Þjóðviljinn - 26.08.1981, Qupperneq 3
Mibvikudagur 26. ágúst 1981 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3
Heyfengurinn
Betri en
á horfðist
Þjv. lcitaði til Matthiasar Egg-
ertssonar ritstjóra Freys hjá
Búnaðarfélaginu, til að forvitnast
um heyskaparhorfur. Matthías,
sagði að mönnum virtist að vel
hefði farið ef miðað væri við útlit
og horfur sl. vor. Þó væru vissir
staðir sem heíðu farið illa út úr
votvi-ðrasamri tið. Það væru
Skagafjörður og aðliggjandi dalir
austan og vestan. Eiiuiig væri
bágt ástand af sömu sökum á
sunnanverðu Snæfellsnesi.
Kalskemmdirnar væru náttúr-
lega töluverðar, en á kalsvæðun-
um hefði sprottið furðanlega þar
sem ekki kól. Þaðer dikisprettu-
leysi á því sem að lifði. Verst var
kalið, i uppsveitum Suöurlands.
Enþó að hafi kalið viða um land-
ið, þá eru menn svo vanir kali
sums staðar að þaö verður engin
frétt. E n þegar kelur i stórum stil
á Suðurlandi þá er það mikil frétt
þvi það er svo fátitt.
Sagði Matthias, að hann hefði
fréttað hey væritilsölu áótrúleg-
ustu stöðum, t.d. á Austurlandi.
Ekki taldi Matthias li'klegt að
mikið yrði um heymiðlanir i ár.
Það væriá stundum hagkvæmara
að fækka búfé um tima heldur en
að kaupa hey langt að. Flutnings-
kostnaður hefur aukist svo á sið-
ustu árum að menn eru farnir að
afskrifa heyflutninga i miklum
mæli. Matthias sagðist hafa heyrt
að verðið væri 1.40 - 1.50 krónur á
kilóið af heyi i sumar. — óg
Aðalfundur
Skógræktarfélags
s
Islands
Skoðaðir
„bænda-
skógar”
Um siðustu helgi var aðal-
fundur Skógræktarfélags tslands
haldinn i héraðsheimQinu Vala-
skjálf I Egilsstaðakauptúni.
Fundurinn hófst á laugardags-
morgun en lauk seinnipart mánu-
dags. Hlé var þó gert á beinum
fundarstörfum á sunnudaginn.
Var þá ferðast um Fljótsdals-
hérað, litið á ,, bændaskógana”
þar og helstu „sögustaðina” i
llallormsstaðarskógi. Þangað
komu til móts við fundarfólkið 35
eyfirskir bændur, sem áhuga
höfðu á þvi að sjá og fræðast um
„bændaskóga” Fljótsdælinga.
Deginum lauk með borðhaldi og
skemmtilegri kvöldvöku, sem
Austfirðingar önnuðust.
Fundurinn afgreiddi allmargar
ályktanir, sem si'öar verður
greint frá, sem og fundinum að
öðru leyti. Hin aldna kempa,
Þórarinn Þórarinsson, fyrrum
skólastjóri á Eiðum, var kjörinn
heiðursfélagi Skógræktarfélags-
ins, en Þórarinn hefur i áratugi
staðið i fylkingarbrjósti islenskra
skógræktarmanna. Sérstök
viöurkenning var og veitti Páli
Guttormssyni á Hallormsstaö, en
hann mun trúlega eiga lengstan
starfsaldur að baki við skógrækt
þeirra manna, sem nú starfa að
þeim malum.
Ur stjórn Skógræktarfélags Is-
lands áttu að ganga aö þessu sinni
þeir Jónas Jónsson og Bjarni
Helgason. Voru þeir endur-
kjörnir. Fjölgað var i stjórninni
úr 5 mönnum i 7 og komu þau nú
inn til starfa þar Hulda Valtýs-
dóttir, Reykjavik og Kjartan
Ólafsson, Selfossi. Fyrir eru i
stjórninni Oddur Andrésson,
Ólafur Vilhjálmsson og Kristinn
Skæringsson. í varastjóm var
kjörinn Asgrímur Halldórsson en
auk hans skipa hana Bjarni
Bjarnason og Álfur Ketilsson.
— mhg
Kristján Benediktsson
Sigurjón Pétursson
Björgvin Guðmundsson
Borgarfulltrúar Framsóknar og Alþýðuflokks:
Lýsa stuðningi við
kaup 20 leiguibúða
Nú er unnið að þvi á vegum
Reykjavikurborgar að kanna
grundvöll fyrir kaupum á 20 ibúð-
um á almennum markaði og
breyta I leiguhúsnæði á vegum
borgarinnar. Það var Bygginga-
sjóður borgarinnar sem fór fram
á leyfi til þessara kaupa og er
ákvörðunar af hálfu borgarinnar
að vænta innan skamms. Þetta
húsnæði kæmi til viðbótar þvi
leiguhúsnæði sem þegar hefur
verið tekin ákvörðun um að hefja
byggingu á og er hugsað sem lið-
ur i að leysa húsnæðiskreppu þá
sem rikir i borginni nú á haust-
dögum. Þjóðviljinn hafði i gær
samband við fulltrúa flokkanna i
borgarstjórnarmeirihlutanum og
spurðist fyrir um afstöðu þeirra
til málsins.
Kristján Benediktsson borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins
kvaðst fastlega gera ráð fyrir að
Framsóknarflokkurinn myndi
styðja þetta mál, ,,þaö fer að
sjálfsögðu eftir þvi hvort nánari
könnun leiðir i ljós að það teljist
skynsamlegt.” Um það hvort
hann teldi að unnt væri að ganga
lengra og festa kaup á meira hús-
næöi en þessum 20 ibúðum sagði
Kristján að þaö bæri að hafa i
en telja ekki
grundvöll
fyrir frekari
kaupum nú
huga að fjármagn borgarinnar til
þessara nota væri takmarkað og
yrði aö hafa það til hliösjónar.
,,Við I meirihlutanum höfum
lagt megin áherslu á uppbygg-
ingu Verkamannabústaðanna og
uppbyggingu húsnæðis fyrir aldr-
aða og það ber að hafa i huga að
það er einnig liður i að losa um
húsnæöi á leigumarkaði.”
,,Það hefur litið verið gert i þvi
af hálfu borgarinnar i' langan
tima þar til nú, að byggja upp
leiguhúsnæði. Það hefur verið tal-
ið að flestir hefðu ráð á að eignast
húsnæði á þeim kjörum sem þar
er boðið upp á. Það er hins vegar
orðið ljóst að þetta leysir ekki
vanda allra og að borgin þarf að
hafa leiguhúsnæði i nokkrum
mæli til ráðstöfunar. En fram-
kvæmdirnar við Verkamannabú-
staðina hafa tekið til sin bæði
fjármagn og mannafla og það er
þvi miður þannig að ekki verður
allt gert i einu.”
Kristján kvaðst hingað til hafa
verið andvigur þvi að borgin tæki
upp sérstaka húsnæðismiðlun og
væri sú skoðun óbreytt. Hann
kvaðst telja að með þvi móti væri
hætta á að borgin drægist inn i
mál leigutaka og leigusala sem
einhvers konar stuðpúði en það
væri ekki æskilegt fyrir borgina.
Kristján kvaðst að lokum vilja
gera aðumtalsefni ákveöinn mis-
skilning sem hefði verið ráðandi i
umf jöllun fjölmiðla um húsnæðis-
mál undanfarið. Tala þeirra sem
væru á biðlista hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavikur væri ekki aö
öllu marktæk um það hversu
margir væru húsnæðislausir i
borginni. Hluti þeirra sem á list-
unum væru byggju í eigin hús-
næöi þar væri um að ræða aldrað
fólk sem hefði þörf á þvi að flytj-
ast i' annars konar og verndað
húsnæði.
Björgvin Guðmundson annar
fulltrúa Alþýðuflokksins iborgar-
stjórn sagði að Alþýðuflokkurinn
Framhald á bls. 14.
Sigurjón Pétursson:
Mun vart stranda á
Alþýðubandalaglnu
Eini flokkurinn sem vill leigumiðlun á vegum borgarinnar
næði i þessu skyni þegar neyðar-
Það mun vart stranda á Al-
þýðubandalaginu þegar þetta
hefur verið kannað nánar og til-
laga Byggingasjóðsins kemur til
afgreiðslu i borgarstjórn, sagði
Sigurjón Pétursson forseti borg-
arstjórnar, um hugmyndina að
kaupum á 20 ibúöum til að breyta
ileiguhúsnæði.Hins vegar er hús-
næöisvandinn þannig vaxinn að
liann verður ekki leystur með
skyndiaðgerðum, sagði Sigurjón.
Stefna fyrri meirihluta i þess-
um efnum var sú að það væri al-
gert neyðarúrræði aö leigja og
það tekur tima að byggja upp
leiguibúðakerfi sem kemst út fyr-
ir það að vera neyðarúrræði. Að
þvi hefur hins vegar veriö unnið i
tiö þessa meirihluta. Það eru eng-
ar skyndilausnir, heldur er verið
að byggja upp kerfi sem eyöir
þessum vanda og nú eru að hefj-
ast framkvæmdir við fyrstu al-
mennu leiguibúöirnar sem
Reykjavikurborg byggir i áratug.
— Er ekki ástæöa til þess að
ganga lengraog kaupa fleiri ibúð-
un er ég hræddur um.
Hvort ibúðirnar eiga að vera
fleiri en 20vilég ekkert um segja
fyrr en þetta hefur verið kannað
nánar. Þegar við kaupum eldri
ibúöir i þvi skyni aö leigja þær út
höfum viö ekki aukiö við húsnæð-
iö i borginni, heldur fækkað þeim
ibúðum sem eru i sölu og hugsan-
legu eru setnar af leigjendum og
fjölgað þeim ibúðum sem eru i
leigu. Æskilegast er auövitaö að
auka ibúðafjöldann svo allir eigi
kost á húsnæði.
En það er að minni hyggju rétt-
lætanlegt að kaupa gamalt hús-
Sigurður vill
leigumiðlun
I Alþýðublaðinu i gær er birt
viðtal viðSigurðE. Guömundsson
framkvæmdastjóra Húsnæðis-
stofnunar rikisins um húsnæðis-
mal i Reykjavik. Sigurður lýsir
þar þvi yfir að hann telji að
Reykjavikurborg beri að setja á
stofn leigumiðlun. Um þetta efni
hafa alloft verið fluttar tillögur af
hálfu Alþýðubandalagsins i
borgarstjórn en þær hafa ekki
fengið hljómgrunn annarra
flokka þar.
1 viðtölum hér i blaðinu i dag
við fulltrúa Framsóknarflokks og
Alþýöuflokks i borgarstjórn
kemur hins vegar fram að
hvorugur þeirra treystir sér tilað
lýsa stuöningi viðþetta sjónarmið
Sigurðar,
ástand rikir ogþau rök mætti lika
tina til að þannig yrði leigjendum
á vegum borgarinnar ekki smal-
að saman i ákveðin hús eða við
ákveöna götu eins og hefur viljaö
brenna við. En þetta kostar mikið
fjármagn og sannleikurinn er sá
að þóttkeyptar verði eldri ibúðir
þá tekur það sinn tima að breyta
þeimog rýma að ekki sé talað um
ef keypt erskrifstofuhúsnæði iþvi
skyni að breyta i ibúðir. Þetta
yrði ekkert sem hægt er að
ákveða i dag og gripa til á morg-
un er ég hæíddur um.
— Hvað um hugmyndina um
leigumiðlun á vegum borgarinn-
ar?
Alþýðubandalagið hefur flutt
slika tillögu, þ.e. að borgin ann-
aðist sölu húsnæðis og leigumiðl-
un jafnframt þvi sem hún legði
mat á húsnæði, en Alþýðubanda-
lagið var eini flokkurinn sem
studdi það mál. Við höfum ekki
flutt þá tillögu aftur einfaldlega
vegna þess að við vitumað þaðer
ekki marihluti fyrir hendi i borg-
arstjórn Reykjavikur.
Þcss má geta að í Þjóðviljanum
á morgun verður birt ítarlegt við-
tal við Sigurjón Pétursson um
húsnæöismálin I borginni og
stefnu meirihlutans í þeim efn-
um. —j
Fiskimáladeild al-
þjóðasamtaka flutn-
ingaverkamanna ITF
fundar á íslandi
Öryggis-
mál sjó-
manna
og heilsu-
gæsla
i úag hefst að Hótel Loftleiðum
ráðstefna Fiskimannadeildar al-
þjóðasamtaka flutningaverka-
manna ITF.
Þetta er I fyrsta skipti sem
samtökin þinga hér á landi og
raunar f fyrsta sinn sem alþjóöa-
samtök verkalýðsfélaga þinga á
islandi.
Sjómannasamband tslands
hefur vcrið aðili að ITF frá árinu
1957, en áður var Sjómannafélag
Reykjavfkur eitt og sér aðili aö
samtökunum frá 1926.
Ráðstefnu Fiskimannadeildar-
innar sækja 25 fulltrúar frá 9
þjóðlöndum. Þá mun fram-
kvæmdastjórn Sjómannasam-
bandsins og formaður farmanna
og fiskimannasambandsins sitja
ráðstefnuna sem stendur i þrjá
daga.
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambandsins á sæti i aöal-
stjórn ITF en það sæti skipar
hann ásamt Oli Jacobsen for-
manni Fiskimannafélagsins i
Færeyjum. A siðasta þingi ITF
hlutu þessi lönd sameiginlegan
fulltrúa í stjórn samtakanna.
Aður höfðu Danir farið með
umboð fyrir Færeyinga og Islend-
inga i stjórninni.
Að sögn Hafþórs Rósmunds-
sonar starfsmanns Sjómanna-
sambandsins sem ásamt KrisUnu
Friðriksdóttur hefur unniö aö
undirbúningi ráðstefnunnar,
veröa aðalumræöuefni hennar,
öryggismál og heilsugæsla fiski-
manna og einnig verður rætt um
alþjóðlegar fiskveiðistefnur.
„Hluti af starfi þessarar fiski-
máladeildar ITF felst i þvi að
safna gögnum frá öllum sínum
aðildarfélögum um allt það sem
viðkemur fiskimennsku. Undan-
farið hefur einkum veriö unniö i
aðbúnaðarmálum sjómanna, og
raunar má segja aö þetta mikla
starfsé réttaö byrja. Þær niöur-
stöður sem hins vegar eru þegar
komnar fram verða ræddar á
ráðstefnunni.
Þau gögn sem verða lögö fram
frá okkur, eru að mestu leyti
komin frá Siglingamálastofnun
vegna þess aö Siglingamála-
stofnun hefur unnið mikið starf i
sambandi við allan aðbúnað og
öryggi hjá sjómönnum. Ég held
að þegar liggi fyrir einar 40 reglu-
gerðir frá Siglingamálastofnun
sem varða þessi efni” sagði Haf-
þór. —lg.
Danskir veiðiþjófar
við lan Mayen
Varðskip á
leiðinni
I gær sendu Norðmenn flugvél
til að kanna veiðisvæðiö við Jan
Mayen, þar sem dönsk loðnu-
veiðiskip hafa verið að ólöglegum
veiöum i norskri landhelgi. Ekk-
ert sást til skipsferða fyrir þoku.
Þrátt fyrir þrálátar óskir is-
lenskra stjórnvalda hafa norskir
enn engu svarað hvernig þeir
hyggjast taka á athæfi þessara
dönsku veiðiþjófa sem segjast
veiöa á hafsvæði efnahagsbanda-
lagsins.
Þó er ljóst að Norðmenn hafa
sent eitt af sinum varöskipum á
miðin og verður það væntanlega
komið þangað einhverntimann á
morgun.