Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1946, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
525
ingu í Waldorf-Astoria hótelinu í
New York. Þangað er venjulega boð-
ið um 4000 manns. Blómin eru flutt
þangað með flugvjelum og á hverju
ári kemur Burpee með eitthvað nýtt,
sem keppinautar hans hafa ekki. Og
á sýningunni skýrir hann frá því
hvernig hann hafi farið að því að
framleiða hinar nýju blómategundir.
Eru frásagnir hans annálaðar, og
verða í hans munni að hreinustu æv-
intýrum og furðusögum, því að hann
kann vel að færa í stílinn. Skal hjer
nú sogð sagan af „Morgunfrúnni“
þótt hún sje ekki jafn „spennandi11
eins og þegar Burpee segir hana sjálf-
ur.
/
HANN hafði snemma komið auga
á það að „Morgunfrú“ væri likleg til
þess að verða mjög cftirsótt blóm, ef
hægt væri að losa hana við galla
hennar. En hann var sá, að á blöð-
unum voru smá olíusepar, sem fram-
leiddu vondan þef. Með þessum þef
varði blómið sig fyrir skorkvikindgm,
en hajjn varð aftur til þess að fólk
hafði ýmugust á því. Væri nú hægt
að framleiða „Morgunfrú“, sem var
laus við þennan galla, var enginn efi
á því, að fólk mundi sækjast mjög
eftir henni. Svo hugsaði Burpee. ög
hann hófst þegar handa. Hann þóttist
vita með vissu að einhvers staðar
sprytti „Morgunfrú“ sem væri laus
við þennan óþef. Og nú ljet hann
safna tegundum af þessu blómi víðs
vegar um heim, í Norður-Ameríku,
Suður-Ameríku, Evrópu, Asíu, Afríku
og Astralíu. Hann fjekk 642 tegundir.
Hann ræktaði hverja út af fyrir sig,
en allar höfðu þær hinn sama ókost,
það var vond lykt af þeim.
I>Á var það einn góðan veðurdag
að hann fjekk brjef frá trúboða, sem
hafði bækistöð sína á landamærum
Tibet. Trúboðinn skrifaði: „Hjer vex
„Morgunfrú“ sem Kínverjar nefna
„Stóru gullstjörnuna". Ef þjer send-
ið mjer 25 dollara, þá skal jeg senda
BLÓMAKÓNGURINN BURPEE
MARGIR kannast við hinn mikla
garðyrkjufrömuð Luther Burbank,
sem varð fyrstur manna til þess að
gera tilraunir með kynbætur á jarð-
argróðri. Hann andaðist árið 1926 og
ekkja hans seldi þá uppgötvanir hans
á þessu sviði, ásamt ótal tegundum
af allskonar fræi. Stark Brothers
Nurseries keyptu. Þetta firma hefir
fengist við kynbætur á alls konar
aldintrjám, og var í mun að tryggja
sjer reynslu Burbanks. En blóma-
fræin og leiðbeiningar um blómarækt,
seldi það svo aftur David Burpee,
sem þá þegar var orðinn einn af
hélstu forvígismönnum á sviði blóm-
jurta og nytjajurta.
Faðir Burpee hafði byrjað garð-
rækt er hann var 18 ára gamall. Hann
hafði þó fleira í takinu fyrst í stað,
en um 1880 sneri hann sjer aðallega
að blómarækt. Vakti hann þá athygii
á sjer með því, að lofa nýrri Singer
saumavjel í sölulaun hverjum þeim,
sem gæti selt 300 pakka af fræi.
David gekk á Cornell háskólann.
Hann kom heim í jólafríi sínu 1914,
en á meðan hann var heima veiktist
faðir hans. David ákvað þá að hætta
námi og taka við af föður sínum, og
er nú orðinn frægastur aMa garð-
yrkjumanna í Bandaríkjunum fjrrir
tilraunir sýnar og auglýsingar.
Á hverju ári heldur hann blómasýn-