Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR21. APRÍL 1980. Það fer víst ekki á milli mála að sýningin • á verkum í eigu Sonja Henie-Niels Onstad safnsins i Norræna húsinu er tímamóta- viðburður hér á landi. Aldrei fyrr hafa hér verið sýndar frummyndir eftir meistara á borð við Bonnard, Ernst, Gris, Klee, Klein, Léger, Matisse Miró og Picasso, auk annarra. Hér hafa „stór nöfn” í alþjóðlegrti myndlist að visu verið til sýnis áður, þ.á m. nokkrir ágætir Hollendingar og Bretar — og skamms er að minnast sýningar á teikningum bandariskra listamanna I Listasafni íslands. En einhvern veginn hefur manni fundist herslu- muninn vanta, sjálfa jötnana. Varla þarf að tíunda ástæður fyrir þvi að ekki hafa verið fluttir inn þeir Picasso og Matisse til sýninga og nægir þar að nefna tryggingarnar einar. Að sprengja fjárhirslur Algengt er að gott verk eftir einhvern þessara manna sé metið á ca. 200.000 dollara og þarf sýnandi að greiða 1% af þeirri upphæð fyrir trygginguna, eða u.þ.b. eina milljón íslenskra króna. Það þarf því ekki mörg verk á sýningu til að sprengja fjárhirslur íslenskra menningar- stofnana. Lista- og menningarsjóður Kópavogs sýnir þvi einstakan stórhug með þessari framkvæmd i Norræna húsinu og er vonandi að fyrirtækið gangi það vel að ekki þurfi að hækka útsvör á Kópavogsbúum fyrir vikið. . En þótt þessi sýning sé öðrum þræði bæði glæsilega uppsett og mikill sögulegur viðburður, þá fær maður ekki varist þeirri hugsun að hún sé 20 árum of seint á ferðinni til að geta markað veruleg spor í vitund íslendinga. Ferðalög okkar um önnur lönd hafa stóraukist og með þeim hafa æ fleiri sótt heim helstu lista- söfn heims og barið augum mörg þau listaverk sem hér þekktust ekki áður nema af eftirprentunum eða bókum. Heimslistin er þvi ekki eins fjarlægur draumurog fyrr. Aflvakar eða helgimyndir Það er einnig ljóst að flest þeirra verka sem hér eru sýnd tilheyra sjötta áratugnum, bæði hvað tækni og viðhorf snertir og því verður þessi sýning tæpast sú vitaminssprauta íslenskum listamönnum, sem hún hefði getað verið fyrir röskum tveim áratugum. Nú förum við sennilega i Henri Matisse — Sitrónur, 1954. Norræna húsið til að skoða safn dýr- mætra helgimynda fremur en lifandi aflvaka. Nú veit maður ekki alveg hvaða viðhorf réðu vali mynda á þessa sýningu og hvort hún gefur marktæka hugmynd um eignir Sonja Henie-Niels Onstad safnsins og markmið. Ef þessar myndir eru einkennandi fyrir safnið, virðist það ansi gloppótt — og kannski ekki við öðru að búast al norrænu safni sem vart getur keppt við Þjóðverja og Bandaríkjamenn á peningasviðinu. Það fer best út úr evrópskum expressjónisma eftir síðara stríð, Cobra og frönskum „tachisma” og getur auk þess státað af einstökum meisturum frá fyrri þróunarskeiðum nútímamyndlistar, en þó engum lykilverkum þeirra. Samsafn stakra verka Þarna vantar stefnumarkandi verk úr kúbisma, Dada, geómt.ríu millistriðsára, súrrealisma, amerískum afstrakt-expressjónisma (að smámynd eftir Sam Francis undanskilinni) og Popplist. Þess vegna er varla hægt að rekja þróun nútímalistar gegnum þessa sýningu eins og hún er. Þó hefði ugglaust verið hægt að virkja hana í þeini tilgangi m»ð fyrirlestrum og upplýsjngadrcifingu. Það er þvi best að nálgast þessa sýningu sem samsafn stakra mynda frá ýmsum skeiðum og í misjöfnum gæðaflokkum. Cobra myndir þeirra Alechinsky, Appels, Corneille og Jörns eru allar hreint afbragð, en aðrar stefnur koma tæpast eins heillega út. Þeir Hartung og Riopelle gefa ekki nema takmarkaða mynd af „tachisma”, þótt sá fyrrnefndi eigi þarna eina prýðilega mynd (T 1962) og Soulages bætir þar litlu við. Parísarskólinn er einnig ansi misjafn. Til fundar við þá gömlu Estéve kemur þar einna best út, enda fara fáir eins vel með lit og hann. Viera da Silva er hér ekki upp á sitt besta, og þeir Bazaine, Fautrier og Manessier eru talsvert langt frá þvi marki. Það er hins vegar fengur að mynd Dubuffets sem er i þeim hálf- figuratífa krafsstil, sem honum fer best og sömuleiðis er de Stael mikil opinberun og fróðlegt að sjá hlið við hlið dökka og stífa afstraktmynd hans frá 1946 og svo landslag frá Pablo Picasso — Sitjandi kona, 1953, I þeim tæra og meitlaða stíl, sem hann tileinkaði sér rétt fyrir and- látið. Inn á milli koma svo listamenn, sem skipta ansi litlu máli: Bitran, Dahmen, Gundersen, Hundertwass- er, Music, Sonderborg og Weider- mann, en hins vegar hefur ítalinn Gnoli nokkra sérstöðu þarna, fyrir nákvæmt risa-raunsæi sitt. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá hugsa ég að við förum flest til fundar við þá „gömlu og stóru”. Mynd Bonnards er mikið gersemi, þótt ekki sé hún frá frjóasta timabili hans. Undir og yfir meðallagi Ernst veldur mér vonbrigðum með fálmkenndum vinnubrögðum og Gris á hér tvö traust verk frá síðari árum, þar sem finna má leifarnar af samræmdum (synthetic) kúbisma. Klee er bráðskemmtilegur að vanda og Kúbumaðurinn Lam á hér 1941. magnað epískt verk sem þarflegt væri að ræða nánar. Léger er að endur- taka sjálfan sig i mynd sinni af dans- meyjum, en er ávallt aufúsugestur og gaman er að sjá verk eftir einn Duchamp bróðurinn, Jacques Villon, sem hefur varla fengið þá viður- kenningu fyrir elskulega myndlist sína, sem hann á skilið. Mynd Munchs er þvi miður nokkuð langt úndir meðallagi. En það eru þeir Matissc, Miró og Picasso sem lyfta sýningunni í æðra veldi. Matisse gerir sína mynd á síðasta aldursári sinu og hún er eins makalaus tær, fáguð og klassísk og myndir frá bestu árum hans. Miró er einnig sjálfum sér sam- kvæmur i leikandi léttu málverki sem þó tæpir á alvarlegri viðhorfum og í sitjandi konu Picassos, gerðri á fyrstu árum hersetu Þjóðverja í París, má finna bæði ugg og þrjósku, en umfram allt trú á þá lífs- hvöt, sem býr í góðri myndlist. Þá mynd ættum við kannski að skoða síðast, áður en við hverfum á braut. Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON HÚSEFITR ÞÍNU HÖFÐI, Einbýlishús úr steinsteyptum einmgum. Margar stærðir, með eða án bflskúrs. Hafíð samband við söhnnann og fáið frekarí upplýsingar í síma 84599 HÚSASMIÐJAN HF. SÚÐARVOGI 3-5, 104 REYKJAVÍK Tfl afsreiðslu í sumar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.