Dagblaðið - 23.07.1979, Síða 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1979.
VESTFJARÐA
Danshljómsveit Vestfjarða hefur
tekið nokkrum breytingum upp á síð-
kastið. Meðal annars er söngkona
gengin til liðs við hljómsveitina og
Rúnar Þórisson gítarleikari er kom-
inn til ísafjarðar aftur og farinn að
spila upp á kraft á nýjan leik. Hann
lék með hljómsveitinni Tívolí í
Reykjavík um nokkurt skeið í vor.
„Við erum búin að leika með
þessari nýju mannaskipan í fjórar
vikur,” sagði Rafn Jónsson,
trommuleikari, er Dagblaðið ræddi
við hann um hljómsveitamál á Vest-
fjörðum. „Við ætlum þó ekki að
starfa saman nema fram yfir miðjan
ágúst. Þá tökum við okkur frí og
hvílum okkur fram að vetrarver-
tíðinni.”
Danshljómsveit Vestfjarða er nú
skipuðeftirtöldu fólki:
örn Jónsson (bassi), Rúnar
Þórisson (gítar), Vilberg Viggósson
(hljómborð), Ásdís Guðmundsdóttir
(söngur), Hörður Ingólfsson (hljóm-
borð og bongótrommur) og Rafn
Jónsson (trommur).
Að sögn Rafns er allt óráðið með
hvernig Danshljómsveit Vestfjarða
mun starfa í vetur. í fyrra héit hún sig
svo til eingöngu við Félagsheimilið í
Hnífsdal og taldi Rafn líkur á að svo
yrði einnig í vetur.
,,Það hefur ótal kosti að vera
svona á sama stað,” sagði hann.
„Við höfum þarna gott kaup og
spörum okkur auk þess allan burð og
aðra fyrirhöfn.”
í sumar mun Danshljómsveitin
væntanlega halda sig mestmegnis á
heimaslóðum. Þó sagði Rafn að til
greina kæmi að skreppa eitthvað út
fyrir Vestfjarðakjálkann ef svo bæri
undir.
Tveir af liðsmönnum hljómsveit-
arinnar, sem léku með henni síðast-
liðinn vetur eru nú í fríi. Sven Arve
Hovland slappar af einhvers staðar
úti i heimi og Reynir Guðmundsson,
söngvari, hvílir raddböndin fram á
haustið að minnsta kosti.
-ÁT-
DANSHLJÓMSVEIT
VESTFJARÐA
— Starfar í núverandi mynd
fram yfir miðjan ágúst.
Þursaflokksplötur á
Danmerkurmarkað
Hljómleikaferöir eru
íundirbúningi
Eitt hundrað eintök af plötunni
Þursabit hafa verið sendar til Dan-
merkur þar sem plöturnar verða seld-
ar i verzlunum. Að sögn Björns
Valdimarssonar útgáfustjóra hjá
Fálkanum, verður jafnvel fleiri
plötum dreift þar ytra í næsta
mánuði.
Þursaflokkurinn hefur nú haldið
nokkra tónleika í Danmörku. Fyrir
nokkru kom hljómsveitin fram í
danska útvarpinu. Sá þáttur varð
kveikjan að þvi að ákveðið var að
gefa Dönum kost á að eignast Þursa-
bit — nýjustu plötu flokksins. Þá
hefur útgáfufyrirtækið EMI í Dan-
mörku í hyggju að skipuleggja tón-
leikaferð Þursaflokksins um landið í
ágúst.
Að sögn Björns Valdimarssonar
er ýmislegt að gerast -hjá Þursa-
flokknum um þessar mundir. í lok
ÞÚRSAFLOKKURINN — Verið getur að hijómsveitin fari f hijómieikaferð um Danmörku i ágúst og Hollandsferð i
september er i undirbúningi. DB-mynd: Sigurjón Sighvatsson.
listahátið í Helsinki, höfuðborg
mánaðarins kemur flokkurinn fram á Finnlands. Þá er áformað að hljóm-
sveitin fari í þriggja vikna hljóm-
leikaferðalag um Holland í septem-
ber og skemmti á æskulýðsheimilum
víðs vegar um landið. -ÁT-
HUOMSVEITIN HVER SÆKIR
FÆREY-
INGAHEIM
Hljómsveitin Hver frá Akureyri
hyggst dvelja næstu vikuna í Fær-
eyjum við hljóðfæraslátt og söng.
Aðallega skemmtir Hver í Þórshöfn,
en mun j afnframt leggja leið sína eitt-
hvað út á landsbyggðina.
„Það er ekki endanlega frá því
gengið, hvort við leikum í Þórshöfn á
Ólafsvökunni,” sagði HUmar Þór
Hilmarsson, einn liðsmanna hljóm-
sveitarinnar er DB ræddi við hann á
föstudagsmorguninn. Þá var Hver að
tygja sig til fararinnar og hugðist
nota Smyril til að ferja sig milli
landa. Til baka kemur hljómsveitin
síðan með flugvél og hyggst þá dvelja
nokkra daga í Reykjavík og skemmta
borgarbúum.
Að sögn Hilmars Þórs er þessi
Færeyjaferð hljómsveitarinnar ekki
HVER frá Akureyri — Hljóm-
sveitin verður í Færeyjum á
Olafsvökunni, en óvíst er hvort
hún ieikur í höfuðstaðnum, Þórs-
höfn, þann dag. I bakaleiðinni
kemur Hver við í Reykjavík.
farin í ábataskyni heldur einungis
fyrir ánægjuna.
„Það er mjög dýrt fyrirtæki að
fara í ferð sem þessa,” sagði hann.
,,Við gerum okkur ánægð með að
komaslétt út.”
í hljómsveitinni Hver starfa nú
auk Hilmars þau Steingrímur ÓU
Sigurðsson, Arnheiður Ingimundar-
dóttir, Þórhallur Kristjánsson, Leifur
Hallgrímsson og Baldur Pétursson.
Þannig skipuð hefur hljómsveitin
starfað síðan í byrjun júní. Upphaf-
lega var Hver skólahljómsveit
Menntaskólans á Akureyri og hefur
starfað með sama kjarnanum síðast-
liðið hálft þriðja ár.
Að sögn Hilmars Þórs Hilmars-
sonar hefur Hver aðallega haldið sig
við samkomunúsin a l'IUl UUI ióliuiy
þar til nú er hljómsveitin heimsækir
Færeyjar og síðar Reykjavík
,,Við reiknum með aðhalda tam
að spila út ágúst og jafnvel Iram í
september,” sagði hann. ,,Þú mátt
geta þess í leiðinni að okkur vantar
ciiuivau aogera um verzlunarmanna-
helgina.”
Tveggja laga hljómplata Hvers
kemur á markaðinn í dag eða á
morgun. Frá henni hefur áður verið
sagt á poppsíðu Dagblaðsins.
-ÁT-
NYANDUTI
DANSHUÓMSVEIT