Vísir - 30.08.1975, Page 5
Visir. Laugardagur 30. ágúst 1975
5
ERLEND MYNDSJÁ
umsjon GP
Frost
°9
Nixon
Það vakti athygli á dögun-
um, þegar spurðist, að sjón-
varpsmaðurinn David Frost
hefði gert samning við Rich-
ard Nixon um gerð viðtals-
þátta, þar sem þeir koma
báðir fram, þessir margfrægu
menn.
Myndin hér fyrir ofan var
tekin, þegar þessir tveir sam-
ræðusnillingar voru að koma
sér saman um hvað fjallað
skuli í þáttunum — og svo
auðvitað, hvað teljast mætti
sanngjörn þóknun til handa
Nixon, en það mun hiaupa á
nokkrum milljónum .doll-
ara.
Með mótorinn
utonborðs
Christopher Wall, sem sést
liggjandi á beði sinum i barna-
spitala i Filadelfiu, var með
þeim ósköpum fæddur, að hjart-
að I honum var útvortis. En
læknar tóku drenginn 16 daga
gamian, skáru hann upp og
komu hjartanu á sinn stað.
Hann er sagður á góðum bata-
vegi og má vænta þess, að hann
reynist með gott hjartaiag, þeg-
ar hann sprettur úr grasi.
I02652120A
HE 02¥*
•-U,i JU
i*np
niNlMi
ll\llii'
TH£
PRICE
FOR
DALA-
SEÐILL-
INN
uwnöOfT-nni>pf
Ef menn rekast á svona 100 doilara seðil, þá skyldu þeir varast aö
láta glepjast af honum. Ekki svo að skilja, aö mikil hætta sé á þvi,
að Kissinger verði tekinn I misgripum fyrir Benjamin Franklin, en
svona til vonar og vara verður að brýna þetta fyrir mönnum.
Þennan seðil gerðu Israelskir stúdentar, sem eru I hópi ungmenna
þar syðra, er með mótmælum hafa látið I ljós andúð sina á milli-
göngu Kissingers og þvi, sem þeir kalla landsölustefnu tsraels-
stjórnar. Á bakhliö seðilsins er uppdráttur og benda örvarnar á
gömlu landamæri israels, eins og þau voru fyrir landvinningana I
Sinaieyðimörkinni og verða I framtfðinni, ef ísraelsmenn skila
henni aftur.
Á kvennaórinu
A þvi Drottins kvennaári, þegar konur hasla sér I æ meiri mæli
völl Istörfum, sem karlar voru einir um áður, afréð Danny Zezzo að
spyrna við fæti og reyna helzt að snúa þróuninni við.
Hann leggur nú stund á þá iöju að stökkva kviknakinn út úr tert-
um I kvennasamsætum og ásamt tveim vinum sinum, sem veita
þessa þjónustu með honum, hefur honum tekizt að gera úr þessu
blómlega atvinnugrein.
Þarna i Amerikunni hefur það hingað til fallið i hlut fegurðardisa
að gieðja karlmannsaugun I veizlum sterkara kynsins.
Frost á kaffiekrum
i Parana I Brazilíu gerði á
dögunum skyndilega frost, þeg-
ar menn áttu þess sizt von.
Eyðileggingaráhrif þess á kaffi-
ekrur Braziliumanna voru geig-
vænleg.
Parana er eitt mesta kaffi-
ræktarhérað Braziliu og ætla
menn, að frostið leiði til meira
en 50% samdráttar á kaffiupp-
skerunni 1976-77, að ekki sé
minnzt á hættuna á spjöllum á
ekrunum, sem leiði til erfiðleika
enn lengur. — Hafa þessi tiðindi
leitt til verðhækkunar á kaffi á
alþjóðlegum mörkuðum.