Dagblaðið - 23.07.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1979.
3
Hlustendakönnunin:
Rothögg á klassísku
tónlistardeildina
Útvarpseyra skrifar:
Þá er seinni hluti hlustenda-
könnunar útvarpsins kominn fram.
Mér er sagt að niðurstöðumar séu
algjört rothögg á klassísku tónlistar-
deildina; það hefur semsé komið á
daginn að nær enginn hlustar á
„þungu” tónlistina, sem tekur mest
pláss í útvarpinu. Aftur á móti er
mikið hlustað á létta tónlist.
Er það f rétt að
kona velti bfl?
Ásdis Kvaran og Hildur Bjarna-
dóttir hringdu og kvörtuðu yfir því
að í frétt DB um steypubílinn sem
valt í Ártúnsbrekku hafi sérstaklega
verið tekið fram að bílstjórinn var
kona. Telja þær þaðósmekklegt. Þær
spyrja af hverju ekki sé tekið fram
sérstaklega að karlar velti bílum?
Ætlar jafnréttið aldrei að nást?
ÍSLENZKIR
FÁNAUTIR Á
STEYPURÖRI
— Er það löglegt? ..
Nú verður gaman að sjá hvernig
ráðamenn útvarpsins bregðast við.
Verður niðurstöðunum stungið undir
stól? Verður reynt að gleyma þeim?
Eða verður rækilega hreinsað til?
Mig minnir að formaður út-
varpsráðs, Ólafur R. Einarsson, hafi
einhverju sinni sagt í blaðaviðtali að
tillit yrði tekið til hlustenda-
•könnunarinnar. Ég hef ekki trú á
öðru en að Ólafur sé maður orð-
heldinn. En ég er viss um að mót-
staða verður ákaflega hörð því
sinfóníuliðið hefur hreiðrað notalega
um sig niðri á Skúlagötunni.
Hlustendur bíða i eftirvæntingu. .
Ætli það verði minna sent út af klassiskri tónlist nú cftir að niðurstöður hlust-
endakönnunar eru komnar fram?
Guðmundur Ingi Guðmundsson
hringdi:
Á leikvellinum Staðarborg hér við
Háagerði er gamalt steypurör sem
ætlað er krökkum til leikja. Þetta
rör var á sínum tíma málað í
íslenzkum fánalitum og nú er verið
að endurmála það.
Þetta hefur farið óskaplega í
taugarnar á mér. Ég fæ ekki betur
séð en að þetta sé brot á íslenzku
fánalögunum og vildi gjarnan að
þetta yrði stöðvað.
Aldrei séð
flösku
springa
Þórir Steingrímsson hringdi:
Vegna skrifa í DB um lítraflöskur
sem hafa sprungið vil ég taka það
fram að eftir átta ára dagleg kynni af
slíkum flöskum hef ég aldrei orðið
var við að þær spryngju.
Ef eitthvað slíkt hefur borið við
held ég að skýringin sé sú að þær séu
geymdar í of miklum hita i verzlun-
um, stundum alveg við ofn. Þær eiga
auðvitað að vera i kæli.
Er Sumar-
gleðin
að blekkja
fólk?
Axel Guðlaugsson, Þorlákshöfn,
hringdi:
Þeir sem standa að Sumargleði
1978 (Ragnar Bjarnason o. fl.)
auglýsa að vinningur á skemmtun
þeirra sé sólarlandaferð fyrir tvo. En
þegar málið er athugað kemur upp úr
dúmum að þetta er bara gabb.
Vinningurinn nægir ekki einu sinni
fyrir sólarlandaferð fyrir einn, það
þarf að bæta tuttugu þúsund krónum
við.
Af hverju er þá auglýst að
vinningurinn sé fyrir tvo? Er verið að
blekkja fólk?
HOOVER
ekki bara ryksuga...
Teppahreinsarinn frá HOOVER ekki aðeins
ryksugar teppið, hann hreinsar að-auki ur því
margskonar önnur óhreinindi sem ryksuga nær
ekki eins og t.d. • Klístur *Þráðarenda
• Dýrahár • Sand úr botni
• Bakteriumyndandi sveppa- og gerlagróður
Jafnframt ýfir hann flosið svo að teppið er ætíð
sem nýtt á að líta, og það á jafnt við um
snöggtsem rya. Fjölþætt notagildi fylgihluta.
Og það er staðreynd að teppið endist þér lengur.
HOOVER
ég banka.bursta
og sýg...
. .
'
' «|
I
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
®
FÁLKINN
1904-1979
Spurning
dagsins
Hefur þú borðað
skjaldbökusúpu?
Gunnar Götze hagfrseðingur: O sei sei
já og það var hjá henni Eufemínu heit-
inni föðursystur hérna um árið. Hún
bar hana fram kalda.
Þorvaldur Guðmundsson, vélstjóri:
Nei, skjaldbökusúpu hef ég aldrei
smakkað þó ég telji mig hafa nokkra
hugmynd um hvernig hún bragðast.
Borghildur Jónsdóttir, starfar I Ing-
ólfsapóteki: Nei, aldrei og hef ekki
hugmynd um hverslags blanda það er.
Guðmundur Hannesson, rekstrarhag-
fræðingur: Nei, hana hef ég aldrei
bragðað en geri ráð fyrir að þetta sé
súpa af skjaldbökukjöti.
Helga Ásmundsdóttir, húsmóðlr: Nei,
það heid ég bara ekki og gæti tæplega
hugsað mér að gera þaö.
Einar Gunnar Einarsson, 10 ára (að
verfla 11): Nei — nei, en ég er í Breiða-
gerðisskóla á vetuma.