienkie-
wicz sagði ég og gekk burt. Ég
gekk eftir götunni, beygði fyrir
horn, gekk skáhallt yfir litið torg
og var staddur fyrir utan lög-
reglustöðina i hverfinu. Það var
ennþá morgunn.
Varðstjórinn sem ég sneri mér
til, var þvi miður ekkert tima-
bundinn. Auk þess hafði hann trú-
lega lesið þaö i einhverri bókar-
skruddu, að eldklár lögreglu-
þjónn svari aldrei spurningu án
þess að kynna sér gaumgæfilega
alia málavöxtu. Ég var ekki
búinn að bera fram erindið, þegar
hann greip fram i fyrir mér til að
fá upplýsingar um hver ég væri.
Þegar við vorum búnir aö
afgreiða það mál og gátum haldið
áfram, gat hann ekki heldur á sér
setið.
— Biðið andartak. Þér segið að
þessi kona sé horfin, sagöi hann
og hélt hann væri glöggskyggn á
svipinn. Hann minnti á baðmottu.
— Já, ég segi það, og það er
staðreynd. Hún hefur verið að
heiman i næstum þrjá —
— Við komum siðar að þvi hve
langt er siðan. Við þurfum að fá
ýmislegt á hreint fyrst. Þér segið
að bæði konan og maðurinn
hennar séu horfin?
Rétt var það að ég hafði talað
um Róbert sem mann Pepinu:
hann hefði lika getað verið það
þegar hér var komið, ef hann
hefði kært sig um. Ég gat svo sem
gert mér i hugarlund allt klúörið,
ef ég bæri við að reyna að útskýra
sambandi þeirra.
— Má ég heyra hvaða ástæður
þér hafið til að ætla, að hjónin hafi
ekki farið burt saman á fullkom-
lega eðlilegan hátt? hélt hann
áfram og horfði hvasst á mig.
Ég sá að þetta var vonlaust. En
ég varð að þrauka i fáeinar
minútur ennþá. Ég fór að hugsa
um allar lögreglustöðvarnar i
London, alla simana, alla tal-
stöðvabilana, alla stóru og sterku
lögregluþjónana með flautur og
vasabækur. Dæmalaust væri það
nú auðvelt fyrir þá aö hafa upp á
henni ef mér tækist að vekja
áhuga þeirra.
— Tja, það tekur of langan
tima að útskýra hvers vegna ég
er viss um að hún er----byrjaði
ég.
En hann greip aftur fram i. —
Andartak, herra minn, sagði
hann og lyfti visifingri. Ég
þagnaði samstundis, en hann
saeði hins veear ekki neitt. Hann
rótaði i vasanum eftir gleraugna-
húsunum, fann þau, tók þau upp,
opnaði þau, tók fram gleraugun
og fór að láta þau á sig. Mér
fannst þetta taka tiu minútur.
Trúlega gleymdi hann stundum
hvar eyrun á honum voru. Löngu
áður en hann ákvað að opna
munninn, vissi ég aö orustan var
töpuð. Hann var oröinn fúll út i
mig og það var timasóun að vera
lengur i návist hans.
— Þér segist ekki geta útskýrt
grun yðar, vegna þess að það taki
of— langan— tima.byrjaði hann
og siðustu þrjú oröin mælti hann
af svo miklum þunga að það var
eins og hann væri aö fleygja múr-
steinum ofaná tærnar á mér. —
Leyfist mér að spyrja, hvaö þér
eigið eiginleg við? Hvað álftið þér
,,of langan tima”? Tiu minútur?
Hálftima? Þér komið hingað og
farið fram á að hafin verði leit, en
það er timafrekt fyrirtæki og
kostar býsnin öll af peningum
skattborgaranna og þegar ég
spyr yður —
Undir venjulegum kringum-
stæðum aðhyllist ég almenna
kurteisi, en þennan dag var ég
óþolinmóður. Ég var á leið til
dyra áður en hann var búinn að
ljúka mlali sinu.
— Komið hingað, hrópaði hann
illilega þegar hann sá mig hörfa.
— Þvi miður, sagði ég. — Ég
neyðist til að fara. Ég er með
peninga skattborgaranna á elda-
vélinni og ég er hræddur um að
þeir sjóði uppúr og þeir eyðileggi
gólfteppið.
Ég stóð úti á götu og hérna var
London, hér var England, hér var
allur heimurinn og einhvers
staðar var Pepina og átti sér
engan vin að halla sér að. Jú, það
átti hún núna. Hún átti mig!
Hvaða möguleika hafði stúlka,
sem kunni litiö i ensku og hai'ði
unnið fyrir sér með þvi aö vinna á
hóteli? Heureka! Ég sá leigubil,
hrópaði og veifaði, settist upp i og
þaut af stað. Leigubillinn stansaði
ég æddi út, borgaði, ég var
kominn á leiðarenda. Soho!
,,Soho” var eitt sinn veiðihróp,
segja lærðir menn. Mig langaöi til
að taka undir það. Þreytan var öll
á bak og burt og ég var i hörku-
stuði. Söguþráöurinn gerist æsi-
spennandi. Jói Shaw lögreglu for-
ingi, hin skæra stjarna hjá
Scotland Yard! Gamli blóð-
hundurinn kominn á slóð-
ina. Hann ræður gátuna i einu
snarkasti. Nú þarf aöeins að
veiða fisk'inn i netið. Stúlkan er
auðvitað einhvers staðar i Soho.
liún vinnur á itölskum veitinga-
stað. Gátan er leyst, hann þarf
bara að lita inn i alla italska
Lausn á
krossgátu
I = N, 2 = Æ, 3 = Ð, 4 = 1, 5 = B,
6 = A, 7 = T, 8 = U, 9 = R, 10 = Ú,
II = S, 12= V, 13 = A, 14 = E,
15 = F, 16 = L, 17 = P, 18=0, 19 = M,
20 = K,21 = Þ,22 = Ó,23 = Ý, 24 = D,
25 = 0, 26 = H, 27 = G, 28 = Y, 29 = 1,
30= É.
BRÚÐKAUP
Laugard. 16. feb. voru gefin
saman i Dómkirkjunni af séra
Þóri Stephensen Margrét Lilja
Guðmundsdóttir og Olfar Pálmi
Hillers. Heimili þeirra verður að
Heiðmörk 3, Selfossi.
Ljósmyndastofa Þóris.
Laugardaginn 9. mars voru
gefin saman i Laugarneskirkju af
séra Grimi Grimssyni Þórunn
Sigurðardóttir og Gunnar
Gunnarsson. Heimili þeirra
verður að Unnarbraut 28, Sel-
tjarnarnesi.
Ljósmyndastofa Þóris.
Þriðjudagur 14. mai
7.00 Morgunútvarp. Veður--
fregnir kl. 7.00, 8,15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7,30, 8,15 (og
forustugr. dagbl.), 9.15 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Oddný Thorsteinsson
les framhald „Ævintýris um
Fávis og vini hans” eftir
Nikolaj Nosoff (20). útvarp
vegna unglingaprófs i
dönskukl. 9.00. Morgunleik-
fimi kl. 9.20. Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milli
atriða. Morgunpopp kl.
10.25 Morguntónleikar kl.
11.00: Felix Ayo og I Musici
leika tvo árstiðakonserta
eftir Vivaldi, ,,Vorið” og
„Sumarið” / William
Bennett, Harold Lester og
Denis Nesbitt leika Sónötu i
h-moll fyrir flautu, sembai
og viólu da gamba eftir
Hándel/ Agustin Anievas
leikur á pianó Tilbrigði og
fúgu eftir Brahms um stef
eftir Handel.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Éftir hádegið-Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30. Siðdegissagan: „Hús
málarans” cftir Jóhannes
Helga.Óskar Halldórsson
les (4).
15.00 Miðdegistónleikar:
islensk tónlist a. Sónata
fyrir fiðlu og pfanó eftir
Fjölni Stefánsson. Rut
Ingólfsdóttir og Gisli
Magnússon leika. b.
„Alþýðuvisur um ástina”
eftir Gunnar Reyni Sveins-
son við texta eftir Birgi
Sigurðsson. Söngflokkur
syngur undir stjórn
höfundar. c. „Ólafur
Liljui'ós”, ballettmúsik eftir
Jórunni Viðar. Sinfóniu-
hljómsveit Islands leikur:
Páll P. Pálsson stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphorniö.
17.10 Tónleikar. Til-
kynningar.
18,45. Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Bókaspjall . Umsjónar-
maður: Sigurður A.
Magnússon.
19.55 Lög unga fólksins.Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir
21.00 Á vettvangi dóms-
málanna . Björn Helgason
hæstaréttarritari talar.
21.30 A hvitum reitum og
svörtum. Guðmundur Arn-
laugsson flytur skákþátt.
22.00 Fréttir
22,15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Éiginkona i
álögum” eftir Alberto
Moravia. Ragnhildur Jóns-
dóttir islenskaði Margrét
Helga Jóhannsdóttir leik-
kona les (3).
22.35 Harmonikulög . Jo Ann
Castle leikur.
23.00 A hljóðbergi. „Vitis-
vélin”, leikrit eftir Jean
Cocteau: —siðari hluti.Með
aðalhlutverk fara Margaret
Leighton, Jeremy Brett,
Alan Webb, Patrick Magee
og Diana Cilento. Leikstjóri
er Howard Sackler.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
20.00 Veður og auglýsingar.
20.30 Steinaldartáningarnir.
Nýr, bandariskur teikni-
myndaflokkur i framhaldi
af myndunum um F’red
Flintstone og félaga hans.
Nú eru börn Freds og sam-
tiðarmanna hans vaxin úr
grasi, og um þá ungu og
uppvaxandi kynslóð fjallar
þessi myndaflokkur. 1. þátl-
ur. Listakonan Vala. Þýð-
andi Heba Júliusdóttir.
21.00 Stjórnmálaviðhorfið.
Umræðuþáttur i sjónvarps-
sal. Umsjónarmaður ólafur
Ragnarsson.
21.40 Skák.Stuttur, bandarisk-
ur skákþáttur. Þýðandi og
þulur Jón Thor Haraldsson.
21.50 Heimshorn. Frétta-
skýringaþáttur um erlend
málefni. Umsjónarmaður
Jón Hákon Magnússon.
Iiagskrárlok.
fu.
Nýkomin indversk
bómullarefni og mussur i miklu
úrvali.
Jasmin Laugavegi 133
fSí
BLAÐBERAR
óskast i Reykjavik, á
Seltjarnarnesi og i Kópavogi
Þjóðviljinn, simi 17500.