Þjóðviljinn - 20.09.1985, Síða 7
Unglingar úti á vinnumarkaðinum
Nú eru framhaldsskólarnir að taka til starfa á ný. Blöðin fyllast af myndum af skólakrökkum að
kaupa sér skólabækur. Miðbærinn er fullur af hressum unglingum talandi um busavígsluna,
skólaböllin og kennara. En hvað er að frétta af öllum þeim sem ekki ætla í skóla? Hvað finnst
þeim um skólana og lífið og tilveruna yfirleitt? Þjóðviljinn fór á stúfana og tók nokkra krakka tali
sem eru hætt námi og komin út á vinnumarkaðinn.
SA
Elín Þóra Ingólfsdóttir er 16
ára og hefur unnið í Hampiðjunni
síðan í vor.
„Ég er að vinna til að safna mér
fyrir bílprófinu. En því miður er
bara 2000 kall í bauknum. Þetta
gengur ansi seint því kaupið er
svo lágt.“
Af hverju ertu ekki í skóla?
„Það er bara ekki aðstaða til
þess núna fyrir mig. Ég ætla
seinna og ég stefni að því að læra
eitthvað um viðskipti. Helst vildi
ég fá verslunarleyfi og vera með
búð. Ég ætla að vinna þangað til
ég gefst upp á því. Ég er alveg
sannfærð um að það er auðveld-
ara að vera í skóla en úti á vinnu-
markaðinum, því ef maður er í
skóla fær maður svo margt upp í
hendurnar. T.d. peninga hjá
mömmu o.s.frv.
Hvað finnst vinum og ættingj-
um um að þú ert ekki í skóla?
„Flestir mínir vinir eru líka
hættir í skóla. En mömmu finnst
þetta í lagi af því að ég ætla seinna
í meira nám.“
Hvernig er að vinna í Hampiðj- .
unni?
(Hvíslar): „Maður má nú ekk-
ert segja um þennan vinnustað,
þá verður allt vitlaust. (En ég læt
það nú bara flakka því ég er að
hætta og að fara út á land). Þetta
er þrælavinna. Skítakaup. Mór-
allinn er lélegur meðal starfsfólks
nema í Klúbbnum um helgar. Þá
eru allir fullir og heimsins bestu
vinir.
Launin eru svo lág. Ég fékk
12000 kr. fyrir 3 vikur. Útborguð
laun voru 7500. Þetta er skítt.
Maður fær ekki einu sinni að vita
tímakaupið."
Hvernig er vinnutíminn þinn?
„Þetta er vaktavinna. Eina
viku er unnið frá hálf átta til háf
fjögur en hina vikuna frá hálf
fjögur til hálf tólf. Svo er oft unn-
ið á laugardögum og sunnu-
dögum. Okkur er boðið upp á að
vinna í 14 tíma í einu. Ég hef gert
það og það var sko ágætis meg-
runarkúr. Ég var á stöðugum
hlaupum í 14 tíma. Ég stjórna ein
14-15 vélum og það er sko skal ég
segja þér ekki einu sinni tími til
að fara á klósettið, því þá stoppar
allt. Þú sérð að ég er þrældugleg
(skellihlær).
Hvað fínnst þér skipta mestu
máli í sambandi við vinnustaði?
„Að þar sé góður mórall. Ég
■'ar einu sinni að vinna í sláturfé-
laginu og það var frábært því við
sem unnum saman hittumst oft á
kvöldin. Fórum í bíó, höfðum
vídeókvöld og sumir fóru saman í
líkamsrækt.“
Ætlarðu að giftast og eignast
börn?
„Veistu, ef ég ætti mann og
íbúð þá væri ég alveg til í að gift-
ast og eignast barn bráðlega."
Nú kom verkstjórinn og var
ekkert hrifinn af því að Þjóðvilj-
inn væri að trufla Elínu Þóru svo
hún dreif sig af stað til þess að
stjórna vélunum.
Mórallinn
skiptir mestu
Elín Þóra 16 ára. Ég læt það bara flakka....
Búinn að fá nóg
afskólanum í bili
Fjalar 16 ára. Vinnutíminn þægilegur. Ljósm. Sig.
Fjalar Ríkharðsson heitir 16
ára piltur sem vinnu í Öskunni.
„Ég ætla að vinna í öskunni í
vetur og næsta sumar, svo getur
alveg farið svo að ég skelli mér í
skóla næsta vetur. Ég er búinn að
fá nóg af skólanum í bili.
Hvort er erfiðara að vinna eða
vera í skóla?
„Því er erfitt að svara. Það er
erfiðara að vinna að því leyti að
það er meira líkamlegt erfiði. Ef
maður er í skóla er erfitt að eiga
aldrei pening og svo er allt
heimanámið."
Hvað gerirðu við kaupið þitt?
„Ég er að safna mér fyrir bíl.
Stefnan er að eiga nóg fyrir ágætis
bfl í maí.“
Hvernig er að vinna í öskunni?
„Kaupið er ágætt. Ég er með
svona 26 þús. á mánuði. Svo er
vinnutíminn þægilegur. Ég vinn
frá 7-2.30. En starfið verður mun
erfiðara í vetur, þegar versnar í
veðri. Mórallinn er svona upp og
niður hérna. Vinnufélagarnir eru
miklu eldri en ég.“
Ertu farinn að spá í framtíð-
ina?
„Voða lítið. Mig langar til að
vera í starfi þar sem er gott kaup
og svo skiptir miklu máli að
vinnufélagarnir séu skemmti-
legir. Ég vil ekki giftast og eignast
börn fyrr en ég er orðinn 25-26.
Svo langar mig til útlanda. Helst
eitthvert þar sem er heitt."
Hvað gerirðu í frístundum?
„Fer í bíó, á skíði og stundum á
hestbak. Svo kemur fyrir að mað-
ur skellir sér á ball í Villta Villa.
En ég er farinn að minnka það því
krakkarnir þar eru miklu yngri en
ég. Flestir eru frá 12-14.“
Þekkirðu krakka sem nota
vímuefni?
„Já, það eru margir 16 ára sem
reykja hass og taka pillur en mér
finnst það hreint út sagt BÖLV-
AÐ RUGL.“
Júlía Margrét Jónsdóttir er 16
ára yngismey, vinnur í Bæjarút-
gerðinni og er í kvöldskóla.
„Ég held að það sé skemmti-
legra að vinna hér heldur en við
t.d. verslunarstörf. Hér er fínn
mórall. Svo er kaupið ágætt ef
maður vinnur mikið þ.e. til 10 á
kvöldin og um helgar. Annars er
tímakaupið lélegt, 90 kr. 75
aurar.”
Ætlarðu að mennta þig meira?
„Ég er að taka upp 9. bekk í
kvöidskóla, það tekur 3 mánuði.
Svo veit ég ekki hvort ég fer
meira í skóla. Ef ég held áfram
námi þá verður það í kvcldskóla.
Mig langar dálítið til þess að læra
fatahönnun. Annars fannst mér
hundleiðinlegt í 9. bekk. Ég var í
Valhúsaskóla og hann er snobb-
skóli.”
Hvað gerirðu við kaupið þitt?
„Ég borga dálítið heim og svo
er ég að safna mér fyrir bfl.”
Er þetta erfið vinna?
„Nei, nei, en ég held að ef
manni finnst gaman í skóla þá sé
það auðveldara en þetta. Maður
getur leyft sér ýmislegt hér en
þetta er engin framtíð. T.d. þá er
enginn hér sem stefnir að því að
vera í BÚR næstu 20 árin.
Hittist þið vinnufélagarnir
eitthvað fyrir utan vinnutímann?
„Við hittumst stundum í
Klúbbnum, annars er alveg nóg
að vera að vinna saman á virkum
dögum og um helgar.”
Ætlarðu að giftast og eignast
börn?
„Ég er nú ekki til í það strax”,
sagði Júlía.
„Við værum allar til í að giftast
ríkum manni og hætta að vinna”,
sögðu eldhressar stelpur sem
vinna með Júlíu og mórallinn var
greinilega í mjög góðu lagi. „Ef
þið viljið hitta okkur aftur komið
þá bara í Klúbbinn um helgina,
þar er Bæjarútgerðin eins og hún
leggur sig. ”
Langar að læra
fatahönnun
Júlía Margrét 16 ára. Ég er að safna mér fyrir bíl.
Föstudagur 20. september 1985 ÞJÓÐViLJINN - SÍÐA 7