Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Page 47
LAUGARDAGU R 28. DESEMBER 2002
Helqarblacf JO'V' Si ^
Mest lesna vikublaöiö
„Þaö er óhætt að segja að móttökum-
ar sem DV-Magasín fékk hjá lesendum
hafi farið fram úr
björtustu vonum.
Blaðinu var strax
ákaflega vel tekið og
ekki vafi í mínum
huga að það var
þörf fyrir slíkt blað
á markaðnum," seg-
ir Stefán Kristjáns-
son, umsjónarmað-
ur DV-Magasíns.
„Niðurstöður les-
endakönnunar á
vegum Gailups voru mjög ánægjulegar
fyrir okkur og sýndu að DV-Magasín er
mest lesna vikublað landsins þrátt fyr-
ir að aðeins nokkur blöð væru komin
út þegar könnunin var framkvæmd.
Blaðið er prentað í rúmlega 80 þúsund
eintökum og því er dreifi ókeypis á höf-
uðborgarsvæðinu og að auki á Akur-
eyri og til lesenda DV úti á landsbyggð-
inni. Það er því ekki lítil búbót sem
fólk fær á landsbyggðinni ef það gerist
áskrifandi að DV. DV-Magasín er út-
breiddasta blað landsms. Við munum á
nýju ári kappkosta að gera blaðið enn
betra og skemmtilegra. Framtíðin er
sannarlega björt fyrir DV-Magasín,“
sagði Stefán.
og auglysendum
DV-Magasín-
forsíða með
Davíð
Frumkvöðlar á brott
Af Skjá 1 var það að frétta að Árni
Þór Vigfússon hættir sem sjónvarps-
stjóri um áramót en kemur eitthvað ná-
lægt dagskrárráði.
Þar sem Ámi Þór og
Kristján Ra, ffurn-
heijamir á bak við
Skjá 1, em famir frá
íslenska sjónvarps-
félaginu er búist við
nokkurri stefnu-
breytingu en vart
hefur orðið við
áhuga á útsending-
um í lokaðri dagskrá sem um leið
mundi auka tekjustreymið. Núverandi
framkvæmdastjóri, Kristinn Geirsson,
mun hrífast af þeirri hugmynd. Þá mun
einnig vera áhugi meðal eigenda félags-
ins að sameinast íslenska útvarpsfélag-
inu sem rekur Stöð 2 og Sýn.
Ami Þór
Vigfússon.
Breyttur Moggi
Morgunblaðið tók nokkrum breyt-
ingum á árinu. Útliti á ýmsum efnis-
Játtum var breytt en sú breyting sem
vakti mesta athygli
var sú nýbreytni að
setja innlendar fréttir
á forsíðuna. Forsíðan
hafði annars verið
helguð erlendum
fféttum nema eitt-
hvað stórvægilegt
væri á seyði, eins og
náttúruhamfarir, stórslys eða dauðs-
fall mikilmenna. Nú eru innlendar og
erlendar fféttfr í bland á forsíðunni.
En Morgunblaðsmenn létu ekki þar
við sitja heldur tilkynntu í nóvember
að frá og með 6. janúar mundi Mogg-
inn koma út á mánudagsmorgnum.
Þar með kemur Morgunblaðið út alla 7
daga vikunnar.
Bogi og Elín
Ráðningar í lykilstöður hjá Ríkisút-
varpinu voru i fréttum síðari hluta árs.
Bogi Ágústsson var ráðinn í stöðu for-
stöðumanns nýs
fréttasviðs í byrjun
október. Skiptar
skoðanir voru um
ráðninguna í út-
varpsráði. Sjálfstæð-
ismenn einir
greiddu atkvæði
með ráðningu Boga í
stöðuna en aðrir
sátu hjá, létu bóka
athugasemdir eða vildu að auglýst yrði
í stöðuna. Það þarf því engan að undra
að styr stæði um ráðningu fréttastjóra
RÚV. Sex umsóknir þóttu uppfylla
hæfhiskröfur eftir að umsóknarfrestur
rann út, 13. október. En það var ekki
fyrr en tæpum tveimur mánuðum síðar
að útvarpsráð tók loks af skarið í at-
kvæðagreiðslu. Páll Benediktsson, sem
lengi þótti annar aðalkandídatinn í
starfið ásamt Elínu Hfrst, hafði þá dreg-
ið umsókn sína tii baka. Sigríður Áma-
dóttir hlaut 4 atkvæði í útvarpsráði en
Elín 3 atkvæði. Markús Öm Antonsson
útvarpsstjóri þurfti hins vegar ekki að
fara að meðmælum útvarpsráðs og var
fljótur að ráða Elínu. Hafði Bogi
Ágústsson mælt eindregið með Elínu í
starfið.
Elín Hirst.
i*iorö«niunOiO
Fjölmiðlarnir árið 2002:
Harðari samkeppni
DV á nýjum stað
DV flutti í nýtt húsnæöi fyrr á árinu, í endurbyggt hús viö Skaftahlíö 24 þar sem áöur var skemmtistaöurinn Lídó og
félagsmiöstööin Tónabær ásamt verslunum. DV hélt stööu sinni í harönandi samkeppni fjölmiölanna og sótti mjög á
með titkomu DV-Magasíns sem er mest lesna vikublaö landsins samkvæmt könnunum.
Viðburðaríkt ár er að baki í ís-
lenskum fjölmiðlaheimi þar sem
þrengingar settu ákveðinn svip
sinn á sögusviðið.
Nýtt ár heilsaði starfsmönnum
DV með nýja eigendur við stýrið
en þeir höfðu skömmu áður keypt
allt hlutafé í Útgáfufélagi DV.
Föstudaginn 12. aprll urðu síðan
kaflaskil á DV þegar blaðið flutti í
nýtt húsnæði að Skaftahlíð 24,
sögufrægt hús þar sem áður var fé-
lagsmiðstöðin Tónabær og veit-
ingahúsið Lídó, auk verslana. Nýja
DV-húsið hafði tekið gagngerum
breytingum en á einu ári hafði það
nánast verið endurbyggt frá
grunni, var orðið glæsileg og nú-
tímaleg bygging sem hýsir í dag
DV, Viðskiptablaðið, PSN og
Grreiningarhúsið. Umskiptin voru
mikil en 17 ár þar á undan hafi DV
verið með höfuðstöðvar sinar i
Þverholti 11.
Aukin samkeppni hefur ein-
kennt blaðamarkaðinn þar sem bit-
ist er um auglýsingatekjurnar og
lesendur. DV hefur staðist áhlaup-
in samkvæmt lestrarkönnunum
Gaulllups, haldið sínum hlut. Og
sótt i sig veðrið með tilkomu DV-
Magasíns. Eftir flutningana var
unnið að hagræðingu í rekstrin-
um, m.a. með fækkun starfsfólks.
Nú í desember urðu enn breyting-
ar þar sem samþykkt var að Út-
gáfufélag DV og Framtíðarsýn
sameinuðust undir heitinu Útgáfu-
félagið Framtíðarsýn og ákveðið að
auka hlutafé um 210 milljónir í
fyrstu. Samhliða breytingunum
hætti Hjalti Jónsson sem fram-
kvæmdastjóri en framkvæmda-
stjóri nýs félags verður Örn Valdi-
marsson hagfræðingur sem verið
hefur framkvæmdastjóri Framtíð-
arsýnar og ritstjóri Viðskiptablaðs-
ins.
Jónas Kristjánsson, sem verið
hafði ritstjóri DV frá upphafi, var
horfinn frá blaðinu í ársbyrjun en
ritstjórnin er i höndum Óla Björns
Kárasonar, Sigmundar Ernis Rún-
arssonar og Jónasar Haraldssonar.
Fréttablaðiö í þrot
* Fréttablaðið átti í miklum erfið-
leikum á árinu. Um mitt sumar
hætti blaðið að koma út í um þrjár
vikur vegna mikilla fjárhagserfið-
leika Fréttablaðsins ehf. Megn
óánægja var meðal blaðamanna
sem ekki höfðu fengið launin sín.
Óánægjan var ekki minni meðal
blaðbera sem höfðu heldur ekki
fengið launin sín eða þá seint og
illa. Forsvarsmenn Fréttablaðsins
áttu í viðræðum við nýja fjárfesta
meðan útgáfan lá niðri og fóru þær
umleitanir á þann veg að nýtt félag
var stofnað um útgáfuna, Frétt
ehf., sem tók við húsnæði og tækja-
kosti gamla félgsins. Fréttablaðið
ehf. var hins vegar lýst gjaldþrota
í lok nóvember.
Mikil leynd hefur alla tíð hvílt
yfir eignarhaldi á Frétt ehf., fátt
látið uppi nema það að feðgarnir
Sveinn R. Eyólfsson og Eyjólfur
Sveinsson kæmu þar hvergi nærri.
Skipti engu þó fast væri sótt að
Gunnari Smára Egilssyni ritstjóra.
Þrálátar sögusagnir hafa hins veg-
ar gengið um eignaraðild Bónus-
feðga og Húsasmiðjumanna á blað-
inu. Jónas Kristjánsson, sem var
ritstjóri á „gamla“ Fréttablaðinu,
var ekki inni í myndinni þegar
blaðið kom út að nýju. Hann sendi
Gunnari Smára pillu á vefsíðu
sinni á dögunum vegna leyndar-
innar sem hvílir yfir eignarhald-
inu á Frétt ehf. Þar sagði Jónas:
„Þögn um eigendur er slæmt skref
í þróunarsögu fjölmiðla. Gegnsæi
og traust eru sjálfir hornsteinar
vestræns þjóðskipulags."
Skrautleg atburðarás
í febrúar sagði Hreggviður Jóns-
son skyndilega upp starfi sínu sem
forstjóri Norðurljósa hf., sem m.a.
reka Stöð 2 og Sýn. Sagði hann að
sér væri ógjörningur að starfa
áfram hjá félaginu við ríkjandi að-
stæður. Reksturinn var þungur og
var Hreggviður afar óhress yfir að
aðaleigandi félagsins, Jón Ólafs-
son, hefði ekki staðið við skuld-
bindingar um að leggja félaginu til
aukið hlutafé. Sigið hafði á ógæfu-
hliöina hjá félaginu en lántökur
höfðu verið miklar, bæði hérlendis
og erlendis.
Nýs forstjóra, Sigurðar G. Guð-
jónssonar, beið því ærið verkefni.
Skuldir upp á um um tug milljarða
blöstu við og útlit fyrir gjaldþrot ef
ekkert yrði að gert. Og ekki bætti
úr skák að sama dag og Hreggvið-
ur sagði upp mætti á annan tug
starfsmanna skattrannsóknar-
stjóra á svæðið og lagði hald á bók-
haldsgögn vegna itarlegrar skatt-
rannsóknar á aðaleiganda fyrir-
tækisins.
í sumar varð síðan lífleg at-
burðarás. Landsbankinn greip til
þess ráðs að loka á 300 milljóna
króna yfirdrátt fyrirtækisins og
stefndi félaginu fyrir héraðsdóm.
Búnaðarbankinn stefndi einnig
Norðurljósum fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur til greiðslu 350 millj-
óna króna láns sem bankinn lánaði
Jóni Ólafssyni fyrir hönd Norður-
ljósa til að opna Smárabíó.
Og enn færðist fjör í leikinn.
Norðurljós kærðu Búnaðarbank-
ann til Fjármálaeftirlitsins fyrir að
rjúfa bankaleynd með þvi hafa
upplýst þriðja aðila um nákvæma
skuldastöðu fyrirtækisins gagn-
vart bankanum. Hafði forstjórinn
undir höndum skjöl sem áttu að
sýna þetta. Vildi Sigurður G.
meina að bankinn stæði að bak-
tjaldamakki við nafngreinda ein-
staklinga um að koma Norðurljós-
um í gjaldþrot til þess að hægt yrði
að sameina fyrirtækið Skjá 1.
Kenningar voru uppi um að papp-
írunum hafi verið stolið af skrif-
stofu lögfræðings Búnaðarbank-
ans. Undir lok september var vakt-
maður staðinn að verki við að
gramsa í skjölum í Búnaðarbanka
íslands en hann mun hafa leitað
ítrekað að gögnum í bankanum er
tengdust Norðurljósum.
í september virðist málum hafa
verið bjargað fyrir horn um sinn
þegar Kaupþing keypti hlut þriggja
erlendra banka í sambankaláni
fyrirtækisins.
í desemberbyrjun lauk skatt-
rannsókn á skattskilum Jóns
Ólafssonar. Grunur leikur á stór-
felldum undanskotum. Rannsóknin
beindist að skattskilum Jóns per-
sónulega en einnig er í gangi rann-
sókn á fyrirtækjum í eigu hans.
Risagjaldþrot
Á meðan á öllu þessu gekk var
unnið í risafengnu gjaldþroti , _
Frjálsrar fjölmiðlunar, eins um-
fangsmesta fjölmiðlafyrirtækis
landsins. Helstu eigendur og
stjórnendur fyrirtækisins voru
feðgarnir Eyjólfur Sveinsson, sem
var framkvæmdastjóri, og Sveinn
R. Eyjólfsson, en hann var lengst af
stjórnarformaður. Nema kröfur í
búið tæpum 2,2 milljörðum króna
en forgangskröfur námu rúmum 70
milljónum króna. Athygli vakti að
samtals gerðu félög aðaleigenda og
stjórnenda Frjálsrar fjölmiðlunar
kröfur i þrotabúið sem nema á
fimmta hundrað milljónum króna
eða um fimmtungi heildarkrafna 1
þrotabúið.
Endurkoma Ingva Hrafns á Hrafnaþing Útvarps Sögu:
Fólk fúst að koma í þáttinn
„Saga var sett upp sem tilraun
þar sem talað mál væri í öndvegi og
mér var boðið að setja upp þennan
þátt, Hrafnaþing. Ég átti erfitt með
að neita þar sem ég er fjölmiðlafík-
ill, hef verið i faginu í um 40 ár.
Reyndar hafði ég vissar efasemdir
en það sem kom mér skemmtilegast
á óvart var hve fúsir menn reyndust
að koma til viðræðna, mæta i þátt-
inn. Ekki bara hjá mér heldur
einnig Sigurði G. Tómassyni, Hall-
grími Thorsteinsyni og Arnþrúði
Karlsdóttur. Þetta er skemmtileg
blanda af ólíku fólki sem á samtals
um á annað hundrað ár að baki í
blaðamennsku," sagði Ingvi Hrafn
Jónsson sem sneri aftur í fjölmiðla
eftir fjögurra ára hlé þegar hann hóf
að stjórna Hrafnaþingi á Útvarpi
Sögu.
Ingvi Hrafn sagði að fljótt hefði
komið í ljós að grundvöllur var fyr-
ir svona stöð þar sem menn voru
bara að tala um daginn og veginn.
„Kannski er Saga ólík öðrum út-
varpsstöðvum að því leytinu að
menn hafa tíma til að tjá sig, bæði
gestimir að tala út án þess að vera
klipptir út og suður og við að
spyrja. Og svo geta menn náttúrlega
látið vaða um hvað sem er,“ sagði
Ingi Hrafn og bætti við að dvöl sín í
veiðihúsinu við Langá hefði fráleitt
verið hindrun fyrir þáttinn, menn
hefðu einfaldlega sett upp stúdíó í
veiðihúsinu.“
Ingvi segist afar ánægður með
viðtökumar sem Hrafnaþing og út-
varpsstöðin sem slík hafi fengið.
„Fyrst var þetta tilraun sem átti að
vera í sex mánuði en nú eru þeir
orðnir níu og ljóst að við verðum að
næsta ár í það minnsta."
Ingvi Hrafn segir að þegar hann
líti til baka yfir árið standi Frétta-
blaðið og Skjár 1 upp úr, fríir fjöl-
miðlar sem hafi lifað og þrengt að á
markaðnum eðli málsins sam-
kvæmt. „Ég hef verið með krossferð
á hendur Fréttablaðinu. Mér er
sama hver á blaðið en vil vita hverj-
ir það eru. Heimilin eiga heimtingu
á að vita hverjir hafa áhrif á blaðið
og hverra erinda ritstjórinn geng-
ur.“