Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980. 25 Sigríður Ella Magnúsdóttir, — „langbesta barnahljómplata sem komið hefur út hér á landi.” ABCD, — Hljómplata mefl barnalögum. Flyljendur: Sigrfflur Ella Magnúsdóttir, Garflar Cortes, böm úr Kór Mýrarhúsaskóla undir stjóm Hlffar Torfadóttur og nfu hljóflfœra- leikarar. lltsetjari: Gordon Langford. Útgefandi: íslenskar hljómplötur, ÍSH 003. Fyrir skömmu barst mér í hendur barnalagaplata, einfaldlega nefnd ABCD. Hún hafði komið út rétt fyrir jólin, en svo virðist sem hún hafi bókstaflega týnst, eða horfið, í öllu flóðinu sem fylgir hátíðinni þeirri. Þulir og ýmsir aðrir, sem stundum fá að velja músík í dagskrá Ríkisút- varpsins, hafa þó veitt henni verðskuldaða athygli. Stimpilinn vantar Þegar ég hlustaði á plötuna í fyrsta sinn, varð mér tíðlitið á umslagið í leit að stimpli þeim, eða klausu, sem venjulega er að finna á hljómplötum af þessu tagi og gæðaflokki og sýnir hvaða deild eða sjóður Menntamálaráðuneytis viðkomandi lands hafi stutt út- gáfuna. En auðvitað vantar slíkan stimpil á. Og hver ætti svo sem að taka það upp hjá sér, af sjálfs- dáðum, að styrkja útgáfu barna- plötu? Tæpast nokkur óvitlaus maður, því að útgáfa á barnaplötum hefur ekki gefið tilefni til þannig þankagangs. — Pétur og úlfurinn og Tobbi túba eru virðingarverðar undantekningar reglunnar og lögin úr Kardimommubænum líka. Að öðru leyti hefur útgáfa á hljómplötum fyrir börn á íslandi verið á svipuðu stigi og stór hluti barnabókaút- gáfunnar. Mestmegnis útþynnt popp, sem dynur yfir líkt og skæður flensu- faraldur, sem allir eru fegnastir að geta gleymt um leið og hann tekur að réna. Undantekning ABCD er klár undantekning frá þessari Ijótu meginreglu íslenskrar barnahljómplötuútgáfu. Á henni er að finna lög, sem foreldrar hafa sungið fyrir börn sín og með þeim. Börn hafa sungið þau i skólum og mörgum þeirra eru tengdir leikir, sem ekki tilheyra neinni tisku.heldur eru, í orðsins fyllstu merkingu, sigildar. Hljómplötur af svipuðu tagi og ABCD hafa verið gefnar út með öðrum þjóðum, svo að hér er ekki um algjöra nýlundu að ræða. En einnig hér víkur ABCD frá hefðinni, að því leyti, að stóru menntuðu söngvararnir trana sér ekki fram. Bæði Sigríður Ella og Garðar vanda að sjálfsögðu sitt verk, eins og ævinlega. En í staðinn fyrir að vera „einsöngvarar” með barnakór, nota þau hæfileika sína og kunnáttu til að lyfta söng barnanna. Að því leyti tekur þessi hljómplata öðrum af sama tagi fram. Hún er sannari barnaplata fyrir vikið. Hljóðfæra- leikurinn er af hæsta gæðaflokki. Stundum vill það brenna við, að undirleikurinn sé leikinn inn á hunda- vaði, liklega undir mottóinu — Æ, þetta er svo sem full gott í krakka- skinnin. Hér er engu slíku til að dreifa. Hljóðfæraleikararnir hafa séð sóma sinn í þvi að vanda sitt verk í smáu sem stóru. Frábærar útsetningar Eflaust hafa útsetningar Gordons Langford ekki latt hljóðfæra- leikarana til vandvirkni. Lúðrasveita- menn þekkja Langford að góðu, en barnaefni af þessu tagi hélt ég að lægi utan hans verksviðs. Langford hefur auðheyrilega fengið textaþýðingar laganna, með skýringum og árangurinn birtist i einstökum út- setningum. Hann notar tónmálið til að skerpa mynd textans og gerir það á svo látlausan, en gegnum vandaðan hátt, að unun er á að hlýða. Vil ég benda þar á sem dæmi lögin Kindur jarma i kofunum, Fljúga hvitu ftðrildin, Fram fram fylking, Siggi var úti og Hann Frimann fór á engjar. Raunar mætli telja upp öll lögin á plötunni sem dæmi frábærra vinnu- bragða Gordons Langford. Ekki er þess getið hvar platan sé tekin upp, en hljóðritunina annaðist Þorbjörn Sigurðsson. Upptakan hefur tekist all þokkalega. Heildará- ferð er góð, en vel hefði svona fyrir- tæki mátt hafa haft efni á nokkrum stúdíótímum til viðbótar. ABCD er að mínum dómi lang besta barnahljómplata, sem út hefur komið hér á landi. Ég vona að út- ,koma hennar verði til að marka tíma- mót útgáfu barnahljómplama. íslensk börn eiga skilið að fá góðar hljómplötur, ekki síður en góðar bækur. -F.M. Tónlist Vi c Jarðvinna-vélaleiga j Loftpressur Vélaleigð Loftpressur Tek að mér múrbrot, borverk og sprengingar, einnig fleygun í húsgrunnum og holræsum, snjómokstur og annan framskóflumokstur. Uppl. isíma 14-6-71. STEFÁN ÞORBERGSSON. S S LOFTPRESSUR - GRÖFUR Tökum að okkur allt múrbrot, y-, sprengingar og fleygavinnu í hús- grunnum og holræsum. Einnig ný „Case-grafa” til leigu í öll verk. Gerum föst tilboð. Vélaleiga Símonar Símonarsonar, Kríuhólum 6. Sími 74422 C MURBROT-FLEYGUh MEÐ VÖKVAPRESSU HLJÓÐLÁTT RYKLAUST ! KJARNABORUN! NJ4II Harðarson. Vélaltiga SIMI 77770 Pípulagnir -hreinsanir j Er stíflað? Fjarlægi stíflur úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niður- föllurh. Hreinsa og skola út niðurföll i bila- plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tanlÆál með háþrýstitækjum,- loftþrýstitæki, raf— magnssnigla o.fl. Vanir menn. Valur Helgason, simi ?702j. Er stíflað? Fjarlægi stiflur úr vöskum. wc rörunt. haðkcrum og niðurföllum. notum ný og fullkomin taeki. rafmagnssnigla. Vanir mcnn. Upplýsingar i sima 43879. Stífluþjónustan Anton Aðabtsinsson. c Önnur þjonusta D Skóli Emils VORNÁMSKEIÐ ÓFST1. APRÍL. Kennslugreinar: píanó, harmónlka (accordion), gitar, melódíka, rafmagnsorgel. Hóptimarog emkatimar. Innrilun I sima .6239. Ado,{sson> Nýlendugöt|1 41. Sprunguviðgeröir Málningarvinna Tökum að okkur alla meiri háttar sprungu- og máiningarvinnu. Leitið tilboða. Einnig leigjum vió út körfubfla til hvers konar viðhaldsvinnu. Lyftigeta allt að 23 metrar. Andrés og Hilmar, slmar 30265 og 92-7770 og 92- 2341. 30767 HUSAVIÐGERÐIR 71952 Tökum að okkur allar viðgerðir á húseignum, stórum sem smáum, svo sem múrverk og trésmíðar, járn- klæðningar, sprunguþéttingar og málningarvinnu. Girðum og lögum lóðir, steypum heimkeyrslur. HRINGIÐISÍMA 30767 og 71952. Innréttingasmíði Smíða fataskápa, baðinnréttingar, sólbekki o. fl. eftir máli. Trésmiðjan Kvistur, sími 33177, Súðarvogi 42 (Kænuvogsmegin). Klæðum og gerum við eldrí húsgögn Áklæði / miklu úrvali. Síðumú/a 31, sími37780, 2. hæð. Húsaviðgerðir Tökum að okkur allar meiriháttar viðgerðir, s.s.: Þakrennuviðgerðir, múrviðgerðir, viðgerðir gegn rata i veggjum, meðfram gluggum og á þökum. Hreinsum einnig veggi og rennur með háþrýstitæki. Uppl. í síma 27684. Fljót og góð þjónusta. Fagmenn. BIAÐffl frjálst, áháð dagblað C Viðtækjaþjónusta D RADÍÖ fr TVPJÓNUSTr“"“/æ Sjónvarpsviðgerðir — sækjum/sendum. Hljómtækjaviðgerðir — magn. spil. segulbönd. Bíltæki, loftnet og hátalarar — ísetning samdægurs. Breytum biltækjum fyrir langbylgju. Miðbæjarradíó Hverfisgötu 18, sími 28636. LOFTNET TÉfoZ önnumst uppsetningar á útvarps- og sjónvarps- loftnetum fyrir einbýlis- og fjölbýlishús. Fagmenn tryggja örugga vinnu og árs ábyrgð. MECO hf„ simi 27044. eftir kl. 19: 30225 - 40937. Sjónvarpsloftnet. Loftnetsviðgerðir. Skipaloftnet, íslenzk framleiðsla. Uppsetningar á sjónvarps- og útvarpsloftnetum. öll vinna unnin af fagmönnum. UIV; Árs ábyrgð á efni og vinnu. SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF. Siðumúla 2,105 Reykjavik. Simar: 91-3^090 verzlun — 91-39091 verkstæði. Verzlun auöturlenák unbrabernlb JasrnÍR bf i Grettisgötu 64 s:n625 nýtt úrval af mussum, pilsum, blúss- um og kjólum. Eldri gerðir á niður- settu verði. Einnig mikið úrval 'fallegra muna til fermingar- og tæki- færisgjafa. 'OPIÐ K LAUGARDÖGUM SENDUM I PÖSTKRÖFU áuöturlrnók unbrabrfolti FERGUSON Einnig stereosamstæður, kassettuútvörp og útvarpsklukkur. jitsjónvarpstækin 20" RCA 22" amerískur 26" myndlampi Orrí Hjaltason ^ Hagamel 8 Simi 16139

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.