Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 36
Ófagrar lýsingar á einangrunarvist á Litla-Hr^uni: MARGAR FULLYRDING- AR FANGANS RANGAR — segir Þorsteinn Jónsson fulltrúi ífangelsismáladeild dómsmálaráðuneytisins Róstusamt hefur verið á Vinnu- hælinu að Litla-Hrauni að undan- förnu. Um kl. 23.45 að kvöldi föstu- dagsins langa neituðu 10—II fangar að fara í klefa sína fyrr en þeir hefðu fengið tækifæri til að ræða mál sín og jafnframt einangrun tiltekins sam- fanga þeirra. Þrir þessara fanga voru — eftir nokkurt þóf — settir í ein- angrun í fangelsinu, nokkrir læstir inni i klefum sinum og fimm fluttir i gæzluvarðhaldsfangelsið í Siðumúla i Reykjavík. - Einangrunarfanginn sem um ræðir hefur nú ritað dómsmálaráðuneytinu bréf, þar sem hann óskar. eftir að verða leystur úr einangruninni, krefst rannsóknar á meðferð fanga i ein- angrunarklefum og gefur ófagrar lýs- ingar á vistinni þar. Hann ber fanga- vörðum illa söguna og segir þá hafa í hendi sér hvernig farið sé með fang- ana. Þorsteinn Jónsson, fulltrúi í fang- elsismáladeild dómsmálaráöuneytis- ins, sagði í samtali við DB i morgun, að ráðuneytið hefði tekið afstöðu til hluta málsins. Það hefði t.d. verið skýlaust agabrot af hálfu fanganna að neita að fara i klefa sina á þeirri stundu sem um ræðir, og fangelsis- stjóra væri heimilt að grípa til viðeig- andi aðgerða gegn því. Verið væri að kanna sannleiksgildi ýmissa fullyrðinga fangans en þegar væri ljóst, að margar þeirra væru beinlinis rangar. Beðið væri skrif- legra skýringa fangelsisstjórans á til- teknum atriðum. Einangrunarklefarnir á Litla- Hrauni eru fjórir, um 180 x 250 cm að stærð og að verulegu leyti notaðir af Selfosslögreglunni undir drukkna menn. t þeim eru allir „innanstokks- munir” steyptir, hreinlætisaðstaða lítil sem engin og loftræsting i algjöru lágmarki. Bolungarvík: Pörupiltar læstu lög- regluna inni Tveir pörupiltar, sautján og átján ára, sóttu að fangageymslu lögregl- unnar i Bolungarvik aðfaranótt sunnudagsins i þeim tilgangi að reyna að leysa úr haldi félaga sinn sem þar var í geymslu. Tókst þeim um stund að halda tveim lögreglumönnum bæjarins inni i fangelsinu og meina þcim útgöngu. Ekki leið þó á löngu unz taflið snerist við og fór svo, eftir þvi sem næst verður komizt. að pörupiltarnir og lögrcglumennirnir höfðu vista- skipti og slóð svo enn þegar sjðast fréltist. Vegna þessa máls fóru tveir menn frá Rannsóknarlögreglu rikisins vestur til Bolungarvíkur siðari hluta dags í gær. Rannsökuðu þeir málið og liggur það i aðalatriðunt ljóst fyrir. -DS Ölvaðir á stolnum bíl Tvcir nítján ára piltar komust ttndan er lögrcglan í Kópavogi ætlaði að kanna hagi þeirra kl. 04.30 á laugardagsmorgun, en þa voru þcir i Toyotabíl. Hlupu þeir ftá bilnum og hurfu út i náttmyrkið. Annar fannst um klst. siðar en hinn á laugardaginn Þá hafði komið i Ijós að bilnum höfðu þeir stolið i Teigahvern t Reykjavik. Við yftrheyrslur kom i ljós að þeir höfðu framið innbrot i Sigtún um páskana og viðurkenndu stuld á 10 flöskum af áfengi og 6 vindlinga- lcngjum. Þá áttu þeir sök á öðrum bilþjófnaði viku áður. Báðir voru piltarnir ölvaðir og þvi brotlcgir við umferðarlögin. Einnig voru þeir réttindalausir. — -A.St., Smiðurféllaf þaki Tuttugu og ftmm ára gamall smiður liggur stórslasaður i sjúkra- húsi eftir vinnuslys sem varð við byggingu Framkvæmdastofnunar rikisins á mótum Stórholts og Rauðarárstigs klukkan rúmlega tvö i gær. Voru smiðir þar að vinna við að klæða þakið og fóru vægast sagt heldur óvarlega. Að sögn lögregl- unnar var búið að leggja óneglda klæðningu á þakið og stóð lagningin 5—6 borð út fyrir þakbrún og hafði þessu limbri á engan hátt verið nagl- tyllt. Smiðurinn sté út á þessa laus- lögðu klæðningu og féll af þakinu niður á svalir I. hæðar. Er maðurinn mikið særður eftir, viða brotinn. Öryggiseftirlitiö hefur nú stöðvað alla vinnu við húsið, þvi þar hafa vinnuaðgerðir þótt nokkuð gáleysis- lcgar. -A.St. Dauðaslys á Patreksf irði Dauðaslys varð á Patreksfirði i gær. Gamall maður féll i höfnina og drukknaði. Ekki er hægt að segja frá nafni hans að svo stöddu. -EVI. „Vona að égstandi mig fynr Austuríand" — sagði Elsa Dóra Gísladóttir ungfrú Austurland, eftir kjörið á laugardag Elsa Dóra Gísladóttir, 18 ára nem- andi við menntaskólann á Egilsstöð- um var kjörin ungfrú Austurland í Valaskjálf á laugardag. Troðfullt hús varð í Valaskjálf þegar kjörið fór fram. „Þetta er þriðji veturinn minn i menntaskóla. Áður hef ég verið tvo vetur i Reykholti,”sagði nýkjörin fegurðardrottning Austurlands i sam- tali við blaðamann. DB. Elsa Dóra er á uppeldissviði í menntaskólanum. Áhugamál hennar eru iþróttir og sagðist hún reyna að stunda eins mikiðaf þeim og færi gæfist. „Ég kom hingað á ballið, en átti ekki von á því að verða beðin um að taka þátt í fegurðarsamkeppni. Mér þykir þetta nú ekkert sérstaklega spennandi. Ég er úr Sandgerði og ég finn að það eru einhverjir óánægðir með það. Mér þykir það mjög leiðin- legt ef einhverjir eru á móti mér,” sagði Elsa Dóra. „Elsa Dóra er l,76cm á hæð. Hún sagðist aldrei áður hafa verið við- stödd fegurðarsamkeppni, ekki einu sinni hugsað út í þær. Ég kom hingað ekki með því hugarfari að taka þátt i fegurðarsamkeppni en fyrst svona er komið vona ég að ég geti staðið mig fyrir Austfirðinga,” sagði ungfrú Austurland. Á föstudaginn voru undanúrslit keppninnar á Neskaupstað. Tvær stúlkur voru valdar þaðan til að taka þátt í keppninni um titilinn. Voru það Unnur Eiríksdóttir, 22 ára bankamær, og Erla Jónsdóttir, 17 ára. Troðfullt var á báðum þessum stöðum enda frábær skemmtun i boði. Ferðaskifstofan Úrval var með ferðakynningu og bingó, Halli, Laddi og Jörundur skemmtu og hljómsveit Stefáns P. lék fyrir fjörugum dansinsum fram á nótt. ELA Fegurðarsamkeppni íslands 1980: Ungfrú Austurland, Elsa Dóra Gisladótlir. frfálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 21. APRtL 1980. Rauð fjöður fyrir 50 millj. — í Reykjavík einni „Við vitum ekki ennþá hvað selzt hefur úti um land en i Reykjavík höfum við selt rauðar fjaðrir fyrir um 50 milljónir,” sagði Jóhann Briem fram- kvæmdastjóri. Jóhann ásamt félögum sinum í Lions-hreyfingunni stóð um helgina fyrir sölu á rauðum fjöðrum og á ágóði sölunnar að renna til styrktar heyrnarskertum. Jóhann sagði að þeir félagarnir hefðu alls staðar fengið mjög góðar undirtektir enda mátti hvarvetna sjá fólk á ferli, skreytt rauðum fjöðrum. _____________________-DS. Gunnar talar ekki „Mér skilst að það sé öruggt, að Gunnar Thoroddsen talar ekki i út- varpsumræðunum,” sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins í morgun. „Það hefur engin ósk komið um það til for- manna þingflokkanna og ég tel ekki óeðlilegt, að hann tali ekki í þessum umræðum,” sagði Ólafur. Ólafur G. Einarsson sagði að nokk- uð öðru máli mundi gegna i „eldhús- umræðum” þingsins. Þá mætti halda fram að forsætisráðherra ætti að fá að tala. „En ég get sagt, að fyrir stjórnar- andstöðuna talar hann ekki,” sagði Ólafur. „Spurningin yrði þá hvort stjórnarflokkarnir létu honum eitthvað eftiraf sínum tíma.” Ólafur sagði að útvarpsumræðurnar yrðu annaðhvort annað kvöld eða mið- vikudagskvöld. -HH. Ávonáþvíað útvegsmenn samþykki „Við eigum von á þvi að útvegs- mannafélag Vestfjarða samþykki það samkomulag sem við höfum gert við sjómenn hér,” sagði Óskar Kristjáns- 'son, einn af þrem sem semja af hálfu útvegsmanna á Suðureyri. Hinir eru Einar Ólafsson og Halldór Bernódus- son. Hanns agði að samningar þeir sem gerðir hefðu verið á Suðureyri væru afar likir samningum Bolvikinga. Sjó- menn á Suðureyri boðuðu aldrei verk- fall, þar sem alltaf-hafa staðið yfir við- ræður milli útvegsmanna og sjómanna. Róðrar halda þvi áfram ótruflaðir. Ekki hefur enn náðst samkomulag á Flateyri. - EVI — Sjá viðtal við Pétur Sigurðsson formann Alþýðusambands Vestfjarða ð bls. 7 LUKKUDAGAR: 20. APRÍL 16396. Kodak Pocket A1 myndavél. 21. APRÍL 15181 j Skil 1552H verkfærasett. Vinningshafar hringi ísíma 33622. 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.