Þjóðviljinn - 28.05.1974, Blaðsíða 16
DiúÐvnnNN
Þriðjudagur 28. mai 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturvarsla
lyfjabúða i Reykjavik 24.-30. mái
er i Laugavegs- og Holtsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Bresjnéf vill vináttu Egypta
Bresjnéf
og Nixon
til
Egypta-
lands?
KAIRÖ 25/5 — Talið er að Leónid
Bresjnéf, formaður Kommún-
istaflokks Sovétrikjanna, muni
heimsækja Egyptaland i næsta
mánuði og eiga viðræður við
Sadat forsætisráðherra. Fremur
kalt hefur verið með Sovétum og
Egyptum undanfarið, en Bresjnéf
hefur hvað eftir annað látið i ljós
i bréfum til Sadats ósk um hlýja
sambúð. Geta Egyptar varla
kvartað yfir þvi að vera afskiptir
af stórmennum um þessar mund-
ir, þvi að heyrst hefur að Nixon
ætli einnig að heimsækja þá og
helst um sama leyti og Bresjnéf.
Chirac
forsœtis-
ráðherra
Frakka
PARÍS 27/5 — Jacques Chirac,
fjörutiu og eins árs gamall gaull-
isti, var i dag skipaður forsætis-
ráðherra Frakklands i stað
Pierre Messmers. Chirac var inn-
anrikisráðherra I stjórn Mess-
mers og er hann yngsti forsætis-
ráðherra, sem Frakkar hafa
nokkurntima haft yfir sér. Hann
er sagður dæmigerður teknó-
krati, en var jafnframt mjög
harður fylgismaðurutanrikis-
stefnu de Gaulles. Fréttamenn
lýsa honum sem frekum og orð-
ljótum, og Ertl, landbúnaðarráð-
herra Vestur-Þýskalands, ofbauð
einu sinni svo orðbragðiö hjá
Chirac að hann ráðlagði honum
að leita sem snarast til geðlæknis.
Barist 40 km
frá Saigon
SAIGON 27/5 — Saigon-stjórnin
hefur nú viðurkennt að Þjóðfrels-
isfylkingin hafi á valdi sinu svæði
aðeihs fjörutiu kilómetra norður
af höfuðborginni, og geisa nú bar-
dagar á þeim slóðum. Thieu for-
seti Saigonstjórnar hefur rekið
einn nánustu ráðgjafa sinna,
Nguyen Van Ngan, og er sagt að
hann hafi vérið flæktur i
„hneyksli” i sambandi við varnir
yfirráðasvæða stjórnarinnar i ós-
hólmum Mekong. Ekki er tekið
fram i fréttinni hverskonar
hneyksli þetta hafi verið.
Undarleg kosningaúrslit
— sögðu vegfarendur í bliðviðrinu í gær
Þjóðviijamenn
gengu um göturnar i
veðurbliðunni i gær og
tóku vegfarendur tali,
spurðu þá hvernig úr-
slit borgarstjórnar-
kosninganna og
reyndar kosninganna
á öllu landinu, kæmu
þeim fyrir sjónir.
Flestir voru á þvi,
að hægri öflin hefðu
þjappað sér til sins
heima — til Sjálf-
stæðisflokksins —
raunverulega hefðu
atkvæði stjórnarand-
stöðunnar færst á einn
stað, kratarnir kusu i-
haldiö.
Nú er vist endalaust
hægt að velta fyrir sér
tölum og endalaust
hægt að geta sér til
um hvar atkvæði
manna liggja, en eitt
er þó vist, að Möðru-
vellingar, kratar og
frjálslyndir og Sam-
Magnús
tökin hafa fengið eft-
irminnilegan rass-
skell.
En við skulum
heyra hvað viðmæl-
endur sögðu:
Magnús Árnason:
Alþýðubandalagið kom vel
út úr þessum kosningum, en
þessi sigur Sjálfstæðisflokks-
ins verður að teljast undarleg-
ur.
Fólk hefur tekið mið af
landsmálunum — og þá ber að
taka eftir þvi, að Alþýðu-
bandalagið hélt sinu.
Pétur Sigurbjörnsson.
Þetta er vitanlega ógurleg
upplausn á vinstri vængnum.
Maður vonar bara I lengstu
lög að Sjálfstæðisflokkurinn
tapi þessu öllu aftur I þing-
kosningunum.
Sæmundur Guðvins-
son:
Eiginlega varð mér mest
um úrslitin á Sauðárkróki. En
annars eru þetta undarleg úr-
slit. Fylgishrun Framsóknar i
Reykjavik og útþurrkun krat-
anna bendir til hægrisveiflu.
Þetta er kosning sem snérist
Pétur
um landsmálin — Varið land
og það allt.
Gunnar Kristjánsson:
Mér list nú alveg sæmilega á
þessi úrslit. Ég hef nú ekki
sérstakt vit á pólitik, en ég hef
trú á Óla Jó. Verst að hann
verður tæpast I stjórn eftir
næstu kosningar.
Sjálfstæðisflokkinn? Nei, ég
kaus hann ekki.
Margrét Sveinbjörns-
dóttir:
Mér likar þetta bara vel. Ég
kaus Sjálfstæðisflokkinn núna,
en hins vegar reikna ég ekki
með að kjósa hann næst. Ég
kýs nefnilega ekki alltaf sama
flokkinn.
Hallvarður
Guðlaugsson:
Með botnlausu hatri á Al-
þýðubandalaginu hafa svo-
kallaðir vinstri menn og Al-
þýðuflokksmenn ekkert gert
annað en ala upp atkvæði fyrir
ihaldið. Ef við tökum Kópavog
sem dæmi þá fór fylgistap
Huldu og kratanna beint yfir á
ihaldið. Allsstaðar sem Al-
þýðubandalagið var i samfloti
með öðrum tapaði það fylgi,
en nær allsstaðar þar sem Al-
þýðubandalagið bauð fram
eitt sér hélt það velli eða jók
fylgi sitt.
Sæmundur
Margrét
Þingkosningar í Lúxembúrg:
íhaldið stórtapaði
Björn — kominn til kratanna
Björn
til krata
Björn Jónsson, fyrrv. al-
þingismaður Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna, hef-
ur sagt sig úr þeim flokki og
sótt um inngöngu I Alþýðu-
flokkinn.
I yfirlýsingu Björns er hann
yfirgaf afkvæmi sitt, segir
hann að fámennur hópur hafi
náð völdum I SFV og spillt
fyrir sameiningarstefnunni.
Ekki er ljóst hvaða frama
Björn stefnir á I röðum krata,
og ekkert hefur frést af þvi
hvort fóstbróðir hans, Hanni-
bal, hyggist fara eins að og
hverfa nú heim til föðurhús-
anna eftir allróstursama úti-
vist.
LuXEMBuRG 27/5 —
Tvö minnstu ríkin i
Nató, ísland og Lúxem-
búr, eiga það sameigin-
legt að verulegar sveifl-
ur urðu i kosningum hjá
þeim i gær. Lúxembúrg-
arar hafa það þó fram-
yfir okkur að hjá þeim
Breski
að sér
BELFAST 27/5 — Breska stjórnin
hefur ákveðið að láta hermenn
taka við olidreifingu I Norður-lr-
landi, þar sem allt atvinnulif og
starf er nú lamað af völdum verk-
falls mótmælenda, sem staðið
varð sveiflan til vinstri.
Þar voru háðar þingkosningar,
og varð ihaldsflokkur landsins,
Kristilegir demókratar, sem
verið hefur óslitið i stjórn frá þvi i
fyrri heimsstyrjöld, fyrir miklum
skakkaföllum, en flokkar sósial-
ista og frjálslyndra unnu á að
sama skapi.
Kristilegir demókratar fengu
að sögn 18 þingsæti, sósialistar 17
hefur i þrettán daga. Breska
stjórnin ákvað að gripa til þessar-
ar ráðstöfunar eftir að kaþólikkar
hótuðu að draga sig úr út sam-
steypustjórn Norður-írlands, svo
fremi stjórnin i Lundúnum tæki
og frjálslydir 14. Tveir aðrir
flokkar, sósialdemókratar og
kommúnistar, fengu fimm sæti
hvor. Talið er liklegt að sósialist-
ar og frjálslyndir myndi stjórn
saman. Foringi Kristsdemó-
krata, Pierre Werner, sem verið
hefur forsætisráðherra siðan
1959, er að vonum næsta óhress
yfir úrslitunum og lét svo um
mælt að flokkur hans hefði alls
ekki unnið til þeirra!
ekki i taumana. öfgasinnaðir
mótmælendur höfðu hótað breska
hernum hörðu ef hann skipti sér
af verkfallinu.
Norður-Irland:
herinn tekur
olíudreifingu