Þjóðviljinn - 26.08.1981, Síða 15
Miövikudagur 26. ágúst 1981 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 15
Strætó milli Breið-
holts og Kópavog
Lélegar
sam-
göngur
Maður i Breiðholti, sem oft á
erindi i Kópavoginn hafði
samband við blaðiö og kvartaði
yfir þvi hve strætósamgöngur
þar á milli væru lélegar. Kvaö
hann það valda sér mikilli tima-
sóun að þurfa fyrst að fara niður
á Hlemm úr Breiðholtinu til að
taka siðan þar strætó i Kópa-
voginn. Hvernig væri nú á 50 ára
afmæli strætó og f95 ára
afmæli borgarinnar aö koma á
auknu samstarfi viö strætó i
Kópavogi og létta ögn búraunir
Breiðhyltinga sem þurfa að
komast i Voginn, en hafa ekki
efni á að taka þátt i vitfirringu
einkabilismans. Hóltari.
Samgöngur vantar milli Breiðholts og Kópavogs, bendir lesandi á I
bréfi sinu.
Hringiö i sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Of fljótt
grænu á
A.S.leit inn á ritstjórnina og
kvaðst vilja taka undir með
öldruðum göngumanni sem
kvartaði undan þvi i lesenda-
dálkinum á miðvikudag i sið-
ustu viku hve gagnbrautarljós-
úr
gult
in, m.a. við Hringbraut breyttu
fljótt úr grænu á gult. Sagði hún,
að ekki væri ætlandi nema ungu
fólki að hlaupa yfir götuna á
þeim tima sem gefst eftir að
stutt er á hnappinn og græna
ljósið kemur þar til bilarnir fá
forgang aö nýju og greinilega
miðaö við, að bilaumferöin tefð-
ist sem minnst.
Það þarf ekki einu sinni aldr-
aða til að knappt sé um timann,
sagði A.S. og kvaöst hún sjálf
vera farin aö forðast gang-
brautirnar með ljósum og reyna
aö krækja öðruvisi fyrir götuna,
að visu lengri leið. Það er til
litils að setja upp svona þjón-
ustu ef hún gagnar ekki þeim,
sem einmitt þurfa mest á henni
aö halda.
Barnahorniö
Finndu 5 atriði
I f Ijótu bragði virðast myndirnar alveg eins.
En þegar betur er að gáð sést, að f imm atriði
vantar á þá neðri.
Hefurðu
heyrt
þessa?
Dýravinir
— Sonur minn er svo
mikill dýravinur, segir
stolt móðir við aðra.
— Minn líka. Síðast
þegar hann var að passa
litlu systur sína í vagn-
inum skipti hann á henni
og hvolpi.
Góður stíll
Pabbinn spyr strákinn
þegar hann kemur heim
úr skólanum:
— Hvað sagði kennar-
inn um ritgerðina sem
ég skrifaði fyrir þig?
— Honum fannst hún
vel gerð af tíu ára
barni!
Ódýrt
— Það er svei mér f lott
sjónvarstæki sem þú
hefur fengið þér. Var
það ekki ofboðslega
dýrt?
— Það læt ég bara
vera. Ekki nema
hundraðkall á mánuði.
— ( hvað marga
mánuði?
— Æ, ég gleymdi að
spyrja um það!
Blandað
á vökunni
Útvarp
kl. 20.00
Guðrún Kristinsdóttir pianó-
leikari
Elin Sigurvinsdóttir söngvari
Torfi Þorsteinsson frá Haga.
Hvernig kom Borgar-
fjörðurinn Skaftfcllingi fyrir
sjónir fyrir hátt i hálfri öld, en
ætla má aö meiri munur hafi
verið á þessum landshornum
þá en nú er með nútima fjöi-
miðlum og samgöngum? Frá
þessu greinir Torfi frá Haga
Þorsteinsson væntanlega i
frásögn sinni i Sumarvöku i
kvöld, en þátturinn nefnist
„Eitt sumar á slóðum Mýra-
manna” og er um sumardvöl
1936. Atli Magnússon les fyrri
hluta á Sumarvöku, sem er á
dagskrá útvarpsins kl. 20.
Annað efni sumarvöku eru
ljóð eftir Guðfinnu Jónsdóttir
frá Hömrum, sem önnur
skáldkona, Þórunn Elfa
Magnúsdóttir, les okkur og
kallar Bálkinn „Hvar er blær-
inn sem þaut i gær?” Enn-
fremur frásaga eftir Pálma
Hannesson rektor um helför
fjögurra manna um Fjalla-
baksveg, sem Siguröur Sigur-
mundsson i Hvitárholti les, og
að venju söngur, annarsvegar
islensk lög i meöferð Lilju-
kórsins, sem Jón Asgeirsson
stjórnar, hinsvegar syngur
Elin Sigurvinsdóttir lög eftir
Siguringa Hjörleifsson og Sig-
urð Þórarinsson við undirleik
Guðrúnar Kristinsdóttur
pianóleikara.
Atli Magnússon
Ógeð en dáður af konum: J.R Ewing I Dallasþáttunum.
Sá tíundi!
Islenskir sjónvarpsáhorf-
endur eru liklega farnir aö
kynnast Ewing fjölskyldunni i
Dallas sæmilega og vera MEÐ
og A MÓTI einstökum persón-
um, einsog annarsstaðar en
þættirnir hafa nú verið sýndir
i yfir 60 löndum og sjónvarpið
hér sendir út 10. þáttinn i
kvöld.
Sú persóna sem ætla má, að
flestum sé i nöp við er J.R.,
stóribróðirinn i Ewing fjöl-
skyldunni, sem leikinn er af
Larry Hagman. En ekki hafa
allir sama smekk: Einmitt
Hagman fær um 3000 aðdá-
endabréf frá konum i hverri
viku, — konum sem margar
virðast sannfæröar um, að
þær mundu sko ráöa viö þenn-
an andstyggðar karl ef hann
væri giftur þeim.... Sumum
finnst huggun að hafa J.R. til
samanburðar: Vissulega er
maöurinn minn óþolandi, en
hann er þó ekki eins djöful-
legur og J.R....
Sjálfur var Larry Hagman
gripinn einhverskonar
ást-hatri þegar hann las hand-
ritið i fyrsta sinn:
— Það var ekki einn einasti
Ijúfur eða þægilegur dráttur i
þvi, fannst mér, en ég var
orðinn þreyttur á leikritum,
þar sem aliir eru svo elskuleg-
ir hver við annan og skilnings-
riki. Mér fannst ágætt að fá
mótleikara sem ég mætti
sparka i afturendann á.
Ur þessum efniviöi tókst
Larry Hagman að skapa einn
óvenjulegasta þorpara sem
fram hefur komið á skjánum.
J.R. Ewing er sá eini sem er
gáfaður i Dallas-seriunni, en
það gleymist af þvi að hann er
svo mikiö ógeð.
Larry Hagman sjálfur
stendur nú á fimmtugu, á til
leikara að telja, — móöirin var
söngstjarna á Broadway,
Mary Martin, — og hann hefur
aldrei starfað við annað. Kona
hans heitir Maj, er sænsk,
hönnuður að atvinnu, og eiga
þau tvö börn, Heidi 24 ára og
Preston, tvitugan.
— vh
Sjónvarp
kl. 20.50