Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1988, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1988, Blaðsíða 22
Þar sem þú nýtur þess að vera til Rétt fyrir innan Egilsstaðakaupstað, þar sem Eyvindará liðast milli skógivaxinna ása og vinalegra bergstalla, stendur bærinn Miðhús. Ferðablaðið rennir í hlað á Miðhúsum í glampandi sól og breiskjuhita. Það stirnir á bláa bylgjufalda Eyvindarár, vatnsm- ikla í hitanum og bjarkarlaufin handan árinnar. Áður en bíllinn varð aðalsamgöngutækið lágu reiðgötur um Miðhúsahlað til Seyð- isfjarðar og Eskifjarðar. Gamalt hús frá 1880 stendur á bæjar- hlaðinu — áður gistihús á Héraði. Þegar billinn tók við hlutverki hestsins breyttust leiðir og gistihúsið lagðist af. Nú er aftur haf- in þjónusta við ferðamenn — búið að reisa tvö sumarhús í hvöm- munum nálægt ánni og áætlun um að reisa fleiri. En aðalbúgrein- in á bænum er forn og þjóðleg, leiðir hugann að fornmönnum, er þeir sátu við sömu handiðn, skáru út listmuni í íslenskt birki til að gefa vinum og ættingjum. Hrókur í tafl Atla Dam Gaman er að fylgjast aðeins með útskurðinum hjá Halldóri Sigurðssyni, tréskurðarmeistara, og syni hans, Hlyni Halldórssyni. Halldór er að skera út lok á stokk er Seyðfirðingar ætla að gefa Sólvá, konu Atla Dam, lögmanns Færeyinga. Forláta hrókur stend- ur á borðinu, á stærð við útitafl- mann, en þessi gegnir öðru hlut- verki. Halldór segir slíka hróka vinsælar gjafir til þeirra er kunna að meta dýrar veigar — hrókurinn geymir leynihólf er rúmar vínflösku. Seyðfirðingar tefla fram hróknum til Atla Dam, sem vináttugjöf. Trésmíðaverkstæðið geymir marga fallega listmuni og með því að fletta gegnum mynda- safn feðganna sést að þeir hafa ekki setið auðum höndum. Flestir smíðagripirnir eru pantaðir löngu fyrirfram og biðlisti eftir þeim. Minjagripaverslun Minjagripaverslun fyrir ferða- menn hefur löngum verið draum- ur Halldórs, erfiður í framkvæmd. Verkstæðið myndi þá breytast úr pr. mann í 2ja manna herbergi. Morgunverður og alls kyns aðstaða innifalin. Eins manns herbergi kr. 2.990,- * Ef þú pantar samdægurs. y, A, " * , FLUGLEIDA /HT HÓTEL Áning íalfnraieið fjölskyldufyrirtæki í fyrirtæki með fjöldaframleiðslu og að- keyptu vinnuafli. Halldór segist ekki vita hvort hann vilji breyta núverandi atvinnuháttum, en hug- myndin er sannarlega freistandi þegar ferðamenn fara aftur að knýja dyra í Miðhúsum. Aðalsmerki útskornu gripanna En með hvaða útflúri eru list- munirnir skreyttir? Halldór segir að fornar skreytingar séu ríkjandi, en í gegnum margar skreytingar liðast goðsögn Héraðsins — sjálf- ur Lagarfljótsormurinn! Við reyn- um að hafa orminn sem okkar aðalsmerki, segir Halldór. Margir vilja heilla ferðamenn enn frekar til Austurlands með sögum af orminum, svipað og Skotar með sögum af skrímslinu í Lock Ness- vatni. Halldór er einn af fáum er hafa séð orminn með eigin augum! Trúir á orminn! Það er erfitt að lýsa honum-, segir Halldór. Það var síðsumars, eftir Hallormsstaðarhátíð að við feðgar gistum hjá Sigurði Blönd- al, skógarverði. Við vorum háttað- ir, þegar Sigurður knúði dyra og leiddi okkur að glugganum til að horfa á fyrirbærið úti á fljóti. Og þarna lá hann og bylti sér í vatns- skorpunni. Við horfðum góða stund á hann, nægilega langa til að sannfærast fyllilega um tilvist hans. Eg er viss um að margir hérna hafa séð hann og undir niðri virða allir tilveru hans. Ótti við fljótið Veitið því athygli hvernig stað- arfólk umgengst fljótið! Mikið veiðist, en bátar við bakka Lagar- fljóts finnast yfirleitt ekki. Oft er vatnsborðið lygnt, en 'siglingar ekki stundaðar. Isinn á vatninu er oft tilvalinn til skautaiðkana, en hér er ekki skautað. Vissulega eru hættulegar vakir, sem aldrei frjósa, en kunnugt fólk veit hvar þær er að finna, eitthvað meira kemur hér til. Golfvöllur á túni kaffihús í gömlu gisti- heimili Edda Björnsdóttir, kona Hlyns Bæjarhrauni 4 - Sími 652220. 22

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.