Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980. Leiðtogar íþróttamála í heiminum hittast í Sviss: Moskvuleikarnir í kastljósinu — Sovétmenn segja að aðeins 10 ríki hætti við þátttöku í ólympíuleikunum Forystumenn íþróttamála í heimin- um hittast í dag i Lausanne í Sviss og reyna að komast að þvi hve mörg riki af' þeim 143 sem eiga þátttökurétt á ólympíuleikunum í Moskvu ætla að taka þátt í þeim. Þeir munu sitja þriggja daga fund um málið. Þá munu jafnhliða verða haldnir fundir alþjóða ólympiunefndarinnar með fulltrúum íþróttasambanda, svo og með fulltrú- um ólympíunefnda sem annaðhvort hafa lýst sig fylgjandi eða ekki fylgj- andi þátttöku i Moskvuleikunum. Nú er ljóst að Bandaríkin taka ekki þátt í sumarólympíuleikunum. Ólympíunefndin þar i landi ákvað fyrir skömmu að taka áskorun Carters for- seta um að hundsa þá í mótmælaskyni við innrás Sovétríkjanna i Afganistan. Sovétmenn segja að þegar liggi fyrir bein eða óbein staðfesting á þátttöku frá 106 ríkjum. Aðeins 10 riki hafi formlega boðað forföll. Hvað sem því liður er Ijóst að mörg ríki hafa ekki ákveðið afstöðu sína til Moskvuleik- anna og vilja draga það fram í maí að taka ákvörðun. Væntanlegir þátttak- endur í ólympíuleikunum verða að til- kynna það fyrir 24. maí. Frakkland og önnur NATO-ríki biða átekta eftir því hvað Vestur-Þýzkaland gerir í málinu. Ef Vestur-Þjóðverjar ákveða hundsun á leikunum má búast við þvi að mörg ríki fylgi í kjölfarið. Syndabaggi Nixons karlsins þyngist enn: Var á dagskrá að myrða Agnew? Spiro Agnew fyrrum varaforseti Bandaríkjanna segist hafa sagt af sér embætti árið 1973 af ótta við að verða myrtur af útsendurum Nixons forseta. Það var blaðið Baltimore News American sem birti fréttir þess efnis í gær. Sagt er að Agnew hafi túlkað skilaboð frá Alexander Haig þáver- andi aðstoðarmanni Bandarikjafor- seta sem „augljósa hótun”. Agnew sagði af sér þegar Watergate-hneyksl- ið var í hápunkti. Hann hafði þá verið sakaður opinberlega um skatt- svik en gerði litla tilraun til að bera hönd fyrir höfuð sér. Kærur um enn frekari fjármálaafbrot voru látnar niður falla. „Ég óttaðist um líf mitt,” skrifar Spiro Agnew: Sagði hann af sér ein- göngu vegna ásakana um skattsvik eða var morðhótun 1 spilinu? varaforsetinn fyrrverandi i endur- minningum sínum sem eiga að koma út i bókarformi eftir einn rnánuð. „Ef ákvörðun lá fyrir um að koma mér fyrir kattarnef: í bílslysi, með sviðsettu sjálfsmorði eða á annan hátt, þá hefðu orsakirnar ekki verið raktar til Hvíta hússins. Sóknaraðilar og Elliot Richardsson saksóknari, sem stjórnaði rannsókn i niáli Agnews, hafa brugðizt hart við ásökunum hans og kallað þær hlægi- legar” og „heimskulegar”. Spiro Agnew er nú 61 árs að aldri og býr i Kaliforniu. Þar starfar hann sem tengiliðurí samningum fjármála- manna í Bandaríkjunum við erlend riki, einkum arabaríkin og 3ja heims riki. Verðtrygging spariskírteina ríkissjóðs byggist nú á raunhæfustu vísitöluviðmiðun sem völ er á — lánskjaravísitölunni. Lánskjaravísitalan miðast að 1/3 við byggingarvísitölu og 2/3 við framfærsluvísitölu, og eru hún reiknuð út og birt mánaðarlega. Þannig geta eigendur spariskrteina nú fylgst með verðgildi þeirra og vexti frá einum mánuði til annars. Lánskjaravísitalan verðtryggir spariskírteinin að fullu. Vandfundin er öruggari fjárfesting. Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru til sölu nú. SEÐLABANKI ÍSLANDS Bandaríkin: Hervaldi verði beittííran Skoðanakannanir I Bandaríkjunum sýna að tveir af hverjum þremur lands- mönnum eru fylgjandi þvi að hervaldi verði beitt til að frelsa úr haldi gislana I sendiráðinu í Teheran. Brezkur ráð- herra hefur um helgina sagt að stjórn sin mundi þrýsti á að Efnahagsbanda- lagsrikin sameinist um refsiaðgerðir gegn íran. Tékkóslóvakfa: Norskir glímu- kapparfóru ífússi Norska landsliðið i fjölbragðaglímu yfirgaf í fússi Evrópumót í glimu í Prie- vidza í Tékkóslóvakiu í mótmæla- skyni við þá ákvörðun iþróttasambnds Noregs að hundsa sumarólympiuleik- ana í Moskvu. Kjell Osfoss, fararstjóri Norðmannanna, sagði að ákvörðun þeirra um að hætta við þátttöku í mótinu væri einungis tekin i mótmæla- skyni við gerðir forystu íþrótta- hreyfingarinnar i Noregi en beindust ekki gegn Alþjóða glímusambandinu eða tékkneskum yfirvöldum. Osfoss sagði að í boðskap norskra iþróttafrömuða fælist tvískinnungur sem glímumenn gætu engan veginn sætt sig við. Annars vegar væri talað um að hundsa Moskvuleikana, hins vegar að skaða ekki íþróttasamskipti viðSovétrikin. Svíþjóð: Óveður um helgina Hávaðarok og snjókoma olli miklu tjóni og erfiðleikum í suður- og miöhluta Svíþjóðar um helgina. Vegna veðurs fóru áætlunarferðir farartækja á sjó, lofti og á landi úr skorðum. Rúður í verzlunum og íbúðarhúsum brotnuðu i Málmey. Þá fauk þak af fjölbýlishúsi í nágrannabænum Eloev. Eerjuferðir milli Danmerkur og Svi- þjóðar lögðust niður um tíma og hundruð bíla sátu fastir á vegum vegna fannkomunnar. Spassky - Portisch: Jafntef li enn Portisch og Spassky sömdu um jafn- tefli eftir 44 leiki í 8. einvígisskák þeirra. Skákin hafði farið i bið eftir 40 leiki. Portisch heldur því óskertu eins vinnings forskoti sínu og þarf aðeins jafntefli úr tveimur næstu skákum til sigurs í einviginu. Portisch hafði heldur betur með hvítu mennina í 8. skákinni. Spassky varðist vel og tókst að halda jafntefli.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.