Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2002, Qupperneq 52
VT
56
/ / e / c) a r b / a ö DV
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2002
Egill
Helgason.
Utþensla ríkisins
„Mál Ingibjargar
Sólrúnar eru efst á
baugi í lok árs. Ég
held að það sé bara
ánægjuefni að hún
dembi sér í lands-
málin, sérstaklega
ef hún gerir það af
fullum krafti," seg-
ir Egill Helgason
blaðamaður. „í lok
ársins verður mér annars helst hugs-
að til ákveðinna vonbrigða með að
ekki skuli ætla að verða meiri endur-
nýjun í pólitíkinni hér. Ég held við
þurfum meira af nýju blóði, nýtt fólk,
nýjar hugmyndir, færri flokkshesta.
Mér finnst gæta verulegrar þreytu
með stjórnmálaflokkana og óvissu um
hvað þeir standa í raun fyrir. Annað
sem sætir furðu er hin stórkostlega
útþensla ríkisins. Að sumu leyti er
þetta vegna þess að ákveðnar stéttir
sem gera út á ríkiskassann eru orðn-
ar trylltar af græðgi og engin leið að
hemja þær - ég nefni lækna - en önn-
ur skýring er að makráðir stjórnmála-
menn virðast hafa gjörsamlega týnt
sér í fínimennsku."
Hrakspár reyndustrangar
„Á árinu sem er
að líða stendur það
helst upp úr að all-
ar hrakspár stjórn-
arandstöðunnar um
að efnahagslífið
væri að fara úr
böndunum reynd-
ust rangar," segir
lllugi Illugi Gunnarsson,
Gunnarsson. aðstoðarmaður for-
sætisráðherra. „Efnahagsstefna ríkis-
stjómarinnar gekk eftir, verðbólgan
er nú innan viðmiðunarmarka Seðla-
bankans, vextir lækka jafnt og þétt,
spáö er auknum hagvexti og kaup-
máttur eykst áttunda árið í röð. Verið
er að ganga frá sölu ríkisbankanna og
nú standa yfir lokaviðræður vegna
byggingar álvers á Austurlandi. Það
er því rík ástæða til að vera bjartsýnn
á gang efnahagsmála á næstunni. Af
öðrum málum á innlendum vettvangi
langar mig sérstaklega að nefna sam-
komulagið sem náðist á milli ríkisins
og samtaka eldri borgara um aukið
fjármagn til eldri borgara."
Evrópustefna mótuð
„Það hefur sett
lit á lífið að ég dreif
mig í háskóla og
tók þá ákvörðun að
fara ekki í framboð
í vor,“ segir Svan-
fríður Jónasdóttir
alþingismaður.
„Evrópukynning
Svanfríður Samfylkingarinnar
Jonasdottir. og m5tun gvrópu-
stefnu var líka spennandi verkefni.
Auk þess að halda utan um kynning-
una tók ég sjálf þátt í á fjórða tug
funda um allt land. Niðurstaða flokks-
ins hefur mikil áhrif á þróun Evrópu-
umræðunnar. Þó ég væri ósátt við út-
færslu ríkisstjórnarinnar á veiðigjald-
inu skiptir miklu að gamalt baráttu-
mál um að greiða skuli fyrir nýtingu
sameiginlegra auðlinda fékkst viöur-
kennt. Samfylkingin er hins vegar að
treysta sig - innkoma Ingibjargar Sól-
rúnar undirstrikar það - og þar með
okkar áherslur í stærstu málum.“
Styrkur og staðfesta
„Árið fyrir kosn-
ingar er yfirleitt
átakamesta ár kjör-
tímabilsms," segir
Finnur Ingólfsson,
forstjóri VÍS og
ráðherra, á
fyrstu mánuðum
kjörtímabilsins.
Fl""ur „Þetta er að öllu
Ingolfsson. jöfnu árið sem
ríkisstjóm er hvað verkaminnst. í
ár hefur rikisstjómin hins vegar
tekist á við hvert stórmálið á fæt-
ur öðru og leyst með farsælum
hætti. Ég nefni deilur í heilbrigð-
iskerfmu, átök um Kárahnjúka-
virkjun og einkavæðingu og
áherslumun í Evrópumálum. Til
að ráða við þetta þarf fyrst og
fremst trausta og samheldna for-
ystu fyrir ríkisstjóm þar sem
traust og trúnaður rikir milli for-
ystumannanna sem enn virðist
vera nóg af og er það gott vega-
nesti inn í komandi ár.“
Stjórnmálin á árinu 2002:
Rokið á undan logninu
Einkavæðing, Evropa og
jólabomba borgarstjóra
Einkavæðing bankanna og þróun
Evrópuumræðunnar skipta senni-
lega mestu þegar til lengri tíma er
litið," segir Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla íslands.
„Hvorutveggja er partur af
löngu og mikilvægu ferli. Einka-
væðing bankanna er enn eitt skref-
ið í þeirri uppstokkun íslenska
hag- og stjórnkerfisins sem átt hef-
ur sér stað undanfarin tuttugu ár:
þróun í átt til samfélagsgerðar þar
sem markaösbúskapur gegnir svip-
uðu hlutverki og í nágrannalöndun-
um. Evrópuumræðan hvesstist við
það að innan flokkakerfisins bar
meira á talsmönnum þess að ESB-að-
ild sé æskileg (eða kannski óumflýjan-
leg): Samfylkingin ákvað að stefna að
aðild og utanríkisráðherrann hélt
áfram að daöra við aðild, augljóslega
við litla hrifningu forsætisráðherr-
ans, sem talaði afar ákveðið gegn að-
ild. Þó enn sé alls ekki ljóst hvaða
vægi Evrópumálin fá í kosningabar-
áttunni í vor má búast við harðnandi
átökum um þetta mál næstu árin,
ekki síst vegna stækkunar ESB til
austurs, sem eru augljóslega mikil tíð-
indi.
Af öðrum mikilvægum málum má
nefna efnahagsstjórn og virkjanamál.
Mjúk lending í efnahagsmálum skipt-
ir þjóðina miklu og styrkir stöðu
stjórnarflokkanna í komandi þing-
kosningum. Líkurnar á virkjunar-
framkvæmdum á Austurlandi jukust
og bæði stuðningsmenn og andstæð-
ingar telja þar mikið í húfi.
Stjómarflokkarnir héldu sínu í
sveitarstjórnarkosningum en sjálf-
stæðismönnum tókst ekki að fella R-
listann í Reykjavik og innviðir Sam-
fylkingarinnar styrktust. Ljóst varð í
haust að borgarstjóri hugsaði sér til
hreyfings í landsmál og rétt fyrir jólin
ákvað hún þingframboð. Þaö eru tíð-
indi - og ef hún verður sett af sem
borgarstjóri í framhaldinu geta leitt af
þvi miklar sprengingar.
Davíð Oddsson braust með miklum
hvelli inn í landsmál vorið 1991 og
felldi sitjandi flokksformann rétt fyrir
kosningar. Hvað gerir Ingibjörg Sól-
rún á miðju sprengjusvæði vorið
2003?"
Það vill svo einkennilega til að það
lítur út fyrir að nokkur af helstu stór-
tíðindum ársins 2002 á vettvangi stjóm-
mála verði ekki endanlega staðfest fyrr
en á næsta ári, hvort sem litið er til
manna eða málefna. Það mætti því
kalla þetta „undirbúningsárið". En það
er þannig með flest þessara mála að að-
dragandinn er æsilegri en sjálfur at-
burðurinn. Af þvi leiðir auðvitað að
árið var líflegt.
Bankarnir
Einhver mestu tíðindi sem komið
hafa úr Stjómarráðinu á árinu er sam-
komulag um sölu á kjölfestuhlut í báð-
um ríkisbönkunum. í október náðist
samkomulag við Samson, eignarhalds-
félag Björgólfs Guðmundssonar, Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar og Magnúsar
Þorsteinssonar, um sölu á 45,8% hlut i
Landsbankanum fyrir 12,3 milljarða. í
nóvember var samið við VÍS, Ker
(Esso), Samvinnulífeyrissjóðinn og
fleiri um sölu á jafhstómm hlut í Bún-
aðarbankanum fyrir 11,9 milljarða.
Steingrímur Ari Arason sagði sig úr
einkavæðingamefnd vegna Lands-
bankasölunnar en Ríkisendurskoðun
blessaði framkvæmdina. Kaupsamn-
ingar hafa hins vegar ekki enn verið
undirritaðir þegar þetta er skrifað.
Hugsanlega verða það meðal fyrstu
stórtiðinda næsta árs.
Landssíma-mambó
Hvað einkavæðingu varðar fór árið
hins vegar illa af stað. I lok febrúar var
viðræðum slitið við danska símafyrir-
tækið TDC um kaup á kjölfestuhlut í
Landssímanum. Fáir áttu erfiðari mán-
uð í pólitík á árinu en Sturla Böðvars-
son. Gengið hafði verið frá 37 milljóna
króna starfslokasamningi (!) við Þórar-
in V. Þórarinsson, fyrrverandi for-
stjóra Símans. Hreinn Loftsson, for-
maður einkavæðingamefhdar, hafði
sagt af sér. I ljós hafði komið að Friðrik
Pálsson stjómarformaður fékk nokkrar
milljónir í laun fyrir ráðgjafastörf án
vitundar annarra stjómarmanna. Loks
fór einkavæðingin út um þúfur.
Ingibjörg Sólrún umkringd
Margir hafa beðið þess í mörg ár aö Ingibjörg Sólrún hellti sér út í landsmálin en það virðist ætla að
kosta hana borgarstjórastólinn.
Ingibjörg fram
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir setti allt
á annan endann í lok ársins með
ákvörðun um að bjóða sig fram fyrir
Samfylkinguna í komandi þingkosn-
ingum. Hún hafði i haust ákveðið eftir
talsverða umhugsun að fara ekki fram,
m.a. í ljósi yfirlýsinga sinna ög skuld-
bindinga fyrir borgarstjómarkosning-
amar. Framsókn og Vinstri-grænir
bmgðust mjög harkalega við; sögðu
óhugsandi að leiðtogi R-listans keppti
við þá í þingkosningum.
Þegar þetta er skrifað standa samn-
ingaviðræður yfir, en allt eins virðist
líklegt að dagar R-listans séu taldir
vegna ákvörðunar Ingibjargar Sólrún-
ar. Niðurstaðan verður líklega - eins
og bankasal-
an - meðal
fyrstu
stórtíð-
inda
næsta
Framboðsraunir
Ný og gjörbreytt kjördæmaskipan
veldur því að val á framboðslista hefur
verið óvenjulega snúið. Af helstu tíð-
indum má nefna: Sögulegan ósigur
Páls Péturssonar í Norðvesturkjör-
dæmi; fluming Halldórs Ásgrímssonar
til Reykjavíkur; ósigur Vilhjálms Egils-
sonar og makalausa framkvæmd próf-
kjörsins í Norðvesturkjördæmi;
ákvörðun kjömefndar í Suðurkjör-
dæmi um að hafha Kristjáni Pálssyni;
frábæran árangur ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík; furðuslappa kosn-
ingu össurar Skarphéðinssonar í
fyrsta sæti i Reykjavík og algjöran ósig-
ur Jakobs Frímanns Magnússonar eft-
ir mikið auglýsingaflóð - og svo mætti
raunar lengi telja.
Álver / Þjórsárver
Virkjanir, stóriðja og umhverfismál
þeim tengd hafa orðið tilefni hungur-
verkfalla og mótmælasöngva á Austur-
velli enda mikið í farvaminu. Norsk-
Hydro rauk raunar á dyr snemma á ár-
inu en ekki leið á löngu áður en álris-
inn Alcoa hljóp í skarðið og tók við
verkefninu um álver i Reyðarfiröi.
Framkvæmdir við virkjun em hafnar
og ekkert eftir nema endanlegir og
bmdandi samnmgar við Alcoa. Þeir
eru fyrirhugaðir í mars - enn ein yfir-
vofandi tíðindi.
Norðlingaölduveita, sem á að sjá
stækkuðu álveri á Grundartanga fyrir
orku, var samþykkt af Skipulagsstom-
un í ágúst. Margir aðdáendur Þjórsár-
vera mótmæltu oft og lengi og ákaflega;
ráðherra úrskurðar um kærur á nýju
ári.
Samfylking eflist
Af skoðanakönnunum að dæma hef-
ur fylgi Samfylkmgarinnar verið að
aukast umtalsvert á ármu og er nú vel
ríflega 30%. Framan af virtist það eink-
um vera á kostnað Vinstri-grænná,
sem hafa snarlækkað, en nú síðast
einnig á kosmað Framsóknar, sem er í
kreppu í Reykjavík samkvæmt könn-
unum. Sjálfstæðisflokkurmn hefur
haldið smu, nema samkvæmt síðustu
könnun í Reykjavík eftir ákvörðun
borgarstjóra um þmgframboð.
Sveitarstjórnarkosningar
Bjöm Bjamason stóð upp úr stól
ildarviðræður við sambandið á stefhu-
skrá sma.
Sprengjur
Fyrirhuguð ríkisábyrgð á allt að 20
milljarða láni deCODE varð óskaplega
umdeild, en málið hefur fjarað út og
niðurstöðu frá Eftirlitsstomun EFTA
ekki að vænta fyrr en í vor.
Þá varð allt vitlaust þegar meðlim-
um Falun Gong var memað að koma til
landsms til að sýna forseta Kma mót-
mælaspjöld og þeir eltir á röndum sem
hleypt var mn.
Þorfinni Ómarssyni var vikið tíma-
bundið úr starfi framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs í júlí eftir að Ríkis-
endurskoðun haföi ítrekað gert alvar-
legar athugasemdir við bókhald hans,
en nefhd um réttmdi ríkisstarfsmanna
komst nú samt að því að brottviknmg-
m hefði verið óréttmæt.
Málið varð Hallgrími Helgasyni til-
efni til að skrifa fræga blaðagrein,
„Baugur og bláa höndin“, um meint of-
ríki forsætisráöherra. Davíð bauð Hall-
grimi í spjall í Stjómarráðinu í kjölfar-
ið og þótti sumum skrýtið.
Mafía og leiftur
Ýmis ummæli vöktu feiknaathygli á
árinu. Össur Skarphéðinsson kallaði
forsvarsmenn Baugs „hreinræktaða
drullusokka" og „nýja mafiu" í trúnað-
arbréfi snemma á árinu eftir að bróður
hans var sagt upp störfum hjá fyrirtæk-
inu. Jón Ásgeir Jóhannesson sagðist í
kjölfarið óttast þá tilhugsun að Össur
yrði í framtiðinni forsætisráðherra.
Ámi Mathiesen var dæmdur í hér-
aðsdómi fyrir að halda því fram að
fréttamyndir af brottkasti afla væru
sviðsettar og Einar Oddur Kristjánsson
fullyrti að skoðanakúgun og fasismi
væm stunduð á Hafrannsóknastofhun.
Davíð Oddsson olli hins vegar mestu
fjaðrafoki þegar hann riijaði upp í við-
tali við DV hvemig hann hefði haldið
uppi aga i Verzlunarskólanum á sínum
tíma með því að lemja nemendur sína
„leiftursnöggt í hausinn". Eiríkur
Jónsson, formaður Kennarasambands-
ins, var einn þeirra sem ekki hafði
húmor fyrir frásagnarstíl forsætisráð-
herra og taldi málið grafalvarlegt!
Það sést þó hugsanlega i réttu ljósi í
síðustu stórfrétt ársins: Skaupinu.
menntamálaráðherra og lagði til atlögu
við Reykjavikurlistann, en hafði ekki
erindi sem erfiði. Fylgið reyndist
óvenjulítið og uppskeran aðeins 6 borg-
arfulltrúar. R-listinn dalaði um 1% en
F-listi kom óvænt að manni.
Á landsvísu máttu stjómarflokkam-
ir mjög vel við una með um 40% (D) og
20% (B), Samfylkingin sömuleiðis með
um 32% þar sem hún bauð fram sér, en
Vinstri-grænir fengu víðast hvar að-
eins um 6%.
D-listi vann sína helstu sigra í
Reykjanesbæ og Mosfellsbæ, hreinan
meirihluta á báðum stöðum. Samfylk-
ingin vann stórsigur og hreinan meiri-
hluta í Hafnarfirði og stórsigur í Ár-
borg með tæpt 41%. Framsóknarmenn
náðu óvenjugóðum árangri í Kópavogi
og Garðabæ og Vinstri-grænir í Skaga-
firði.
Ólafur Teitur
Guðnason
blaðamaður
Verst vom úrslitin fyrir Fjarðalist-
ann í Fjarðabyggð, D-lista í Vestmann-
eyjum og Framsókn í Hafnarfirði, að
ógleymdum ósigri D-listans í Reykja-
vík.
ESB
Davíð Oddsson blés eftirminnilega
til sóknar í Evrópuumræðunni í sum-
ar. Hagfræðistofnun reiknaði út fyrir
hann að árlegur kostnaður af aðild ís-
lands að ESB eftir stækkun yrði allt að
10 milljarðar og skoðanakönnun sýndi
aö aðeins 3,3% þjóðarinnar væra ein-
dregið hlynnt aðild þegar kosmaðurinn
var nefndur sem forsenda. í kjölfarið
uröu hvössustu opinbera skoðana-
skipti Davíðs og Halldórs Ásgrímsson-
ar á árinu. Halldór boðaði nýja útreikn-
inga og eru þeir væntanlegir á næstu
vikum.
Andstæðingar ESB stofnuðu með sér
samtökin Heimssýn á árinu en Sam-
fýlkingin ákvað í kosningu að setja að-