Dagblaðið - 23.07.1979, Page 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1979.
25
/
Þeir eiga líka sinn
Ámagarð á Akureyri
—Þar er oft dágóð silungsveiði og dregin hefur verið
^ á land níu punda bleikja
Þeir á Akureyri eiga líka sinn
Árnagarð ekki síður en Reykvíking-
ar. En töluverður munur er á Árna-
görðunum tveimur. Þessi á Akureyri
er uppfylling úr grjóti og möl og
gengur rúma 300 metra þvert út í
Akureyrarpoll í stefnu á strönd Þing-
eyjarsýslu austan fjarðarins.
Árnagarður á Akureyri heitir eftir
Árna Árnasyni, forstjóra Norður-
verks. Það fyrirtæki sá um byggingu
Drottningarbrautar, hinnar glæsilegu
innreiðargötu til Akureyrar þegar
komið er frá flugvellinum. Hluti
verksins var að byggja þennan varn-
argarð úr grjóti og möl til að varna
því að sjór gerði strandhögg í
Drottningarbrautina.
Nú er Árnagarður afar vinsæll af
sportveiðimönnum, sem flykkjast
þangað daglega með veiðistangir
sínar og geta lent í því að draga silung
grimmt. Einn daginn í vor fékk einn
veiðimannanna 9 punda bleikju á
garðsendanum. Sú bleikja hefur
möguleika á að verða verðlauna-
bleikja, því hún veiddist með Abu
veiðarfærum og það firma
verðlaunar stórfiska sem á veiðar-
færin fást, og níu punda bleikja á
Akureyrarpolli telst að sjálfsögðu til
stórfis ka.
Við snerum okkur að virðulegum
eldri manni er leið DB-manna lá út á ;
garðinn fyrir nokkru. Hann reyndist
vera Jóhann Valdimarsson, sem nú er
gjaldkeri hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar. Hann á nokkuð lit-
ríkan æviferil og er tengdur Eyja-
firðinumsterkum bönduni. í 24 ár bjó
Jóhann á Möðruvölium i Eyjafirði og
veiddi þá oft silung í Eyjafjarðará.
Síðan rak hann bókabúð í sinu nafni
á Akureyri í tíu ár og enn ber hún
nafn hans. Fyrir 13 árum fór hann
til Reykjavíkur en þegar kona hans
lézt vildu börnin fá hann norður. Nú
kemur hann minnst tvisvar á ári og
Árnagarður er eitt af aðal-
tómstundagamni hans í þessum
„heimferðum” hansí Eyjafjörð.
Jóhann var búinn að fá fallega
bleikju er okkur bar að Ámagarði, en
tveggja tíma dvöl þar árdegis þennan
Á enda Árnagarðs stóð Jóhann Valdimarsson, fyrrum bóndi og bóksali, og hafði
nýlega dregið 2ja punda bleikju.
DB-myndir Hörður.
Skammt frá stóð Jón Lárus lngvarsson, kyndari I Krossanesi, og kastaði án
árangurs. Uti við Krossanes leggja þeir silungsnet og fá allt að 6 fiska i net, þetta
hálfs annars til fjögurra punda fiska.
umrædda dag hafði engan árangur
borið.
Árnagarður á Akureyri er sann-
kölluð paradís sportveiðimanna og
eru Akureyringar sannarlega öfunds-
verðir af þessu mannvirki þó ekki láti
það mikið yfir sér. Höfnersbryggja á
líka sínar vinsældir en þar er einnig
oft hægt að sjá hóp sportveiðimanna.
-ASt.
1 A /-**■ - .
í blíðviðrinu á föstudaginn sýndu nokkur ungmenni nýjustu tízku á Lækjartorgi. Mæltist
þetta vel fyrir og fylgdist fjöldi manna með. DB-mynd Árni Páll.
Séð eftir Árnagarði frá enda hans að Akureyrarströnd. Garðurinn er um eða yfir
300 metra langur.
OPID
KL. 9-9
Allar skraytingar unnar
mölnum
■f j
Nca* bllas*«a>l a.n.k. 6 kveldia
•HIOMLAVIXIIH
HAFNARSTRÆTI Simi 12717
22 feta hraðbátur af
TEA L - Fisherman tf/sölu
Dísilvél og Volvo-Penta
Aquamatic drif. Samskonar
bátur varð sigurvegari í sjóralli
DB og Snarfara í ár og i fyrra.
Uppl. í síma 53755 og 52774 á
kvöldin og um helgar.
Munið frímerkjasöfnun
Geðverndar
Innlend og erlend frímerki. Gjarna umslogin heil,
einnig véistimpluð umslög.
Pósthólf 1308 efla skrifstofa fél. Hafnarstræti 5,
simi 13468.
Réttu
dælurmr
JP445
ryðfríu,
sjátfvirku
vatnsdælurnar
nýkomnar.
Verð
kr. 106.727.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
ÍSLEIFS JÓNSSONAR HF.
BOLHOLTI4 - S'IMI 36920