Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Side 4
4
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Eignarhlutur félaga í eigu Bónusfeðga í Baugi nálgast yfirtökuskyldu:
Lagabreyting á yfirtökuskyldu
hugsanlega gerð í vetur
- umræður í gangi segir ráðherra - talað um lækkun úr 50 í 40%
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, staöfesti í
samtali við DV að umræða um að
lækka yfirtökuskyldu eigenda ráð-
andi hluta í hlutafélögum hefðu ver-
ið í gangi að undanfömu. Yfirtöku-
skyldan miðast nú viö 50% hluta-
bréfaeign en hérlendis hefur veriö
rætt um að lækka yfirtökuskylduna
í 40%, líkt og er annars staðar á
Norðurlöndunum. í Bretlandi er yf-
irtökuskyldan enn lægri, eöa 33%.
„Það er ekki óhugsandi að frum-
varp um að breyta þessu verði lagt
fram á þinginu í vetur,“ sagði Val-
gerður. Hún taldi að þar yrði m.a.
horft til þess sem gildir í nágranna-
löndunum.
Áður en lögin númer 34 frá 21.
apríl 1998 voru sett hérlendis um
starfsemi kauphalla og skipulegra
tilboðsmarkaða var inni í frumvarp-
inu lægri prósenta en nú er. Þetta
breyttist í meðferð Alþingis sem
samþykkti síðan 50%.
Yfirtökuskyldan er hugsuð til að
tryggja að minni hluthafar lokist
ekki inni í félögum með fjármagn
Valgerður Jón Ásgeir
Sverrisdóttir. Jóhannesson.
bundið í óvirkum hlutum sem erfitt
getur reynst að selja á markaði.
Lækkun marka yfirtökuskyldu í
40% getur því haft mikil áhrif á
hlutabréfamarkaðinn hérlendis.
Bónusfeðgar að nálgast
mörkin
Sem dæmi um félög sem líklega
myndu falla undir yfirtökuskyldu ef
lögum yrði breytt má nefna Baug.
Fyrirtæki sem tengjast Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og
Jóhannesi Jónssyni, stjórnarfor-
manni i Baugi, eru t.d. að nálgast
mörk núgildandi laga um yflrtöku-
Jóhannes Þórður
Jónsson. Frlðjónsson.
skyldu gagnvart öðrum hluthöfum í
Baugi Group hf. Félagið er skráð í
Kauphöll íslands og samkvæmt V.
kafla laganna ber að gera hluthöf-
um yfirtökutilboð ef eignarhlutur
sama aðila eða skyldra aðila fer yfir
50%.
Með allt að 45% eignarhlut
Samanlagður eignarhlutur Fjár-
festingarfélagsins Gaums og Gaums
SA i Baugi Group hf. er nú 37,23%.
Félög sem eru í eigu Jóns Ásgeirs,
Jóhannesar og fjölskyldu, keyptu
skömmu fyrir jól 6,3% hlut í Baugi
af Kaupþingi samkvæmt sölu- og
kaupréttarsamingi. Fyrir söluna
áttu félögin alls 30,97% hlut. Á Þor-
láksmessu var tilkynnt að Fasteign-
arfélagið Stoðir hefðu tryggt sér 7%
hlut í Baugi en Baugur ID, dótturfé-
lag Baugs Group, á 44,25% hlut í
Stoðum, auk þess að eiga kauprétt á
21,4% í viðbót. Alls nemur eignar-
hlutur Fjárfestingarfélagsins
Gaums, Gaums SA, Stoða, auk hluta
sem skráðir eru á Jón Ásgeir og Jó-
hannes, liðlega 45% af heildarhluta-
fé.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar íslands, segir það fara
eftir hvernig tengslum eignarhluta
eigenda í félögum eins og Stoðir er
háttað hverju sinni hvort það teljist
með í þessu tilfelli. Kauphöllin
fylgist þó grannt með þessum hlut-
um frá degi til dags. Þórður telur
líklegt að yfirtökuskyldunni verði
breytt til samræmis við það sem
tíðkast annars staðar á Norðurlönd-
um. Það muni hafa áhrif á mörg fé-
lög þar sem eignarhlutur ráðandi
aðila er nú þegar á bilinu 40-50%.
-HKr.
Enn titrar
Mýrdals-
jökull
Enn heldur Mýrdalsjökull
áfram að skjálfa, en síðdegis í gær
höfðu mælst þar 14 skjálftar frá
því á miðnætti aöfaranótt fimmtu-
dags. Líkt og áður eru flestir
skjálftanna undir vesturhlíðum
Goðabungu en teygja sig þó vestur
undir Fimmvöröuháls. Flestir
skjálftanna voru um 2 á Richter,
en sá stærsti mældist rétt fyrir
miðnætti á fimmtudag og var um
2,7 á Richterskvarða. Fram að
þessu hafa jarðfræðingar rakið
þennan titring að verulegu leyti
til fargléttingar á jöklinum. Þó
hefur að einhverju leyti verið
talið að orsakanna kunni að vera
aö leita í umbrotum í iðrum jarð-
ar. Vekur þó athygli að undanfar-
in misseri hafa skjálftarnir átt
upptök á mjög staðbundnu svæði
undir vesturbrún Kötluöskjunnar
sem óneitanlega dregur úr áreið-
anleika þess að um fargléttingu
vegna sumarbráðnunar sé að
ræða. Þá dó skjálftahrinan ekki út
í upphafi þessa árs eins og gerst
hefur á liðnum árum og var talið
styðja kenninguna um sumar-
bráðnunina. Vísindamenn fylgjast
enn grannt með jöklinum þótt
ekkert bendi en til að stórtíðindi
séu í aðsigi. -HKr.
Goðabunga.
DVWYNDIR SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Húsárgll, vló sveltlö
k myndinni eru Benedikt Bragason í Sólheimakoti, Ragnar Sævar Þor-
steinsson á Sólheimum, Einar Guöni Þorsteinsson á Sólheimum og Eirík-
ur Vilhelm Siguröarson meö síöustu kindurnar sem bjargaö var. Niöri í gil-
inu sést í Óskar S. Þorsteinsson meö tvær kindur. Á innfelldu myndinni
er gengiö niöur Sólheimaheiöi meö fjórar af þeim fímm kindum sem var
bjargaö - sú fimmta stökk niöur og liföi af, svo til ósködduö.
Bændur í björgunarleiðangri á 3. degi jóla:
Björguðu fimm kindum úr svelti
Bændur á Sólheimum í Mýrdal not-
uðu góða veðrið í gær til að bjarga
fimm kindum úr svelti í Húsárgili á
Sólheimaheiði. Kindur þessar lentu í
sjálfheldu í gær þegar reynt var að
smala þeim heim úr heiðinni. Vel
gekk að bjarga kindunum enda vask-
ur hópur manna aö verki. Um var að
ræða tvær ær, önnur var með tvö
lömb en hin með eitt lamb.
Slaka þurfti kindunum niður en
ekki þurfti að slaka nema annarri
ánni þar sem hin gerði sér lítið fyr-
ir og stökk fram af og var rétt lent
ofan á þeim sem fyrir neðan voru.
Svo ólíklega vildi til að ærin var
heil eftir fallið og var hún rekin all-
ar götur heim í fjárhús. Ástand fjár-
ins var mjög gott enda hefur veður
það sem af er vetri ekki háð veru
þess í heiöinni. -SKH
DV-MYND SIGJÖKULL
Ekki aö græöa
Jórunn naut góöra viöskipta fyrir jól-
in en segist ekki vera í verslunar-
rekstri á tíræöisaldri til aö græöa
peninga.
Elsti kaupmaður landsins:
Langaði að fara í
búðina í morgun
„Ég er mest að sortera og ganga
frá,“ sagöi Jórunn Brynjólfsdóttir
kaupkona, ættuð úr Hrísey. Hún er
elsti starfandi kaupmaður landsins
og verður 93 ára næsta vor. Hún var
í gær við vörutalningu. „Ég þurfti
ekki að fara neitt í morgun en mig
langaði að fara í búðina," sagði hún.
Jórunn býr á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund og fer daglega með
leigubíl í verslunina sína á Skóla-
vörðustíg 19, við hliðina á Pipar og
salti og móts við Fatabúðina.
Jórunn segir að reksturinn sé lít-
ill í sniðum. „Ég er ekki að þessu til
að græða peninga - hvað ætti ég svo
sem að gera við þá? Ég hef bara
gaman af þessu,“ sagði Jórunn í
gær. „Ég á marga og góða vini sem
versla við mig. Ég er mjög ánægð
með söluna fyrir jólin,“ sagði Jór-
unn Brynjólfsdóttir.___-JBP
Áramótaveðrið:
Kólnandi veður
Veðurstofa íslands spáir því að á
gamlársdag og nýársdag verði austlæg
átt, 3-8 m/s, og skýjað með köflum.
Veðurstofan spáir því að vlða verði dá-
lítill éljagangur en úrkomulítið vestan-
lands. Þá er spáð að veður fari kóln-
andi og að frost verði á bilinu 0-5 stig
en frostlaust úti við ströndina. -ss
Rauði krossinn:
Tvær milljón-
ir króna
til Bosníu
Rauði kross íslands ákvað í gær að
verja tveim milljónum króna til vetr-
araðstoðar við bosníska flóttamenn
sem hafa snúið aftur heim til Bosníu
á undanfömum mánuðum. Um er að
ræða síðasta framlag félagsins til al-
þjóðlegs hjálparstarfs á árinu sem er
að líða en ails hefúr Rauði kross ís-
lands varið um 116 milljónum króna
til neyðar- og þróunarhjálpar erlendis
á árinu.
Framlagið til Bosníu verður notað
til að aðstoða flóttamenn sem hafa
snúið aftur á síðustu sex mánuðum.
í flestum tilvikum er um að ræða fá-
tækt fólk sem flúði land sitt fyrir
tæpum áratug og er að koma sér fyr-
ir á ný við erfiðar aðstæður og vetr-
arkulda.
Stærsta framlag Rauða kross ís-
lands til neyðaraðstoðar á árinu
var til landanna í sunnanverðri
Afríku, 30 milljónir króna, auk þess
sem þrír sendifulltrúar félagsins
eru við störf vegna matvæladreif-
ingar þar. Notaður fatnaður, sem
almenningur gaf félaginu, var á ár-
inu sendur til sjö landa í austan-
veröri Evrópu og í Afríku. -aþ
Heitasta búðin íbænnm !
100% mesta vöruúrval á ferm, allt frá
magadansbúningum til ékta pelsa.
Magadansbúningar.
Fjöldi tilboöa
ígangi.
Ótrúlegt
úrval gjafavöru.
Sigurstjarnan
í bliu húsi við Fákafen, sími 588 4545.
Opið um helgar og öll kvöld til jóla.
Fjórir bílar rákust
saman á Kjalarnesi
Minni háttar meiðsl urðu á fólki
þegar fiögurra bíla árekstur varö á
Vesturlandsvegi við Álfsnes um
kvöldmatarleytið í gærkvöld. Að
sögn lögreglunnar rákust tveir jepp-
ar og tveir fólksbOar saman. Öku-
tækin fiögur skemmdust öll og
þurfti kranabU til að fiarlægja þau
af vettvangi.
Tildrög slyssins voru ókunn
þegar DV fór í prentun i gærkvöld
- en nokkur töf varð á umferð á
Vesturlandsvegi eftir slysið.
Þurftu lögregluþjónar m.a. að
stjóma umferðinni á meðan
sjúkraflutningamenn voru að at-
hafna sig.
-vig