Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980. Kristján Runólfsson tekur harna \ið silfurbikar úr höndum Auðuns Einarssonar frá G. Helgason og Melstui. Fimmtán barþjónar kepptu sin á milli Af þeim þremur barþjónum sem unnu i Long drink keppni Barþjóna- klúbbsins voru tveir af Hótel Borg og einn úr veitingahúsinu Glæsibæ. Kristján Runólfsson af Borginni fékk fyrstu verðlaun fyrir drykk sinn Beinasna. Þar með vann hann til þess að keppa fyrir hönd klúbbsins í alheimskeppni barþjóna i Portúgal eftir 3 ár. Sigurður J. Sigurðsson, Glæsibæ fékk önnur verðlaun fyrir drykk sinn Glæsi og keppir á Norður- landameistaramóti sem haldið verður eftir mánuð. Garðar R. Sigurðsson af Borginni fékk 3. verðlaun fyrir drykkinn Sjússó og keppir á Ítalíu næsta hausl. Beinasni 1. verðlaun 3clSmirnoff vodka 3 cl bananalíkjör, Bols I cl grenadine, Bols 1 cl sitrónusafi, fyllt upp með sinalco. Skreyting: Sítrónubátar, grænt kirsuber.'kokkteilpinnar, hrærari og drykkjarstrá. Höfundur: Kristján Runólfsson. Glœsir 2. verölaun 2cl Smirnoff vodka 2 cl Parfait Amour, Bols 1 cl Banana Bols 1 cl Cointreau Dass þurrt vermút, dass af sítrónusafa. Fyllt með hi-spot. Skreyting: Kokkteilber, sítróna, rör og hræripinni. Höfundur: Sigurður J. Sigurðsson. Sjússó 3. verðlaun 3 cl Bacardi romm 2 cl Dry Martini I cl Royal Mint Dass af Cre de Menthe M. Brizard. Fyllt upp með sinalco og sitrónusafa. -A.Bj. Hörður Sigurjónsson, formaður Barþjónaklúhbsins er þarna að slá Kristján Runólfsson til riddara, Kristján lékk siðan sverðið afhent, cn það er farandgripur og skiptir nú unt handhafa i tólfta sinn. ^ Kristján Runólfsson þjónn á Hótel Borg náði sér i íslands- meistaratitil i Long drink keppni ársins 1980 á dögunum. Kristján bauð fram drykkinn Prize Idiot eða Beinasna sem náði því að þykja beztur drykkjanna. En drykkur Kristjáns átti sannar- lega harða keppinauta. 15 barþjónar alls kepptu í greininni og lögðu sig allir fram um að ná bæði sem beztu bragði og sem glæsilegustu útliti á drykkina. Þegar stig voru reiknuð út af dómnefnd kom i Ijós að þeir þrir sem voru efstir auk Kristjáns voru félagi hans af Borginni Garðar R. Sigurðsson og Sigurður J. Sigurðsson úr Glæsibæ. Skipuð var ný dómnefnd til þess að velja úr þessum þrem drykkjum og giltu þá ekki þau stig sem keppendurnir höfðu náð i fyrri umferðinni. Eftir langa innilokun komst dómnefndin að því aðdrykkur Kristjáns væri sá, sem verðlaunin skyldi hljóta. Hinir tveir urðu þvi af fyrstu verðlaunum en þó engan veginn án verðlauna. Fyrirtækið G. Helgason og Melsted hafði gefið verðlaunapeninga handa þeim þrem mönnum, sem efstir urðu og bikar handa þriðja manni auk þess sem Júlíus P. Guðjónsson h.f. gaf verðlaunabikar fyrir annað sætið. Kristján fékk hins vegar aukalega bikar frá G. Helgasyni og Melsted, farandbikar frá Albert Guðmunds- syni h.f., silfurhom frá Olgerð Egils Skallagrímssonar og farandsverð Barþjónaklúbbsins, sem hann var sleginn til riddara með. Var þetta í 12. sinn, sem sverðið skipti um eig- endur. Kristján hlýtur auk alls þessa réttinn til að keppa i keppni barþjóna Evrópu sem haldin verður eftir þrjú ár í Portúgal. Það er því hreint ekki til lítils að vinna að geta búið til góðan drykk. -DS. HÖFÐABAKKA 9. SÍMI 85411. REYKJAVÍK. LmJ Búsáhöld oggjafavörur Glœsibœ. HANDUNNIÐ STELL MATARSETT, TESETT, KAFFISETT OFNFAST þúsuncí út þúsund á mánuði MATAR- OG KAFFISETT U7ÍIKJ DB á ne ytendamarkaði Verölaunaregn á Sögu BORGARÞJÓNAR SIGURSÆUR í LONG DRINK-KEPPNINNI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.