Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Page 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001
DV Norðurland
Viðræður við ráðuneyti um framhald reynslusveitarfélagsverkefna:
Heilsugæslan verði
í verktöku bæjarins
- Akureyri vill auka við heilsugæsluþjónustuna, segir Oktavía Jóhannesdóttir
Viðræður standa nú yfir milli Ak-
ureyrarbæjar annars vegar og heil-
brigðis- og félagsmálaráðuneyta hins
vegar um framhald reynslusveitarfé-
lagsverkefna en lögin um reynslu-
sveitarfélagsverkefni munu falla úr
gildi að óbreyttu um næstu áramót.
Akureyrarbær hefur verið með
reynslusveitarfélagsverkefni frá báð-
um þessum ráðuneytum, heilsugæslu
og öldrunarmál frá heilbrigðisráðu-
neyti og málefni fatlaðra frá félags-
málaráðuneyti. Reynslan af því að
vista þessi verkefni hjá Akureyrarbæ
hefur verið góð að flestra mati og
miðað við orð Okatvíu Jóhannesdótt-
ur, formanns félagsmálaráðs Akur-
eyrarbæjar, eru horfúr á að þessi
verkefni muni áfram verða á verk-
sviði bæjarins. Hún segir að í viðræð-
unum við ráðuneytið verði gert ráð
fyrir að bærinn verði áfram með
þessi verkefni hjá sér en í stað þess
að þetta verði skilgreint sem reynslu-
sveitarfélagsverkefni muni Akureyr-
arbær hafa þau í verktöku.
Sem kunnugt er lýsti félagsmála-
ráðherra því yfir í vor að horfið yrði
frá áformum um flutning á málefnum
fatlaðra til sveitarfélaga og enn hefur
ekki orðið nein breyting þar á. Hins
vegar er þekkt, t.d. úr Þingeyjarsýslu
og Húnavatnssýslu, að þessi mála-
flokkur sé í verktöku sveitarfélagsins
og segir Oktavía að einhvers konar
útfærsla á slíku fyrirkomulagi sé lik-
Heilsugæsla aukln
Hugmyndir eru uppi um aö auka viö
þjónustu á Heilsugæslustööinni á
Akureyri og aö heilsugæslan, eins
og málefni fatlaðra, veröi rekin á
verktakasamningi bæjar og ríkis.
legust á Akureyri. Hún ítrekar þó að
þrátt fyrir að félagsmálaráðuneyti
hafi tekið umleitunum bæjarins vel
þá standi viðræður við ráðuneytið
enn yfir og engin niðurstaða sé kom-
in í þær.
Samkvæmt hugmyndum Akureyr-
arbæjar yrði líka gerður einhvers
konar verktakasamningur við heil-
brigðisráðuneytið um heilsugæslu- og
öldrunarmálin en engin fordæmi
munu þó vera til um slíkt. Viðræður
eru komnar af stað og hefur félags-
málaráð bæjarins viðrað ýmsar hug-
myndir um að auka og bæta þjónust-
una á sviði heilsugæslunnar sem rík-
ið myndi þá taka þátt í að fjármagna.
„Þetta eru hugmyndir um eflingu
þjónustunnar á heilsugæslustöðinni
þar sem ber hæst fjölskylduvernd og
fyrirbyggjandi aðgerðir," segir Oktav-
ía. Aðspurð segir hún það ekki óskylt
hugmyndafræðinni bak við hið svo-
kallaða „Nýja barns“-verkefni sem
verið hefur í gangi á heilsugæslustöð-
inni en það er þverfaglegt verkefni
þar sem reynt er að taka með heild-
stæðum hætti á öllum þeim vanda-
málum sem kunna að fylgja því að
barn fæðist. Verkefnið hefur fengið
mikla athygli hér heima og erlendis
og m.a. fengið alþjóðlega viðurkenn-
ingu.
Oktavía segir þessi mál öll í
vinnslu og menn hafi farið snemma
af stað í von um að lenda ekki í tíma-
hraki í vetur, t.d. við að semja um
fjárhagslega þætti þessara mála.
Lögfræðingar arkiteka ítreka athugasemd um Skátagil og Ráðhústorg:
Hugmyndir varöandi
Skátagil stangast á
- bæjaryfirvöld vilja grænt gil og gras en tillaga gerir ráð fyrir grárri stétt
Lögfræðingar Batterísins, arki-
tektastofu sem vann verðlaunasam-
keppnina um hönnun Ráðhústorgs-
ins og Skátagilsins á sínum tíma,
hafa ítrekað fyrirspumir sínar til
bæjarráðs Akureyrar um hvort til
standi að breyta hönnun á þessum
stöðum og fá til þess aðra og óskilda
arkitektastofu. Er bent á það í bréfi
til bæjarráðs að um þessa hönnun
gildi lögvemdaður höfundarréttur
og að komið hafi verið á samningur
um hönnun Skátagilsins og Ráð-
hússtorgsins. Segja þeir að krafist
verði skaðabóta ef á þennan rétt sé
gengið. Mál þetta kom fyrst upp fyr-
ir um ári eftir að skipulagsyfirvöld
á Akureyri ákváðu að tími væri
kominn til að gefa miðbænum and-
litslyftingu og fengu arkitektur.is til
að gera tillögur um breytingar.
Þessi síðasta ítrekun Batterísins fel-
ur í sér fyrirspurn um framkvæmd-
ir nú og var málinu vísað til bæjar-
Skátagil
Enn er í gangi málavafstur vegna
hugsaniegra brota á höfundarétti viö
endurskipulagningu í miöbæ Akureyrar.
lögmanns á síðasta fundi bæjarráðs.
Að sögn Vilborgar Gunnarsdóttur,
formanns Umhverfisráðs Akureyr-
ar, er að öllum líkindum um mis-
skilning að ræða því í ár sé ekki
hugmyndin að hreyfa neitt við Ráð-
hústorginu sjálfu né Skátagilinu.
Framkvæmdir þessa árs séu bundn-
ar við göngugötuna sjálfa og ef eitt-
hvað verði gert varðandi Ráðhús-
torgið verði settur þar meiri gróður
í kerjum en slíkt væri þá í samræmi
við upphaflegu tillöguna.
Víðtækur höfundarréttur
Það vekur athygli að í bréfi lög-
manns Batterísins er litið svo á að
höfundarréttur þess nái ekki ein-
vörðungu til þess sem búið er að
framkvæma heldur líka til teikn-
inga, uppdrátta og líkana af skipu-
lagstillögum. Spurð út í þetta segist
VUborg lítið geta tjáð sig um þetta
tiltekna lagaatriði, enda sé bæjar-
lögmaður kominn meö málið. Hins
vegar bendir hún á að aldrei hafi
verið gerður á sínum tíma samning-
ur viö Batteriið um framkvæmdir
og hönnun í SkátagUinu, eingöngu
um Ráðhústorgið. Hún segist því
ekki vUja trúa því aö óreyndu að
bærinn sé bundinn af tillögum Batt-
erísins í Skátagilinu eingöngu á
þeirri forsendu að um verðlaunatU-
lögu hafi verið að ræða.
Grænt eða grátt
Raunar kemur fram hjá Vilborgu
að hugmyndir núverandi skipulags-
yfirvalda um það hvernig Skátagilið
eigi að vera gangi þvert á þá tillögu
sem Batteríiö vann til verðlauna
fyrir á sínum tíma. í dag vUji menn
hafa SkátagUið sem náttúrulegast
og grænt en tiUagan geri ráð fyrir
því í sama anda og Ráðhústorgið,
þ.e. hlaðinni stétt og afar gráu. Ljóst
er því að lögfræðingar munu þurfa
að skera úr um hversu langt þessi
höfundarréttur nær og hvort bær-
inn er bundinn af tiUögum Battarís-
ins um SkátagUið fyrir næsta sum-
ar en hugmyndin mun vera að ráð-
ast í framkvæmdir þar að ári ef fjár-
veitingar fást tU þess.
Jóhann Frlö-
geir Valdi-
marsson.
Tenór á
Listasumri
Einn heitasti tenór landsins, Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson, heldur
tónleika á Listasumri á Akureyri um
verslunarmannahelgina. Tónleikarnir
verða í Deiglunni og er undirleikari
Jóhanns píanóleikar-
inn Jónas Þórir. Söng-
skrá tónleikanna mun
verða í léttum dúr,
m.a. margar þekktar
italskar ariur. Tónleik-
amir verða haldnir
laugardaginn 4. ágúst
og er miðaverð 2000
krónur.
Jóhann Friðgeir hefur sungið ein-
söng með Karlakórnum Fóstbræðrum,
Karlakór Reykjavíkur, Skagfirsku
söngsveitinni, kór Bústaðakirkju, Sin-
fóníuhljómsveit fslands og Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands, auk þess sem
hann kom fram á tónleikum Kristjáns
Jóhannssonar i LaugardalshöUinni sl.
vetur svo og í sjónvarpi. Jóhann Frið-
geir hefur haldið einsöngstónleika
bæði í Langholtskirkju og í íslensku
ópemnni og sungið sem einn af „tenór-
unum þremur" sem hafa víða komið
fram frá þvi um síðustu jól þegar þeir
sungu fyrir borgarbúa á svölunum á
gamla Málarahúsinu í Bankastræti. Á
Ítalíu hefur Jóhann Friðgeir víða kom-
ið fram og fengið hreint frábæra gagn-
rýni. Hann er nú með umboðsmann á
Ítalíu og er þegar kominn með mörg
verkefni fyrir komandi ár.
Slagurinn um þátttakendur á útihátíðum að hefjast:
Fjölskylduhátíðin „Ein með ölluM á Akureyri
- markmiðið að allir fari ánægðir heim
Fjölskylduhátíðin „Ein með öllu“
verður haldin á Akureyri um verslun-
armannahelgina. Mikið verður um að
vera í bænum alla helgina og boðið er
upp á dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Það eru hagsmunaaðilar á Akureyri,
þ.e. verslanir, veitinga- og skemmti-
staðir og ýmis önnur fyrirtæki í bæn-
um, sem standa að hátíðinni, með fúll-
tingi Akureyrarbæjar. Stærstu stuön-
ingsaðilar hátíðarinnar eru verslan-
imar Bónus, Hagkaup og 10-11, auk SS.
Fremri - kynningarþjónusta hefur
haldið utan um alla framkvæmd, auk
þess að vera í forsvari fyrir hátíðina.
„Ein með öllu“ mun væntanlega keppa
um hylli landsmanna við Þjóöhátíð í
Vestmannaeyjum og Eldborgarhátíð á
Mýrum en þangað er helst reiknað
með að straumurinn liggi.
Margir þekktir listamenn koma
fram, s.s. fjöllistahópinn Circus Atlant-
is frá Akureyri, Blöðrutrúðamir,
hljómsveitin Útrás og Hera Björk og
Friðrik. Meðal þekktu nafnanna má
finna hljómsveitimar Skítamóral,
Greifana og trafár; Helgu Brögu,
Bjarna töframann, Latabæ, Ávaxta-
körfuna, brúðuleikhús Helgu Amalds
og dúettinn Hund í óskilum.
Unglingadansleikir verða haldnir í
KA-heimilinu fóstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld þar sem stórhljóm-
sveitimar Skítamórall, Sálin hans
Jóns mins og Greifamir leika hver sitt
kvöldið. Sálin mun jafnframt leika í
Sjallanum á föstudags- og sunnudags-
kvöld en Greifamir á laugardagskvöld
og aðrir skemmtistaðir bæjarins bjóða
líka upp á flottar hljómsveitir og/eða
plötusnúða um helgina.
Boðiö verður upp á skemmtidagskrá
á tjaldsvæðinu að Hömrum, leiktæki
verða sett upp í miðbænum og ekki má
gleyma öllu því sem er í boði á Lista-
sumri, í kvikmyndahúsum bæjarins
og hinum ýmsu söfnum. Sundlaugar á
Akureyri og nágrenni verða opnar alla
helgina sem og flestar verslanir. Út-
varpsstöðin Ljósvakinn FM 93,9 mun
DV-MYND GG
Forsvarsmenn „Elnnar meb öllu“ kynna hátíöina í veöurblíöunni á tjald-
svæöinu aö Hömrum en þar veröur hægt aö tjalda
Einnig á tjaldsvæöinu viö Þórunnarstræti, á Þórsvellinum auk svæöa utan
Akureyrar. Ekki veröur leyft aö tjalda í Kjarnaskógi. F.v.: Tryggvi Marínósson,
skátaforingi og forstööumaöur Umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, Sigurbjörn
Sveinsson, veitingastjóri Greifans, Bragi Bergmann, Fremri - kynningarþjón-
ustu, og Ingþór Ásgeirsson, forsvarsmaöur Miöbæjarsamtakanna.
útvarpa frá hátíðinni alla helgina.
Á sunnudagskvöld verður efnt til
skrúðgöngu frá þremur stöðum í bæn-
um og göngumar sameinast síðan á
homi Þórunnarstrætis og Glerárgötu
og hersingin heldur sem leið liggur á
Akureyrarvöll. Þar verður boðið upp á
grillaðar pylsur og kók með. Síðan
mun dúettinn Hundur í óskilum
stjóma brekku- og stúkusöng gesta.
Hann verður kyijaður við langeld sem
tendraður verður við völlinn. Kvöldhá-
tíðinni lýkur síðan laust fyrir mið-
nætti með stórkostlegri flugeldasýn-
ingu. Ekkert aldurstakmark er á hátíð-
ina en landslögum verður að sjálf-
sögðu fylgt á Akureyri eins og á öðrum
útihátíðum landsins. Áhersla er lögð á
góða samvinnu við bæjaryfirvöld, lög-
reglu, foreldravaktina og aðra sem
koma að gæslu og öryggismálum. Gler-
flöskur verða bannaðar á tjaldsvæðum
og hefur sérstakt merki verið hannað
til að vekja athygli á banninu. -GG