Þjóðviljinn - 20.09.1985, Side 17
Námskeið
Grímugerð
og siálfskoðun
Helgina 20.-23. sept. verður
haldið helgarnámskeið með
breska ráðgjafanum Dale Flet-
cher. Helgarnámskeiðið nefnist
„Grímugerð og sjálfskoðun“ og
kennir aðferðir sem miða að því
að vcita bældum tilfinningum
jákvæða útrás, auka sjálftraust
og bæta tjáskipti.
í námskeiðinu býr þátttakand-
inn til eigin grímur úr handhægu
efni sem notaðar eru sfðan til þess
að tjá og kanna ólíka fleti per-
sónuleikans. Með grímugerð og
leikrænni tjáningu er hægt að
skoða sjálfan sig út frá nýjum
sjónarhól. Á þann hátt öðlast
þátttakandinn þekkingu á eigin
skapgerð og um leið tækifæri til
þess að breyta sjálfum sér. Með
beitingu sinnar persónulegu
grímu er hægt að endurlifa at-
burði úr bernsku og skoðaþannig
fyrri reynslu í nýju ljósi. A sama
hátt er hægt að nota grímur ann-
arra og læra þannig nýja hegðun-
armöguleika.
Grímugerð er ótrúlega öflug
og spennandi sálvaxtaraðferð
sem nýtur sín vel í litlum hópi
fólks sem vill tjá sig af alúð og
hreinskilni og hlusta og horfa á
aðra gera það sama.
Dale Fletcher er ráðgjafi,
myndhöggvari og skáld. Hann
hefur fjölbreyttan lífsferil að
baki. Sjö ára vinna í samfélags-
lækningum leiddi hann að þróun
sálvaxtaraðferðar sem byggir á
myndlist og vinnur með tjáskipti
og kynferðismál. Hann starfar
sem listamaður og vinnur með
hópefli í tengslum við eigin að-
ferðir. Grímugerð og sjálfskoðun
er eitt af mörgum námskeiðum
sem hann hefur haldið síðastliðin
ár og byggir á sameiningu mynd-
listar, leiklistar og sálarfræði.
Námskeiðið hefst föstudaginn
20. sept. kl. 20.00 og er laugar-
daginn 21. sept. og sunnudaginn
22. sept. frá kl. 10.00-17.00 báða
dagana. Upplýsingar gefnar í
síma 30064 og 27124 miili kl. 20-
22. Þátttökugjald er 1800 kr.
Handiðnaðarlist
Silfurmunir
í Norrœna
húsinu
íslenskir steinar
Laugardaginn 21. september
n.k. verður opnuð í anddyri
Norræna hússins sýning á
silfurmunum eftir hinn þekkta
finnskalistamann Bertel
Gardberg. Á sýningunni eru
um eitt hundrað verk og lýsa
þau vel þróuninni í listGard-
bergs á síðastliðnum 40
árum. Verkin eru öll í eigu
listamannsins sjálfs og List-
iðnaðarsafnsins í Helsinki,
sem hefurveittómetanlega
aðstoð við skipulagningu og
uppsetningu sýningarinnar.
Bertel Gardberg er í fremstu
röð á sviði listiðnaðar í Finnlandi
og upphafsmaður nútíma silfur-
smíðar þar í landi. í verkum sín-
um notar hann ýmis ólík efni, t.d.
silfur, messing, ýmsar viðarteg-
notaðir í skartgripi
undir og fjölmargar steintegund-
ir. Einkennandi fyrir listamann-
inn Bertel Gardberg er hve mikla
virðingu hann ber fyrir verk-
kunnáttu og er umhugað um að
viðhalda fomum hefðum. En á
hinn bóginn er hann sífellt að
leita nýrra efna og aðferða til að
nota í listsköpun sinni.
Meðan á dvöl Bertels Gard-
bergs hér á landi stendur hyggst
hann kynna sér íslenska steina og
notkun þeirra í gerð skartgripa.
Hann mun einnig hafa samband
við íslenska starfsbræður sína til
að kynna sér störf þeirra og miðla
þeim af sinni reynslu. Anders
Huldén, nýskipaður sendiherra
Finnlands á íslandi, mun opna
sýninguna á laugardaginn og
verður hún síðan opin á venju-
legum opnunartíma hússins til 7.
október.
Nú um helgina hefst miðasala á Litlu hry llingsbúðína á ný. Sýningar hættu síðastliðið vor vegna
kvikmyndasamninga Eddu Heiðrúnar Backman fyrir fullu húsi. Urðu sýningar alls 65 og sáu leikinn
tæplega þrjátíu þúsund áhorfendur. Miðasala í Gamla bíó er opin frá 15 til 19 alla daga. Sömu
leikarar verða í öllum helstu hlutverkum, nema Lísa Pálsdóttir og Helga Möller koma í stað Ragn-
heiðar Arnardóttur og Sigríðar Eyþórsdóttur í hlutverkum Ronnette og Shiffon. Sýningarfjöldi verður
takmarkaður en sýningar hefjast 1. október.
Ópera
Grímudansleikurinn
Þjóðleikhúsið frumsýnir óper-
una Grímudansleik (Un ballo in
maschera) eftir Giuseppe Verdi.
Stórtónleikar
Kuklið,
Purrkurinn
og skóldin
Stórtónleikar
í Félagsstofnun
í kvöld
Síðustu stórtónleikarsumars-
ins „Rokk=sjokk“ verða
haldnir í Félagsstofnun
stúdenta í kvöld kl. 21 þ. 20.
september. Þeir sem ætla að
kveðja sumarið og rokksjokk-
ast á þessum tónleikum eru
Kukl, en þetta verða þeirra
síðustu tónleikar hér á landi
áður en þau halda til vetrar-
starfa í Evrópu.
The Voice er ung og fersk
hljómsveit sem heldur sig við ræt-
ur rokksins.
Þriðja hljómsveitin er Inferno
5 sem kemur fram í fyrsta skipti á
þessu ári.
Skáldin Sjón, Þór Eldon og Jó-
hamar munu hafa uppákomur og
ljóðalestur á milli hijómsveitar-
atriða.
Síðast til að nefna er hljóm-
sveitin Purrkur Pillnikk sem
gerði garðinn frægan hér á árum
áður. Purrkur PiIInikk kemur nú
fram aftur eftir 3ja ára þyrnirós-
arsvefn og mun örugglega trylla
gömul hjörtu sem og ung.
Af þessari dagskrá er auðséð
að hér er um athyglisverða kvöld-
stund, ef bara ekki hreint og
beint skemmtilega að ræða sem
seint verður endurtekin.
Tónleikamir hefjast klukkan
21.00 í Félagsstofnun stúdenta:
Verði er stillt í hóf eða 300 krón-
ur. Þetta er tilkynníng frá
Cuculus-nefndinni.
Leikstjóri er Sveinn Einarsson,
hljómsveitarstjóri er Maurizio
Barbacini frá Ítalíu, leikmynd
gerir Björn G. Björnsson, bún-
inga gerir Malín Örlygsdóttir,
Ingibjörg Björnsdóttir er höf-
undur dansa og Kristinn Daníels-
son annast lýsingu. Með helstu
einsöngshlutverkin fara Kristján
Jóhannsson, Kristinn Sigmunds-
son, Elísabet F. Eiríksdóttir, Sig-
ríður Ella Magnúsdóttir, Katrín
Sigurðardóttir, Robert W. Beck-
er og Viðar Gunnarsson. Sinfóní-
uhljómsveit íslands leikur, en að
auki taka Þjóðleikhúskórinn og
Jón Axel Björnsson opnar sýn-
ingu á málverkum sínum í Gallery
Salnum laugardaginn 21. sept.
Jón Axel hefur áður haldið
tvær einkasýningar og tekið þátt í
fslenski dansflokkurinn þátt í
sýningunni.
Þessi uppfærsla á Grímudans-
leik er frumuppfærsla verksins
hér á landi og jafnframt ein viða-
mesta sýning Þjóðleikhússins frá
upphafi, en milli 120 og 130
manns taka þátt í henni. Þjóð-
leikhúsið hefur áður sýnt þrjár
óperur ítalska óperukóngsins
Verdis: Rigoletto (tvisvar), II
trovatore og La Traviata.
Fmmsýningin verður sem fyrr
segir á laugardagskvöld og önnur
sýning á sunnudagskvöld og er
uppselt á báðar þessar sýningar.
nokkmm samsýningum hér
heima og erlendis.
Sýningunni í Salnum Vestur-
götu 3 lýkur 6. okt.
Mólverkasýning og
tónleikar í Bolungarvík
og ó Flateyri
Torfi Jónsson opnar málverkasýningu í Ráðhússalnum í Bolungar-
vík, fimmtudaginn 19. september kl. 6. Sýningin stendur í 3 daga. Á
sýningunni em verk sem Torfi hefur málað á Vestfjörðum.
í tilefni sýningarinnar halda Ingveldur Hjaltested söngkona og Jón-
ína Gísladóttir píanóleikari tónleika í Félagsheimilinu í Bolungarvík,
laugardaginn 21. september kl. 4.
Sunnudaginn 22. september halda Ingveldur og Jónína tónleika í
samkomusal Hjálms hf. á Flateyri. Tónleikarnir verða kl. 21 og þá
opnar Torfi Jónsson einnig málverkasýningu þar og stendur hún í 3
daga.
Föstudagur 20. september 1985 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 17