Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2000, Qupperneq 9
9
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
PV______________________________ Útlönd
m
Suu Kyi gefur sig ekki
Aung San Suu
Kyi, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í
Burma, hefur nú
verið í herkví úti á
þjóðvegum landsins
í á aðra viku og að
sögn stuðnings-
manna hennar er
hún ekkert á því að gefast upp.
Fundað hjá Milosevic
Vojislav Kostunica, aðalkeppi-
nautur Milosevics Júgóslavíufor-
seta í kosningunum í næsta mán-
uði, hélt kosningafund í gær í
heimabæ forsetans. Kostunica var
sigurviss.
Hvaiir spilla vináttu
Japönsk stjómvöld sögðu í gær
að ákvörðun Bandaríkjamanna um
að koma ekki á ráðstefnu um um-
hverfismál vegna hvalveiða Japana
myndi spilla samvinnu þjóöanna,
einkum í umhverfismálum.
Fiskimenn mótmæla
Franskir fiskimenn hafa lokað
ferjuhöfnum á Ermarsundsströnd
Frakklands og stöðvað ferjusam-
göngur til Bretlands til að mótmæla
hækkandi oliuverði. Þá sturtuðu
þeir sardínum á götur i Marseille I
gær.
Dauðsföll rannsökuð
Dönsk yfirvöld ætla að láta fara
fram rannsókn á því hvort fullyrð-
ingar um að allt að fimm þúsund
manns hafi dáið á dönskum sjúkra-
húsum vegna mistaka og svika eigi
við rök að styðjast.
Hvetur til sveigjanleika
Ehud Barak, for-
sætisráðherra ísra-
els, hvatti Palest-
ínumenn í gær til
að sýna sveigjan-
leika í samninga-
viðræðunum um
framtíð Jerúsalem.
Palestínumenn
sögðu hins vegar að þeir hefðu gert
allar þær tilslakanir sem þeir gætu.
íhuga valdbeitingu
Filippseysk stjómvöld sögðu í
gær að þau íhuguðu allar leiðir, þar
á meðal valdbeitingu, til að tryggja
frelsi bandarísks manns sem upp-
reisnarmenn múslima hafa í haldi á
Joloeyju.
Aznar leiðir syrgjendur
|—J°sé Maria Azn-
ar> forsætisráð-
rl herra Spánar, fór
lW fyrir fiokki syrgj-
Eg , SJ enda i annað sinn a
Awj einni viku þegar 29
'VJ ara SamaU stjórn-
Má málamaöur var
I lagður til hinstu
hvilu í gær. Aðskilnaðarsamtök
Baska myrtu hann.
Raðmorðingja leitað
Lögregla í rússnesku borginni
Lípetsk leitar nú raðmorðingja sem
grunaður er um að hafa nauðgað og
myrt 14 konur á undanfómu ári.
Bush kynnir námsaðstoð
George W. Bush, forsetaefni
repúblikana, hvatti til þess í gær að
sjö milljörðum dollara til viðbótar
yrði varið til að gera ungu fólki
kleift að stunda langskólanám.
Kólumbía fær aðstoð til að berjast gegn eitursmyglurum:
Þúsundir mót-
mæla Clinton
Um fimm þúsund manns, með
pípuhatta eins og Sámur frændi á
höfðinu og með beinagrindargrímur
fyrir andlitinu, efndu til mótmæla
gegn Bill Clinton Bandaríkjaforseta
við bandaríska sendiráðiö í Bogota,
höfuðborg Kólumbíu, í gær og hróp-
uðu ókvæðisorð að Bandaríkjunum.
Clinton kom færandi hendi til
Kólumbíu i gær þegar hann lofaði
þarlendum stjórnvöldum um eitt
hundrað milljarða króna aðstoð til
að berjast gegn fikniefnaræktendum
og smyglurum.
Clinton svaraði áhyggjum
margra, bæði í Kólumbíu og heima
í Bandaríkjunum, um að aðstoðin,
sem fer aö mestú leyti til hersins,
muni leiða til stríðsátaka milli
Bandaríkjamanna og eitursmyglara
eða marxísku skæruliðanna sem
halda hlífiskildi yfir þeim.
Mótmæli í Kólumbíu
Andstæöingar Bandaríkjaforseta
meö logandi bandarískan fána.
„Við munum ekki taka þátt í
stríðsátökum. Þetta er ekki Ví-
etnam. Og þetta er heldur ekki
kanaheimsvaldastefna,“ sagði Clint-
on á blaðamannafundi sem hann
hélt með Andres Pastrana Kól-
umbíuforseta í borginni Cartagena.
Grímuklæddir námsmenn lentu í
átökum við lögreglu á lóð háskólans
í Bogota. Átján ára gamall lögreglu-
þjónn lét lífið og þrír særðust.
Víða annars staðar í landinu kom
til átaka milli mótmælenda og lag-
anna varða.
Clinton lagði áherslu á það að í
skilyrðunum fyrir aðstoðinni væri
lagt blátt bann við því að bandarísk-
ar hersveitir tækju þátt í baráttunni
gegn fikniefnasmyglurum, að frá-
töldum nokkur hundruð ráðgjöfum
sem eiga að þjálfa tvær kólumbísk-
ar herdeildir.
Paul Watson
Ekki búist viö hvalavini í Þórshöfn.
Réttað yfir Paul
Watson í dag
Ekki er vitað hvort hvalavinur-
inn Paul Watson verði viðstaddur
þegar réttarhöld hefjast yfir honum
í Þórshöfn í Færeyjum í dag.
Watson hefur fengið leyfi til að
dvelja þrjá daga í Færeyjum vegna
réttarhaldanna.
Watson var ákærður fyrr í sumar
fyrir að fara hvaö eftir annað í leyf-
isleysi inn í færeyska landhelgi þeg-
ar hann og félagar hans í Sea
Shepherd ætluðu að koma í veg fyr-
ir grindardráp frænda okkar.
Það er kaldhæðni örlaganna að á
sama tíma og réttað verður yfir
Watson er búist við einhverri
stærstu grindavöðu um langa tíð.
Hlegið dátt á þjóðhátíð
Salahuddin, soldán í Malasíu, skemmti sér greinilega vel á þjóöhátíöinni í
Shah Alam, 25 kílómetra vestur af höfuöborginni Kuala Lumpur, í morgun.
Malasíubúar fagna því að í dag eru 43 ár liöin frá því þeir fengu sjálfstæði.
Morð á Díönu en
ekki árekstur
Mohamed A1 Fayed segist munu
stefna bandarískum yfirvöldum
fyrir að hindra aðgang að
leyniskjölum sem sannað gætu að
sonur hans og Díana prinsessa
voru myrt í árekstrinum sem varð
í París fyrir nákvæmlega þremur
árum.
Hann segir bresku leyniþjónust-
una hafa myrt parið og að inni í
spili útlendingahatur og fordómar.
www.romeo.is
Stórglæsileg netverslun
meö ótrúlegt úrval af
unaðsvörum ástarlífsins
fyrir dömur og herra.
Frábær verö, ótrúleg tilboð.
Nú skolast allt út
40% afsláttur
á ummu reiðhjólum
Áður 28.
úrval aukah,
með 50%
°p'ð lO'IB v/r/ca daga
Kmm W mW%osi0 sendum um allt land
Skeifunni • Grensásvegi 3
Sfmi: 533 1414 • Fax: 533 1479 • www.evro.is
Nýnasisti fær
lífstíðardóm
Þrír austur-þýskir snoðinkollar
hlutu í gær fangelsisdóma frá 9 ár-
um og upp í lífstíðardóm fyrir að
hafa banað manni frá Mósambík
þann 11. júní sl. í bænum Dessau í
Austur-Þýskalandi.
Héraðsdómstóllinn í Halle dæmdi
elsta sakbominginn, 24 ára, í lífstíð-
arfangelsi en hina tvo sem eru 16
ára í 9 ára fangelsi. Ekki er ljóst
hvort þeir munu áfrýja dómnum.
Piltamir þrír voru ölvaðir þegar
þeir að tilefnislausu veittust að
fórnarlambinu, 39 ára foður sem
lætur eftir sig þýska eiginkonu og
þrjú börn.
„Lög í Þýskalandi tala um virð-
ingu alls fólks, ekki bara hvítra
Þjóðverja," sagði dómarinn. Málinu
var flýtt gegnum dómskerfið og von-
ast er til að það muni hafa fordæm-
isgildi og sýna að hart er tekið á
þessum málum. Mannréttindahópar
segja meira en hundrað hafa látist
af völdum svipaöra ofsókna.
J'éAN'á
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Flokkur Lokagjalddagi Innlausnarverð* á kr. 10.000,00
1985-2.fl.B 10. 09. 2000 kr. 31.727,20
* Innlausnarverð er höfuðstóll og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.
Reykjavík, 31. ágúst 2000
SEÐLABANKIÍSLANDS