Þjóðviljinn - 28.05.1974, Blaðsíða 11
Bylting á AKRANESI?
Enski þjálfarinn Kirby hefur gjörbreytt liði Akurnesinga
,,Þetta er uppþot, þetta
er hreinasta bylting",
tautaöi einn til ára sinna
kominn Skagamaður, sem
horfði á leik Akurnesinga
gegn Akureyringum, sem
fram fór á Skaganum sl.
laugardag. Og það voru
svo sannarlega orð að
sönnu. Enski þjálfarinn
Kirby hefur gert stóra
hluti þarna uppfrá;
breytingin á liði IA er mikil
og góð.
Akureyringar áttu
ekkert svar við ákveðni og
bará'ttug leði heima-
rnanna. Þeir voru undir
stöðugri pressu ailan leik-
inn og i siðari hálfleik
heyrði það tii undan-
tekninga, ef þeir komust
inn í vitateig andstæðing-
anna. Skagamenn sóttu
látlaust og samkvæmt
gangi leiksins og tækifær-
um hefðu sigurinn, 4-0, átt
að vera enn stærri.
Akurnesingum var ekki
ætlaður feitur biti í sumar,
með hliðsjón af getu liðsins
i fyrra og svo nú í vor. En
með svona áframhaldi
munu allir spádómar falla,
eins og raunar svo oft
áður.
Fyrri hálfleikurinn var þó öllu
jafnari en sá siðari. LeikiB var á
blautum og þvi fremur þungum
grasvellinum og svo virtist, sem
norðanmenn væru i mun minni
úthaldsþjálfun en Akurnesingar.
1 leikhléi var staðan 2-0 fyrir
heimamenn og i siðari hálfleik
bættu þeir enn við tveimur mörk-
um, þannig að lokastaðan varð 4-
0, öruggur og sannfærandi sigur.
Fyrsta markið kom á 15. min.
Þar var Teitur Þórðarson að
verki, en hann komst i frian sjó
inni i vitateignum og var þá ekki
að sökum að spyrja.
Leikurinn jafnaðist þá nokkuð
og um stund sóttu Akureyringar
til jafns á við 1A. En á 41. min,
kom annað mark og þá var það
Matthias, sem skaiiaði mjög
failega eftir fyrirgjöf frá Jóni Al-
freðssyni. Þannig var staðan i
leikhléi.
í siðari hálfleik var um ein-
stefnu að ræða, mörg tækifæri,en
aðeins 2 mörk. Nokkrum sinn-
um komust Akureyringar þó upp
og áttu þá eitt skot i þverslána,
sem hefði vissulega allt eins
getað hafnað i netmöskvunum.
En það voru heimamenn, sem
héldu áfram að skora. Á 21. min.
sendi Eyleifur fallegan bolta inn i
vitateiginn til Teits, sem renndi
boltanum framhjá markverði og
varnarmönnum (sjá mynd).
Staðan var orðin 3-0, og áhorf-
endur heimtuðu enn fleiri mörk.
Og eitt mark i viðbót lét ekki
standa á sér. Teitur, sem átti
þarna mjög góðan dag, braust inn
eftir endamörkunum, gaf til
Matthiasar, sem skoraði eftir
klaufaleg varnarmistök Akur-
eyringa.
4-0 var staðan og áhorfendur
virtust orðnir sæmilega mettir.
Mörkin urðu ekki fleiri, stórsigur
var i höfn, sigur, sem gefur Akur-
nesingum góð fyrirheit og hvetur
þá til áframhaldandi baráttu á
sömu braut.
Matthias og Teitur voru óvenju
friskir að þessu sinni, hvor þeirra
skoraði 2 mörk og skiluðu einnig
af sér ágætri vinnu allan leikinn.
Það er raunar erfitt að segja að
einn hafi verið öðrum óvenju
friskari, liðiö i heild kom mjög á
óvart. —gsp
Teitur Þórðarson skorar hér þriðja mark 1A. Hann fékk sendingu frá Eyleifi,og þrátt fyrir nokkuö þrönga aöstööu lá boltinn i netinu.
Sigurmarkið á
síðustu mínútu
Eyjamenn höfðu heppnina
með sér og sigruðu Val 1:0
miðvarðar ÍBV, sem kominn var i
sóknina. Friðfinnur átti mjög
auðvelt með að renna boltanum i
markið og sigur heimamanna
varð staðreynd.
Valsmenn voru að vonum sárir
að tapa þessum leik, þarna á sið-
ustu minútunni, en svona er
knattspyrnan; enginn leikur er
útkljáður fyrr en hann hefur verið
flautaður af.
Með þessum sigri hafa Eyja-
menn, sem menn almennt bjugg-
,, . .. . ,, , urst við að yrðu nálægt miðju i
valdsson, besti maður Vals-hös- þessu móti, skipaö sér á toppinn
ms i þessum leik sem öðrum und- með Skagamönnum, með 3 stig
anfarið, að skalla frá, en missti af eftir 2 leiki valsmenn aftur á
boltanum og hann hrökk til Jóns móti sitja eftir með aðeins eiu
Gislasonar, sem missti hann fyrir stig útúr tveim fyrstu ieikjum
fætur Friðfinns Finnbogasonar sinum.
Þaö er ekki sterkt til
orða tekið að segja að
heppnin hafi verið með
Eyjamönnum í leik þeirra
við Val, sem fram fór i
Vestmannaeyjum sl. laug-
ardag, fyrsti leikurinn sem
fram fer í Vestmannaeyj-
um síðan 1972. Leikurinn
var allan timann jafn og
frekar þófkenndur, en svo
allt í einu á siðustu minútu
hans náðu heimamenn að
skora sigurmarkið.
Leikur þessi var að mörgu leyti
likur leik Vals og 1A viku fyrr eða
„dautt jafntefli” eins og sagt er á
skákmáli. Mikið var um miðjuþóf
og'litið um upplögð marktæki-
færi.
Ef eitthvaö var, þá voru Eyja-
menn nær sigri, en þó ekki svo að
telja megi sigur þeirra sann-
gjarnan.
Þegar aðeins var ein minúta
eftir af venjulegum leiktima og
allir farnir að sætta sig við jafn-
teflið var dæmd aukaspyrna á
Val, á miðjum vallarhelmingi
þeirra. Boltinn var sendur inn á
vitateig. Þar ætlaði Jóhannes Eð-
Brasilíumenn
sigruöu 3:2
Heimsmeistararnir i knatt-
spyrnu, Brasiliumenn, eru
komnir til V-Þýskalands, cn
þar munu þcir reyna aö verja
titil sinn I næsta mánuöi þegar
lokakeppni HM fcr fram.
Og timann þar til loka-
kcppnin hefst nota Brasiliu-
menn til æfingaleikja, eins og
raunar öll landsliðin sem
verða með i keppninni.
Um siöustu hclgi léku
Brasiliumenn æfingaleik viö
v-þýskt úrvalslið og sigruöu
3:2. Þctta erað visu ekki neinn
stór-sigur, en sigur samt, og
þegar þess er gætt að þarna
var viö mjög sterkt úrvalsliö
aö etja er þessi sigur Brasiliu-
manna athvglisverður, en
þeim er ekki spáö miklum
frama i HM að þessu sinni.
Sannleikurinn er sá að S-
Amcriku-liöunum vegnar yfir-
leitt ekki vel i HM þegar
kcppnin fer fram I Evrópu.
Eyjamenn voru heppnir aö ná báðum stigunum úr viöureigninni viö
Val.