Dagblaðið - 23.07.1979, Síða 1
p
i
i
i
i
i
i
i
i
i
A
5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1979— 165. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚI.A 12. AUGLÝSINGAR OG AFGRKIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.— AÐALSÍMl 27027
Frani&dsia
íslenzks
bensíns er
raunhæfur
möguleiki
—15-20% dýrara en núverandi inn-
flutningsverö á bensíni? -sjábls.22
íslenzkt bensin? Nei, af og frá
að það geti staðizt, hugsa liklega
flestir. Enda hefur viðtekin venja
verið sú i oliuframleiðslurikjum að
bora el'tir oliunni á landi eða sjó.
Og fátt bendir til þess að á íslandi
eða við strendur (slands sc að tlnna
oliuauðlindir til að framleiða úr
islenzkt bcnsin.
En Bragi Árnason, prófessor i
efnafræði, talar um íslenzka
bcnsinframleiðslu hreint cins og
sjálfsagðan hlut. Til þess þarf að
virkja vatnsföll til raforku-
framleiðslu, grafa mó úr mýrlendi
og/cða flytja inn kol. í viðtali við
DB segir Bragi m.a. að ef reist væri
á íslandi verksmiðja sem fullnægði
um hclniingi cldsncytisþarfar
þjóðarinnar þá mæ'tti framleiða
háoktan bensin á vcrði sem er um
15—20% hærra cn núvcrandi inn-
flutningsverðbensins.
,,Ég er ekki i minnsta vafa um
að með þeirri tækniþekkingu scm
fyrir hendi cr cr hægt að framleiða
eldsneyti á íslandi sem fullnægir
eftirspum i landinu. Jafnvel er út-
flutningur á eldsncyti héðan
mögulegur,” segir Bragi Árnason.
Sjá nánar á bls. 22.
-ARH.
Hjóna með tvö börn
á skemmti-
ferðabáti leitað
— Fóru að þvíer bezt er vitað áleiðis til Ólafsvíkur
ígærmorgun
Skemmtisiglingabáts sem á cru hjón
með tvö börn er nú ákaft leitað. Ekki
hefur til hans spurzt síðan i gærmorgun
að siglt var frá Reykjavík að þvi er
talið er áleiðis til Ólafsvíkur og síðan í
Breiðafjarðareyjar.
Sagði Jóhannes Briem hjá SVFÍ i
morgun að enn hefði ekki náðst i neinn
sem vissi um nákvæma ferðaáætlun
bátsins, sem ber nafnið Sæljón. Ætlaði
eigandi bátsins að vera búinn að
hringja heim, en sú hringing hefur ekki
komið. Báturinn hefur 60 hestafla vél
og sigling til Ólafsvikur ætti ekki að
taka nema4—5 tíma. Rjómalogn hefur
verið á þessum slóðum allan tímann og
gæti því báturinn verið hvar sem er. í
bátnum er CB-talstöð, svo hann á að
geta látið til sin heyra.
Búið er að hafa samband við allar
hafnir á leiðinni til Ólafsvíkur án
árangurs. Gæzluvélin hefur flogið yfir
siglingaleiðina en hefur ekki orðið
neins vör ennþá. Skip og bátar á þess-
um slóðum hafa ekkert séð.
Sæljón er nýuppgerður bátur og er í
fyrstu för eftir þá standsetningu. Eig-
andi hans er ættaður að vestan og
stundaði þar áður sjó en býr nú i Kópa-
vogi.
Margir sportsiglingabátar eru nú á
Breiðafirði en enginn her r, svo vitað
sé, heyrt eða séð til Sæljón . en 'á.
ASl.
Lífskjör og lýðræði daglegs
Iffs — Sjá kjallaragrein Sigurðar Líndal
^ ábls.ll
Enginn nálgast Húsavíkur-
af rolr i A — sjá ökuleikniskeppni BFÖ
mremo 0gDBábis.5
Sól fyrir sunnan,
kalt fyrir norðan
Samaveðri
spáðáfram
„Við búmst við svipuðu veðri, að
minnsta kosti í dag og á morgun,”
sagði Gunnar Hvammdal veður-
fræðingur í morgun.
„Það er nóg af lægðum til en þær
virðast ekki stefna hingað í bili. Svo
áfram verður léttskýjað á Suðvestur-
og Vesturlandi en aftur á nióti skýjað
og jafnvel þokuloft á Norðaustur- og
Austurlandi. Áfram verður kalt fyrir
norðaustan. Það breytist ekki fyrr en
við fáurn virkilega djúpa lægð með
nógu af heitu lofti. En slik lægð
myndi fyrst og fremst þýða mikla
rigningu á Suðvesturlandi. Og ekki
fer að hlýna fyrir norðan fyrr en fer
að rigna hér,” sagði Gunnar.
Helgarveðrið á suðvesturhorninu
var með eindæmum gott. Sólin skein
í heiði allan laugardaginn og á sunnu-
daginn frá klukkan þrjú. Enda var
umferð mjög mikil út fyrir Rcykjavik
og hvarvetna í borginni lá fólk í
sólbaði. Árangurinn mátti sjá i gær-
kvöld þegar sólbrún andlit og jafnvel
sólbrennd, blöstu við hvert sem litið
var. Þó ljótt sc að segja það
Norðlendinga vegna vonast liklega
meirihluti landsmanna cftir sama
veðri miklu lengur. -DS.
Ralf krossá Kjalarnesi:
Formaðurinn sigraði
ónnur rall-kross keppni Bif-
reiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur fór
fram i landi Móa á Kjalarnesi í blið-
skaparveðrí á laugardaginn.
Sigurvcg' i keppninnar varð
Árni Árnason, ormaður klúbbsins.
Hann ók Volkswagen og bezti tími
háns var 5.08 mínútur. Annar varð
Hjörtur B. Jónsson á Fíat 128. Bczti
timi hans var 6.46 minútur.
Þriðji í röðinni varð Rúnar Hauksson
á Volkswagen. Bezti tími hans var
7.28 mín.
Keppni þessi gefur stig til fslands-
meistaramótsi rall-krossi.
-GM.