Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1986, Blaðsíða 7
GUÐBRANDUR ÞORLÁKSSON OG BÓKAÚTGÁFA HANS
7
Q3ftagt a Sffofcfta af
öuöbtancc ii^rlafe fyne.
gafer cru þeír fem að ^eprrt ®u&5erÖ
03 earöutiía pab Cuc, XK
2U
Mynd. af Marteini Lúther, sem oft var framan á bókum í tíð
Guðbrands. Hér er myndin gerð eftir Summaríu yfir það
Gamla testamentið, sem þrentuð var á Núþufelli 1591.
um bókum. Styrkir því frásögn Harbós óneitanlega, að eitthvað frá
Jóni Arasyni hafi farið í kistuna hjá Brynjólfi.
A fjórða áratug 16. aldar fór í Skálholti að bera á mönnum, sem
aðhylltust siðbótarkenningar Lúthers. Forsvarsmenn Lúthersku
þurftu að reka áróður fyrir kenningum sínum, enda áttu siðaskiptin
hér sem annars staðar þátt í útbreiðslu prentlistarinnar. Elst þessara
bóka var Nýja testamentið í þýðingu Odds Gottskálkssonar, sem
prentað var í Hróarskeldu 1540. Það er elsta bók prentuð á íslensku
og enn varðveitt, reyndar er ekkert sagt um það hvenær Fjórir
guðspjallamenn voru prentaðir, svo eins víst er að engin bók hafi
verið prentuð fyrr. Fimm bækur að auk eru varðveittar, sem
siðbótarmenn á íslandi létu prenta erlendis frá 1546-1568, og