Þjóðviljinn - 20.09.1985, Qupperneq 19
ÍÞRÓTTIR
Kvennaboltinn
Tilþess þurfaþeir hagstœð úrslit á Laugardalsvellinum á
morgun oggóðan stuðning áhorfenda. Leikurinn við
Glentoran hefst kl. 13
Handbolti
Þrír í
1. deild
Íslandsmótið í handknattleik hefst
á morgun, laugardag, og er óvenju
snemma á ferðinni í ár - enda lýkur
keppni í 1. deild og 2. deild karla strax
íjanúar.
Á morgun er leikið í 2. deild á
tveimur stöðum kl.14, HK og Grótta
mætast í Digranesi og Þór Ve. og
Haukar í Vestmannaeyjum.
Keppni í 1. deild hefst síðan á
sunnudag. íslandsmeistarar FH fá
Valsmenn í heimsókn í Hafnarfjörð-
inn kl. 13 og á sama tíma mætast Fram
og Stjarnan í Seljaskóla. Á eftir þeim
leik, eða kl. 15.15, leika síðan Þróttur
og Víkingur. Leikur KR og KA sem
tilheyrir 1. umferðinni fer fram síðar
þar sem KA mun leika 2 leiki í ferð
þegar því verður við komið. Síðasti
leikur helgarinnar verður í Digranesi
kl. 20 á sunnudagskvöldið en þar
mætast Breiðablik og ÍR. -VS
Ásgeir Elíasson og Gu&mundur Torfa-
son hafa sett stefnuna framávið, þeir og félagar
þeirra í Fram eru staðráðnir í að komast í 2.
umferð í Evrópukeppni bikarhafa.
Komast Framarar
í aðra umferð?
Erla telst vera
markadrottning!
Ragnheiður missir 4 mörk gegn ÍBÍ
Ragnheiður Jónasdóttir frá
Ákranesi telst ekki vera marka-
drottning 1. deildar kvenna í
knattspyrnu árið 1985 þó hún
hafi skorað flest mörk allra í
deildinni, 23 talsins!
Petta stafar af því að ÍBÍ gaf
síðasta leik sinn í deildinni, gegn
England
Man. Utd
tapaði!
Manchester United beið sinn
fyrsta ósigur á þessu keppnis-
tfmabili í fyrrakvöld, tapaði þá
4-2 fyrir Everton í fyrstu umferð
Super-Cup. Þeirri keppni komu
ensku knattspyrnuliðin, sem
dæmd voru frá þátttöku í Ev-
rópumótunum, á fót. Kevin Shee-
dy skoraði 2 marka Everton og
Gary Lineker og Graeme Sharp
eitt hvor. Frank Stapleton og Bry-
an Robson skoruðu mörk Evert-
on.
Liverpool vann Southampton
2-1 í sömu keppni. Kenny Dalg-
lish og Jan Mölby gerðu mörk Li-
verpool en Danny Wallace svar-
aði fyrir Southamtpon. Totten-
ham og Norwich taka einnig þátt í
keppninni.
Nokkrir leikir voru leiknir í 2.
deild í vikunni. Úrslit urðu þessi:
Carlisle-Oldham......................3-1
Fulham-Sheff. Utd....................2-3
Hull City-Millwall...................3-0
Norwich-Cr. Palace...................4-3
í 3. deild vann Reading sinn 7.
sigur í jafnmörgum leikjum, 2-1
gegn Brentford. Wolves tapað
hinsvegar sínum sjötta leik, 3-4
fyrir Bristol Rovers á heimavelli.
-VS
Breiðabliki. Samkvæmt reglum
skal því strika út markatölu og öll
mörk skoruð í leikjum gegn IBÍ í
deildinni í sumar. Ragnheiður
skoraði 4 mörk gegn ÍBÍ og fer
því niður í 19 mörk. Erla Rafns-
dóttir úr Breiðabliki gerði 21
mark í sumar, en aðeins eitt gegn
ÍBÍ, og telst því markadrottning
með 20 mörk. Ásta B.
Gunnlaugsdóttir úr Breiðabliki
skoraði 20 mörk í sumar, 2 gegn
ÍBÍ, og er því með 18. Þá lítur
listinn yfir markahæstu stúlkur
deildarinnar þannig út, mörk
skoruð gegn ÍBÍ í svigum:
Eria Rafnsdóftir, Breiðabliki.....20 (1)
RagnheiðurJónasdóttir, lA.........19 (4)
ÁstaB. Gunnlaugsdóttir, Breiðabl. 18 (2)
ÁstaM. Reynisdóttir, Breiðabliki.... 12 (1)
Anna Einarsdóttir, Þór..............10 (4)
Laufey Sigurðardóttir, (A............9 (4)
Katrfn Eiríksdóttir, (BK.............8 (0)
Ákvörðun ÍBÍ að gefa síðasta
leik sinn í deildinni bindur leiðin-
legan endi á íslandsmótið. Það á
ekki að þekkjast að leikir séu
gefriir, allra síst í 1. deild.
-VS
V. Þýskaland
Stuttgart
skiptir
Stuttgart, Uð Ásgeirs Sigurvins-
sonar í Vestur-Þýskalandi, seldi í vik-
unni framherjann belgíska, Nico
Claesen, til Standard Liege í Belgíu
fyrir 1,2 miljónir marka.
Stuttgart keypti Claesen frá Sera-
ing í Belgíu fyrir 15 mánuðum og
greiddi svipað fé fyrir hann. Claesen
hefur átt við meiðsli að stríða og ekki
náð sér vel á strik en hann var talinn
einn efnilegasti framherji í Evrópu er
Stuttgart keypti hann. f staðinn
kaupir Stuttgart líklega júgóslavn-
eska framherjann Predrag Pasic.
-VS/Reuter
Það er sjaldan sem íslensk lið
eiga raunhæfa möguleika á að
komast í 2. umferð í Evrópu-
mótum félagsliða í knattspyrnu.
En bikarmeistarar Fram ættu
hiklaust að geta stefnt að því að
ná þangað í ár því þeir mæta
Glentoran frá Norður-írlandi í
Evrópukeppni bikarhafa. Fyrri
leikur liðanna fer fram á Laugar-
dalsvellinum á morgun, laugar-
dag, og er rétt að vekja athygli á
óvenjulegum leiktíma. Leikurinn
hefst nefnilega kl. 13.
Fram tekur nú þátt í Evrópu-
keppni í níunda sinn. Af 18
leikjum hefur liðið sigrað í
tveimur en tapað sextán. Fram
sigraði Hibemian 2-0 á Möltu
árið 1971 eftir að hafa tapað 3-0 í
fyrri leiknum sem einnig fór fram
ytra. Árið 1981 vann Fram Dund-
alk frá írlandi 2-1 á Laugardals-
vellinum en tapaði síðan 0-4 ytra.
í bæði skiptin var um Evrópu-
keppni bikarhafa að ræða, enda
er þetta í sjötta skiptið sem Fram
leikur þar.
Njarðvík, Haukar og Keflavik
unnu fyrstu leiki sína í Reykjanes-
mótinu í körfuknattleik eins og
við var að búast. Njarðvík vann
Grindavík 104-54 og Breiðablik
109-63, Haukar sigruðu Breiða-
blik 93-54 og Grindavík 84-62, og
Pálmar Sigurðsson - leikur hann
ekkert með Haukunum á næstunni?
Glentoran hefur tvívegis leikið
gegn íslenskum liðum í Evrópu-
keppni og þá var um hörkuleiki
að ræða. í Evrópukeppni
meistaraliða vann Valur Glentor-
an 1-0 hér heima en tapaði síðan
2-0 úti. Árið eftir lék ÍBV við
sama lið í Evrópukeppni bikar-
hafa. Þá fór 0-0 hér heima en 1-1
úti og komst ÍBV áfram á úti-
markinu.
Norður-írsk knattspyma er
mjög áþekk því sem gerist hér
heima. Sterkustu leikmennimir
fara beint til stóm liðanna í Eng-
landi og Skotlandi, það er helst
að „gamlir refir“ snúi aftur heim
á fertugsaidri og endi ferilinn í
sínu heimalandi.
Framarar eiga nokkuð köflótt
keppnistímabil að baki. Þeir
unnu Reykjavíkurmótið og
Meistarakeppnina og vom síðan
ósigrandi framanaf íslandsmót-
inu. Meistaratitilinn blasti við en
liðið missti dampinn og hafnaði
að lokum í fjórða sæti. En Fram-
arar rifu sig samt sem áður uppúr
Keflavfk vann Reyni Sandgerði
64-48.
Allir leikirnir fóm fram í
Digranesi í Kópavogi s.l. föstu-
dag og sunnudag. Næst verður
leikið þar um helgina, í kvöld,
laugardag og sunnudag. Eyjólfur
Guðlaugsson, Grindavík, er stig-
ahæstur í mótinu með 43 stig,
Kristján Rafnsson, Breiðabliki,
kemur næstur með 37, ísak Tóm-
asson, Njarðvík, og Eyþór Áma-
son, Haukum, hafa gert 33 stig
hvor og Jóhannes Kristbjörns-
son, Njarðvík, og ívar Webster,
Haukum, koma næstir með 32
stig.
Pálmar Sigurðsson, landsliðs-
bakvörður úr Haukum, meiddist
illa í leiknum við Grindavík. Lík-
ur em á að hann missi af fyrstu
leikjum íslandsmótsins og Evr-
ópuleikjum Hauka í næsta mán-
uði.
-VS
öldudal síðustu ára og em komnir
í fremstu röð hér á landi á ný. Þeir
urðu bikarmeistarar á sannfær-
andi hátt og leika því áfram í
þessari keppni næsta haust.
Þó Glentoran sé ekki eitt af
frægustu liðum í Evrópu er samt
fyllsta ástæða til að hvetja knatt-
spyrnuáhugamenn til að mæta á
Laugardalsvöllinn kl. 13 á morg-
un. Möguleikinn á að Framarar
komist í 2. umferð er fyrir hendi
og þeim veitir ekki af góðum
stuðningi áhorfenda til að geta
farið í síðari leikinn á Norður-
írlandi þann 2. október með hag-
stæð úrslit í pokahorninu.
-VS
Framarar
Þorsteinn
í banni
Þorsteinn Þorsteinsson, varn-
armaðurinn sterki, verður fjarri
góðu gamni þegar Fram mætir
Glentoran í Evrópukeppni bikar-
hafa í knattspyrnu á Laugardals-
vellinum á morgun. Hann fékk 2
gul spjöld þegar Fram lék síðast í
Evrópukeppni, árið 1982, og það
þýðir eins leiks bann. Stöðu hans í
hjarta Framvarnarinnar tekur
væntanlega útvarps- og blaða-
maðurinn Þorsteinn J. Vilhjálms-
son.
-VS
Spánn
Hercules
sigraði
Hercules, lið Péturs Péturs-
sonar, sigraði Eldenese 3-o í
fyrstu umferð spænsku bikar-
keppninnar í knattspyrnu í fyrra-
kvöld. Þetta var fyrri leikur lið-
anna og fór fram á heimavelli
Eldenese. Níu lið 1. deildar léku á
útivöllum gegn liðum úr neðri
deildum og sigruðu öll, nema
hvað Real Zaragoza gerði jafn-
tefli, 2-2, við Huesca.
-VS/Reuter
Körfubolti
Þau stóru sigruðu
Pálmar meiddist
Föstudagur 20. september 1985 ÞJÖÐVIUINN - SÍÐA 19