Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2000, Qupperneq 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2000
I>V
Helmut Kohl
Kanslarinn fyrrverandi vill
réttarrannsókn til að sannieikurinn
komi í tjós.
Kohl neitar að
hafa eyðilagt
sönnunargögn
Helmut Kohl, fyrrverandi kansl-
ari Þýskalands, neitaði í viðtali í
gær við þýska blaðið Welt am
Sonntag að hafa eyðilagt gögn sem
gætu bendlað hann við mútuþægni.
Kohl kvaðst hins vegar ekki geta
útilokað að mistök hefðu átt sér
stað. Sagðist kanslarinn fyrrverandi
ætla að krefjast réttarrannsóknar til
að hægt yrði að komast að sannleik-
anum.
í síðustu viku hélt sérstakur
rannsóknarmaður, Burkhard
Hirsch, því fram að rúmlega milljón
skjala hefði verið eyðilögð í kjölfar
kosningaósigurs Kohls 1998.
Flóttamenn fund-
ust í melónu-
farmi í vörubíl
Gríska lögreglan greindi frá því í
gær að hún hefði handtekið um 30
ólöglega innflytjendur sem reyndu
að laumast inn í landið í vörubfl
með melónufarm. Flóttamennimir,
flestir frá Indlandi og Pakistan, voru
faldir innan um melónukassa. Hafði
bilnum verið lagt á lóð flutninga-
bílafyrirtækis nálægt Aþenu. Lög-
reglan, sem kvaðst hafa fengið
ábendingu um flóttamennina, sagði
að þeir hefðu ætlað til Danmerkur.
Flóttamenn frá Asíu fara oft um
Grikkland til annarra Evrópulanda.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á fasteigninni Búða-
vegi 48, n.h., Fáskrúðsfirði, þingl. eig.
Brynhildur Björg Stefánsdóttir, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóðurinn Líflðn, fer
fram þriðjudaginn 4. júlí 2000 kl. 10 á
eigninni sjálfri.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI.
www.romeo.is
Viö leggjum mikinn metnað
í pökkun og frágang á öllum
póstsendingum.
Allar sendingar dulmerktar.
1 00% trúnaöur.
Kosningarnar í Mexíkó:
Milljónir streymdu
að kjörborðinu
Milljónir Mexikóbúa streymdu í
gær að kjörstöðum til að greiða at-
kvæði í forseta- og þingkosningun-
um. Kjósendur í Mexíkóborg og
annars staðar stóðu í biðröðum áð-
ur en kjörstaðir voru opnaðir.
Kosningabaráttan var hörð og í
fyrsta sinn í 71 ár á stjórnarflokkur-
inn á hættu að tapa forsetaembætt-
inu. Um 59 mflljónir kjósenda voru
á kjörskrá. Síðustu skoðanakannan-
ir sýndu að jafnræði var með fram-
bjóðanda stjómarflokksins,
Francisco Labastida, og frambjóð-
anda stjórnarandstöðunnar,
Vicente Fox. Báðir hafa þeir verið
með um 40 prósent atkvæða að und-
anfömu. Hinir þrír frambjóðend-
umir njóta lítfls fylgis.
Hundruð erlendra eftirlitsmanna
fylgjast með kosningunum í
Mexíkó. Stjórnvöld lofuðu að kosn-
ingamar yrðu heiðarlegar en
orðrómur var á kreiki í síðustu
viku um fyrirhugað kosningasvindl
Atkvæði greitt
Mexíkóbúar biðu í biðröðum áður en
kjörstaðirnir voru opnaðir.
stjómarflokksins. Yfirvöld vísuðu
orðróminum harðlega á bug. Er-
lendir fréttamenn urðu þó vitni að
því að stjómmálamenn reyndu að
kaupa atkvæði.
Labastida hefur verið bæði hér-
aðsstjóri og gegnt ýmsum ráðherra-
embættum. Talið er að hann hafi
notið mikfls fylgis meðal bænda og
fátæklinga á landsbyggðinni. Fox,
sem er fyrrum forstjóri Coca Cola i
Mexíkó, hefur takmarkaða reynslu
af stjómmálum en hann hefur þó
verið héraðsstjóri.
Slagorð Fox um að breytinga sé
þörf eftir 71 árs setu stjómarflokks-
ins virtist hafa fengið hljómgrunn
hjá millistéttinni í borgum Mexíkós.
Vaxandi óánægju hefur gætt
meðal hennar með einræðið og
spillinguna í landinu. Stjómar-
flokkurinn hefur haft miklu öflugri
kosningavél en stjórnarandstæðing-
amir og því er úrslitanna beðið
með eftirvæntingu.
Göngumenn stöðvaðir
Óeirðalögregla stöðvaði í gær göngu mótmælenda við hverfi kaþólskra í bænum Portadown í gær. Til ryskinga kom
milli göngumanna og lögreglu og vörpuðu unglingar grjóti að lögreglumönnunum. Þar til fyrir nokkrum árum fengu
mótmælendur að ganga um hverfi kaþðlskra til að fagna sigri Vilhjálms konungs af Óraníu yfir herjum kaþólikka. Mikil
spenna hefur ríkt vegna árlegrar göngu þeirra.
Hvítir bændur í Simbabve
búa sig undir baráttu
Hvítir bændur í Simbabve ætla
að berjast gegn áætlun yfirvalda um
yfirtöku búgarða þeirra. Svarfrest-
ur bændanna við tilkynningu, sem
þeir fengu um yfirtöku 804 búgarða,
rennur út í dag.
Sumir bændanna hyggjast berjast
gegn landtökunni. Aðrir eru þó fús-
ir til að selja ríkinu búgarða sína fái
þeir réttlátar greiðslur fyrir, aö því
er Tim Henwood, forseti samtaka
bænda, greindi frá í gær.
Upplýsingaráðherra Simbabve,
Chen Chimutengwende, sagði sið-
astliðinn miðvikudag í viðtali við
frönsku fréttastofuna AFP að land-
takan og afhending lands til svartra
hæfist innan nokkurra vikna.
Stjómarflokkur Mugabes hlaut 62
Robert Mugabe
Fresturinn sem forseti gaf hvítum
bændum rennur út í dag.
þingsæti í nýafstöðnum þingkosn-
ingum en stjómarandstæðingar 58
sæti.
Stjórnarflokkurinn hét kjósend-
um að afhenda þeim land hvítu
bændanna. Um 4500 hvítir bændur
eiga 70 prósent af frjósömustu jörð-
um Simbabve.
Ofbeldisaðgerðum gegn stuðn-
ingsmönnum stjómarandstöðunnar
er haldið áfram i Simbabve. Á laug-
ardaginn særðust fimm stuðnings-
menn stærsta stjómarandstöðu-
flokksins alvarlega þegar hópur
vopnaðra manna réðst á þátttakend-
ur í kröfugöngu í úthverfi höfuð-
borgarinnar, Harare. Árásarmenn-
imir börðu göngumenn með byssu-
skeftum.
Stuttar fréttir
Sjálfstæðisyfirlýsing
Yasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna,
tjáði þingi Frelsis-
samtaka Palestínu-
manna, PLO, í gær
að hann hygðist lýsa
yfir sjálfstæðu palest-
ínsku ríkis fyrir árs-
lok.
Heimiiisiaus
Það er ekki langt síðan sex millj-
arðasti heimsbúinn fæddist. Þá var
honum, Adnan Mevic, lofuð velferð.
Nú á Adnan litli á hættu að vera
rekinn úr íbúðinni þar sem hann
býr. Eigandi ibúðarinnar, er flýði
stríðið í Sarajevo, vill komast heim.
Forsetinn framleiddi viskí
Sýning er nú i Bandaríkjunum á
eimingartækjum sem sögð eru hafa
tilheyrt fyrsta forseta landsins,
George Washington. Á árunum 1798
til 1799 framleiddi hann 41.800 lítra
af viskíi.
Blaðamanni rænt á Jolo
Blaðamanni þýska tímaritsins
Der Spiegel, Andreas Lorenz, var
rænt í gær á eyjunni Jolo. Talið er
að mannræningjarnir séu félagar í
skæruliðasamtökum sem rændu 20
gíslum á páskadag.
10 fundust á lífi
Tíu manns fundust á lífi i gær við
leitina að ferjunni sem flutti nær
500 kristna flóttamenn frá eyjunni
Halmahera, einni Mólúkkaeyja, í
siðustu viku. Þeir sem björguðust
sögðu ferjuna hafa sokkið.
Waiter Matthau látinn
Bandaríski leik-
» ar’nn Walter Matt-
Uj hau lést á laugar-
P v’j sf völdum
1:1 varð 79 ára. Matt-
jfPkiiáiH ^ai1, sem var emn
H vinsælasti leikari
BMrTlWMi Bandaríkjanna, lék
alls í yfir 45 kvikmyndum.
Krefst ábyrgðar af NATO
Tarja Halonen, forseti Finnlands,
sagði í blaðaviðtali í gær að nauð-
synlegt væri að íhuga hvað aðild
nýrra ríkja þýddi fyrir einstök lönd
og svæði. Sagði Halonen aðild
Eystrasaltslandanna hafa áhrif á ör-
yggispólítík í Evrópu og N-Evrópu.
Krám lokað vegna óláta
Tony Blair, for-
sætisráðherra
Bretlands, leggur
til að lögreglunni
verði heimilt að
loka í sólarhring
krám þar sem ölv-
aðir menn fá að
slást að vfld. Bresk
blöð segja stjórn-
völd ákveðin í að draga úr ofbeldi.
Tilkynnt var um 676 þúsund slags-
mál ölvaðra í krám og við þær um
allt Bretland í fyrra.
Sprengjutilræði
Einn lét lífið og 37 særðust er
fjórum gasflöskum með sprengiefni
var fleygt að aðalstöðvum
lögreglunnar í bænum Cali í
Kólumbíu á laugardaginn. Enginn
hafði í gær lýst yfir ábyrgð á
tilræðinu.