Dagblaðið - 23.07.1979, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
16
Iþróttir
Iþróttir
Meistaramótunum
lauk um helgina
—sigurvegararnir í meistaraf lokki höfðu alls staðar yf irburði
Meistaramólum golfklúbbanna lauk
um helgina og var ætlunin aö hafa alla
stærstu klúbbana með i upptalningunni
hér að neöan, en ekki tókst að hafa
uppi á úrslitunum frá Akureyri. Þó
vitum við að þar vann Björgvin Þor-
steinsson næsta örugglega eftir að hafa
náð 11 högga forskoti strax á 1. degi
meistaramótsins. Nokkuð var um þaö
— einkum og sér i lagi i meistaraflokki
að efsti maður hefði umtalsverða yfir-
burði og kunnum við að sjálfsögðu
engar skýríngar á þvi, en hér koma úr-
slitin.
Meistaramótinu hjá GR lauk um kl.
17 í gærdag og var þátttaka t.d. fremur
dræm í meistaraflokki (náði ekki 10
kepepndum) en í öðrum flokkum var
þátttakan allt frá því að vera sæmileg,
upp i það að vera mjög góð.
Meistaraflokkur karla
högg
óskar Sæmundsson 303
Hannes Eyvindsson 305
Ragnar Ólafsson 314
1. flokkur
Jón Þór Ólafsson 330 högg
2. flokkur
Hörður Thorarensen 346högg
3. flokkur
JónCarlsson 352 högg
Meistaraflokkur kvenna
Sólveig Þorsteinsdóttir 253 högg
Jóhanna Ingólfsdóttir 264 högg
I. flokkur kvenna
Steinunn Sæmundsdóttir 282 högg
l'nglingaflokkur
Jónas Kristjánsson, 347högg
Drengjaflokkur
ívar Hauksson 23lhögg
Hjá Golfklúbbnum Keili lauk.
keppninni á laugardagskvöld og voru
verðlaun afhent þá um kvöldið við
skemmtileg athöfn. Ágætis þátttaka
var hjá þeim í flestum fl. Sigurður
Héðinsson og hans fjölskylda kom
mjög við sögu í mótinu. Sigurður
sjálfur vann 1. flokkinn næsta örugg-
lega, kona hans, Lóa Sigurbjörnsdóttir
varð 2. í kvennaflokki og sonur þeirra
hjóna, Héðinn Sigurðsson, sem varð 15
ára gamall á laugardaginn, vann
drengjaflokkinn. Það er þvi óhætt að
segja að þau hafi komið, séð og sigrað
á mótinu, en annars urðu úrslit sem hér
segir:
Meistaraflokkur karla
högg
Július R. Júliusson 315
Sigurður Thorarensen 323
Magnús Halldórsson 327
Sveinn Sigurbergsson 332
Sigurjón Gislason 332
Karl Hólm 359
1. flokkur högg
Sigurður Héðinsson 326
Sveinbjöm Bjömsson 3t6
Knútur Björnsson 345
Eirikur Smith 347
Friðbjörn Hólm 350
Gísli Sigurðsson 350
örn Isebarn 357
Kári Knútsson 358
2. flokkur högg
Sæmundur Knútsson 338
Jens Karlsson 357
Elias Einarsson 376
Ragnar Jónsson 377
Ágúst Húbertsson 378
Rafn Sigurðsson 380
Jón Halldórsson 383
Donald Jóhannesson 384
3. flokkur högg
Steingrímur Guðjónsson 343
Þórður Stefánsson M6
Guðbrandur Sigurbergsson 356
Helgi Gunnarsson 3u>
Jón Friðjónsson 364
Oddur H. Oddsson 374
Þórir Ólafsson 381
Karl Þormar 383
Kvennaflokkur högg
Kristín Pálsdóttir 275
Lóa Sigurbjörnsdóttir 315
Hanna Aðalsteinsdóttir 326
Margrét Guðjónsdóttir 340
Drengjaflokkur högg
Héðinn Sigurðsson 158
Gunnar Halldórsson 159
Helgi Eiríksson 176
Kristján Hansson 179
Jón H. Garðarsson 179
Jón E. Ragarsson 181
Gísli Þór Sigurbergsson 186
Guðmundur Sveinbjörnsson 191
Stúlknaflokkur högg
Ásdis Geirsdóttir P2
Þórdís Geirsdóttir 244
Sigrún Sveinbjörnsdóttir 363
Sveinn Sigurbergsson átti bestu 18
holurnar í meistaraflokki karla er hann
lék á 75 höggum síðasta daginn. Það
voru fleiri en fjölskylda Sigurðar
Héðinssonar sem hirtu verðlaun. Svein-
björn Björnsson varð 2. í 1. flokki,
kona hans, Kristán Pálsdóttir, vann
kvennaflokkinn örugglega og kornung
dóttir þeirra, Sigrún, er þegar farin að
sveifla kylfunni eins og sést í stúlkna-
flokknum
Keppni í Nesklúbbnum lauk einnig á
laugardagskvöldið. Jón Haukur
Guðlaugsson sigraði þar með miklum
yfirburðum, en þátttaka var góð á
Nesinu miðað við hjá mörgum öörum
klúbbum.
Meistaraflokkur karla
Jón Haukur Guðlaugsson högg 297
Magnús Stefánsson 312
Atli Arason 323
Loftur Ólafsson 325
Ægir Ármannsson 325
Gunnlaugur Jóhannsson 328
Tómas Holton 328
TJOLD, TJALDHIMNAR,
SÓLTJÚLD 0G TJALDDÝNUR
Framleiðunt allar geröir al tjoldum á hagstæðu verði, m.a.:
5—6 manna
3 manna Póstsendum um allt land.
5 gerðir af tjaldhimnum.
— Seljum einnig ýmsan tjaldhimað t.d.
— Sólstöla, kælibox, svefnpoka og leiktjöld.
Kontið og sjáið tjöldin uppsett í hinum nýju glæsilegu húsakynnum að
Fyjagötu 7, Orfirisey.
SEGLAGERÐIN ÆGIR
F.yjagötu 7, Orfirisey - Reykjavlk — Simar 14093 og 13320
Kjartan L. Pálsson
1. flokkur
Jóhannes Gunnarsson
Jón Ámason
Gunnar Pétursson
Jóhann Einarsson
Kristinn Bergþórsson
2. flokkur
Sveinn Svcinsson
Hannes Hall
Hákon Guðmundsson
Siguröur Runólfsson
Jóhann Gunnlaugsson
3. flokkur
Sigvaldi Ragnarsson
Ólafur Björgúlfsson
Magnús Steinþórsson
Ólafur ólafsson
Ágúst Ingi Jónsson
Gunnar Haraldsson
Meistaraflokkur kvenna
Ásgerður Sverrisdóttir
Kristine Heide
Dóra Bergþórsdóttir
1. flokkur
Unnur Halldórsdóttir
Friða Sigurjónsdóttir
Þórdis Jóhannsdóttir
Unglingaflokkur
Gunnar Heimisson
Þórarinn Oddsson
Jóhanncs Óskarsson
högg
332
333
334
339
341
högg
345
364
369
370
370
högg
357
371
378
387
390
390
högg
279
299
320
högg
211
224
239
högg
330
349
361
Meistaramótinu hjá Golfklúbbi
Suöumesja lauk í gærkvöldi og þar var
góð þátttaka í góða veðrinu eins og á
flestum öðrum stöðum. Gamla kempan
Þorbjörn Kjærbo lætur ekki að sér
hæða og hann sigraði næsta örugglega í
meistaraflokknum en hér koma úr-
slitin:
Meistaraflokkur
högg
Þorbjörn Kjærbo 306
Páll Ketilsson 317
ÞórhallurHólmgeirsson 319
I. flokkur
högg
Helgi Hólm 333
Guölaugur Kristjánsson 336
Jóhann Ðenediktsson 337
• -Tft
Það er ekki amalegt aó hafa sllkar dömur I sinum röðum. Þetta eru þær Sólveig Þor-
steinsdóttir (t.v.) og Jóhanna Ingólfsdóttir. Þær urðu númer eitt og tvö i kvenna-
flokknum hjá GR, sneru dæminu við frá i fyrra en þá vann Jóhanna. DB-mynd S-
2. flokkur
högg
Georg V. Hannah 358
Annel Þorkelsson 362
Guðfínnur Sigurvinsson 379
3. flokkur högg
Rúnar Valgeirsson 386
Halldór Þorkelsson 397
Þórhallur Guðjónsson 404
Öldungaflokkur högg
Hólmgeir Guðmundsson 75
Þorvarður Arinbjamarson 94
Jóhann Hjartar 97
Kvennaflokkur
Eygló Geirdal
Kristin Sveinbjörnsdóttir
Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir.
Það voru fjölskyldur í golfinu víðar
en á Hvaleyrinni. „öldungurinn”
Hólmgeir Guðmundsson átti 3 af-
komendur i meistaramótinu, auk þess
að keppa sjálfur. Þórhallur sonur hans
varð 3. i meistaraflokki og dóttir hans,
Hafnhildur varð 3. í kvennaflokki. Þá
átti hann einn son, sem ekki varð alveg
í toppnum í 1. fiokki.
Kristín Sveinbjörnsdóttir hefur fram
til þessa getið sér gott orð í óskalögum
sjúklinga, en nú sleppti hún míkrófón-
inum um stund og sveiflaði kylfum í
staðinn og gekk bara ágætlega. Keppt
var með dálítið öðruvísi fyrirkomulagi
hjá konunum en tíðkast og því högga-
fjöldi ekki gefinn upp. Mikið var um
nýliða og því þessi háttur hafður á.
Skagamenn luku ennfremur keppni
í sínu meistaramóti í gærkvöldi og það
var Björn H. Björnsson sem þar varði
titil sinn frá i fyrra og gerði það á yfir-
vegaðan hátt eins og honum er einum
lagið. Þátttaka á Akranesi var með
allra bezta móti og undirstrikar þar eins
og annars staðar á landinu að golfið er í
geysilegri sókn.
Meistaraflokkur
högg
Björn H. Bjömsson 302
ómaröm Ragnarsson 318
Guðni öm Jónsson 324
1. flokkur högg
Gunnar Júliusson 341
Reynir Þorsteinsson 346
Ævar Sigurðsson 383
2. flokkur högg
Rúnar Hjálmarsson 361
Alfreð Viktorsson 363
Sören Madsen 367
3. flokkur
högg
Sveinn Þórðarson 374
Sigvaldi Jónsson 398
Jón Svavarsson 400
Kvennaflokkur högg
Elin Hannesdóttir 214
Guðbjörg Árnadóttir 243
Sigríður Yngvadóttir 260
Unglingaflokkur högg
Víðir Pálmason 417
Ægir Sigvaldason 450
Drengjaflokkur högg
Leó Ragnarsson 356
Sigurdór Sigvaldason 384
Þórhallur Ingason 391
Gunnar Júlíusson, sem sigraði i 1.
flokki er bróðir Júlíusar hjá GK.
Björn H. Björnsson og Þórhallur Inga-
son eru systkinabörn þannig að af
þessu má glöggt sjá að það eru víða
fjölskyldubönd í golfinu.
Eyjamenn luku sínu meistaramóti á
laugardagskvöld og þar sigraði ungur
piltur, Gylfi Garðarsson, með
glæsibrag. Lék hann á 284 höggum,
sem er langbezta skorið sem við höfum
frétt af í klúbbunum. Hann setti
vallarmet er hann lék á 68 höggum —
þar af fyrri 9 holurnar á 31 höggi. Skor
hans, 284, er það langbezta, sem
nokkurn tíma hefur náðst í Eyjum, og
kalla þeir þó ekki allt ömmu sína þar
Meistaraflokkur
högg
Gylfi Garöarsson 284
Haraldur Júlíusson 293
Atli AÖalsteinsson 300
Hallgrímur Júliusson 300
1. flokkur
högg
Grímur Magnússon 323
Eyþór Harðarson 323
Sighvatur Amarsson 333
2. flokkur
högg
Arnar Ingólfsson 377
Sigurður Guðmundsson 378
Tómas Baldvinsson 389
Meistaraflokkur kvenna
högg
JakobínaGuðlaugsdóttir 334
Sigurbjörg Guðmundadóttir 352
1. flokkur
Krístin Einarsdóttir 433 högg
í Eyjum, rétt eins og hjá GS, var
ekki keppt sérstaklega í unglingaflokki
þar sem flestir þeirra unglingar eru það
góðir orðnir að þeir geta allt eins keppt
í meistara- eða 1. flokki. -SSv.