Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2000, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2000
Fréttir
25 þúsund gestir sóttu 500 milljóna króna Kristnihátíð:
20 þúsund á gest
Jón Bjartmarz
yfirlögreglu-
þjónn segir lög-
reglu áætla að
alls hafi verið á
bilinu 26 til 32
þúsund manns á
Kristnihátíðinni
á Þingvöllum
um helgina.
Áætlunin byggir
á fjölda fólksbila
og fjölda rútu-
farþega og fjölda
tjaldgesta.
Alls telur lögreglan að á bilinu 12
til 15 þúsund manns hafl verið á
Þingvöllum á laugardag en á bilinu
14 til 17 þúsund í gær. Á laugardeg-
inum voru taldir 3200 fólksbílar inn
á svæðið en 3600 á sunnudeginum.
Á laugardeginum munu 1250 gestir
Júlíus Hafstein,
framkvæmda-
stjóri Kristnihá-
tíöarnefndar.
hafa komið með rút-
um en 2200 í gær. Þá
segir Jón að á bilinu
600 til 1000 gestir hafi
verið á tjaldstæðum í
Bolabás og við Skóg-
arhóla. Þess má geta
inni í ofangreindum
tölum eru allir þeir
sem voru á Þingvöll-
um, bæði þeir sem
þar voru að störfum
og þeir sem þar voru
gestir.
Júlíus Hafstein,
framkvæmdastjóri
Kristnihátíðarnefnd-
ar, hefur sagt að beinn kostnaður
nefndarinnar vegna hátíðarinnar á
Þingvöllum nemi á bilinu 260 til 270
milljónum króna. Nefndin hafði
hins vegar 324 milljónir króna til
Fjárveitingavaldið á faraldsfæti
Alþingi samþykkti 500 milljóna króna þjóöargjöf á Þingvöllum í gær.
ráðstöfunar á þessu ári vegna hátíð-
arhalda á landinu öllu. Að auki
hafði nefndin fengið framlag á fjár-
lögum fyrri ára. Auk ofangreinds
kostnaður hefur ríkissjóður lagt
hundruð milljóna króna
út fyrir umfangsmiklum
framkvæmdum, ýmist til
bráðabirgða eða lang-
frama, á og við Þingvelli,
í tilefni hátíðarinnar. í
gær samþykkti Alþingi
síðan 500 milljóna króna
fjárveitingu, sem þjóðar-
gjöf til minningar um
kristnitökuna, á fundi
sínum á Þingvöllum.
Ef gert er ráð fyrir að
hátíðargestir, að frátöld-
um starfsmönnum og
listamönnum, hafi alls
verið 25 þúsund talsins
og að beinn kostnaður vegna hátíð-
arinnar á Þingvöllum um helgina
hafi verið 500 milljónir króna hefur
hátíðin kostað 20 þúsund krónur á
hvern gest. -GAR
Vesturlandsvegur:
Ekki lokað
- auglýsingin virkaði
Ekki varð af því að Vesturlandsvegi
væri lokað fyrir akstri úr norðri síð-
degis í gær til að greiða fyrir umferð
gesta af Kristnihátíð á Þingvöllum.
Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn segir
að umferðarteljarar hafi gefið til
kynna að umferð hafl verið mjög mik-
ii frá Vesturlandi á milli klukkan íjög-
ur og sex. „Auglýsingin um lokunina
hafði þau áhrif að fólk kom mun fyrr í
bæinn gegnum Hvalfjarðargöngm. Það
má segja að auglýsingin hafa leyst mál-
ið auk þess sem umferðin frá Þingvöll-
um var ekki meiri en raun bar vitni
þannig að það var hægt að koma báð-
um straumunum inn í borgina," segir
Jón Bjartmarz. -GAR
Þingfundur á Þingvöllum
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, ræöustól í gær.
DV-MYND KRISTINN H. SVEINSSON
Húsafell
Á sunnudaginn kom upþ eldur í sumarbústaö i Húsafelli og brann hann til kaldra kola á örskömmum tíma. Ekki uröu
slys á fólki. Grunur leikur á aö um íkveikju hafi veriö aö ræöa.
Almannavarnanefnd á Suðurlandi:
Skipulagi var fylgt
- annað er mistúlkun eða misskilningur, segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson
„Þetta er ákaflega mikið úr lausu
lofti gripið," segir Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson, sveitarstjóri á Hellu og
einn sjö manna sem sæti eiga í Al-
mannavamanefnd Rangárvallasýslu,
um fuilyrðingar þess efnis að almanna-
vamir hafl ekki fylgt fyrirfram ákveð-
inni áætlun eftir að stóra skjálftamir
riðu yflr Suðurland á dögunum.
„í aðalatriðum var farið eftir skipu-
lagi almannavama um viðbrögð við
náttúruhamfórum. I því fólst að kallað-
ar vora út björgunarsveitir og sett upp
fjöldahjálparstöð. Fljótlega kom í ljós
að það vora ekki mannfómir eða stór
slys á svæðinu þannig að það þurfti
ekki að grípa til aðgerða vegna þeirra
- sem er vitanlega hluti af áætluninni
ef slíkt gerist. Þannig að í aðalatriðum
var áætluninni fylgt eins og tileöii
gafst til. Annað er nú held ég misskiln-
ingur eða það að menn hafa oftúlkað
einhverja hluti,“ segir Guðmundur
Ingi.
Laugaland var úr myndinni
Að sögn Guðmundar Inga komu
hins vegar fram hnökrar varðandi
sambandið við Aimannavamir ríkis-
ins fyrsta hálftimann eftir skjálftann
17. júní. „Við hefðum viljað ná betra
sambandi viö Almannavamir ríkisins
i Reykjavík. En þetta á sér sínar skýr-
ingar og hefúr verið farið yflr þær með
stjómendum almannavama. Það urðu
aúar linur rauðglóandi inn til Land-
helgisgæslunnar, sem er með síma-
vaktina. En það var fyrir því séð þegar
seinni skjáiftinn kom að við vorum í
sambandi við stjómstöðina í Reykja-
vik nánast frá fyrstu mínútu,“ segir
hann.
Eins og áður segir telur Guðmundur
Ingi að gagnrýnendur almannavama
hafi oftúlkaö atburðarásina. „Ég sá i
frétt að hjálparstöð hefði ekki verið
sett upp á Laugalandi eins og áætlun
gerir ráð fyrir. Það var einfaldlega
vegna þess að við settum stöðina fyrst
upp í Hvoisskála á Hvolsvelli út frá því
sjónarmiði að hún væri sett upp á sem
öraggustu svæði en Hella og Lauga-
land vora aöaláfallasvæðin. Síðan kom
í ljós að húsnæði var tiltækt á Hellu
sem hafði staðist skjálftann fuilkom-
lega og þá var hjálparstöð sett upp þar
og talin vera í miðju mannflesta áfalla-
svæðisins og öilum sem vitað vai' að
þurftu á aðstoð eða áfallahjálp að
halda var beint þangað. Vegna þess að
ekki var vitað um slys eða mannfómir
vora ekki settar upp fleiri hjálpar-
stöðvar," segir Guðmundur Ingi.
Almannavamanefnd Rangárvalla-
sýslu er enn á viðbragðsstigi. „Það
verður öragglega á meðan enn era ein-
hverjar hræringar," segir Guðmundur
Ingi Gunnlaugsson. -GAR
Ofurhugar í Þórsmörk
Elín, Hlynur, Björn og Baldvin þreyttu kappróöur á gúmmíslöngum niöur
Krossá i sólskini og 19 stiga hita. Allmargir gestir voru i Þórsmörk um helg-
ina þrátt fyrir verkfall Sleipnismanna.
Skuldir Fjarðabyggðar rjúka upp
Skuldir Fjarða-
byggðar hafa aukist
verulega samkvæmt
ársreikningi síðasta
árs. Þetta var kynnt
á síðasta fundi bæjar-
stjómarinnar sem
haldinn var fyrir
sumarfrí. Fram kom
á fundinum að mun meira af tekjum
hefði farið til rekstrar sveitarfélagsins
en gert hefði verið ráð fyrir, auk þess
sem þær urðu minni en áætlað var.
Sjónvarpið sagði frá.
Skaðar ímynd leigubílstjóra
Framkvæmdastjóri Bæjarleiða segir
núverandi fyrirkomulag í leigubílaakstri
til og frá Keflavíkurflugvelli skaða ímynd
leigubílstjóra. Þar séu 40 bílar að reyna
að flytja þúsundir farþega en betra væri
að ailir leigubílar hefðu rétt á aö flytja þá.
Sjónvarpið sagði frá.
Lítil skjálftavirkni
Um 130 smáskjálftar urðu frá mið-
nætti fram að hádegi í gær og urðu
þeir stærstu um 1,5 á Richter. Virknin
hefur mestmegnis verið bundin við
Hestfjall og Holtin en einhverjir smá-
skjálftar hafa einnig verið á Hengils-
svæðinu og í Ölfúsinu.
Læknar vara við bjartsýni
Læknar vara við bjartsýni vegna
fjölda uppgötvana sem gerðar hafa ver-
ið í rannsóknum á krabbameini upp á
síðkastið. Þeir segja ánægjulegt hve
margar grunnrannsóknir hafi verið
gerðar að undanfomu en að mörg ár
taki að rannsaka hverja nýja uppgötv-
un. Stöð 2 sagði frá.
íslendingur af staö á morgun
Víkingaskipið íslendingur leggur af
stað á þriðjudagsmorgun i átt til
Brattahlíðar á Grænlandi. Skipið hef-
ur dvalist í Ólafsvík síðustu viku
vegna mikils hafiss á leiðinni til Græn-
lands en hann er nú að gliðna. Stöð 2
sagði frá.
Kristnin til framfara
Davíð Oddsson for-
» sætisráðherra sagöi í
ræðu á Kristnihátið
■ að það væri engin til-
9 viljun að mestu fram-
■t :iJ| farir síðustu þúsund
hefðu orðið hjá
■ ' /BW kristnum vestrænum
þjóðum enda héldist
þar í hendur einstaklingshyggja og
samkennd.
Málþing samkynhneigðra
Fimm félög samkynhneigðra á ís-
landi héldu í gær málþing í samstaríi
við Mannréttindaskrifstofuna á ís-
landi. Að sögn Þorvalds Kristinssonar,
sem sá um undirbúning málþingsins,
er þetta í fyrsta skipti á Islandi sem
fjallað er á fræðilegan hátt um stöðu
samkynhneigðra hér á landi. RÚV
greindi frá.
Geysir gaus í þriðja sinn
Geysir gaus í þriðja
sinn rétt eftir mið-
nætti í fyrrinótt. Gos-
ið stóð í 10 til 15 mín-
útur og var gossúlan
um 30 metra há. Már
Sigurðsson, staðar-
haldari á Geysisvæð-
inu, segir að hverinn
gamli hafi tekið vel við sér í kjölfar
skjálftavirkni á Suðurlandi.
Samþykkt Kristnihátíöarsjóðs
Á hátiðarþingfundi á Kristnihátíð á
Þingvöllum i gærmorgun samþykktu
þingmenn að stofna Kristnihátíðarsjóð
sem efla á fræðslu og rannsóknir á trú-
ararfmum. Tilgangur sjóðsins er m.a.
að efla fræðslu og rannsóknir á trú-
ararfi þjóðarinnar, auk þess sem hann
á að styrkja fomleifarannsóknir á
helstu sögustöðum. 100 miiljónir króna
verða settar í sjóðinn árlega. -jtr