Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Síða 37
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002
Helqa rJblaö 33 V
3
Sundgurpurinn Örn Arnarson lilaut titilinn í fvrra en hann liefur þrísvar sinnum unnið styttuna góðu. Hann er
að sjálfsögðu meðal tíu efstu í ár enda náði strákurinn frábærum árangri á EM fvrr í inánuðinum.
íþróttamaður ársins krýndur í 47. sinn:
Mikil spenna
- ljóst hvaða tíu íþróttamenn koma til greina
Fimmtudaginn 2. janúar næst-
komandi verður tilkynnt um það
hver var valinn íþróttamaður árs-
ins árið 2002 af samtökum íþrótta-
fréttamanna en iþróttamaður árs-
ins hefur verið valinn allar götur
síðan 1956.
Vilhjálmur sigursælastur
Það var silfurverðlaunahafinn
okkar frá Ólympíuleikunum í Mel-
bourne 1956, Vilhjálmur Einarsson,
sem fyrstur hlaut nafnbótina góðu
og reyndar gerði hann það fyrstu
þrjú árin en annar maðurinn til að
hljóta nafnbótina var frjálsíþrótta-
maðurinn Valbjörn Þorláksson er
hann sigraði árið 1959.
Vilhjálmur vann siðan næstu tvö
ár á eftir en hann hefur oftast allra
hlotið þennan titil eða alls fimm
sinnum.
Sá sem kemur honum næstur er
frjálsíþróttamaðurinn Hreinn Hall-
dórsson en hann hefur alls hlotið
titilinn þrisvar sinnum. Árin 1976,
1977 og 1979.
Þó nokkrir hafa síðan hlotið
nafnbótina tvisvar sinnum og það
er nokkuð í það að einhver nái að
sigra fimm sinnum eins og Vil-
hjálmur.
Þijár konur
Kvenmenn hafa alls unnið stytt-
una góðu þrisvar sinnum og sú síð-
asta sem gerði það var Vala Flosa-
dóttir árið 2000 er hún hafði nælt
sér í brons á Ólympíuleikunum í
Sydney sama ár.
Sú fyrsta sem hlaut þennan titil
var handknattleikskonan Sigríður
Sigurðardóttir árið 1964. Sundkon-
an Ragnheiður Runólfsdóttir frá
Akranesi varð síðan önnur konan
er hún hlaut nafnbótina 1990.
Jón Amar og Öm
Undanfarin ár hafa þeir Jón Arn-
ar Magnússon og Örn Amarson
Það er ekki á liverju ári sem bræður komast inn á topp tíu listann í
kjörinu uin íþróttamann ársins eii sú er rauiiin að þessu sinni því
bræðurnir Ólafur og Jón Arnór Stefánssynir eru báðir á listanum enda
hafa þeir staðið sig frábærlega á árinu.
verið áberandi en Jón Arnar vann
bæöi árið 1995 og 1996.
Handknattleiksmaðurinn Geir
Sveinsson vann 1997 og síðan hófst
tími Arnar en hann vann 1998 sem
og 1999. Hann vann síðan í þriðja
skipti í fyrra.
Báðir þessir strákar eru á topp
tíu listanum í ár enda stóðu þeir
sig afar vel á eriendum mótum á
árinu og eru í allra fremstu röð í
heiminum í sinni íþróttagrein.
Fjölbreyttur listi
Topp tíu listinn í ár er afar
glæsilegur en hann prýðir sjö karl-
menn og þrjár konur sem koma úr
sjö íþróttagreinum.
Knattspyrnumenn eru mest áber-
andi á listanum en alls náðu þrír
knattspyrnumenn inn á topp tíu
listann í ár og þar af var ein kona.
Tveir sundmenn eru á listanum og
svo eiga handknattleiksmenn,
golfarar, fimleikamenn, frjáls-
íþróttamenn og körfuknattleiks-
menn fulltrúa á listanum.
Þeir tíu íþróttamenn sem koma
til greina sem íþróttamaður ársins
árið 2002 eru eftirtaldir í stafrófs-
röð: Ásthildur Helgadóttir KR, Eið-
ur Smári Guðjohnsen Chelsea,
Guðni Bergsson Bolton, Jón Arnar
Magnússon Breiðablik, Jón Arnór
Stefánsson Trier, Kristín Rós Há-
konardóttir ÍFR, Ólafur Stefánsson
Magdeburg, Ólöf María Jónsdóttir
Keili, Rúnar Alexandersson Gerplu
og Örn Arnarson ÍRB.
Skemmtilegt er að sjá bræðurna
Jón Arnór og Ólaf Stefánssyni á
listanum í ár en það er afar fátítt
að systkin komist inn á þennan
lista.
Úrslit í byrjun árs
Allir þessu frambærilegu íþrótta-
menn hafa náð frábærum árangri á
þessu ári og eru þess vel verðugir
að vera á listanum.
Eins og áður segir þá verður
greint frá kjörinu þann 2. janúar
næstkomandi og verður sjónvarpað
beint frá atburðinum eins og venju-
lega.
-HBG
MR.JONES MR.SMiTH
MEN IIM BLflCKE
Leigan í þínu hverfi