Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 35
—segir einn af höf undum hennar —útvarp í kvöld kl. 19,40: „50% reglan ent- ist allt of Sengi” Skipverjar á Halastjörninni séðir inn um kýrauga þess ágæta skips. POPP—útvarp í dag kl. 15,00: SKIPVERJAR Á HALASTJÖRN- UNNIKYRJA SJÓARAPOPP VORÍVÍNARBORG —sjónvarp í kvöld kl. 21,15: Léttklassísk tonlist með Vín- arsinfóníunni „Þátturinn í dag verður að Imeginhluta til með islenzku sjóarapoppi,” sagði Þorgeir Ástvalds- son um poppþátt sinn í útvarpinu klukkan þrjú í dag. „Eldfjörugir og hressir strákar á Halastjörnunni hafa gefið út fyrstu íslenzku hljómplötu ársins þar sem þeir kyrja söngva eftir hinn þjóðkunna listamann, Gylfa Ægisson. Ég mun leika lög af þeirri plötu og jafnvel fá strákana i heimsókn ef þeir eru þá í landi. Platan þeirra nefnist Stolt siglir mitt fley, en titillagið var einmitt flutt um daginn i sjónvarpsþættinum Á vetrarkvöldi þegar spjallað var við Gylfa. Ef einhver timi verður afgangs leik ég svo Iög úr kvikmyndum. Bæði þá er- lendum og íslenzkum þar sem popparar koma við sögu. Má þar til dæmis nefna , Veiðiferðina. Lumma dagsins verður' einnig bökuð ef tími er til,” sagði Þorgeir. -DS. Á vortónleikunum i sjónvarpinu f kvöld verður fluttur forleikur og arfa úr Helenu fögru eftir Offenbach. Það verk var fært upp í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkru. DB-mynd Bj. Bj. ,,Ég hef nú ekki alveg ákveðið hvernig þessu spjalli verður háttað en þetta verða svona aðfinnslur og röfl,” sagði Vaiborg Bentsdóttir skrifstofustjóri Veðurstofunnar i Reykjavík, þegar hún var spurð um spjall sitt um daginn og veginn i út- varpinu i kvöld. „Ég kem eitthvað inn á það sem ég kalla skyldusparnað ófjárráða launþega. Þar á ég við orlofið sem allir keppast við að ná í fyrsta mai. Þá nefni ég sennilega lek hús. 50% reglan svonefnda er einnig ofarlega í huga mínum. Á ég þar við regluna um 50% skattfrádrátt giftra kvenna. Ég var ein af höfundum þessararreglu sem entist allt of lenti. Hún var orðin jafnafleit í endann og hún var góð i byrjun. Þvi hefur verið haldið fram, að reglan hafi verið sett til þess að fá konur út á vinnu- markaðinn. En það er alrangt. Hún var einfaldlega sett til að bjarga hjónabandinu. Þvi jyegar tekjur konunnar lögðust ofan á tekjur manns hennar fengu þau svo ógur- lega skatta. Því var hreinlega verið refsa fólki fyrir að vera gift. Svo er aftur annað mál að reglan varð til að konur fóru að vinna úti í meira mæli en áður gerðist. Núna erstaða Valborg Bentsdóttir skrifstofustjóri. málsins hins vegar sú að flestar konur annað hvort standa i stað skattalega eða græða á þvi að 50% reglan sé lögð niður. Tekjur útivinnandi kvenna eru það lágar, að betra er að frádrátturinn sé á tekjur beggja hjóna,” sagði Valborg. -DS. DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 21. APRÍL 1980. UM DAGINN 0G VEGINN HVAR ER HÚSMÓÐIRIN? Dauf hélgi í fjölmiðlunum. Sjón- varp reis ekki oft upp úr meðal- mennsku, datt þess á milli í lágkúru. Það lá við að maður teygði sig krampakennt eftir takkanum á út- varpi stöku sinnum — og léti sig hafa þaða.m.k. ásunnudaginn. Gestir hjá Prúðu leikurum hafa undanfarið verið ýmis smástirni sem enginn i minum „kreðsum” hefur kunnað deili á. Á föstudag var Dudley Moore meðal þeirra og nú bar svo við að ég var eini maðurinn í ofangreindum „kreðsum” til að þekkja persónuna. Má ég kynna: Dudley Moore, grinista af Guðs náð og frábæran jass pianóleikara — ný- orðna kvikmyndastjörnu i myndinni „10”. Ásamt félaga sínum Peter Cook hefur hann staðið fyrir gráu og fjarstæðukenndu gamni i sjónvarpi og á hljómplötum. Þeir sem hafa meiri áhuga geta hringt í mig. Ég er í skránni. Kastljós á föstudagskvöld var í mörgum pörtum, hékk því ekki saman. Maður mátti ekki skreppa fram í ísskáp eftir kók, þá tapaði maður af merku máli. Sjónvarps- myndin þá um kvöldið var í einfald- ara lagi og reyndi ekki á gráu sellurn- ar, sem sagt upplagt „afþreyingar- efni”. Laugardagurinn fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér og það sem ég sá í sjónvarpi sá ég með öðru auganu. Var athyglin eftir þvi. Hvað finnst húsmóður i vesturbænum annars um Löður? Fólk hefur eflaust langtum meiri áhuga á þvi en mínum skoðun- um. En frá þeirri ágætu frú hefur ekki heyrzt bofs. Ég verð samt að segja að eftir að hafa fengið slæman skammt af bandarískum sápuóperum í tvigang, hefur Löður vissa þýðingu fyrir mig, vegna þess að, ja, nú, ah . . . . En enska knattspyrnan var góð, mikið slegizt á knattspyrnuvell- inum. Eitthvað virðist hafa tapazt af sjónvarpsefni sunnudagsins. Á mínu heimili sat lítið barn fyrir framan skerminn frá klukkan fjögur — gafst upp þegar Helgistund loksins birtist kl. sex og sofnaði af þreytu í miðjum barnatíma. Þjóðlíf Sigrúnar Stefáns- dóttur var líkast tii ásjálegasti þáttur helgarinnar. Þar hefur „magasin”- hugmyndin verið nýtt á afar eðlilegan hátt. Þótt þátturinn sé í bútum, hangir hann saman á persónuleika stjórnanda, eins og pikaresk skáld- saga og Sigrún tengir atriði öll afar blátt áfram og elskulega, þannig að ekki sést í samskeytin. Úr steindu gleri var farið í þjóðdansa, þaðan til hjóna sem áttu 20 börn, þaðan eitt- hvaðannað. Eins og margir aðrir horfi ég á „Hertogastræti” eins og dópaður og nú snerti efniviðurinn grandalausan ■blaðasnáp. Blaðamaður fékk nefni- lega útrás fyrir „rannsóknarblaða- mennsku” í Bentinck hótelinu, hvorki meira né minna, og lá við miklum atburðum. En ailt settlaðist þetta, fyrir það að blaðamaðurinn var meira gæðaskinn en við héldum. Við erum ekki aigjörlega spilltir í stéttinni. Á þeirri hugsun var gott að sofna. - AI Aðaldagskrárliður sjónvarpsins í kvöld nefnist Vor í Vínarborg. Er þar um að ræða vortónleika Sinfóníuhljómsveitar Vínarborgar undir stjórn Heinz Wallberg sem nú hefur tekið við af Willy Boskovsky sem aðalstjórnandi hljómsveitarinnar. Að sögn Björns Baldurssonar dag- skrárritstjöra Sjónvarpsins eru vor- tónleikar þessir næsta keimlíkir nýárs- tónleikum Vínarsinfóníunnar sem við fáum að sjá nær hvert ár. Sjónvarpið hefur öðru hvoru keypt þessa þætti enda þykja þeir nokkuð skemmtilegir. Tónlistin sem leikin er, er léttklassísk eftir höfundana Jacques Offenbach og Robert Stolz. Þannig verður til dæmis fluttur forleikur Offenbachs að Helenu fögru og aría úr sama verki. Þá verður einnig fluttur forleikur hans að Parisarlífi. Eftir Stolz verða flutt nokkur söng- lög sungin af sópransöngkonunni Sonu Ghazarian og tenórsöngvaranum Werner Hollweg. -DS. Bakarastofan Klapparstig Sími 12725 I ljtrfM-niAnL.nl nln nargreiosiustora Kiapparstig Tímapantanir 13010 Laust starf á skrífstofu Ríkisskattanefndar Ríkisskattanefnd óskar að ráða sem fyrst starfsmann í full- trúastarf. Starfið krefst að viðkomandi hafi góða íslenskukunnáttu, fallega rithönd, sé töluglöggur og hafi reynslu og færni í vélritun. Laun eru skv. kjarasamningi BSRB og fjármálaráðherra, 12. lfl. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu Ríkisskatta- nefndar, Laugavegi 13,101 Reykjavík, fyrir 30. apríl nk.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.