Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2000, Page 16
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiBlun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Rltstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvik, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiBlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Filmu- og plötugeró: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Undarlegar reglur
Ríkisvaldið hefur í gegnum tíðina verið duglegt við að
setja margvíslegar reglur um athafnir einstaklinga.
Margar þessara reglna á almenningur erfitt með að
skilja þótt hann láti þær yfir sig ganga.
Tilgangur ríkisvaldsins með reglugerðarsetningu er
yfirleitt sá að tryggja forréttindi ákveðinna hópa samfé-
lagsins, allt á kostnað almennings og þjóðfélagsins í
heild. Forréttindahópurinn græðir en reikningurinn er
sendur til samfélagsins í formi hærra vöru- og þjónustu-
verðs, lægri launa og hærri skatta.
Vegna þess að almenningur er sundurlaus hópur hef-
ur forréttindahópum tekist að standa vörð um hagsmuni
sína með aðstoð stjórnmálamanna og embættismanna.
Verkfall félagsmanna í Sleipni hefur orðið til þess að
augu margra hafa opnast fyrir því hve reglur sem gilda
um akstur leigubíla eru fráleitar og óhagstæðar fyrir
alla. En auðvitað reyna þeir sem sérréttindanna njóta að
verja vígi sín og þess vegna hefur komið til stimpinga
milli leigubílastjóra við Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar
sem ferðamenn eru strandaglópar.
Reglur kveða á um að aðeins þeir sem tilheyra félags-
svæði leigubílstjóra í nágrenni flugvallarins megi taka
farþega til Reykjavíkur. Með sama hætti mega þessir
sömu bílastjórar ekki taka upp farþega í Reykjavík og
flytja þá til Keflavíkur. Þannig keyra leigubílar fram og
aftur um Reykjanesbrautina tómir.
Farþegar sitja eftir með sárt ennið og komast hvorki
lönd né strönd í rútuverkfalli því leigubílar með sérrétt-
indi eru of fáir. (Fæstir hafa þá fyrirhyggju að hringja
og panta bíl úr Reykjavík. Slíkt mun vera löglegt sam-
kvæmt reglum en hvernig á að skýra slíkt út fyrir út-
lendingum sem eru vanir að geta ferðast til og frá flug-
völlum án erfiðleika.)
Það er kominn tími til að gerðar verði róttækar
breytingar á reglum um leigubílaakstur. Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra á að grípa tækifærið sem nú
hefur gefist og afnema öll sérréttindi í leigubílaakstri.
Aðeins á að setja almennar skýrar reglur um hæfni bíl-
stjóra sem geta síðan keppt sín á milli á jafnréttis-
grunni. Kannski nýtist Reykjanesbrautin þá betur þeg-
ar leigubílar hætta að keyra tómir milli höfuðborgar og
flugvallar.
Raunveruleg samkeppni á leigubílamarkaðnum er
hagsmunamál allra, almennings en þó ekki síður þeirra
íjölmörgu fyrirtækja sem leggja stund á ferðaþjónustu.
Og með sama hætti eru það hagsmunir ferðaþjónustunn-
ar og almennings að innleiða samkeppni í rútubílaakstri
með því að afnema öll sérleyfi. Samgönguráðherra sem
tæki af öll slík sérréttindi væri dugandi og kjarkaður
stj órnmálamaður.
Átta mánuðir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fimmtugan
mann í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur unglingsstúlkum, auk þess sem hann þarf að
greiða þeim smánarlegar miskabætur.
Gildismat þjóðar endurspeglast meðal annars í dóm-
um sem felldir eru yfir þeim mönnum sem níðast á börn-
unum. Að svipta unglingsstúlkur sakleysi sínu er metið
jafngilt átta mánuðum.
Það leggst lítið fyrir okkur íslendinga.
Óli Bjöm Kárason
4
_____________________________________MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2000_MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2000
DV
33
Skoðun
Kviknar í menningarvitum
„Ef þjóðarkakan er að stcekka, eins og gerist við öran
hagvöxt, þarf stœrri sneið eins hóps ekki að fela í sér
minni sneið annars. “ - Höndlað í verðbréfageiranum.
Það hefur heldur
betur kviknað í tveim-
ur menningarvitum
vinstri manna vegna
nýlegra skrifa minna.
Árni Bergmann telur
þá kenningu mína
ranga, að vinstri menn
þurfl ekki að hafa
neinar áhyggjur af
draumasmiðjunni í
Hollywood, þar eð alið
sé á andúð á kapítal-
isma i myndum þaðan.
Sigurður A. Magnús-
son heldur hins vegar
uppi vörnum fyrir biskup þjóð-
kirkunnar, sem hafði fullyrt í blaða-
viðtali, að eins gróði væri alltaf ann-
ars tap.
Lausnin ekki flokkurinn,
heldur hetjan
Árni viðurkennir, að myndasmið-
ir í Hollywood bregði oft upp ófag-
urri mynd af vestrænum stórfyrir-
tækjum og stjómmálamönnum. En
lausnin í myndum þeirra sé jafnan í
anda einstaklingshyggju. Hetja leysi
vandann. Hann leysist ekki með því
að bylta kapítalismanum, eins og
Ámi telur vafalaust réttast, held-
ur bæta hann.
Talsvert er til í þessu. Lausnin
í flestum handarískum kvik-
myndum er ekki flokkurinn,
heldur hetjan, enda nýtur hún
sín betur á hvíta tjaldinu. En at-
hugasemd Áma breytir ekki því,
sem ég benti á, að leitun er á
myndum úr draumasmiðjunni á
móti kommúnisma, en fjölmarg-
ar hafa verið gerðar á móti fas-
isma og nasisma, ekki aðeins
Missing og Schindler’s List.
Samkeppni er samvinna
Skrif Sigurður A. Magnússonar
eru hins vegar út í bláinn. Með ein-
földu dæmi af Róbinson Krúsó og
Föstudegi (sem eðlilegast er að nefna
hann á íslensku) hafði ég sýnt, að
eins gróði þarf ekki alltaf að vera
annars tap, eins og biskup hafði full-
yrt. Sigurður svarar því til, að þeir
félagar hafi ekki grætt hver á öðrum
vegna samkeppni, heldur samvinnu.
En samkeppni við réttar leikregl-
ur er einmitt samvinna. Hún er ekki
barátta, ryskingar eða áflog, eins og
vinstri menn halda, heldur, að hver
leggi sig fram eftir megni, rækti sína
sérstöku hæfileika. Samkeppni í
íþróttum er ekki að hrinda öðrum,
heldur að hlaupa sjálfur hraðar.
Samkeppni í skólum er ekki að spilla
fyrir öðrum, heldur að undirbúa
sjálfan sig betur. Samkeppni í við-
skiptum er ekki að skaða keppi-
nauta, heldur að þjóna kaupendum.
Eða telur Sigurður sig vera að skaða
aðra rithöfunda með því að keppa
við þá um að skrifa góðar bækur?
í mótsögn við biskup
Sigurður A. Magnússon kemst
raunar í mótsögn við biskup þjóð-
kirkjunnar. Hann segir í DV 26. júní:
„Og væntanlega neitar enginn því,
að frjáls viðskipti geti verið hag-
Dr. Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
prófessor
Brottkastið - hafa menn sofið?
Umræður um brottkastið hafa
blossað upp nú í kjölfar nýrra upp-
lýsinga Hafrcmnsóknastofnunar um
ástand fiskistofna. Málið er ekki
nýtt, oft verið rætt og sterklega á það
bent, en menn hafa sofíð og munu
e.t.v. sofa áfram. í meira en áratug
hafa kunnir skipstjórar gert brott-
kastið að umræðuefni sem eitt meg-
invandamál fiskveiðistjómunarkerf-
isins. Þeir hafa nefnt uggvænlegar
tölur, hundruð þúsunda tonna á ári.
Þjóðkunnir menn hafa risið upp og
krafist aðgerða, e.t.v. er Jón Sigurðs-
son, fyrrverandi Jámblendiforstjóri,
kunnastur og ötulastur
þeirra. En hvað hafa við-
komandi yfirvöld gert? Væri
ekki ástæða til þess að draga
það saman, rannsaka það
eins svo oft er sagt nú á dög-
um, í svo mikilvægu máli?
Nú rísa margir upp og vitna
að þetta sé í samræmi við
það sem þeir hafi talið, þetta
hafi lengi verið svona.
Málsmetandi menn.
í Morgunblaðinu fyrir
stuttu var málið gert að um-
ræðuefni. Þar segir formað-
ur Vélstjórafélags Islands
að þetta sé í samræmi við
það sem hann hafi heyrt.
Formaður Farmanna- og
fiskimannasambands ís-
lands segir að þetta komi
ekki á óvart, „Brottkastið
er það sem maður hefur vit-
að af til margra ára“ ....“
það er einn af þeim fylgi-
flskum núverandi fiskveiði-
stjómunarkerfis sem menn
hafa raunverulega stungið í
sandinn".
meira en áratug hafa kunnir skipstjórar gert brottkastið að umrœðuefni sem eitt
meginvandamál fiskveiðistjómunarkerfisins. Þeir hafa nefnt uggvœnlegar tölur,
hundruð þúsunda tonna á ári. “
Formaður Sjómannasambands ís-
lands segir að niðurstöðumar staðfest
það sem hann hafi óttast að væri í
gangi. Guðjón A. Kristjánsson alþing-
ismaður og fyrrverandi skipstjóri seg-
ir að hent sé allt upp að 70 sm þorski.
Formaður Landssambands útgerðar-
manna kvótalítilla skipa segir að
brottkast sé alls staðar stundað í jafn-
miklum mæli.
Iðulega hefur þessu máli verið
hreyft í fjölmiðlum og stundum með
stóram og alvarlegum orðum. Hvar
hafa stjómvöld verið? Veiðarnar
hafa verið að dragast saman nánast
frá þvi að kerfinu var komið á. Hér
er ein skýringin.
Ábyrgðin?
Það er ekki langt síðan fjölmiðlar
gerðu grein fyrir máli þar sem
drengur sem vann í stórverslun
hafði drukkið úr gosflösku áður en
hann borgaði hana. Var hann um-
svifalaust rekinn og lögreglunni gert
viðvart. Réttlætinu skal fullnægt og
brotlegum hegnt.
En brottkastið er alvarlegt mál.
Væri ekki athugandi fyrir sálfræö-
inga eða félagsfræðinga að kanna
hvers vegna stjómvöld hafa ekki
gripið inn í þetta mál? E.t.v. mætti fá
styrk frá Evrópubandalaginu til þess
að gera slíka könnun. Eða er það
hugsanlegt að þetta mál hafi farið
gjörsamlega fram hjá þeim sem með
yfirstjóm málsins fara? Piet Hein
orti einhvem tima:
„Ábyrgö var oft erfið sögð, enda að
fullu niðurlögð.“ - Nú þarf öfluga
fjölmiðla til þess að fylgja þessu máli
eftir. Aðalatriðið er sem fyrr að
koma málum í lag.
Guðmundur G. Þórarinsson
Með og á móti
Þjóðin vill bann
ílstjórum að nota farsíma?
Sumir vilja banna öllum allt
„Á sínum tíma
þegar ég og aðrir
börðumst fyrir þvL
að skylda bílbelta-
notkun hér á landi
var andstaðan svo mikil í
þjóðfélaginu að fjölskylda
min varð beinlínis fyrir að-
kasti vegna afstöðu minnar.
Þá risu upp postular frjáls-
hyggju og sögðu fáránlegt að
skylda fólk til að spenna belt-
ið, þetta ætti að vera ákvörð-
un hvers og eins og hans mál hvort
hann færi sér að voða eða yrði vistað-
ur á stofnun til lífstíðar o.s.frv. Svona
menn hitti ég ekki í dag, þótt enn aki
um götur og vegi fólk án bílbelta og
dæmi sig í hræðilega mörg-
um tilfellum úr leik fyrir
bragðið.
Ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar að banna ætti notk-
un farsíma í bílum nema við-
komandi noti handfrjálsan
búnað í kjaftaganginn. Svona
reglur hafa þegar verið settar
t.d. í Danmörku, Noregi, Aust-
urríki, Ítalíu, Portúgal, Spáni
og í Sviss. Ekki er eftir neinu
að bíða og heiti ég á alþingis-
menn að drífa í málinu. Meirihluti
þjóðarinnar mun standa með þeim en
skv. skoðanakönnun vill 81% tak-
marka farsímanotkun ökumanna, þar
af 30% banna hana algjörlega. “
Oli H.
Þóröarson
framkæmdastjóri
Umferóarróös
„Ég tel að það
sé engin ástæða
til að banna þetta.
Símar hafa þróast
eins og annað og
nú er hægt að koma þeim
fyrir 1 bíl í sérstöku slíðri
þannig að menn eru ekki að
handfjatla þá.
Það er auðvitað til athug-
unar að skoða þessa hluti ef
menn era að handfjatla sím-
ana við stjóm bíls en ef notaður er
sími í sjálfstæðu slíðri með hljóð-
nema þá er ekkert að þessu.
Sumir hafa tilhneigingu til að
banna öllum allt og þetta eru til-
burðir í þá átt. Sem betur fer er
ekki mikið um að bílstjórar
séu að handfjatla síma í
mikilli umferð en mér finnst
athugavert ef það gerist.
Besta lausnin á þessu er
sjálfstætt stæði fyrir símann
og handfrjáls búnaður. Það
verður ekki aftur snúið.
Notkun farsíma er mjög
vaxandi og þeir hafa skapað
sér ákveðinn sess þannig að
það er sjálfsagt að þróa það
áfram eins og hægt er.“
-ss
Farsímar eru óvíða útbrelddaii en héiiendls. Nokkur nágrannarikja okkar hafa sett lög sem banna bílstjórum að tala í síma í akstri og hefur sú umræða
elnnlg vaknað hér á landl.
kvæm.“ En biskupinn neitaði því
einmitt. Hann hafði sagt í blaðavið-
talinu alræmda, að eins gróði væri
alltaf annars tap, og bætt við drýg-
indalega, „svo einfalt er það.“ Þessu
hafði ég andmælt. Þótt eins gróði
geti vissulega verið annars tap, til
dæmis við kyrrstætt atvinnulíf, þarf
ekki svo að vera. Ef þjóðarkakan er
að stækka, eins og gerist við öran
hagvöxt, þarf stærri sneið eins hóps
ekki að fela í sér minni sneið annars.
Matarást og náungakærleikur
Þeir Sigurður A. Magnússon og
Ámi Bergmann hafa skrifað ófáar
greinar hér í blaðið gegn ágirnd og
eiginhyggju. En kosturinn við kapít-
alismann, skipulag samkeppni og
séreignar, er einmitt, að hann veitir
ágirnd og eiginhyggju í farvegi, sem
nýtast öðrum. Hann snýr ávinnings-
von einstaklinga til almennings-
heilla.
Náungakærleikurinn getur átt við
i samskiptum manna, sem era ná-
ungar, þekkja vel hverjir aðra. En í
samskiptum við ókunnuga hentar
matarástin betur. Hana kann kapít-
alisminn að virkja.
Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Utnmæli______________j
Draga aðra með sér
verður hér á landi ^
eftir að fjármagnsflutningar voru
gefnir frjálsir hér á landi og gjald-
eyrismarkaður settur á fót. Við átt-
um hins vegar alltaf von á að svona
nokkuð myndi gerast og vorum því
viðbúin ... Þessir aðilar reyna að
draga ýmsa fleiri með sér í falllinu
og það viljum við ekki sjá.“
Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastj.,
1 Mbl. 30. júní.
Landbúnaðarkerfið
„Á íslandi hefur verið reynt að
áætla þann kostnað sem landbúnað-
arkerfið leggur á íslendinga, en ekki
er auðvelt að finna hina einu réttu
tölu í þessu sambandi, því eins og
svo oft með ríkisafskipti eru afleið-
ingamar meira og minna ósýnileg-
ar. Þó má í ljósi þessara áætlana
skjóta á - augljóslega mjög gróflega
- að kostnaður vegna kerfisins hér
á landi fyrir íslendinga sé tíu til
tuttugu milljarðar króna á ári.“
Úr Vef-þjóöviljanum 28. júní.
Hann líti sér nær
„Mér finnst ekkert
sjálfgefið í þessu
máli og að hér sé á
ferðinni hlutur sem
Framsóknarflokkur-
inn verður að skoða
og ræða. Ég vil þó
taka fram, að ég er
ekki að opna fyrir það að Fram-
sóknarflokkurinn taki ekki þátt í R-
lista samstarfmu. Þetta er fyrst og
fremst spuming um að Framsóknar-
flokkurinn líti sér svolítið nær og
skoði hvar hans hagsmunum er best
borgið og hvaða afleiöingar þetta
samstarf hefur fyrir fylgi flokksins."
Jónína Bjartmarz alþingism., í Degi 30. júní.
Evrufræðsla
„Það er lágmarks-
krafa að íslendingum
sé gefmn kostur á
fræðslu um hugsan-
leg áhrif af tilkomu
evrunnar eftir árið
2002 og að yfirvöld
efnahagsmála skýri
sem best kosti og ókosti sem fylgdu
því að leggja af íslensku krónuna og
taka upp evru. Einnig hvort það sé
óhjákvæmilegt að íslendingar verði
að ganga í Evrópusambandið verði
evran tekin upp sem aðalgjaldmiðill
þjóöarinnar."
Gísli S. Einarsson alþm., í Mbl. 30. júní.
Vígamenn í verkfalli
Nú er verkfall bifreiðastjórafélags-
ins Sleipnis í algleymingi. Óskar Stef-
ánsson, formaður félagsins, verður
um völlinn lfkt og lög og reglur lands-
ins hafi verið lögð til hliðar á meðan
verkfall stendur. Verkfallsvarsla
Sleipnis hófst, eins og við var að bú-
ast, með áður óþekktu ofbeldi þar
sem verkfallsverðir óku á konu sem
var að fylgja foður sínum að rútu sem
þessir verðir og handhafar réttlætis-
ins höfðu stöðvað. Sýslumaður úr-
skurðaöi síðar að bflstjóra rútunnar
hafi verið heimilt að aka henni þrátt
fyrir verkfall Sleipnis.
Þegar myndir af þessum villi-
mannlega atburði birtust á forsíðu
DV lýsti Óskar því umsvifalaust yfir
að um folsun og sviðsetningu væri
að ræða. Söguskýring formannsins
var efnislega á þá leiö að konan hafi
gengið aftur á bak á jeppa verkfalls-
manna þar sem hann kom kyrrstæð-
ur yfir umferðareyju og hlotið
áverka af. Þess má geta að kona
þessi hefur ekki réttindi til að aka
rútubílum og því fráleitt að ástæða
hafi verið til að keyra hana niður.
Geðþóttaákvarðanír
Þegar formaðurinn tók að sér að
útdeila vinnu til sérstakra rútufyrir-
tækja með því að hóta ofbeldi við
önnur og bera þau sökum lýsti einn
félagi í Sleipni því yfir i fjölmiðlum
aö Óskar væri ótíndur lygari og ætti
að segja af sér. Óskar sýndi óvenju-
lega karlmennsku þegar hann bar
þessar ásakanir af sér og kenndi
samtarfsmönnum sínum um. Þannig
að eftir stendur að samstarfsmenn
formannsins eru ótfndir lygarar en
ekki goðið sjálft.
Mín reynsla er þó sú að
Óskar er með ómerkari
mönnum sem ég hef komist
í kast við. - Fyrsta dag
verkfallsins kom fram í DV
að samkvæmt heimildum
blaðsins ætlaði Sleipnir að
einbeita sér að þvi að
stöðva fyrirtækin Allra-
handa ehf. og Teit Jónasson
ehf. Það má teljast meira en
lítið undarlegt að verka-
lýðsfélag skuli leyfa sér að
ráðst að fyrirtækjum eftir
geðþótta misvel gefinna for-
ystumanna. Fyrirtæki Teits náði að
bregðast við með því að fá sett lög-
bann á hina villimannlegu verk-
fallsvörslu Sleipnis en Allrahanda
hefur tapað mÚljónum á gerræðis-
legri framkomu Sleipnismanna.
Menn hafa verið að leita skýringa
á því hvers vegna félagið ákveður að
ráðast að þessum tveimur rútufyrir-
tækjum. Helsta skýringin á óvild
þeirra í garð Teits er að hann hefur
ekki menn frá Sleipni í vinnu hjá sér
og lái honum hver sem vill. Gagn-
vart Allrahanda er sú kenning helst
á lofti að varaformaður Sleipnis, sem
nú ekur leigubíl á BSR, var á sínum
tíma rekinn frá fyrirtækinu eftir að
vinnufélagar hans og félagar hans í
Sleipni færðu stjómendum fyrirtæk-
isins undirskriftarlista þar sem þess
var kraflst að hann yrði látinn fara
að öðrum kosti hættu hinir allir. Það
þarf ekki fleiri orð til að lýsa þeim
ágæta manni.
Er Lára V. ómerkileg?
Sleipnismemi hafa verið tfðir gest-
ir í dómssölum landsins vegna fram-
ferðis síns og víst er að
aukning á eftir að verða þar
á. Þann 22. júní sl. lögðu
þeir fram i héraðsdómi
greinargerð frá Láru V. Júl-
íusdóttur, lögfræðingi fé-
lagsins, til stuðnings sínum
málstað. Daginn eftir stöðva
þeir rútu sem ég ók við Bláa
lónið og segja mér óheimilt
að aka þar sem þeir séu i
verkfalli. Ég hef i framhaldi
af því samband við Óskar
Stefánsson og vísa til
greinargerðar Lára V. frá
deginum áður þar sem glöggt kemur
fram að mér sé heimilt að aka bíln-
um. Þá segist Óskar ekki gefa mikið
fyrir svona pappíra það sé hann sem
ráði hverjir aki í verkfalli og hverjir
ekki þannig að nú er lögfræðingur fé-
lagsins orðin ómerkilegur pappír sem
ekki er mark takandi á.
Það sem forysta Sleipnis virðist
ekki átta sig á er að nú er liðin sú tíð
að atvinnurekendur lofi að kæra
ekki framferði félagsins og krefja
það um skaðabætur eins og gert hef-
ur verið f sfðustu verkfollum. Það er
því ekki óvarlegt að álíta að bifreiða-
stjórafélagið Sleipnir verði illa lam-
að eða leggist jafnvel af þegar bóta-
kröfumar fara aö streyma fyrir dóm-
ara landsins.
Það er ekki síður undarlegt að ekki
skuli vera haldinn almennur félags-
fundur til að kynna félagsmönnum
Sleipnis stöðuna í samningamálum
og hina nýju samninga sem gerðir
hafa verið við nokkur fyrirtæki þar
sem gert er ráð fyrir að laun lækki ef
aðrir samningar verða lakari.
Guðmundur Sigurðsson
Guðmundur
Sigurðsson
bifreióarstjóri
„Það sem forysta Sleipnis virðist ekki átta sig áer að núer liðin sú tíð að atvinnu-
rekendur lofi að kcera ekki framferði félagsins og krefja það um skaðábœtur eins og
gert hefur verið í síðustu verkföllum. “ - Þráttað við Umferðarmiðstöðina.
+■