Dagblaðið - 28.04.1976, Blaðsíða 13
íþróttir
nAiiRLAÐJJJ. M i{J V.lKL' 1JA(iL'K ‘>H (M‘Ktl, ISTfi,
róttir
Beiti ekki
býflugudansi á
Jimmy Young
— segir Muhammad Ali
— Það kann art vera að Jimmy
Youiik vinni eina eða tvær lotur. en
eftir þú fimmtu mun ég fara að herja á
honum — punpa hann út, sagði
Muhammad Ali í æfingahúðúm sínum
í Landover i Mar.vland nýlega. Á föstu-
dag — aðfaranótt laugardags eftir ís-
lenzkum (íma — mun hann verja
heimsmeistaratitil sinn í þungavigt-
inni gegn Young,.sem er skráður þriðji
í röðinni áskorenda Alis.
En þó Jimmv Young sé þetta hátt
skráður og talinn harðskeyttur hoxari
er greinilegt að Ali lítur á leikinn við
hann sem hvert annað formsatriði því
hann hefur þegar undirritað samning
um keppni við Evrópumeistarann
enska, Hichard Dunn frá Bradford,
hinn 25. maí í Miinchcn. Síðan mun
hann mæta japanska glímumanninum
Antonio Inoki í júní.
Ali hefur æft vel, en sagði: Ég mun
ekki beita býflugudansinum á Jimmy
Young — og hann gæti unnið lotu eða
tvær I byrjun. En eftir þá fimmtu fer
ég að berja á honum.
Það verður áætlun mín í fyrstu fjór-'
um — fimm lotunum að reyna að vinna
inn stig — og hefta högg hans. Ekki
ofreyna mig. Joe Frazier hefði sigrað
mig ef ég hefði dansað gegn honum —
en ég lét hann bara þreyta sig sjálfan.
Foreman gegn
Frazier í júní
F.vrrum heimsmeistarar í þungavigt
í hnefaleikum, Joe Frazier og George
Foreman, hafa undirritað samning um
keppni hinn 12. júní næstkomandi —
og kapparnir frægu munu berja á
hvorum öðrum í Nassau Coliseum í
Lniondale í New York.
í blaðamannafundi í New York í gær
sagði Jerry Perenchio, '5010 stendur
fyrir Iciknum, að hnefaleikamennirnir
fái milljón dollara hvor í hlut fyrir
keppnina — og 35% að auki ef tekjur
verða meiri en 4.25 milljónir dollara.
Lpphaflega átti keppnin að vera á
Yankee-Stadium i New York, en horfið
frá því, þar sem eigendur óttuðust að
áhorfendur mundu' skennna nýlagt
grasteppi vallarins.
George Foreman vann heims-
meistaratitilinn frá Joe Frazier 1973,
þegar hann rotaði Joe í annarri lotu í
Kingston á Jamaíka. I Zaire 1974 vann
Muhammad Ali svo heimsmeistara-
titilinn frá Foreman. Keppni þeirra
Frazier og Foreman verður sjónvarpað
á lokuðum rásum í Bandaríkjunum og
sextíu öðrum löndum. Leikurinn
verður 12 lotur, þó liklegt sé að þessir
miklu rotarar hafi komið öðrum
hvorum í gólfið áður en þeirri 12.
lýkur.
knattspyrnu-
og œfingaskór
Mjög hagstœtt verð
Kristján Þorsteinsson, formaður Skíðadeildar Hrannar, afhendir
verðlaun eftir mótið.
Ljósm. Guðm. Gunnarsson.
10 km skíðaganga hjá
Hrönn í Skálafellinu
íþróttir
Fyrsta innanfélagsmót Hrann-
ar í skíðagöngu fór fram í Skála-
felli á laugardaginn. Keppt var í
10 km göngu. Sigurvegari varð
Jóhann R. Jakobsson. Röðin varð
annars þessi á sex fyrstu kepp-
endunum:
mín.
1. Jóhann R. Jakobsson 26.05
2. Valur Valdimarsson 27.01
3. Sigurjön Hallgrimsson 28.26
(Sigurjón keppti sem gestur)
4. Hermann (iuðbjörnsson 28.41
5. Birgir Sigurjónsson 29.37
6. Guðmundur Gunnarsson 29.48
Sigurmarkið á
markamínúlu!
— Þegar Ármann sigraði Þrótt 2-1 í
gœrkvöld í Reykjavíkurmótinu og
skildi KR eftir á botninum
Ármann úr 2. deild sigraði
nýliða 1. deildar, Þrótt, 2—1 í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Sætur sigur
fyrir Ármann eftir tvö slæm töp í
byrjun móts — að sama skapi
áfall fyrir Þrótt, en liðið lék í
gærkvöld eins og tæþlega mið-
lungs 2. deildar lið. Slík frammi-
staða færir hinum ungu Þróttur-
um ekki mörg stig í hinni hörðu
baráttu 1. deildar í sumar. Þrótt-
arar eru nýkomnir úr keppnis-
ferðalagi um Skotland — komu
um heigina. Ef til vill situr ferðin
enn í leikmönnum. ÁUt um það
— ekki var hægt að þekkja liðið
fyrir hið sama og sigraði Val 1—9
í öðrurn leik liðsins i mótinu.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn — leikurinn var þófkenndur
en þrátt fyrir það var það Þróttur
sem náði forystu með fallegu
marki skömmu fyrir hálfleik.
Tekin var hornspyrna, gefið vel
fyrir og Jóhann Hergeirsson
skallaði boltann i netið — sann-
kallaðan þrumuskalla
Staðan i hálfleik 1—0 Þrótti í
vil. En Ármenningar létu mót-
lætið ekki á sig fá og tóku leikinn
í sínar hendur í síðari hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik jafnaði
Ármann — Birgir Einarsson
(áður IBK og Val) var þar að
verki — eftir mistök markvarðar
Þróttar.
Ármenningar pressuðu og
sigurmarkið lá í loftinu. Þeir
skoruðu mark beint úr horn-
spyrnu — verulega fallegt mark
en það var dæmt af vegna þess að
dómarinn taldi markvörð Þróttar
hafa verið hindraðan.
Ármenningar Iétu mótlætið ekki
á sig fá — á 43. mínútu skoraði
Arnlaugur Helgason gott mark —
skot innan vítatéigs eftir að
boltinn hafði verið gefinn vel
fyrir. Övæntur Ármannssigur og
um leið kærkominn, 2-1.
Staðan í Reykjavíkurmótinu er
nu: Valur 3 2 0 1 8—2 6
Fram 3 2 1 0 8—2 6
Víkingur 3 1 2 0 7—2 5
Þróttur 3 1 0 2 2—6 2
Ármann 3 1 0 2 2—10 2
KR 3 0 1 2 1—6 1
h.halls
Enn barizt
á botninum
Þrír leikir voru háðir í ensku
deildakeppninni í gær og úrsllt
urðu þessi:
2. deild
Notts County-Orient 2—0
3. deild
Bury-Chester 1—0
Wrexham-Southend 2—2
Southend náði þarna þýðingar-
ntiklu stigi og gæti bjargað sér
frá falli. Halifax og Colchester
eru þegar fallin í 4. deild. svo og
Aldershot, en Southend og
Sheff.Wed. eiga eftir að leika inn-
byrðis og annað hvort liðiö fellur.
Jafntefli nægir Sheffield-liðinu í
þeim leik.
SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK
A mcðan æft er þarf aðeins að nota einfalda röð stanga. Það er
auðveldara og tekur skemmri tíma. Til að stangirnar falli ekki þá
er betra að stinga þeim niður eins og rnyndin i hægra horni sýnir.
Þetta er góð æfing en ekki má gleynia að æfa í fullkominni braut
jafnframt.
að nást. Hér á myndiinum sjást nokkrar góðar æfingar bæði til að
auka þol og til styrklar.
Það er miklu skemmtilegra að stunda skíðaíþróttina vel undirbú-
inn líkamlega. Sterkir fætur hafa ntikið að segja ef góð færni á
DAGBL.VDIl). ,M H)V'I Kl ’ DAtíL R 2S. AI’KIL 1976.
13
þróttir
róttir
róttir
S>
<*ru pcmncarmr.
Icikurinn jjal’ al srr 01; fclagið mun
grciða allan sjúkrakoslnað Polla.
Hann licldur líka kaupi sínu
3
Sama segi cg vcgna
þcss. að cg lcik ckki
framar V
Hcr
Allor þjóðir
eru í skugga
Hollendinga!
segir landsliðsþjálfarinn Tony Knapp, sem
nýkominn er heim frá Rotterdam, þar sem
hann fylgdist með leik Hollands og Belgíu
„Hollendingar léku þá beztu
knattspyrnu sem ég hef séð
síðastliðin 10 ár og það leikur
enginn vafi á að þeir hafa á að
skipa bezta knattspyrnulandsliði
heims’í dag,” sagði Tony Knapp
landsliðsþjálfari KSÍ, en hann er
nýkominn frá Rotterdam þar
sem hann fylgdist með landsleik
Hollendinga og Belga í 8-liða
úrslitum Evrópukeppni lands-
liða. Hollendingar sigruðu 5-0 og
voru yfirburðir þeirra miklir í
leiknum.
,,Það er því enginn vafi á því,
að þegar Hollendingar koma
hingað í byrjun september, að það
verður mesti knattspyrnu-
viðburóur, sem íslendingum
hefur verið boðið upp á. Það að
leika með Hollendingum i riðli
er heiður — en ekki þar með sagt
að við getum ekki komið á óvart
hér heima. Strákarnir munu að
sjálfsögðu fara inn á með því
hugarfari að vinna, nota allan
þann kraft og getu sem þeir búa
yfir. Þó við höfum auðvitað á
brattann að sækja þá held ég og
trúi að strákarnir geti komið á
óvart.
Hollendingar eru staðráðnir í
að vinna næstu HM, sem fer fram
í Argentínu ’78 og áreiðanlega
munu þeir tjalda því sem til er.
Cruyff, Neeskens og félagar leika
því væntanlega á Laugardals-
Tony Knapp, landsliðsþjálfari
vellinum þann 8. september.
Tækifæri sem íslenzkum knatt-
spyrnuáhugamönnum hefur ekki
boðizt fyrr, og gleymið ekki aði
Belgar og N-írar hafa einnig góð-
um liðum á að skipa. En það
hljóta öll lið að falla í skuggann af
Hollendingum.
Sá elztí 75
sá yngsti 5!
— í skíðatrimminu og þátttakendur 600
Þátttakendur í skíðatrimminu
á páskunum voru um 600 og
gengið á þremur stöðum. Við
skíðaskála íþróttafélags kvenna í
Skálafelli — við skíðaskála Fram
í Eldborgargili í Bláfjöllum og,
við skíðaskálann í Hveradölum.
Á öllum þessum stöðum voru
páskaegg veitt í verðlaun og vakti
það talsverða kátínu — en happ-
drætti var einnig því fylgjandi.
Ungir sem gamlir tóku þátt í
þessari skemmtilegu skiðagöngu,
en gengnir voru um 3 km. Yngsti
þátttakandi, sem vitað var um,
var fimm ára — sá elzti 75 ára.
Gengið var alla dagana þrátt
fyrir vonzku veður suma þeirra.
Stjórnandi í Skálafelli var Andrés
Úlfarsson, IR, en Magnús
Guðjónsson í Eldborgargili, og
Guðmundur Sveinsson, SR, í
Hveradölum.
Sú nýjung hefur verið tekin
upp, að Trimm-nefndin hefur
látið framleiða lítil flögg fyrir
skíðagöngu, sem eru rauð á lit
nteð hvítum trimmkarli — og
fyrirhugað er, að trimm-gangan
haldi áfram á þessum þremur
stöðum rneðan veður og færð
leyfir.
Leikmenn vesturbæjarliðs Lundúnaborgar, QPR, sigruðu Leeds á laugardag 2—0 og skutust við það upp
í efsta sæti 1. deildarinnar ensku — stigi á undan Liverpool. En þeir hafa lokið öllum leikjum sínum og
verða að bíða til 4. maí eftir hinum þýðingarmiklu úrslitum í leik Llfanna og Liverpool. Þar nægir
Liverpool að gera jafntefli 0—0, 1—1 og 2—2 til að hljóta meistaratitilinn, en QPR vinnur hins vegar ef
jafntefli verður 3—3 eða hærri jafnteflistala. Svo naumt er — og ef jafntefli verður 2—2 hefur Liverpool
einum hundraðasta úr marki betra markahlutfal) en QPR. Myndin að ofan er frá leik QPR og Leeds á
laugardag — enski landsliðsbakvörðurinn Ian Gillard hjá QPR sækir að markverði Leeds og Skotlands,
David Harway, en David grípur knöttinn öruggum höndum. Nr. 2 er Poul Reaney og nr. 6 Norman Hunter,
Leeds-leikmenn, sem báðir hafa leikið í enska landsliðinu.
Vonast eftir 3ja
marka forskoti!
— Ég vonast eftir að við náum
að minnsta kosti þriggja marka
forskoti í leiknum i kvöld á An-
field til að hafa með okkur til
Belgíu í síðari leikinn. sem
verður 19. maí, sagði fram-
kvæmdastjóri Liverpool, Bob
Paisley, í gær. Fyrri leikur Liver-
pool og Brugge í LEFA-
keppninni verður í Liverpool í
kvöld — og það var greinilegt á
Paisley, að hann taldi að lið sitt
yrði að ná þetta góðu forskoti á
heimavelli til að hafa möguleika
á sigri í úrslitunum.
Liverpool, sem leikið hefur 12
ár samfleytt í Evrópumótunum,
sigraði í UEFA-keppninni fyrir
þremur árum. Það er eina
Evrópumótið, þar sem leiknir eru
tveir úrslitaleikir — heima og að
heiman, en í Evrópubikarnum og
Evrópukeppni bikarhafa er einn
leikur látinn ráða. í Evrópu-
bikarnum leika Bayern og St.
Etienne til úrslita í Glasgow, en
Anderlecht og West Ham í keppni
bikarmeistara í Brussel.
Strákurinn rauðhærði, hinn 19
ára David Fairclough, sem skorað
hefur sjö mörk í fimm leikjum
f.vrir Liverpool að undanförnu —
og í fjórum þeirra eftir að hafa
komið inn sem varamaður —
hefur verið valinn í lið Liverpool í
kvöld, en John Case verður vara-
maður. Það er því greinilegt að
Liverpool hyggur á sóknarleik i
kvöld — Case er framvörður.
— David hefur gott keppnis-
skap og það mun ekki hafa áhrif á
hann þó mikil stemning verði á
leikvellinum, sagði Paisley i gær,
en reiknað er með að 56 þúsund
áhorfendur horfi á leikinn — eða
eins og frekast rúmast á Anfield.
Framkvæmdastjóri Brugge — en
liðið Hefur hlotið belgíska meist-
aratitilinn i ár — mun ckki velja
lið sitt endanlega fyrr en í dag.
Þar verður mest treyst á hinn 31
árs Raoul Lambert, miðherja
belgíska landsliðsins, sem leikið
hefur 28 landsleiki.
Liverpool náði að komast i úr-
Féll af baki
og lamaðist
Harro Remmert. vestur-þýzkur
knapi. féll af haki í keppni í Duis-
burg á sunnudag og slasaðist illa.
Ilann er á sjúkrahúsi — lamaöur
frá brjósti og niður.
Kyrsti leikur Spiirtu cr til styrktar Pollá
slitaleikinn með því að sigra
Hibernian, Skotlandi, 3-2, saman
lagt í fyrstu umferð, San
Sebastian, Spáni, 9-1 í 2. umferð,
Slask Wroclaw, Póllandi, 5-1 í 3.
umferð og Dynamo Dresden 2-1 í
4. umferð. í undanúrslitum vann
Liverpool Barcelona 2-1.
Brugge vann Olympique
Lyonnais, Frakklandi, í fyrstu
umferð, Ipswich, Englandi, 4-3 í 2.
umferð eftir að hafa tapað úti-
leiknum með 3-0, AC Róm, Ítalíu,
2-0 í 3. umferð og AC Milanó 3-2 i
4. umferð. í undanúrslitum vann
Brugge Hamburger SV, Vestur-
Þýzkalandi, 2-1.
Leikurinn í kvöld hefst kl.
18.30 eftir íslenzkum tíma. Fyrir
Liverpool leika Clemence. Smith,
Neal, Thompson, Kennedy,
Hughes, Keegan, Fairclough,
Hcighway. Toshack og Callaghan,
en lið Brugge verður valið úr 16
manna hópi — Jensen (danskur
landsliðsmarkvörður og sex lands-
liðsmenn eru í liði Brugge),
Bastyns, Volders, Cools, Krieger,
Leekens, Denaeghel, Van der
Eycken, De Cubber, Sanders
(Wales), Lambert, Le Fevre
(danskur), Holenstein, Hinde-
r.vck, Van Gool og Pieters. Dómari
verður Biwerski, Vestur-
Þýzkalandi.
— í fyrri úrslifaleiknum í UEFA-keppninni í knattspyrnu í kvöld,
en þá leika Liverpool og Brugge á Anfield i Liverpool
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum
Bókanir hjá Zoéga.
Sími:25544