Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Qupperneq 42
Helqarblað H>'Vr
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002
A-€>
'l
Góöir gestir
íslendingar nutu góðs af gesta-
komum merkra listamanna á ár-
inu sem er að líða. Snemma árs
hélt Marc Almond tónleika hér á
landi og í kjölfarið fylgdu New
York-rokkararnir The Strokes
með eftirminnilega tónleika á
Broadway. Godspeed You Black
y Emperor! gerðu mikla lukku og
fjölmargir sáu Travis i Höllinni. Á
Airwaves gat fólk barið listamenn
eins og Fatboy Slim, The Hives og
Blackalicious augum og í haust
mættu svo bæði Stereolab og The
Apes. Þá var desembermánuður
eftirminnilegur með tvennum tón-
leikum Nick Cave og stórtónleik-
um Coldplay og Ash í Laugardals-
höll. Þá eru ótaldir þeir Jarvis
Cocker úr Pulp og Tim Burgess úr
Charlatans sem spiluðu hér sem
plötusnúðar, og nokkrir minni
spámenn.
Merkar útgáfur
Nokkuð var
um endurútgáf-
ur á árinu og
fjölmargir
sendu frá sér
safnplötur.
Fyrst ber að
nefna einstak-
lega vel heppnaða endurútgáfu á
fyrstu plötum Megasar sem hafa
verið ófáanlegar lengi. Þeim var
svo fylgt eftir með glæsilegri safn-
plötu í tilefni af 30 ára ferli
kappans. Þá voru gefnar út safn-
, plötur með Þrem á palii og Ríó
tríói sem gerðu mikla lukku hjá
eldri kynslóðinni og ekki
skemmdi fyrir að báðar sveitir
komu fram í tilefni af útgáfunni.
Aðrir sem sendu frá sér safnplötu
voru Trúbrot, Jóhann Helgason,
Hörður Torfason, Jet Black Joe,
GCD og sjálfur Björgvin Halldórs-
son svo eitthvað sé nefnt.
Björk tekur til
á háaloftinu
Björk Guð-
mundsdóttir fagn-
aði glæsilegum
ferli sínum með
stórútgáfu á ár-
inu. Hún tók til á
háaloftinu sínu,
eins og hún orð-
aði það sjálf, og
sendi frá sér tvær
safnplötur. Önnur
er safn uppáhaldslaga aðdáenda
hennar, hin persónulegt ferðalag
hennar sjálfrar um ferilinn fram
að þessu. Greatest Hits inniheldur
þau 14 lög sem fengu flest atkvæði
í kosningu aðdáendanna á vefsíð-
unni hennar í vor og eitt nýtt lag,
It’s In Our Hands, sem hún gerði
með San Francisco raftónlistar-
dúóinu Matmos í fyrra. Family
Tree inniheldur 12 uppáhaldslög
Bjarkar sjálfrar af plötunum
* J hennar fimm og svo fimm smá-
diska með illfáanlegum eða áður
óútgefnum upptökum. Hver þeirra
hefur að geyma 4-5 lög. Óneitan-
lega skemmtilegt hjá Björk okkar.
íslensk tónlist á árinu 2002:
Stórir hlutir í meikinu
Sveitaballasveitir og
rapparar í sviðsljósinu
Það má með sanni segja að árið 2002
hafl verið ár írafárs, í poppheiminum að
minnsta kosti. írafár hefur í nokkur ár
verið vinsæl sveitaballasveit en lítið
meira en það. Eitt og eitt lag hafði
heyrst í útvarpi en það var ekki fyrr en
í ár að sveitin stimplaði sig inn. Ævin-
týrið byrjaði með laginu Ég sjálf sem fór
í spilun í vor og vinsældir þess hafa lít-
ið dalað síðan. Samfara stífri spila-
mennsku bættu þau við lögunum Stórir
hringir og svo Allt sem ég sé nú í haust.
Vinsældimar voru ógurlegar og brátt
voru ungar stúlkur famar að skarta
fléttum eins og söngkonan Birgitta
Haukdal. Fyrsta plata írafárs kom út á
haustdögum og er mest selda plata árs-
ins. Þegar þetta er skrifað er búist við
því að hún selist í 14-15 þúsund eintök-
um og hefur engin plata selst eins hratt
siðan Jólastjama Diddúar kom út 1997.
Þar með braut sveitin algenga venju að
Bubbi sé sjálfskipaður í efsta sæti sölu-
listans.
Misgóðar sveitaballasveitir
Aðrar sveitaballasveitir vora áber-
andi á árinu enda gáfu óvenjumargar
þeirra út plötur. Á móti sól lifði á vin-
sældum plötu sinnar frá því fyrra en
miklar vonir vom bundnar við Land og
syni. Mikið hafði verið rætt og ritað um
meikdrauma þeirra í Bandaríkjunum
og þeir stigu skref i þá átt með plötu
sem sungin var á ensku. Bandarískur
Hreimur fór þó ekkert sérstaklega vel i
landann, platan fékk misjafha dóma og
salan hefur ekki verið neitt sérstök. í
svörtum fótum sendi frá sér samnefnda
plötu sem notið hefur talsverðra vin-
sælda. Hóað var i samverkamenn á borð
við Magnús Þór Sigmundsson og Stefán
Hilmarsson til að gera plötuna „alvöra"
og það tókst bærilega. Daysleeper er ný
sveit sem hefur verið ótrúlega dugleg
við að senda frá sér ný myndbönd og lög
í útvarpsspilun. Fyrsta platan fékk aftur
á móti slæma dóma.
Heldri menn á góðu róli
Bubbi var á rólegu nótunum í ár með
plötunni Sól að morgni. Henni hefur
verið hampað sem einni af hans bestu
verkum og auðvitað hefur hún selst sem
Apparat attl gott ár, spilaði a
Hróarskeldu og gáf út fína plötu.
Arið 2002 var svo sannarlega ár Irafárs. Birgitta og félagar sendu frá sér lagiö Eg sjálf um vorið og síðan þá hafa
ungar stúlkur sungið með og greitt hárið í fléttur.
Höskuldur Daði
Magnússon
blaðamaöur
slík. Stórsveitin Ný dönsk gaf út af-
bragðsplötu sem fékk nafnið Freisting-
ar. Þar tóku þeir félagar nokkur af sín-
um uppáhaldslögum og settu í nýjan
búning í tilefni af 15 ára afmæli sveitar-
innar. Gamli söngvarinn Daníel Ágúst
syngur á plötunni sem er stórgóð og án
efa ein af plötum ársins. Aðrir heldri
menn vora einnig í góðum gír. Rúnar
Júlíusson sendi frá sér nýja plötu og
Stuðmenn tónleikaplötuna Stuðmenn á
stóra sviðinu. Þá átti KK vinsældum að
fagna með plötu sinni og ævisögu sem
Einar Kárason ritaði. Þá ber að geta
tveggja ungra söngkvenna sem skriðu
út úr skelinni - þær Hera Hjartardóttir
og Þórunn Antonia era greinilega fram-
tiðarmanneskjur.
Aldrei fleiri rappplötur
Rapptónlistin var líka óvenjusterk á
árinu. í fyrra var brotið blað þegar
fyrstu rappplötumar sem eingöngu
vora fluttar á íslensku voru gefnar út og
í ár varð sprengja. Afkvæmi guðanna,
XXX Rottweiler og Sesar A gáfu aftur út
plötu og nýliðar á borð við Bent &
7berg, Kritikal Mazz, Móra og Bæjarins
bestu stigu fram á rímnavöllinn. Þá var
gefm út platan Rímur og rapp sem inni-
heldur upptökur frá Menningamótt þeg-
ar nokkrir af helstu spámönnum okkar
í rappheiminum mættu þekktum
kvæðamönnum. Ekki verður enn séð
Rólegt
rokkar en
bjart fram
undan
Það var
hins vegar
rólegt yfír
rokkheimin-
um á þessu
ári. Það eina
sem gladdi
eyrun fram-
an af ári
voru skífur
frá Fídel og
rokkröppur-
unum I Qu-
arashi.
Búdrýgindi
sigraðu í
Músíktil-
Bent og 7berg eru meöal þeirra fjölmörgu sem gáfu út
plötur í rappgeiranum í ár. Alger sprengja varð í þeim heimi
og um 10 plótur voru gefnar út, hver annarri frambærilegri.
íyrir endann á rappbylgjunni og enn er
von á plötum frá nýjum listamönnum.
Það sannaðist ágætlega á tveimur safn-
plötum með rapptónlist sem komu út á
árinu.
Ekki var heldur nein ládeyða í raftón-
listargeiranum. múm gaf út plötuna
Loksins erum viö engin og fjölmargar
aðrar frambærilegar plötur voru gefnar
út. Ber þar helst að nefna plötur frá
Ampop, Kippi Kaninus, Worm Is Green,
Ozy, Yagya og Exos.
Ein af bestu plötum ársins þykir vera
frumraun Apparat Organ Quartet sem
er skemmtileg samsuöa fjögurra orgel-
leikara og trommuleikara. Þá gaf fyrr-
um fjöllistahópurinn Gus Gus út plöt-
una Attention sem hefur fengið ágæta
dóma.
raunum og
gerðu svo
stórskemmti-
lega plötu, án
efa bjartasta
vonin í rokkinu þar á ferð. Langþráð
skifa Sigur Rósar er auðvitað plata árs-
ins eins og kemur fram annars staðar á
síðunni og þarf ekki að eyða frekari orð-
um í þá snilld. Ein af fáum vel heppnuð-
um rokkplötum var skífa Ensími en aðr-
ir áttu sæmilega spretti eins og Sign
með tribute sitt til glysrokks níunda
áratugarins og Singapore Sling sem hef-
ur víða verið hælt. Það er þó útlit fyrir
bjartari tima á næsta ári. Maus frestaði
útgáfu sinni fyrir jólin og ætlar að gefa
út snemma á næsta ári og Botnleðja er
farin að hugsa sér til hreyfmgs. Það er
mikið tilhlökkunarefni enda voru tón-
leikar þeirra á Airwaves með því besta
sem sést hefur í íslensku rokki í langan
tíma.
Plötur ársins
Að vanda stóð Fókus fyrir vali á
plötum ársins meðal nokkurra
helstu poppspekinga landsins.
Alls skiluðu
17 spekingar
inn niöur-
stöðum sín-
um og hlýtur
það að gefa
ágæta mynd
af tónlistarár-
inu. Bestu
plötur ársins
voru Sigur Rós - (), Apparat Org-
an Quartet - Apparat Organ Quar-
tet, Móri - Móri, múm - Loksins
erum við engin og Ensími -
Ensími.
íslenskir tónlistarmenn gerðu góða hluti á erlend-
um vettvangi á árinu. Sigur Rós var hvað mest áber-
andi en plata þeirra, ( ), hefur selst afar vel úti í
heimi. Platan kom út í lok október og nú þegar hafa
selst um 300.000 eintök. Það verður að teljast afar
gott en platan Ágætis byrjun hefur selst í tæpum
500.000 eintökum á þeim þrem árum frá því hún
kom út. Mikið var fjallað um sveitina í erlendum
miðlum þegar platan kom út og fékk hún víðast
hvar fína dóma. Tónlist þeirra var notuð í stór-
myndinni Vanilla Sky.
Annað band sem gerði flna hluti var Quarashi en
það gaf út plötuna Jinx í Bandaríkjunum, Ástralíu
og Asíu í apríl. Jinx seldist í um 300.000 eintökum
og fóru íslensku rapparamir víða til að kynna plöt-
una, fóru í tónleikaferðir um öll Bandaríkin og spil-
uðu á stórri hátíð í Japan, svo eitthvað sé nefnt.
Lagið Stick’em up var notað í myndinni Orange
Coimty.
Aðrir gerðu fína hluti. Rafsveitin múm gaf út sína
aðra plötu og var á fleygiferð um heiminn að kynna
hana. Leaves urðu til og voru komnir með stóran
samning við undirfyrirtæki Dreamworks áður en
þeir gáfu nokkuð út. Frumburðinum Breathe hefur
verið hampað víða og var til að mynda á lista tón-
listartímaritsins Q yfir plötur ársins. Það verður
gaman aö fylgjast með
i.i næstu skrefum
Leaves. Rokk-
aramir i Botn-
leðju hafa
ekki gefið upp
vonina um að
meika það og í
ár fóru þeir á
tónleikaferðalag
um Evrópu
með
banda-
rísku
rokksveitinni Spörtu. Mínus og Apparat Organ Quar-
tet spiluðu á Hróarskelduhátíðinni, Gus Gus gaf út
fyrstu skífu sína í langan tíma, Svala er að vinna að
nýrri plötu úti í London og Emílönu Torrini hlotnað-
ist sá heiður að fá að flytja titillag stórmyndarinnar
Lord of the Rings - The Two Towers. Barði Jóhanns-
son gerði samning við EMI Publishing France sem
felur í sér samstarf um
höfundarverk Barða
næstu fjögur árin. Og
söngkonan Þórunn
Antonia skrifaði und-
ir þriggja plötu samn-
ing við hið stóra út-
gáfufyrirtæki BMG í
Englandi með þar-
lendri hljómsveit
sem hún ætlar
að vinna með.